Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 2
Með hring á fingri
Forsíða: Fatnaður barnanna er
frá Brúðarkjólaleigu Katrínar
Ljósmyndari: Árni Sæberg
Útgefandi:
Árvakur hf.
Ábyrgðarmaður:
Anna Elínborg Gunnarsdóttir.
Umsjón:
Rut Helgadóttir
Ljósmyndir:
Árni Sæberg, Jim Smart og fl.
Hönnun og umbrot:
Björk Hafliðadóttir
Texti:
Rut Helgadóttir, Steinunn Haraldsdóttir
og Súsanna Svavarsdóttir
Auglýsingasala:
Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111, augl@mbl.is.
Prentun:
Prentsmiðja Árvakurs hf.
Dreift með Morgunblaðinu um allt land
Brúðkaupsblað - meðal efnis
Hver er maðurinn
hennar Gunnu frænku?
Flestir kjósa að hafa gestabók á
borðum í brúðkaupinu. Ein
skemmtileg hugmynd er að fá ein-
hvern til að taka myndir (Polaroid
eða digital) af gestunum þegar þeir
koma í veisluna, líma myndirnar í
albúm og láta gestina síðan skrifa
stuttan texta ásamt nafninu sínu
undir.
Á þennan hátt er einnig gott að
rifja upp hver er hvað, fyrir þá sem
eru ómannglöggir.
Á grænni grein
Klippið út litrík hjörtu, þræðið
borða í hjörtun og leggið undir
diskana eða dreifið þeim þegar líða
fer á veisluna. Biðjið gestina að
skrifa heilræði eða gullkorn á hjört-
un og hengja þau síðan á fallega
trjágrein sem hægt er að koma fyr-
ir t.d. í anddyrinu.
Logandi ástarfjall
Skerið út píramída með stöllum í
(t.d. úr frauðplasti). Leggið óeld-
fimt efni (t.d. bómullarefni, álfilmu
eða striga) yfir og setjið körfu með
kertum við hliðina á píramídanum.
Veislustjórinn biður síðan hvern
gest að kveikja á einu kerti og
hugsa fallega til brúðhjónanna um
leið og kertinu er komið fyrir á
„fjallinu”.
Möndlur og tjull
Erlendis tíðkast það að setja
smágjöf við diska gestanna til að
taka með sér heim til minningar
um brúðkaupið. Algengt er að gjöf-
inni sé pakkað inn í tjull eða falleg-
an silkipappír í sömu litum og
„þema” brúðkaupsins. Sykurhjúpað-
ar möndlur, myntur í pastellitum
eða hlaupbaunir (Jellybeans) er
hægt að fá í ýmsum litum og pakka
síðan inn í t.d. tjullbút og hnýta fal-
lega slaufu. Súkkulaðihjörtu eru
einnig falleg sem borðskraut og
góð að næla sér í eftir matinn. Tjull
fæst í flestum vefnaðarvöruverslun-
um og möndlur og annað „brúð-
kaupslegt” sælgæti fæst m.a. í
Konfektbúðinni í Kringlunni.
Einnig getur verið skemmtilegt
að gefa lítið ilmkerti eða lítinn
kertastjaka með sprittkerti og
biðja gestina að kveikja á þeim á
sama tíma, um leið og vakin er at-
hygli á þeim og ljósin dempuð í
veitingasalnum.
Minningar og meira,
albúm og gestabækur
Saman í sextíu ár
Verðlaunaparið
Amore brúðkaup
Vetrarbrúðkaup
Brúðarkort
Brúðkaupsvínin
Brúðkaupsmaturinn
Förðun
Brúðarvendirnir
Fólk er að gifta
sig á öllum aldri
Brúðarkjólarnir
Ýmsar hugmyndir
fyrir brúðkaupsgestina