Morgunblaðið - 07.02.2004, Side 25
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 25
Ástin er dýrgripur
Maðurinn í lífi mínuÁstríðufullt augnablik
Þú lætur það gerast
Gjöf handa ástinni þinni sem hittir í mark.
Líttu við á næsta útsölustað.
He
im
sæ
kt
u
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
„ÞETTA hefur gengið langt framar vonum, en
þetta er stanslaus vinna,“ segir Þormar Þor-
marsson, annar eigenda Café Konditori Co-
penhagen sem opnaði í gær nýjan stað á Lyng-
hálsi 4, í sama húsi og verslunin Europris.
Umsvif Café Konditori Copenhagen hafa vaxið
jafnt og þétt frá því Þormar og eiginkona hans
og meðeigandi, Tine Buur Hansen, opnuðu lít-
ið bakarí og kaffihús á Suðurlandsbraut 4a árið
1997. Hafa þau allar götur síðan sérhæft sig í
brauðum og kökum að danskri fyrirmynd við
mikla velgengni. Litla bakaríið hefur vaxið
töluvert síðan þá og starfa nú um tuttugu
manns hjá þeim hjónum, sem hafa nú þróað þá
hugmynd sem er að baki Café Konditori Co-
penhagen. Munu þau á Lynghálsinum bjóða
upp á breiða línu af mat, brauði og kökum og
þjóna starfsfólki fyrirtækja í nágrenninu og
íbúum í nærliggjandi hverfum.
Þormar segir áherslu lagða á léttan mat,
hraða afgreiðslu og þægilegt andrúmsloft þar
sem gestir geta átt notalega stund auk þess
sem fyrirtækjum sé boðið upp á að fá sent
brauðmeti og ýmislegt góðmeti fyrir hvers
kyns uppákomur.
Þormar og Tine kynntust í Konditoriskóla í
Ringsted árið 1992.
„Ég var að læra með vinkonu hennar Tinu.
Tina var í árgangi á undan mér í skólanum, en
síðan bauðst ég til að aðstoða hana í bök-
unarkeppni, hana vantaði aðstoðarmann og ég
var fljótur til. Þá kynntumst við betur og höf-
um verið saman síðan,“ segir Þormar og Tine
hlær dátt að því hvað hrifning hans var aug-
ljós. Hún segist ekki sjá eftir því að koma til
Íslands, hér sé að vísu allt annar lífstaktur en
heima í Danmörku. „Maður vinnur á allt öðr-
um hraða hér en í Danmörku. Maður þarf svo-
lítið að venjast því, auk þess sem maður gleym-
ir stundum að stoppa til að njóta lífsins,“ segir
Tine og bætir við að náttúran hér sé frábær og
í Danmörku bjóða upp á þessa tertu svo að allir
Danir geti tekið þátt í brúðkaupinu.“
Danska hirðin fór fram á að kakan yrði „al-
dönsk“ úr ekta dönskum hráefnum. „Þarna er
rjómi, hindber, möndlubotnar, makkarónukex
og marsipan sem allt er notað mikið í danskri
kökugerð. Svo er hún auðvitað hvít, rauð og
gyllt á litinn, mjög dönsk. Við höfum selt mikið
af þessari köku, enda erum við byrjuð að fram-
leiða hana niðri á Suðurlandsbraut,“ segir Þor-
mar.
Þau hjónin eiga marga kúnna í hópi Dana
sem búsettir eru á Íslandi auk fólks sem hefur
búið í Danmörku eða á danska ættingja. „Fólk
vill halda í dönsku stemninguna. Fyrir jólin
bjuggum við til mikið af dönskum eftirréttum
fyrir Danina sem búa hér. Við flytjum líka inn
mikið af vörum frá Danmörku fyrir þá sem
vilja fá sínar dönsku hefðir. Skandinavar koma
einnig mjög mikið hingað,“ segir Þormar að
lokum.
gott að búa á landinu. „En maður gleymir
stundum að „hygge sig“ í erli dagsins.“
Aldönsk brúðarterta
Nú nálgast ört brúðkaup Friðriks krónprins
Dana og Mary Donaldson unnustu hans. Þor-
mar er vel kunnugur bökurunum dönsku sem
hönnuðu brúðarkökuna. „Þeir Kim Andersen
og Jon Nielsen koma til með að baka þessa
köku. Kim Andersen var fyrirliði danska
konditorslandsliðsins og Jon Nielsen vinnur
fyrir Odense Marsipan og hefur komið oft
hingað til lands. Þeir sendu mér uppskriftina
að kökunni, en þeir þurftu að skila inn upp-
skriftinni og hugmyndinni að þessu öllu með
sex mánaða fyrirvara til að hirðin myndi sam-
þykkja það. Um leið og ég vissi að þetta væru
þeir setti ég mig í samband við þá og þeir
sendu mér hana strax. Það er stefnt að því í
Danmörku, í öllum bakarageiranum, að þegar
brúðkaupið verður í byrjun maí muni öll bakarí
Café Konditori Copenhagen bakaríið opnað á Lynghálsi
Fyrsta
bakaríið í
hverfinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Samhent hjón: Þau Þormar og Tine hafa undanfarin tólf ár átt í góðu sambandi og rekið fjöl-
skyldufyrirtæki sitt síðan 1997.
