Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ NVIÐSKIPTI S-HÓPURINN svokallaði, sam- anstendur af nokkrum félögum sem eiga rætur sínar í Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga (SÍS). Gengið er út frá að kjarna þessa hóps myndi þau félög sem keyptu saman eignarhlut ríkisins í Búnaðar- banka Íslands fyrir ári síðan. Þetta eru Vátryggingafélag Íslands (VÍS), Ker, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg- ingar. Félögin hafa um árabil tengst þéttum böndum og sömu einstak- lingar gjarnan skipað stjórnir þeirra. Ýmis önnur félög hafa einnig tengst þessum hópi eignalega og stjórnunarlega séð. Á síðustu árum hafa tengslin hins vegar verið að rofna þó svo að enn sé að finna teng- ingar t.d. í gegnum KB banka, SÍF og Samskip. Kjölfestufjárfestar í BÍ VÍS, Ker, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Samvinnutryggingar keyptu, ásamt þýska bankanum Hauck & Aufhauser Privatbankiers, 45,8% kjölfestuhlut ríkisins í Búnaðar- banka Íslands. Ker eignaðist við þetta 16,1% hlut í Búnaðarbankan- um, VÍS eignaðist 6%, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn 3,9% og Samvinnu- tryggingar 3,5%. Þýski bankinn eignaðist 16,3%. Búnaðarbankinn var á síðasta ári sameinaður KB banka. Nú á Ker u.þ.b. 7,3% í KB banka, VÍS á um 4,4%, Samvinnulíf- eyrissjóðurinn á 1,8% og Samvinnu- tryggingar á 1,6% í KB banka. Sam- tals ræðir hér um 15% hlutafjár í bankanum, að heildarverðmæti ná- lægt 17 milljörðum króna. Markaðsvæðing VÍS VÍS er eina félagið í kjarnahópnum sem er með hlutabréf sín skráð í Kauphöll Íslands. VÍS var stofnað um meginhluta vátryggingastofna Brunabótafélags Íslands og Sam- vinnutrygginga fyrir 15 árum síðan. Það var einmitt þá sem nafngiftin S- hópur varð til um þá aðila sem stóðu að Samvinnutryggingum en hefur síðar gjarnan verið notuð í víðari skilgreiningu um stjórnendur og stjórnarmenn í fyrirtækjum gamla Sambandsins. Landsbanki Íslands eignaðist síð- ar eignarhlut Brunabótafélagsins í VÍS og árið 2002 voru hlutabréf í fé- laginu skráð í Kauphöllinni að und- angenginni sölu nýs hlutafjár til hundraða starfsmanna VÍS annars vegar og Landsbankans hins vegar. Þá höfðu bankinn og S-hópurinn staðið í áralöngum viðræðum um hvort og hvernig ætti að standa að markaðsvæðingu VÍS. Bankinn sótti fast að skrá félagið en S-hópurinn var ekki sagður mjög upprifinn yfir því. Sterk tengsl voru á milli VÍS og Olíufélagsins (Kers) og þótti hætt við að þeim tengslum yrði hætta búin ef S-hópurinn losaði um tök sín á VÍS. Skráningin á markað varð þó að veruleika og skömmu eftir hana seldi Landsbankinn nánast allan eignar- hlut sinn í VÍS (í tvennu lagi þó, með hálfs árs millibili) til Kers, Eignar- haldsfélagsins Samvinnutrygginga, Samvinnulífeyrissjóðsins og Eignar- haldsfélagsins Andvöku. Ker selur í VÍS Ker seldi reyndar af eign sinni fjórð- ungshlut í VÍS haustið 2002 til Nor- vikur, félags Jóns Helga Guðmunds- sonar í Byko, sem aftur seldi hann til Eignarhaldsfélagsins Hesteyrar. Á fyrri hluta síðasta árs seldi Ker svo tæpan fimmtungshlut sinn í VÍS, sem var öll eign Kers, til Kaupþings (nú KB banki). Stærsti hluthafinn í VÍS í dag er KB banki, sem á tæplega 30%. Sam- vinnutryggingar eiga rúman fjórð- ungshlut og Hesteyri, sem VÍS á sjálft þriðjung í, á tæpan fjórðung. Samvinnulífeyrissjóðurinn og And- vaka eiga samtals tæplega 16%. Fimm stærstu hluthafa í VÍS má því tengja S-hópnum beint eða óbeint og eiga þeir samtals tæplega 96% í tryggingafélaginu. Markaðsverð- mæti VÍS er í dag 15,8 