Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 35
undanfarin ár. Mér finnst núna þegar
ég reyni að rifja upp kynni mín af afa
að ég hefði alltaf átt að hafa stílabók
og penna við höndina. Hann var bara
svo skemmtilegur og merkilegur
maður. Hann endursagði seinni
heimsstyrjöldina á Íslandi eins og
það hefði gerst í gær. Hann var sögu-
maður af guðs náð þannig að í hug-
skoti manns opnaðist heill heimur af
herskipum, drukknum amerískum
hermönnum, illa gerðum malarveg-
um, dimmum bröggum og súru hval-
kjöti.
Við braggana í Hvalfirði lék ég mér
í gamla daga og fór oft á skrifstofuna
til afa í heimsókn því að hann tók allt-
af vel á móti mér. Þar kenndi hann
mér bestu leiðina að pressa peninga
inni í mannhæðarháum peningaskáp.
Svo ef hann þurfti að fá vinnufrið
sendi hann mig í leiðangra. Skemmti-
legasti leiðangurinn var þegar hann
lét mig fá smápeninga og sendi mig í
spilakassann og ef einhver gróði kom
úr því þá átti ég að skila því til hans
og fékk þóknun í staðinn.
Loksins þegar maður var kominn á
fullorðinsárin breyttist viðmót hans
til manns yfir í mikla virðingu. Ég
man eftir fyrsta skiptinu sem hann
bauð mér inn á skrifstofu til sín þar
sem hann bauð mér upp á fyrsta
staupið. Þar sagði hann mér ýmsar
sögur sem seint gleymast og kvaddi
mann svo með þúsundkalli á leiðinni
út en aldrei fyrir framan ömmu „ekki
segja ömmu þinni,“ hvíslaði hann að
manni og brosti.
Ég mun sakna afa mikið og tel það
forréttindi að hafa átt samleið með
honum. Þó svo að ég syrgi fráfall
hans afa þá fagna ég því lífi sem hann
lifði og þau forréttindi að hafa fengið
að taka þátt í því. Bless, afi minn,
bless, afi Magnús.
Hákon Skúlason.
Í hugann koma hugljúfar minning-
ar um afa minn Magnús Maríasson,
er lést á dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi hinn 12. þ.m.
Þegar ég var lítill bjuggu amma
Hulda og afi Magnús í einu stærsta
íbúðarhúsi á Íslandi í Æsufelli 2 í
Breiðholti og fór ég reglulega í heim-
sókn þangað, oft með ömmu Bryndísi
og afa Guðmundi.
Ég man hvað ég var stoltur af því
að rata um þetta stóra hús, þegar afi
Guðmundur þóttist ekki vita hvert
ætti að fara leiddi ég hann í lyftuna og
með henni fórum við upp á 9. hæð, en
síðan var gengið upp einn stiga á 10.
hæð. Það var svo fallegt heima hjá
ömmu Huldu og afa Magnúsi. Amma
Hulda var alltaf fljót að slá upp veislu,
en stundum sendi hún afa Magnús út
í bakarí og fékk ég þá að fara með. Afi
keyrði þá bíl kominn á níræðisaldur,
alltaf hress og kátur. Gaman þótti
mér að sitja inni á skrifstofu hans og
skoða alla þá hluti sem þar voru. Mér
finnst gott að eiga þessar minningar
um hann afa minn.
Guð blessi minningu afa Magnús-
ar.
Guðmundur Kári Skúlason.
Fleiri minningargreinar
um Magnús Maríasson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RÓSA INGIBJÖRG JAFETSDÓTTIR,
Erluhrauni 6,
Hafnarfirði,
sem andaðist þriðjudaginn 13. janúar, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag-
inn 21. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Kristján Þ.G. Jónsson, Sigríður G. Jónsdóttir,
Brynhildur R. Jónsdóttir, Guðmundur S. Halldórsson,
Kristín Jónsdóttir, Heimir Ólafsson,
Steinunn G. Jónsdóttir, B. Jens Guðbjörnsson,
Sigurður Jónsson, Brynhildur Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir,
SIGRÚN SVEINSDÓTTIR,
(Stella),
Grundargerði 14,
Reykjavík,
sem lést á Landspítala, Fossvogi, föstudaginn
16. janúar sl., verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinn-
ar látnu, er bent á Þroskahjálp, sími 588 9390.