Garðabær | Framkvæmdir við tvö hundruð
og sautján íbúðir hófust í Garðabæ á árinu
2003. Til samanburðar hófust framkvæmdir
við einungis fimmtíu íbúðir árið 2002. Í yfirliti
byggingarfulltrúa Garðabæjar yfir byrjunar-
framkvæmdir íbúðarhúsa á árunum 1979 til
2003 kemur fram að þær hafa aldrei verið
fleiri en árið 2003. Næstflestar voru byrjunar-
framkvæmdir árið 2000 en þá hófust fram-
kvæmdir við hundrað sextíu og eina íbúð.
Á árinu 2003 voru gefin út byggingarleyfi
fyrir enn fleiri íbúðir, eða tvö hundruð sextíu
og fjórar. Gera má ráð fyrir miklum fram-
kvæmdum í Garðabæ á næstu árum og ára-
tugum. Samkvæmt svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins verða íbúar Garðabæjar yfir
tuttugu þúsund eftir tuttugu ár, en í dag eru
þeir tæplega átta þúsund og níu hundruð. Það
má því telja víst að sú aukning sem varð á
byrjunarframkvæmdum íbúðarhúsnæðis á
árinu 2003 marki upphafið að þeirri miklu
uppbyggingu sem fram undan er í bænum.
Uppbyggingar-
tímabil í Garðabæ
Hafnarfjörður | Fjölskylduskóli
Hafnarfjarðar var formlega settur á
fimmtudaginn. Skólinn er samstarfs-
vettvangur félaga og stofnana í
Hafnarfirði sem áhuga hafa á fjöl-
skylduvernd. Hlutverk hans er að sjá
bæjarbúum fyrir fræðslu, upplýsing-
um og hvers kyns þjálfun með það að
markmiði að styrkja fjölskylduna
sem einingu.
Meðal þeirra námskeiða sem verða
í boði er foreldranámskeiðið „Ást, agi
og árangursríkt uppeldi“, en það er
ætlað foreldrum barna á öllum aldri,
sem vilja kynnast vönduðum uppeld-
isaðferðum til að ná góðum aga og
hvetja börn sín til dáða. Einnig verða
námskeið um sjálfsstyrkingu ung-
linga, undirbúning eftirlaunaáranna,
fjármál heimilanna og viðbrögð við
sorg, svo fátt eitt sé talið.
Sæmundur Hafsteinsson, for-
stöðumaður félagsþjónustunnar í
Hafnarfirði, segir fjölskylduskólann
hugsaðan og stofnaðan út frá hug-
myndafræðinni á bak við fjölskyldu-
stefnu Hafnarfjarðar sem verið er að
vinna og kemur út bráðlega. „Við
höfðum áhyggjur af þróun fjöl-
skyldumála í hinum vestræna heimi.
Það er oft verið að tala um að fjöl-
skyldan sé að leysast upp og helm-
ingur hjónabanda fari í vaskinn,“
segir Sæmundur. „Það er okkar hug-
myndafræði að það sé hægt að styðja
við fjölskylduna með því að standa
fyrir markvissri fræðslu á þeim svið-
um þar sem við finnum að fjölskyldur
þurfa stuðning. Það getur verið tengt
ýmsu, til dæmis unglingavandamál-
um, uppeldismálum, fötlun, áföllum
og sorg. Við erum að reyna að setja
okkur í þau spor að geta hjálpað
fólki.“
Sæmundur segir markmiðið einn-
ig að stilla saman ýmsa aðila á svæð-
inu, að standa fyrir málþingum og
ráðstefnum og fylgjast með þróun-
inni.
Fjölbreytt fræðsla
fyrir fjölskyldur
Skákskóli | Skákfélagið Hrókurinn er með
opinn og ókeypis skákskóla á fimm stöðum á
höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í dag er
kennt í Rimaskóla í Grafarvogi og byrjar
kennsla klukkan 11:00. Í Salaskóla og Selja-
skóla hefst kennsla klukkan 14:00 og stendur
yfir í tvo tíma. Á sunnudag er skákskóli í Vest-
urbæjarskóla klukkan 11:00 og í Mýrarhúsa-
skóla klukkan 14:00.
Á þriðjudögum og fimmtudögum er börn-
um og unglingum boðið upp á ókeypis kennslu
í höfuðstöðvum Hróksins í Skúlatúni 4. Allir
eru þar velkomnir.
Tveir fyrir einn| Skautahöllin og Fjölskyldu-
og húsdýragarðurinn í Laugardal hafa ákveðið
að bjóða gestum sínum upp á þann möguleika
að fá 2 fyrir 1 tilboð í aðgangseyri á annan
hvorn staðinn ef báðir staðirnir eru heimsóttir.
Að sögn Einars Karlssonar hjá Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum fá gestir Skautahallarinnar
2 fyrir 1 af aðgangseyri í garðinn og öfugt, gegn
framvísun kvittunar. „Það er allt of oft sem
maður sér fólk setjast upp í bílinn og aka burt
eftir heimsókn til okkar í staðinn fyrir að nota
tækifærið og skella sér á skauta.“
Fréttasíminn
904 1100