milljarðar króna. Fjögur dótturfélög eru hluti af samstæðu VÍS. Það eru Líftrygg- ingafélag Íslands (LÍFÍS), sem er að þremur fjórðu hlutum eign VÍS og í fjórðungseigu Eignarhaldsfélagsins Andvöku, Flutningar, Tölvur, sem hefur nánast enga starfsemi, og Traustfang. Traustfang leyst upp Hið síðastnefnda átti m.a. og seldi til Kaupþings hlut í Frjálsa fjárfest- ingabankanum (reyndar einnig VÍS, Olíufélagið hf. og Samvinnulífeyris- sjóðurinn) og var stærsti eigandi Ol- íufélagsins þar til fyrir tveimur árum síðan að Traustfang var leyst upp og eignum skipt á milli eigenda, sem voru auk VÍS, Olíufélagið, Sam- vinnulífeyrissjóðurinn og Mundill, dótturfélag Samskipa. Traustfang er nú að fullu í eigu VÍS. Hlutdeildarfélög VÍS eru fimm talsins: Alþjóðlegar bifreiðatrygg- ingar, sem er í eigu allra trygginga- félaganna. Íslensk endurtrygging, sem er verið að gera upp um þessar mundir. Móklettur, sem rekur hótel í Vík í Mýrdal og var í eigu Kaup- félags Árnesinga en VÍS og Ker eiga saman nær helming í því nú. Enn- fremur á VÍS tæpan fjórðungshlut í Öryggismiðstöð Íslands. Loks er Hesteyri, sem VÍS á þriðj- ungshlut í á móti Fiðskiðjunni Skag- firðingi og Skinney-Þinganesi en Hesteyri á aftur tæpan fjórðungs- hlut í VÍS, eins og kom fram hér að framan. Áhersla á sjávarútveg Óhætt er að telja að nokkur áhersla í fjárfestingum VÍS í öðrum félögum liggi á sviði sjávarútvegs. Meðal eigna VÍS eru eignarhlutir í 10 sjáv- arútvegsfélögum um allt land. Sex þeirra eru með hlutabréf sín skráð á markaði, það eru Grandi í Reykjavík, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, SÍF (sem nánar er fjallað um hér á eftir) Samherji á Akureyri, Tangi á Vopnafirði og Þorbjörn-Fiskanes í Grindavík. Hin fjögur eru Oddi á Patreksfirði, Skinney-Þinganes á Hornafirði, Loðnuvinnslan á Fá- skrúðsfirði og Fiskiðjan Skagfirð- ingur á Sauðárkróki, sem reyndar er einnig í félagi við VÍS í gegnum Hesteyri og á meirihluta í Skagfirð- ingi sem Eimskipafélagið seldi heimamönnum nýlega. Verðmætasta eign VÍS er 4,37% eignarhlutur í KB banka, að mark- aðsvirði tæplega 4,9 milljarðar króna. Það er sá hlutur sem VÍS eignaðist við samruna Kaupþings og Búnaðarbanka eftir kaup S-hópsins á hlut ríkisins í þeim síðarnefnda. VÍS átti einnig 2% hlut í Lands- banka Íslands, að verðmæti um einn milljarður króna, en sá hlutur var seldur KB banka nýverið. Stjórn VÍS skipa þeir Þórólfur Gíslason (formaður) kaupfélags- stjóri Kaupfélags Skagfirðinga, stjórnarformaður Hesteyrar og stjórnarmaður í Samvinnutrygging- um og Andvöku, Óskar Gunnarsson (varaformaður) stjórnarformaður Samvinnutrygginga og Andvöku og fyrrum framkvæmdastjóri Osta- og smjörsölunnar, Eiríkur Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar- Fiskaness, Margeir Daníelsson framkvæmdastjóri Samvinnulífeyr- issjóðsins, Helgi Jóhannesson fram- kvæmdastjóri Norðurmjólkur, Ing- ólfur Ásgrímsson, skipstjóri og einn eigenda Skinneyjar-Þinganess, og Sigurður Markússon, stjórnarmaður í Samvinnutryggingum og Andvöku og fyrrum stjórnarformaður SÍS. Þess má geta að þeir Þórólfur, Ósk- ar, Margeir og Sigurður hafa löngum verið taldir til S-hópsins og Þórólfur hefur gjarnan verið talinn með valdameiri mönnum innan hóps- ins. Samvinnulífeyrissjóðurinn og Ehf. Samvinnutryggingar Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg- ingar, Eignarhaldsfélagið Andvaka og Samvinnulífeyrissjóðurinn hafa gjarnan átt hlut að máli í fjárfest- ingum S-hópsins í gegnum tíðina en eignasöfn þessara félaga í dag tengj- ast mjög