Morgunblaðið - 11.01.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 9. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
1. tbl. 3. árg. 2003
3. tbl. komi›
á bla›sölusta›i
Tro›fullt af efni
Áskrift á www.flugid.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
FULLTRÚAR í óopinberri, banda-
rískri nefnd heimsóttu fyrr í vikunni
norður-kóreska kjarnorkuverið í
Yongbyon, að því er greint var frá í
gær. Var þetta í fyrsta sinn sem út-
lendingar hafa fengið að skoða verið
síðan eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) voru reknir þaðan fyrir
um það bil ári.
„Við fórum til Yongbyon,“ sagði
John Lewis, eftirlaunaprófessor við
Stanford-háskóla í Kaliforníu, við
fréttamenn á flugvellinum í Peking í
gær þegar hann kom ásamt fjórum
öðrum Bandaríkjamönnum úr fimm
daga ferð til Norður-Kóreu. Þarlend
stjórnvöld hafa greint frá því að í
Yongbyon sé verið að endurvinna
notað kjarnorkueldsneyti, í því
augnamiði að smíða kjarnorku-
sprengju.
Bandarísku nefndarmennirnir
sögðust í gær ekki vilja greina frá
því hvers þeir hefðu orðið vísari í
kjarnorkuverinu fyrr en þeir hefðu
gefið bandarískum stjórnvöldum
skýrslu. Lewis sagði þó, að þeir
hefðu fengið að skoða allt sem þeir
hefðu beðið um að fá að sjá. Banda-
ríkjamenn telja að N-Kóreumenn
eigi þegar nokkrar kjarnorku-
sprengjur og geti framleitt fleiri með
skömmum fyrirvara.
KCNA, ríkisfréttastofa N-Kóreu,
sagði í gær að bandarískum sendi-
fulltrúum hefði verið kynntur
„kjarnorkufælingarmáttur“ N-Kór-
eu, en ekki var útskýrt nánar hvað í
því fælist.
Bandaríkjamenn til Yongbyon
Peking. AFP, AP.
STÚLKNASVEITIN Sugababes heldur
hljómleika hér á landi 8. apríl í Laugardals-
höll. Sveitin þykir ein besta – og framsækn-
asta – poppsveit samtímans en hún er skipuð
kornungum stúlkum sem reka sveitina upp á
sitt eindæmi sem þykir sjaldgæft í poppveru-
leika nútímans. Sveitin hefur gefið út þrjár
plötur sem selst hafa í milljónum eintaka,
unnið til fjölda verðlauna og átt toppsmelli
bæði austan hafs og vestan./74
Sugababes koma
ARNOLD Schwarzenegger,
ríkisstjóri í Kaliforníu, hefur
lagt fram 99 milljarða dollara
fjárlagafrumvarp þar sem m.a.
er kveðið á um mikinn nið-
urskurð á framkvæmdum sem
koma fátækustu íbúum ríkisins
til góða. Einnig er ætlunin að hækka skóla-
gjöld í opinberum háskólum.
Hinn nýkjörni ríkisstjóri kvaðst hafa
neyðst til að skera útgjöld verulega niður
þar sem útlit hefði verið fyrir 12 til 14 millj-
arða dollara halla á þessu ári.
Schwarzenegger
leggur fram fjárlög
San Francisco. AFP.
PAUL O’Neill,
fyrrverandi fjár-
málaráðherra í
ríkisstjórn George
W. Bush Banda-
ríkjaforseta, dreg-
ur upp heldur nei-
kvæða mynd af
forsetanum í viðtali sem CBS-
sjónvarpsstöðin sýnir í dag, og
breska ríkisútvarpið, BBC, greindi
frá í gær. Segir O’Neill að forsetinn
sé tómlátur, og á ríkisstjórn-
arfundum sé hann sem „blindur
maður í hópi heyrnardaufra“.
