Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 45 FÓLK  SARA Jónsdóttir og Ragna Ing- ólfsdóttir féllu úr leik í annarri umferð alþjóðlega sænska mótsins í badminton um helgina. Þær unnu fyrsta leikinn, töpuðu næst fyrir rússneskum stúlkum sem síðan töpuðu fyrir pólskum stúlkum. Þær léku síðan til úrslita í mótinu.  ERNIE Els varði titil sinn á Opna Sony golfmótinu á Hawaii um helgina, lék á 18 höggum undir pari vallarins og hafði síðan betur í bráðabana við Harrison Frazar. Þetta er í fyrsta sinn sem einhver sigrar tvö ár í röð á þessu móti sem haldið hefur verið í sautján ár.  STUTTGART og Schalke eru á höttunum eftir þýska landsliðs- manninum Dietmar Hamann sem er samningsbundinn Liverpool til ársins 2005. Felix Magath, þjálfari Stuttgart, vill fá Hamann til að leysa Króatann Zvonomir Soldo sem hættir eftir tímabilið.  SIGURBJÖRG Ólafsdóttir úr Breiðabliki bætti stúlkna- og ung- lingametið í 60 metra hlaupi á fyrsta stigamóti Breiðabliks í frjálsum íþróttum sem fram fór í Fífunni um nýliðna helgi. Sigur- björg hljóp vegalengdina á 7,66 sek. en gamla metið var 7,71 sek. í stúlknaflokki og 7,67 í unglinga- flokki. Þá jafnaði Sigurbjörg met- ið í flokki 21–22 ára sem Silja Úlf- arsdóttir í FH setti í síðasta mánuði.  SUNNA Gestsdóttir, UMSS, náði góðum árangri í langstökki en hún stökk 6,11 metra og var aðeins 17 cm frá Íslandsmeti sínu.  JÓN Arnar Magnússon, Breiða- bliki, sigraði í langstökki og kúlu- varpi. Hann stökk 7,19 metra í langstökki og varpaði kúlunni 16,07 metra.  ARSENAL hefur samþykkt að framlengja lánssamning Jermaine Pennant við Leeds í einn mánuð til viðbótar.  ZINEDINE Zidane, franski landsliðsmaðurinn hjá Real Ma- drid, meiddist á fæti í leik liðsins gegn Real Betis á sunnudaginn og verður hann frá keppni í tvær vik- ur. Það verður til þess að hann missir af þýðingarmiklum undan- úrslitaleik í bikarkeppninni á Spáni – gegn Valencia.  SANTIAGO Solari frá Argent- ínu mun taka stöðu Zidane. „Það er mikill heiður fyrir mig að taka stöðu leikmanns eins og Zidane, sem er besti knattspyrnumaður heims,“ sagði Solari.  ÞAÐ er mikil blóðtaka fyrir Real að missa Zidane frá í tvær vikur, en liðið hefur leikið án Dav- id Beckham, fyrirliða Englands, sem hefur verið meiddur. Vonast er eftir að hann verði orðinn góður fyrir viðureignina við Valencia í bikarkeppninni. FRANK von Behren, handknattleiksmaðurinn snjalli frá Gum- mersbach, hefur dregið sig út úr landsliðshópi Þjóðverja fyrir Evrópukeppnina sem hefst í Slóveníu á fimmtudaginn. Von Behr- en, sem er 27 ára og hefur verið fyrirliði liðsins, hefur verið meiddur meira og minna í vetur. Hann tók þó þátt í lokaundirbún- ingi Þjóðverja fyrir EM en taldi sig ekki tilbúinn í slaginn þegar á reyndi – ekki vera í nægilegri leikæfingu. „Ég fann það á æfingum með landsliðinu að ég gæti ekki sinnt mínu hlutverki sem skyldi. Ég vil ekki vera með nema ég geti gert það af fullum krafti,“ sagði von Behren þegar hann tilkynnti ákvörðun sína. Heiner