VÍS. Félögin voru öll stofn- uð í tengslum við gamla Sambandið en starfsemi Samvinnutrygginga og Andvöku er orðin mjög lítil eftir að tryggingastofnar félaganna fluttust yfir til VÍS og LÍFÍS. Tryggingafélögin tvö voru gagn- kvæm félög en á níunda áratug síð- ustu aldar þótti orðið ljóst að rekstr- arform gagnkvæmu tryggingafélaganna hentaði ekki vel, hlutafélagaformið hentaði betur. Af- leiðingin var VÍS og síðar LÍFÍS en eftir standa eignarhaldsfélögin tvö. Samvinnulífeyrissjóðurinn hefur hins vegar öllu meiri starfsemi með höndum en starfsmenn Samskipa, Olíufélagsins og VÍS eru meðal þeirra helstu sem greiða iðgjöld til sjóðsins. Ker stofnað um Olíufélagið Ker er eignarhaldsfélag sem upphaf- lega var stofnað um eignir Olíufé- lagsins hf. (Esso) og fyrsti fram- kvæmdastjóri félagsins var fyrrum Olíufélagsforstjórinn Geir Magnús- son. Olíufélagið, eða Ker frá árinu 2002, var með hlutabréf sín skráð í Kauphöllinni þar til sl. vor þegar fé- lagið var yfirtekið og afskráð. Fyrir ári síðan áttu VÍS, Sam- vinnulífeyrissjóðurinn og Samvinnu- tryggingar ríflega fjórðungshlut í Keri en nokkrum mánuðum síðar hafði eignarhaldsfélagið Vörðuberg keypt öll hlutabréf tveggja fyrr- nefndu og gerði í kjölfarið yfirtöku- tilboð í hlutabréf annarra hluthafa í Keri. Langur aðdragandi var að yfirtök- unni. Snemma hausts árið 2001 urðu miklar breytingar á hluthafahópi Kers (þá Olíufélagið) sem miðuðu að því að styrkja stöðu hóps eigenda í Samskipum í félaginu. Viðskiptin voru afar flókin þar sem Ker eign- aðist nálægt helmingshlut í Sam- skipum og greiddi fyrir með hluta- bréfum í 11 félögum, þ.á m. eigin bréfum, bréfum í Vinnslustöðinni og VÍS. Almennt var talið að þessi við- skipti hefðu verið gerð af ótta við yf- irtöku á Olíufélaginu. Fjárfestinga- félagið Straumur hafði komið sér upp tæpum fimmtungshlut í félaginu og þótti líklegt að Jón Ásgeir Jó- hannesson, forstjóri Baugs og þáver- andi bankaráðsmaður í Íslands- banka, stæði að kaupunum. Yfirtaka og afskráning Þegar upp var staðið höfðu þre- menningarnir Ólafur Ólafsson, Jón Kristjánsson og Jón Þór Hjaltason, og skjólstæðingar þeirra, tryggt sér um 40% í Olíufélaginu og náð með því undirtökum. Þeir stóðu einmitt að eignarhaldsfélaginu Vörðubergi, sem yfirtók Ker á síðasta ári. Félag- ið var í kjölfarið afskráð. Vörðuberg átti eftir yfirtökuna um 76% hlutafjár í Keri og tæp 23% voru í eigu Gerðis, dótturfélags Norvikur (í eigu Jóns Helga í Byko) sem átti þann hlut fyrir og tók þátt í yfirtök- unni á Keri. Hann á nú engan hlut að Keri. Eigendur Kers eru í dag eignar- haldsfélögin Kjalar, Sund, J&K, Vogun og Fiskveiðahlutafélagið Venus ásamt stjórnendum. Kjalar er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Sam- skipa, og var um tíma stærsti hlut- hafi Samskipa. Sund, sem einnig var áður stór hluthafi í Samskipum, er í eigu fjöl- skyldu Óla Kr. Sigurðssonar sem jafnan var kenndur við Olís og er Jón Kristjánsson, forsvarsmaður félags- ins. Sund er stærsti hluthafinn í SÍF með 18,5% hlutafjár. J&K er í eigu Jóns Þórs Hjalta- S-hópurinn skiptist í tvær blokkir Þau miklu eignatengsl sem voru á árum áður á milli Olíufélagsins og Vátryggingafélagsins eru orðin að litlu. Soffía Haraldsdóttir skoðaði tengsl þeirra félaga sem keyptu kjölfestuhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands.  S-HÓPURINN Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson yfirgefa fundarstað eftir undirskrift sam- komulags um kaup S-hópsins á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.