Morgunblaðið - 04.03.2004, Síða 6
Flest verðandi brúðhjón kjósa
að bjóða gestum sínum í brúð-
kaupið bréfleiðis. Ýmsar útgáf-
ur eru til af boðskortum og
margar útfærðar í prentsmiðju
við mikinn kostnað. Þeir sem
eru laghentir geta notað þess-
ar hugmyndir og sent hand-
gerð og persónuleg kort til
vina og ættingja. Sum eru
kannski svolítið vandasöm en það getur orðið hin mesta
skemmtun að safna saman nokkrum nánustu vinum eða
ættingjum og útbúa falleg kort á einni kvöldstund.
1 - Blómakort: Hér er búið að líma
mismunandi blóm framan á kortin. Hægt
er að nota blómaborða sem er klipptur
niður, blóm klippt út úr servíettu eða
jafnvel þurrkuð blóm. Blómin eru upp-
hleypt og því erfitt að koma í umslög.
Þessi kort henta því alveg eins vel sem
gjafakort þar sem hægt er að líma kortin
beint á pakkann. Einnig er hægt að
finna ýmsar myndir af blómum á alnet-
inu sem hægt er að skanna og prenta
framan á kortin. Gaman er að leika sér
að áferðar- og litasamspili blómanna,
pappírsins og textans. Einnig eru til hin
ýmsu spakmæli um ástina þar sem orð-
in blóm eða jurt koma fyrir sem hægt er
að prenta framan á kortið. Þá er upplagt
að nota þemablómið úr brúðkaupinu
sem myndefni. Upphleyptu stafirnir og
punktarnir á myndunum eru búnir til
með þykkum föndurlit í túpum með mjó-
um stút sem fæst í hinum ýmsu litum í
föndurverslunum. Þessi litur er perluhvít-
ur.
2 - Þrykkikort: Við gerð þessara
korta er notuð mjög einföld þrykkaðferð.
Myndefnið, sem í þessu tilfelli er hjarta,
er skorið út í mjög þykkt karton. Eftir því
sem kartonið er þykkara því dýpri verður
myndin. Kartonið sem kortið er gert úr
er lagt ofan á hjartað og þar á eftir er
strokið ákveðið með hörðu en
ekki of hvössu áhaldi meðfram
köntum hjartans. Þá má sjá hjartað mót-
ast í kortið. Gott er að nota tréhnífa eins
og t.d. þá sem notaðir eru við leirmótun
eða gamlan smjörhníf. Athugið að það er
hliðin sem snýr niður að hjartanu meðan
þrykkt er sem kemur fallegar út. Það er
ýmist hægt að prenta beint á kartonið
sem á eftir er þrykkt á eða klippa þrykk-
imyndina út og líma á annað karton.
3 - Kort með borðum: Fallega
borða er hægt að nota á ýmsu vegu við
gerð korta. Til eru ógrynni af spennandi
borðum í föndur- eða vefnaðarvöruversl-
unum og auðvelt er að finna borða sem
spila með þema brúðkaupsins t.d. í litar-
vali. Þá er um að gera að láta ímyndun-
araflið ráða ferðinni við notkun borðanna
á kortin. Hér eru sýndir ýmsir möguleikar
þar sem borðunum er ýmist leyft að
njóta sín í heilu lagi eða þeir klipptir út
til að mynda ákveðið mótíf. Best er að
líma meðfram jöðrum borðanna til að
límið verði sem minnst áberandi. Einnig
er hægt að skera myndefnið út í karton-
ið og láta borðann á bakvið – þessi að-
ferð er auðveldari ef borðinn er úr efni
sem vill hlaupa til í höndunum á manni.
Borðinn getur líka myndað bakgrunn
sem teiknað er
á með föndurlit
eða límmiðar
settir ofan á.
Einnig er hægt
Best er að byrja kortagerðina
með hreinar hendur þar sem
pappír er mjög viðkvæmur fyr-
ir húðfitu og öðrum óhreinind-
um. Þá er líka mikilvægt að
hreinsa öll áhöld vel áður en
hafist er handa. Gott er að
hreinsa reglustikur með
spritti til að ná allri fitu af.
