Morgunblaðið - 04.02.2004, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ætlarðu að biðjast afsökunar, eða viltu að ég fari að syngja?
Hádegisfundur SÍNE í Norræna húsinu
Staðan er ekki
nógu góð í dag
Samtök íslenskranámsmanna er-lendis gangast fyrir
hádegisfundi í Norræna
húsinu í dag og hefst hann
eðli málsins samkvæmt
klukkan 12. Fundinum er
ætlað að vekja athygli á
samtökunum og þeim
vanda sem að þeim steðj-
ar. Morgunblaðið ræddi
um fundinn við Heiði
Reynisdóttur, fram-
kvæmdastjóra SÍNE.
– Hvert er tilefni fund-
arins og hvert verður efni
hans?
„Tilefni fundarins er að
koma af stað almennri
umræðu um gildi náms
erlendis, mikilvægi þess
fyrir þjóðfélagið og þá
reynslu sem námsmenn
afla sér með slíku námi. Við lítum
á það sem hluta af starfi SÍNE
sem hagsmunafélag námsmanna
erlendis að vekja athygli á þess-
um möguleika fyrir þá sem eiga
þess kost að mennta sig erlendis.
Það umhverfi sem stjórnvöld
skapa námsmönnum erlendis,
t.a.m. með stjórntæki eins og
Lánasjóði íslenskra námsmanna,
þyrfti hins vegar að breytast
nokkuð svo Íslendingar upplifi
nám erlendis ekki sem hindrun
þegar kemur að námsvali. Helstu
hindranir í dag eru gengisáhætta
námsmanna, sem SÍNE vill al-
farið afnema, þar sem fjárhags-
legt öryggi þarf að vera tryggt
hjá námsmönnum eins og öðrum
í þjóðfélaginu. Þá telur SÍNE að
námsmenn eigi ekki að þurfa að
greiða af námslánum með náms-
lánum, en í dag þurfa flestir sem
koma af vinnumarkaði að greiða
2–3 greiðslur af lánum sínum eft-
ir að nám hefst að nýju. Í þriðja
lagi telur SÍNE brýnt að tekju-
viðmið sjóðsins taki mið af fjöl-
skyldustærð námsmanns. Í dag
byrja námslán að skerðast við
300 þúsund krónur, hvort sem
lánþeginn er með börn á sínu
framfæri eða ekki, en fram-
færsluþörfin er metin eftir fjöl-
skyldustærð hjá LÍN.“
– Hver er tilgangur fundarins?
„Tilgangur fundarins er í meg-
indráttum sá að vekja athygli
bæði á SÍNE sem hagsmuna-
félagi námsmanna erlendis en
einnig að sýna fram á ávinning
þeirra sem eiga þess kost að
mennta sig erlendis og hversu
miklu máli það skiptir fyrir ís-
lenskt þjóðfélag að námsmenn
leiti í fjölbreytt nám hérlendis
sem erlendis. Í kjölfar aukins
framboðs náms á framhaldshá-
skólastigi hér á landi hefur opn-
ast möguleiki fyrir þann hóp sem
ekki hafði áður tök á að stunda
nám erlendis en sá hópur er jafn-
framt mjög hvattur til að taka
hluta af námi sínu við erlenda há-
skóla.“
– Hvernig verður skipulag
fundarins?
„Við höfum fengið til liðs við
okkur hóp góðra manna, sem all-
ir eiga það sameigin-
legt að hafa stundað
nám erlendis og mun-
um heyra viðhorf
þeirra gagnvart náms-
dvöl erlendis og fræð-
ast um það hvernig sú
reynsla hefur nýst þeim í leik og
starfi. Meðal fundarmanna eru
Þórólfur Árnason borgarstjóri,
Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðar-
ritstjóri Morgunblaðsins; Guð-
mundur Steingrímsson, rithöf-
undur og blaðamaður; Bjarni
Benediktsson alþingismaður;
Þorfinnur Ómarsson, forstöðu-
maður Hagnýtrar fjölmiðlunar
við HÍ, og fundarstjóri verður
Dagur B. Eggertsson, læknir og
borgarfulltrúi. Ég á því von á að
skemmtilegar umræður skapist
um gildi náms erlendis en það
verður fróðlegt að heyra hvernig
námið og dvölin erlendis hefur
nýst þeim og hvað þeim finnst
standa upp úr þegar litið er til
baka. Ég vona einnig að fund-
urinn verði námsmönnum í dag
hvatning til að íhuga mögu-
leikann á námi erlendis eigi þeir
þess nokkurn kost.“
– Hvað um stöðu námsmanna
erlendis í dag?
„Staða námsmanna erlendis er
því miður ekki nógu góð eins og
sakir standa. Með hækkandi
gengi íslensku krónunnar fer
hagur þeirra versnandi og þess
eru dæmi að námsmenn hafi
staðið uppi með allt að 350 þús-
unda yfirdráttarskuld við bank-
ann eftir að námslán höfðu verið
greidd inn á reikninginn. Þessi
staða kemur upp vegna þess að
lánsloforð LÍN tekur mið af
gengi gjaldmiðils í námslandinu
að hausti og yfirdráttarlán bank-
ans miðast við þá fjárhæð en út-
borgað lán miðast við daggengi á
greiðsludegi lánsins, sem er
greitt eftir á þegar námsárangur
liggur fyrir. Þetta getur orðið til
þess að námsmenn þurfa að
hætta námi þar sem ekki er al-
farið hægt að treysta á þá fjár-
hagslegu aðstoð sem LÍN ætti að
veita. Að auki hefur SÍNE,
ásamt BHM, þrýst mjög á að
endurgreiðslubyrði námslána
lækki og skipaður verði starfs-
hópur sem mótaði tillögur að úr-
bótum. SÍNE og BHM
hafa ekki fengið svör
frá formönnum stjórn-
arflokkanna þrátt fyrir
ítrekaðar bréfasend-
ingar.“
– Hvernig er fram-
tíðarsýnin?
„Framtíðarsýnin er þrátt fyrir
allt björt. Við trúum því að náms-
mönnum erlendis muni ekki
fækka í framtíðinni en stjórnvöld
þurfa að huga vel að þeim afleið-
ingum sem slíkt hefði fyrir ís-
lenskt þjóðfélag og beita stjórn-
tækjum sínum þannig að það
gerist ekki.“
Heiður Reynisdóttir
Heiður Reynisdóttir er fædd í
Reykjavík 1. október 1972. Lauk
BA-prófi í frönsku og dönsku frá
HÍ 1995 og prófi í hagnýtri fjöl-
miðlun frá HÍ 1996. Stundar
MA-nám í mannauðsstjórnun við
viðskiptafræðideild HÍ. Fram-
kvæmdastjóri SÍNE frá 2000 en
starfaði sem flugfreyja hjá Flug-
leiðum 1996–2000. Í sambúð með
Ingva Kr. Jónssyni, tannlækni og
á einn son, Gabríel Gauta Einars-
son, 7 ára.
Endur-
greiðslubyrði
námslána
lækki