O’Neill var fjármálaráðherra í
um það bil tvö ár, en var þá vikið úr
embætti, eftir að hann dró í efa
nauðsyn ýmissa skattalækkana sem
Bush gekkst fyrir. Í viðtalinu í dag
lýsir O’Neill fyrsta fundi sínum
með Bush þannig, að forsetinn hafi
sagt lítið, helst viljað vera í hlut-
verki áheyranda. Því hafi fund-
urinn orðið að mestu einræða
O’Neills sjálfs. „Ég kom til fund-
arins með langan lista af atriðum
sem ég vildi ræða við [forsetann],“
sagði O’Neill um fyrsta fundinn.
Fálæti forsetans hefði komið sér á
óvart. Á ríkisstjórnarfundum hafi
farið lítið fyrir eiginlegum sam-
ræðum við forsetann, sem hafi virst
tómlátur.
Að sögn fréttaritara BBC í Wash-
ington hefur forsetaembættið ekki
viljað svara ummælum O’Neills.
Bush sem
„blindur“
ÍSLENSKIR sprengjusérfræðingar
í Írak fundu á föstudag sprengikúlur
sem innihéldu sinnepsgas, að því er
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra tjáði Morgunblaðinu í gær.
Hefðu danskir og breskir sérfræð-
ingar staðfest þessa efnagreiningu
við utanríkisráðuneytið, en nákvæm-
ari greining fengist þegar efnið hefði
verið rannsakað í bandarískri efna-
rannsóknarstofu sem verið er að
flytja á staðinn. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins getur sú grein-
ing tekið tvo til þrjá daga.
Þetta er í fyrsta sinn sem efna-
vopn finnast í Írak, en það var meint
efna-, lífefna- og kjarnavopnaeign
Íraka sem var helsta ástæða þess að
ráðist var inn í landið. Hefur slíkra
vopna verið leitað án árangurs síðan.
„Ég tel að hér sé um að ræða heims-
atburð,“ sagði Halldór í samtali við
Morgunblaðið. „Ég er stoltur og
þakklátur íslensku sérfræðingunum
fyrir þeirra stóra þátt í þessu máli.“
Í fréttatilkynningu sem utanríkis-
ráðuneytið sendi frá sér síðdegis í
gær sagði að tveir sprengjusérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar, sem
starfa á vegum Íslensku friðargæsl-
unnar í suðurhluta Íraks, við hlið
danskra hermanna, hefðu fundið
„verulegt magn“ af sprengjuvörpu-
kúlum, að því er segir í tilkynningu
ráðuneytisins, og var torkennilegur
vökvi í kúlunum. Hefðu kúlurnar
verið faldar í uppbyggingu á vegar-
spotta.
Íslensku sérfræðingarnir voru
kallaðir á vettvang skammt frá borg-
inni Basra við Tígrisfljót til að gera
óvirkar sprengjur sem þar höfðu
fundist. Utanríkisráðuneytið segir
að við frekari rannsókn sérfræðing-
anna hefðu komið í ljós talsverður
fjöldi af sprengjuvörpukúlum, og
hefðu fyrstu mælingar bent til að
hleðslurnar í kúlunum væru ekki af
hefðbundinni gerð.
Danskir sprengjusérfræðingar
hefðu staðfest þessa frumniðurstöð-
ur Íslendinganna og síðan verið kall-
að á breska sérfræðinga til að gera
enn frekari mælingar. Þá hefðiverið
ákveðið að senda á staðinn færan-
lega, bandaríska efnarannsóknar-
stöð.
Ljósmynd/Danski herinn
Kúlurnar voru faldar í uppbygg-
ingu á vegarspotta.
Íslenskir sprengjusérfræð-
ingar finna sinnepsgas í Írak
Fyrsti efnavopnafundurinn í Írak heimsatburður, segir Halldór Ásgrímsson
Ljósmynd/Danski herinn
Sprengjuvörpukúlurnar sem fund-
ust innihalda torkennilegan vökva.
ANDRIAN King og Jónas Þorvaldsson, sprengju-
sérfræðingar Landhelgisgæslunnar, að störfum í
Írak. Þeir starfa á vegum Íslensku friðargæslunn-
ar í suðurhluta landsins, við hlið dansks herliðs, og
fundu á föstudag verulegt magn af sprengjuvörpu-
kúlum.
Íslensku sprengjusérfræðingarnir
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
SÍÐARI ÚTGÁFA