Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 10
ÍSLANDSBANKI er þriðja verð-
mætasta félagið sem skráð er í Kaup-
höll Íslands og Straumur Fjárfest-
ingarbanki er einnig meðal verð-
mætustu félaga í Kauphöll Íslands.
Samanlagt markaðsvirði þeirra er
um 103 milljarðar króna. Tengsl fé-
laganna tveggja, Íslandsbanka og
Straums, eiga sér djúpar rætur enda
var Straumur stofnaður upp úr
Hlutabréfasjóðnum sem var í vörslu
Íslandsbanka. Þrátt fyrir að ekki sé
hægt að tala um Íslandsbanka og
Straum sem eina heild þá er Íslands-
banki langstærsti hluthafinn í
Straumi. Jafnframt er Straumur
næststærsti einstaki hluthafinn í Ís-
landsbanka með 5,7% hlut og um leið
verðmætasta eign Straums í skráðu
félagi á hlutabréfamarkaði.
Alls fer Íslandsbanki með 31,4%
hlut í Straumi. Bankinn á 9,4% hlut í
eigin nafni auk þess sem dótturfélag
Íslandsbanka, Sjóvá-Almennar
tryggingar, á 22,1% hlut í Straumi.
Það er því óhætt að segja að tengsl
séu á milli félaganna.
Íslandsbanki varð til við samein-
ingu fjögurra banka, Alþýðubankans,
Iðnaðarbanka Íslands, Útvegsbanka
Íslands og Verslunarbanka Íslands
árið 1990. Áratug síðar sameinuðust
Íslandsbanki og Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins. Við þá sameiningu
varð Íslandsbanki stærsti banki
landsins og um leið verðmætasta fé-
lagið sem þá var skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands, nú Kauphöll Íslands,
en markaðsvirði félagsins var um 50
milljarðar króna. Á þeim tíma var
rætt um að kanna með mögulega
skráningu bankans á erlendan hluta-
bréfamarkað en ekkert hefur orðið af
því enn. Í dag er markaðsvirði Ís-
landsbanka rúmir 77 milljarðar.
Viðskiptastríð
Eins og Agnes Bragadóttir rakti í
greinaflokki sínum, Baráttan um Ís-
landsbanka, sem var birtur í Morg-
unblaðinu fyrir rúmu ári, þá er bar-
áttan sem háð var um yfirráðin yfir
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og
Íslandsbanka átakamesta viðskipta-
stríð sem háð hefur verið í íslensku
viðskiptalífi í áratugi.
Munaði þar aðeins hársbreidd að
Orca-hópurinn svonefndi, en til hans
töldust Jón Ásgeir Jóhannesson, Þor-
steinn Már Baldvinsson, Jón Ólafs-
son og Eyjólfur Sveinsson, næði yf-
irráðum í Íslandsbanka.
Í dag er Lífeyrissjóður verslunar-
manna stærsti hluthafinn í bankan-
um með 8,1% en nýr hluthafi meðal
10 stærstu, Milestone Import Export
Ltd. sem er félag í eigu barna Wer-
ners Rasmussonar, apótekara, þeirra
Karls, Steingríms og Ingunnar, er nú
þriðji stærsti hluthafinn með 5,36%
hlut. Meðal eigna Milestone er rúm-
lega 5% hlutur í Pharmaco og lyfsölu-
keðjan Lyf og heilsa.
Samkvæmt hluthafalista Íslands-
banka er Landsbankinn í Lúxemborg
skráður fyrir 4,5% hlut en sá hlutur
er að mestu í eigu Milestone. Jafn-
framt átti Milestone bréf í Íslands-
banka áður en félagið keypti hluta-
bréfin af Landsbankanum í
Lúxemborg auk þess sem fleiri við-
skiptavinir Landsbankans í Lúxem-
borg eiga hlut að máli. Þar sem um
framvirkan samning er að ræða þá
verður hlutur Milestone skráður
áfram á Landsbankann í Lúxemborg
þar til samningurinn er á gjalddaga.
Aftir á móti fluttist réttur til arðs og
atkvæðsréttur strax til Milestone
Import Export Ltd.
Ef lagður er saman hlutur Íslands-
banka í sjálfum sér og dótturfélags-
ins Framtaks fjárfestingarbanka, er
samanlagður hlutur þeirra 8,6%.
Aðalfundur Íslandsbanka verður
haldinn 8. mars og líkt og oft áður fyr-
ir aðalfundi bankans má vænta þess
að ýmislegt gerist á bak við tjöldin
fyrir þann fund.