Brand, landsliðsþjálfari, kvaðst mjög vonsvikinn og sagði að von Behren hefði getað spilað varnarleik liðsins af fullum krafti. Þetta er áfall fyrir Þjóðverja sem einnig verða án hornamanns- ins öfluga frá Magdeburg, Stefans Kretzschmars, í Slóveníu. Þýska handknattleikssambandið tilkynnti á laugardaginn að það væri endanlega útséð um að Kretzschmar myndi ekki ná sér í tæka tíð en hann gekkst undir aðgerð á nára 6. janúar sl. Brand hefur lýst því yfir að ekki sé hægt að fylla skarð Kretzschmars í liðinu, svo mikilvægur sé hann því. Þjóðverjar mæta Íslendingum í milliriðli á EM, svo framarlega sem báðar þjóðirnar komast áfram úr forriðlunum. Von Behren ekki með Þjóðverjum á EM Frank von Behren í leik með Þjóðverjum. ÞAÐ hefur reynst íslenska lands- liðinu í handknattleik gott vega- nesti að leggja Egyptaland að velli fyrir stórmót á síðustu árum. Fyr- ir Evrópukeppnina í Svíþjóð 2002 fögnuðu Íslendingar sigri á Egypt- um á móti í Danmörku, 21:20. Ís- land hafnaði í fjórða sæti á EM og tryggði sér þar með rétt til að leika á EM í Slóveníu. Fyrir keppnina í Svíþjóð lék landsliðið sjö landsleiki, vann þrjá, gerði tvö jafntefli og tapaði tveim- ur. Fyrir heimsmeistarakeppnina í Portúgal 2003 voru Egyptar lagð- ir að velli á móti í Danmörku, 35:25. Ísland hafnaði í sjöunda sæti á HM og tryggði sér rétt til að leika á Ólympíuleikunum í Aþenu. Fyrir keppnina í Portúgal lék íslenska landsliðið sjö landsleiki, vann þrjá, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur. Nú fyrir EM í Slóveníu hefur landsliðið leikið sex landsleiki, unnið fjóra en tapað tveimur. Egyptar voru lagðir að velli í móti í Danmörku, 29:27. Sigur á Egyptum gott veganesti Það var mikið áfall fyrir Svíaþegar þeir náðu ekki að tryggja sér ÓL-farseðil á heims- meistaramótinu í Portúgal fyrir ári síðan. Átta Evrópuþjóðir hafa tryggt sér ÓL-sæti – gestgjafarnir frá Grikklandi og sjö efstu þjóð- irnar á HM í Portúgal – Króatía, Þýskaland, Frakkland, Spánn, Rússland, Ungverjaland og Ísland. Brasilía kemur frá Ameríku, Egyptaland frá Afríku og Suður- Kórea frá Asíu. Erfiður róður í Slóveníu Svíar segja að róðurinn verði erf- iður í Slóveníu, þar sem þeir keppa við landslið Danmörku, Portúgals, Slóveníu, Serbíu/Svartfjallalands, ásamt Úkraínu, Sviss, Tékklands og Póllands um eina lausa sætið á ÓL. „Þó að við höfum verið sigursælir á Evrópumótum fram til þessa, akiprir það ekki máli í Slóveníu,“ sagði Johansson, sem óttast mest Dani og Serbíumenn í baráttunni um Ólympíufarseðilinn. Bengt segir að Danir hafi marga léttleikandi leikmenn í herbúðum sínum og þegar þeir ná sér á strik þá leika þeir handknattleik eins og hann gerist bestur. „Danir ætla sér einnig Ólympíu- farseðil, þannig að það verður hart barist um farseðilinn. Það má held- ur ekki afskrifa Serba, sem tefla fram mörgum reyndum leikmönn- um – eins og einum besta línumanni heima, sem er Dragan Skrbic. Þeg- ar Serbar ná sér á strik eru þeir óútreiknanlegir,“ sagði Johansson. Bengt