Best er að nota skæri sem
minnst, en nota dúkahníf,
horn og reglustiku til að fá
sem fallegasta og beinasta
kanta.
Áður er þykkt karton er brot-
ið er gott að vera búinn að
búa til brot með óbeittu hlið
dúkahnífsins á kortinu innan-
verðu.
Athugið að lím getur skilið
eftir sig bletti í efnum og
borðum. Reynið að setja límið
alltaf á jaðrana en ekki á
miðjan efnisbútinn eða borð-
ann.
Besta nýtingin á pappír fæst
með því að brjóta kortin úr
kartoni af A5 stærð. Þannig
fær maður tvö kort úr hverju
A4 kartoni með lítilli fyrir-
höfn. En ef framleiðslan er
ekki þeim mun meiri getur
hin minnsta breyting á lagi
kortanna gert kortin nýstár-
legri og meira fyrir augað.
Meðan verið er að prufa sig
áfram með útprentun er um
að gera að nota þynnri pappír
og stilla prentarann á
ódýrustu útprentun (draft).
Það sem maður sér á skján-
um er aldrei alveg eins og á
raunverulegu útprentuninni.
Ekki sóa dýru kartoni eða
bleki fyrr en þið eruð fullkom-
lega ánægð með útkomuna.
að nota önnur efni eins og til
dæmis siffon í sama tilgangi.
4 - Umslagakort:
Þetta er praktíska kortið sem
í senn er umslag og kort. Tek-
ið er A4 blað og hornin klippt
í burtu þannig að blaðið
myndi ferkantaðan kross.
Armar krossins mynda flipa
sem eru brotnir inn að miðju
þannig að kortið lokist. Hægt
er að gera þetta á ýmsa vegu
eftir því hvernig maður vill
hafa kortið í laginu. Fliparnir
eru bundnir saman með mjóum borða,
en einnig er hægt að nota innsigli í
sama tilgangi. Ýmist er hægt að prenta
beint inn í kortið/umslagið eða prenta á
karton sem er límt inn í umslagið. Þá er
um að gera að nota líka tölvuna til að
prenta utan á umslagið þannig að fyrir-
höfnin sé sem minnst.
5 - Hjarta/leturkort: Framhliðin
á þessu korti er útskorið hjarta, en á
næstu síðu er ástarsaga brúðhjónanna
rakin í stikkorðum. Þessi litla saga gerir
kortið í senn rómantískt og einstakt. Hér
er textinn í rauninni orðinn að myndefni
og því um að gera að vanda valið á let-
urgerð, stærð og lit. Hugmyndina má út-
færa á enn persónulegri hátt með því að
handskrifa söguna. Til að stytta sér leið
má skanna þessa skrift inn í tölvu og
prenta út í fleiri eintökum.
6 - Þakkarkort/Kossakort:
Hér eru varir brúðhjónanna þrykktar á
kortið með varalit (þ.e. ef brúðguminn
fæst til þess). Með þessu móti geta
brúðhjónin þakkað fyrir sig á persónuleg-
an og frumlegan hátt, þar sem kossar
þeirra eru í bókstaflegri merkingu festir
á blað. Hér er mest krefjandi að velja
umgjörð kortins og réttan varalit. Eftir-
leikurinn er léttur, en þó kannski tíma-
frekur. Þá þarf að passa að leyfa vara-
litnum að þorna vel áður en kortið er
sett í umslag. Best er að festa litinn
með svokölluðu fixatífi sem fæst í flest-
um föndur- og myndlistarvöruverslunum.
Einnig er hægt að nota hárúða í sama
tilgangi.
Umsjón: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Brúðarkort
Flest verðandi brúðhjón kjósa að bjóða gestum sínum í brúðkaupið bréfleiðis
1
3
2
3
4
6
5
Góð ráð