Í dag er Kristján Ragnarsson, for-
maður bankaráðs Íslandsbanka. Auk
hans sitja Einar Sveinsson, Guð-
mundur B. Ólafsson, Guðrún Helga
Lárusdóttir, Helgi Magnússon, Jón
Snorrason og Víglundur Þorsteins-
son í bankaráðinu.
Dreifð eignaraðild
Eignarhald Íslandsbanka er í dag
ólíkt annarra viðskiptabanka á Ís-
landi þar sem enginn einn hluthafi á
yfir 10% hlut í bankanum. Það er,
enginn einn hluthafi er kjölfestueig-
andi Íslandsbanka heldur er um
dreifða eignaraðild að ræða.
Hagnaður Íslandsbanka árið 2003
var rúmir 5,8 milljarðar króna, sem
er 71% eða rúmum 2,4 milljörðum
króna meiri hagnaður en árið áður.
Arðsemi eigin fjár í fyrra var rúmlega
30%, en rúm 18% árið áður. Sjóvá-
Almennar tryggingar eru inni í reikn-
ingum hans frá og með síðasta fjórð-
ungi ársins 2003, og hlutdeild trygg-
ingafélagsins í hagnaði bankans er
151 milljón króna. Hagnaður Sjóvár-
Almennra á síðasta ári nam 3.930
milljónum króna.
Framtak keypt og selt
Íslandsbanki keypti í lok síðasta árs
Framtak fjárfestingarbanka af
Straumi fjárfestingarbanka, sem
hafði eignast félagið fyrr á árinu, og
var Framtak sameinað Íslandsbanka
um síðustu áramót. Kaupverðið var
5,5 milljarðar króna. Áður en kaupin
gengu í gegn keypti Straumur þær
eignir sem teljast til áhættufjárfest-
inga, þar með talið nánst öll skráð og
óskráð hlutabréf út úr Framtaki.
Heildareignir Íslandsbankasam-
stæðunnar um síðustu áramót voru
41.991 milljón króna. Bókfært verð
eignarhluta í hlutdeildarfélögum var
um áramót 7.399 milljónir króna.
Bókfært verð á eignum í 73 félögum
sem eru færð sem fjárfestingarhluta-
bréf nam um áramót 1.540 milljónum
króna en verðmætasta eignin þar var
25% hlutur í Steinhólum sem hefur
þegar verið seldur til KB banka.
Valdabarátta
Straumur Fjárfestingarbanki hefur
vaxið og dafnað frá stofnun árið 1986.
Á síðasta ári eignaðist Straumur fjár-
festingarfélagið Brú að fullu. Það fé-
lag hét áður Íslenski hugbúnaðar-
sjóðurinn og hafði aðallega fjárfest í
hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum.
Jafnframt keypti Straumur Framtak
fjárfestingarbanka sem hann seldi
síðan til Íslandsbanka eins og áður
sagði. Markaðsvirði Straums fjár-
festingarbanka eru tæpir 26 milljarð-
ar króna.
Stóran hluta tímans hefur Íslands-
banki verið stór hluthafi en jafnframt
hafa aðrir komið inn með stórar stöð-
ur svo sem Jón Ásgeir Jóhannesson
og aðilar honum tengdir. En baráttan
um Íslandsbanka sem minnst var á
hér á undan snerist einnig um að ná
yfirráðum í Straumi, eitthvað sem
ekki tókst. Fleiri hafa tekið þátt í
stríðinu um Straum og má þar nefna
kaup Samson Holding og Lands-
bankans á umtalsverðum hlut í
Straumi á síðasta ári. Íslandsbanki
svaraði um hæl og jók hlut sinn einnig
í Straumi. Valdabaráttunni um
Straum lauk í það skiptið þegar
mestu umskipti í íslensku viðskiptalífi
áttu sér stað í september á síðasta
ári. Samkvæmt samkomulagi félaga
sem tengjast Landsbankanum, Ís-
landsbanka, Straumi, Samson Global
Holdings, Sjóvá-Almennum, Burðar-
ási og Otec Investment (sem er í eigu
Sindra Sindrasonar), þá seldi Burðar-
ás, fjárfestingararmur Eimskipa-
félagsins, að fullu eignarhluti sína í
Sjóvá-Almennum tryggingum, Ís-
landsbanka og Flugleiðum til Fjár-
festingarfélagsins Straums og Ís-
landsbanka í skiptum fyrir hlutabréf í
Eimskipafélagi Íslands.
Straumur keypti bréf í Flugleiðum
af Burðarási í stað bréfa í Eimskipa-
félaginu. Íslandsbanki keypti eigin
bréf af Burðarási.