Johansson vantar Ólympíu- gull í glæsilegt verðlaunasafn sitt Svíar ætla sér á ÓL í Aþenu BENGT Johansson, landsliðs- þjálfari Svía, hugsar aðeins um eitt þegar hann heldur með fylkingu sína á Evr- ópumótið í Slóveníu – það er að hans menn tryggi sér síð- asta farseðilinn sem er eftir í boði á Ólympíuleikana í Aþenu. Þessi sigursæli þjálf- ari, sem hefur stýrt sínum mönnum til sigurs á heims- meistaramótum og Evr- ópumótum, vantar aðeins eitt í glæsilegt verðlaunasafn sitt – Ólympíugull. Til þess að draumurinn um ÓL-gullið ræt- ist, verða Svíar að tryggja sér farseðil til Aþenu í Slóveníu. Svíar hafa hefðina með sér – hafa fagnað sigri í fjórum að fimm Evrópukeppnum, sem hafa farið fram. Thommy Nyhln / SCANPIX Magnus Wislander er kom- inn fram hjá Rúnari Sig- tryggssyni og skorar í leik í Malmö á föstudaginn, sem Svíar unnu 29:28. SLÓVENAR, mótherjar Íslendinga í fyrstu um- ferð Evrópukeppninnar á heimavelli þeirra á fimmtudaginn, sigruðu Pólverja tvívegis í æf- ingaleikjum um helgina og lögðu þar með loka- hönd á undirbúning sinn fyrir keppnina. Leik- irnir fóru báðir fram í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu. Slóvenar höfðu mikla yfirburði í fyrri leiknum á laugardaginn og sigr- uðu, 33:24, eftir að stað- an var 18:10 í hálfleik. Þar skoruðu Andrej Kastelic frá Prule Ljubljana og Roman Pungartnik frá Kiel 5 mörk hvor fyrir Sló- vena, Ivan Simonovic frá París SG gerði 4 og þeir Ognjen Backovic frá Prule, Renato Vugr- inec frá Celje og Tomaz Tomsic frá Ivry í Frakk- landi gerðu 3 mörk hver. Stórskyttan há- vaxna Karol Bielecki skoraði 7 mörk fyrir Pólverja en þrjú þúsund áhorfendur sáu leikinn. Þegar liðin mættust aftur á sunnudag var um mun jafnari við- ureign að ræða. Pólverj- ar voru yfir í hálfleik, 15:12, en Slóvenar sneru leiknum sér í hag og sigruðu, 31:29. Þar skor- aði Vugrinec 6 mörk fyrir Slóvena og Simon- ovic 5, og þá skoruðu þeir Vid Kavticnik frá Gorenje, Zoran Lubej frá París SG og Seba- stjan Sovic frá Gorenje 4 mörk hver. Þann leik sáu 1.400 áhorfendur. Mjög hljótt hefur far- ið um undirbúning Slóv- ena fyrir keppnina og þeir hafa haldið sig á heimaslóðum allan tím- ann. Slóvenar sigruðu Pólverja tvívegis DÓMARANEFND Al- þjóða knattspyrnu- sambandsins, FIFA, hef- ur staðfest nöfn íslenskra milliríkjadómara í knatt- spyrnu fyrir árið 2004. Akureyringurinn Jó- hannes Valgeirsson er nýr á FIFA-listanum og kemur hann í stað Braga Bermanns, sem náði há- marksaldri FIFA-dómara á síðasta ári. Þá kemur Ingvar Guð- jónsson, Reykjavík, nýr inn á listann sem FIFA- aðstoðardómari í stað Einars Guðmundssonar sem komst á aldur á síð- asta ári. FIFA-dómararnir eru: Egill Már Markússon Gylfi Þór Orrason Jóhannes Valgeirsson Kristinn Jakobsson FIFA-aðstoðardóm arar: Einar Sigurðsson Eyjólfur Finnsson Guðmundur H. Jónsson Gunnar Gylfason Ingvar Guðfinnsson Pjetur Sigurðsson Sigurður Þór Þórsson Jóhannes FIFA-dómari í stað Braga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.