Jón Jósteinsson,
Karen Jónsdóttir, Tómas Jón Brandsson,
Sveinn Jónsson, Judy Wesley,
Sólmundur Jónsson, Ingigerður Arnardóttir,
Guðni Jónsson, Dagný Ragnarsdóttir,
Drífa Björk Jónsdóttir
og afkomendur.
Einlægar þakkir sendum við öllum sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
ÓLAFS JENSSONAR
verkfræðings.
Einnig þökkum við læknum og öðru starfsfólki
sem annaðist hann á Landspítala, Fossvogi.
Margrét Ólafsdóttir,
Björg E. Smidt og fjölskylda,
Ari Ólafsson og fjölskylda.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, er
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar móður minnar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU DAVÍÐSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheim-
ilisins Sunnuhlíðar.
Sigrún Guðnadóttir, Tyrfingur Sigurðsson,
Guðni Tyrfingsson, Auður Alfreðsdóttir,
Sigurður Tyrfingsson,
Þórunn Tyrfingsdóttir, Jóhann Dalberg Sverrisson
og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ADOLF F. WENDEL,
Kirkjubraut 12,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Kristskirkju Landakoti
miðvikudaginn 21. janúar kl. 13.30.
Sólveig Wendel Sharrett, Michael Sharrett,
Friðrik Wendel, Ásta Richter,
María Björk Wendel Helgi S. Þorsteinsson,
Jón Sverris Wendel, Jóhanna Eiríksdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Skúlagötu 40,
áður til heimilis
í Barmahlíð 54, Reykjavík,
sem andaðist miðvikudaginn 14. janúar, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
23. janúar og hefst athöfnin kl. 13.30.
Margrét Guðlaugsdóttir, Friðgeir Björnsson,
Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnarsson,
Guðmunda Hr. Guðlaugsdóttir, Hulda Margrét Erlingsdóttir,
Kristín Friðgeirsdóttir, Björgvin Skúli Sigurðsson,
Guðlaug Friðgeirsdóttir, Morten Findstrøm.
Faðir minn, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og
frændi,
SVEINN BERGMANN HALLGRÍMSSON
(Dússi),
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 22. janúar kl. 13.30.
Inga Anna Bergmann, Harjit Delay,
Perla Rún, Birta Sól og Kai,
Kristín Th. Hallgrímsdóttir, Helgi Már Alfreðsson,
Hallgrímur S. Hallgrímsson,
Gísli Hallgrímsson, Hrefna Andrésdóttir,
Gunnar Hallgrímsson,
Helga Hallgrímsdóttir, Júlíus Aðalsteinsson,
Guðrún Hallgrímsdóttir, Alfreð Hafsteinsson,
Ásgeir Hallgrímsson, Rósa Martinsdóttir
og frændsystkini hins látna.
Bróðir okkar,
BIRGIR SIGURÐSSON,
Brimnesbraut 7,
Dalvík,
sem andaðist fimmtudaginn 15. janúar sl.,
verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju föstu-
daginn 23. janúar kl. 13.30.
Systkini hins látna.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR VALGEIR SVERRISSON,
Víðihlíð,
áður til heimilis
á Sunnubraut 4, Grindavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, laugardaginn 17. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðmundur Sv. Ólafsson, Guðmunda Jónsdóttir,
Arnþrúður S. Ólafsdóttir, Tryggvi Leósson,
Einar Jón Ólafsson,
Jósef Kr. Ólafsson, Hildur Guðmundsdóttir,
Sigurður Ólafsson, Sigríður Ágústsdóttir,
Arnar Ólafsson, Kolbrún Pálsdóttir,
Valborg Anna Ólafsdóttir, Elías Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
FRIÐRIK BJÖRNSSON,
Suðurgötu 22,
Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugar-
daginn 17. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þórhildur Sigurðardóttir,
Steinunn Friðriksdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson,
Sigurður Friðriksson, Sólrún Bragadóttir,
Þorbjörg Friðriksdóttir, Rúnar Þórarinsson,
Jón Friðriksson, Alma Jónsdóttir,
Friðrik Þór Friðriksson, Marta Eiríksdóttir,
Fanney Friðriksdóttir,
Heiður Huld Friðriksdóttir, Eiður Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.