Landsbankinn seldi ásamt tengd-
um aðilum, Samson og Otec, allan
sinn hlut í Straumi eða 37% af heild-
arhlutafé Straums til Íslandsbanka
og Straums. Stór hluti af þessum
bréfum hefur síðan verið seldur
áfram, m.a. til lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðir áberandi
Eins og áður sagði eru Sjóvá-Al-
mennar og Íslandsbanki saman með
31,4% hlut í Straumi. Annar stærsti
hluthafinn er MK-44 ehf. sem er félag
í eigu Magnúsar Kristinssonar út-
gerðarmanns í Vestmannaeyjum.
Magnús á einnig hlut í gegnum Smá-
ey ehf. og á samanlagt tæplega 12%
hlut í Straumi. Lífeyrissjóðir eru
áberandi á hluthafalista Straums og
meðal 20 stærstu hluthafa eru átta líf-
eyrissjóðir auk þess sem fleiri fag-
fjárfestar eru meðal helstu hluthafa.
Aðalfundur Straums fjárfestingar-
banka verður haldinn 19. mars nk. en
í stjórn hans sitja: Ólafur B. Thors,
formaður, Magnús Kristinsson,
Kristinn Björnsson, Helgi Magnús-
son og Orri Hauksson.
Hagnaður Straums á síðasta ári
nam 3.815 milljónum króna og jókst
hann um 370% frá fyrra ári er hann
nam 812 milljónum króna. Hækkun
hagnaðar skýrist einkum af hækkun
á innleystum hagnaði af verðbréfa-
eign, sem nam 3.379 milljónum króna
árið 2003 en 952 milljónum króna árið
2002 og hækkun á óinnleystum hagn-
aði af verðbréfaeign sem nam 1.285
milljónum króna árið 2003 en þremur
milljónum árið á undan.
Eignaaukningin 183%
Heildareignir Straums í árslok 2003
voru 22.530 milljónir króna en voru
7.986 milljónir í árslok 2002 og jukust
því um 183% á milli ára. Hækkunina á
árinu 2003 má rekja til kaupa félags-
ins á Brú og áhættufjárfestinga sem
tilheyrðu Framtaki.
Ein helsta eign Straums í skráðu
hlutafélagi var í Flugleiðum. Þau bréf
seldi Straumur Oddaflugi, félagi í
eigu Jóns Helga Guðmundssonar og
Hannesar Smárasonar, hinn 23. jan-
úar sl. Nam söluverðið tæpum 5,3
milljörðum króna og var söluhagnað-
ur Straums 1.260 milljónir króna.
Þann sama dag seldi Íslandsbanki all-
an sinn hlut í Flugleiðum og Sjóvá-
Almennar hlut af sinni eign. Í dag
eiga Sjóvá-Almennar tæplega 10%
hlut í Flugleiðum.
Hinn 26. janúar sl. átti Straumur
fjárfestingarbanki í 17 innlendum fé-
ÍSLANDSBANKI | SJÓVÁ-ALMENNAR | STRAUMUR FJÁRFESTINGARBANKI
10 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI BJARNI Ármannsson varð forstjóri Íslandsbanka við hlið Vals Vals-
sonar þegar Íslandsbanki og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins samein-
uðust árið 2000. Bjarni hafði verið forstjóri FBA frá stofnun bankans
árið 1997. Einar Sveinsson er forstjóri Sjóvár-Almennra og er banka-
ráðsmaður í Íslandsbanka. Bæði Einar og Bjarni eru einir forstjórar
þeirra fyrirtækja sem þeir stýra en Valur lét af störfum sem forstjóri Ís-
landsbanka í fyrra og Ólafur B. Thors, sem áður starfaði við hlið Ein-
ars, lét af starfi framkvæmdastjóra Sjóvár-Almennara árið 2002. Ólaf-
ur er stjórnarformaður Straums fjárfestingarbanka en Íslandsbanki
réð Þórð Má Jóhannesson til að breyta undanfara Straums, Hlutabréfa-
sjóðnum, í fjárfestingarfélagið Straum árið 2001 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri Straums allt frá breytingunni árið 2001.
Bjarni Ármannsson Einar Sveinsson Þórður Már Jóhannesson
Sterkir saman
Ekki ein heild
en sterk tengsl
Íslandsbanki, ásamt dótturfélaginu Sjóvá-Almennum og hlutdeildarfélaginu Straumi fjárfestingarbanka, hefur fjárfest
víða og verið áberandi í allri umræðu um íslenskt viðskiptalíf í mörg ár. Guðrún Hálfdánardóttir skoðaði hvar félögin
hafa fjárfest og þrátt fyrir að Íslandsbanki og Straumur séu ekki ein heild þá eru sterk tengsl milli þeirra.