Morgunblaðið - 31.01.2004, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2004 13
verið rætt um sameiningu fréttastofa
Norðurljósasamstæðunnar og slíkt sé
ekki á döfinni.
Hjá ÍÚ starfa á þriðja hundrað
manns og áætluð velta félagsins í ár
er 3,5 milljarðar króna.
Í stjórn ÍÚ eru Baltasar Kormák-
ur, Davíð Scheving Thorsteinsson,
Hanna Katrín Friðriksson, Pálmi
Haraldsson og Skarphéðinn Berg
Steinarsson.
Að sögn Sigurðar er stefnt að því
að hefja stafrænar sjónvarpsútsend-
ingar á Faxaflóasvæðinu á afmælis-
degi ÍÚ hinn 9. október næstkom-
andi.
Gunnar Smári Egilsson, útgefandi
Fréttar, segir að ekki muni verða
breytingar á starfsemi Fréttar þrátt
fyrir sameiningu við Norðurljós.
Áætluð velta Fréttar í ár er 2,1 millj-
arður króna. Í stjórn Fréttar eru:
Árni Hauksson, Einar Þór Sverris-
son, Jón Ásgeir Jóhannesson, Ragnar
Tómasson og Skarphéðinn Berg
Steinarsson.
Að sögn Ragnars Birgissonar,
framkvæmdastjóra Skífunnar, verða
miklar breytingar á Skífunni með inn-
komu verslunarsviðs Tæknivals. Þar
koma inn 7 BT-verslanir, 3 Office 1
verslanir og eitt Sony Center. Velta
Skífunnar muni tvöfaldast og er áætl-
að að velta Skífunnar í ár verði 4,5
milljarðar króna. Starfsmenn verða
260 talsins. Ragnar segir að Skífan
muni einbeita sér að afþreyingariðn-
aðinum en Skífan verður með um 85%
markaðshlutdeild í tónlist og tölvu-
leikjasölu á Íslandi eftir breytingarn-
ar, að sögn Ragnars.
Skífan seld ef réttur
kaupandi finnst
Í stjórn Skífunnar eru Almar Örn
Hilmarsson, Davíð Scheving Thor-
steinsson, Kristín Jóhannesdóttir,
Pálmi Haraldsson og Skarphéðinn
Berg Steinarsson.
Aðspurður segir Skarphéðinn fylli-
lega geta komið til greina að selja
Skífuna út úr Norðurljósasamstæð-
unni ef einhver kaupandi gefur sig
fram og er tilbúinn að greiða það fyrir
Skífuna sem Norðurljós telja eðlilegt
verð fyrir fyrirtækið.
! ! #$! %"
&'()&
&
&*
+ ,-,
, .
-
/
'0 )% 0231
&
45
& %
67
+ $ "
7,
&,"3! 8
."
-$
"9!8
:"" ;$
& 8, &*
. &/<$ $
&.,
=$
,
! " #
$
%
&%
'$
' &#&(
)
* #+
' &#&(
SIGRÍÐUR Árnadóttir, vara-
fréttastjóri fréttastofu Útvarps, tek-
ur við starfi fréttastjóra Stöðvar 2 og
Bylgjunnar á morgun, sunnudag.
Hún segir að sér
lítist vel á nýja
starfið. „Það er
eitthvað sem seg-
ir mér að þetta
verði spennandi
og skemmtilegt,“
segir hún og
kveðst hlakka til
að takast á við
hið nýja starf.
Innt eftir því
hvort hún komi
til með að breyta útsendingartíma
frétta Stöðvar 2 segir Sigríður að of
snemmt sé að segja til um það.
„Þetta verður örugglega rætt – það
er engin spurning. Áhorf hrapaði
þegar fréttatíminn var fluttur.“ Eins
og kunnugt er var fréttatíminn færð-
ur til kl. 19, í september sl., eða á
sama tíma og aðalfréttatími Sjón-
varpsins. Sigríður segir að hún þurfi
auðvitað að heyra rökin fyrir því að
fréttirnar voru fluttar og bætir við:
„Takmark mitt hlýtur að vera að
fleiri horfi á fréttir Stöðvar 2 en nú.“
Hverfur af RÚV í fullri sátt
Aðspurð segir Sigríður að ekki
séu fyrirsjáanlegar neinar breyt-
ingar á mannahaldi fréttastofunnar
en það eigi þó eftir að ræða. „Helst
vildi ég efla hana og bæta við fólki en
það er ekki komið á hreint frekar en
fréttatíminn. Þetta eru hlutir sem ég
þarf að ræða við aðra hér innan-
húss.“
Sigríður hefur verið fréttamaður í
fullu starfi hjá Ríkisútvarpinu í 20 ár
en hún hóf störf hjá RÚV fyrir 29 ár-
um. Hefur hún verið varafréttastjóri
Útvarpsins nokkur síðustu ár. Hún
sótti um stöðu fréttastjóra Sjónvarps
haustið 2002 og hlaut fjögur atkvæði
í útvarpsráði þegar fjallað var um
ráðninguna. Elín Hirst, sem þá var
varafréttastjóri Sjónvarpsins, hlaut
þrjú atkvæði. Lokaákvörðun um
ráðninguna var hins vegar í höndum
útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Ant-
onssonar, og réð hann Elínu Hirst.
Aðspurð segir Sigríður að sú nið-
urstaða tengist á engan hátt þeirri
ákvörðun að hverfa af fréttastofu
Útvarpsins og yfir á Stöð 2.
Sigríður segir að vissulega hverfi
hún af Ríkisútvarpinu með mikilli
eftirsjá. Tilhlökkun vegna nýja
starfsins sé þó eftirsjánni yfirsterk-
ari. „Ég átti góð ár hjá Ríkisútvarp-
inu og hverf þaðan í fullri sátt við
mitt fólk. En auðvitað sakna ég
fólksins sem ég vann með og þar á ég
marga góða vini.“
Hún segir að hjá RÚV hafi hún afl-
að sér ómetanlegrar reynslu og er
henni efst í huga þakklæti til læri-
móður sinnar Margrétar Indr-
iðadóttur fréttastjóra. „Ég lærði
mikið af henni. Og það var mann-
eskja sem stóð alltaf vörð um sjálf-
stæði fréttastofunnar. Það er gott
veganesti á hinum nýja stað.“
Sigríður Árnadóttir ráðin fréttastjóri
Stöðvar 2 og Bylgjunnar
Vill auka áhorf á
fréttir Stöðvar 2
Sigríður
Árnadóttir
guna@mbl.is
&
!"!
#
$
%
&
'&
# !
""
" ()"
',-, .)
>>