Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 35
Borðskreyting og brúðarkerti
Falleg kerti skapa rómantíska og notalega stemmningu. Vaxandi er
sérhæfð kertagerð til þjónustu fyrir brúðkaup. Hvít eða ljós kerti eru
vinsælust fyrir brúðkaup en hægt er að panta nánast hvaða liti sem er
eftir þema brúðkaupsins.
Kertin eru í ýmsum stærðum og lögun, stærstu píramídakertin
eru t.d. 150 cm há.
Vaxandi hefur verið að þróa nýjung sem eru borðskreytingar úr vaxi,
eins konar vasar sem hægt er að stilla upp með samlitum kertum og
blómum. Einnig er hægt að panta handskrifaðar áletranir, prentaðan
texta eða handmálaðar myndir og ljósmyndir á kertin, allt eftir óskum
viðskiptavinarins.
Janúarbrúður er hyggin húsmóðir og vel
skapi farin.
Febrúarbrúður er góðhjörtuð, ástrík
eiginkona og blíð móðir.
Marsbrúður er léttúðug skrafskjóða,
gefin fyrir þrætur.
Aprílbrúður er ósamkvæm sjálfri sér,
ekki gefin fyrir að ræða
alvarleg málefni, en fögur.
Maíbrúður er fögur, vingjarnleg og
líklega hamingjusöm.
Júníbrúður er örlát en áköf.
Júlíbrúður er fögur og hugguleg í sér,
en ögn örgeðja.
Ágústbrúður er vingjarnleg og hagsýn.
Septemberbrúður er háttvís, alúðleg
og mjög vinsæl.
Októberbrúður er fögur og ástrík en
bæði daðurgjörn og
afbrýðisöm.
Nóvemberbrúður er frjálslynd og
umburðarlynd.
Desemberbrúður er í góðu jafnvægi,
skemmtileg og hefur
þörf fyrir tilbreytingu
en er eyðslusöm.
Hvaða mánuður
hentar þér best ?
Mörg pör kjósa að láta gefa sig saman í hjónaband þegar sól
er hæst á lofti á meðan öðrum finnst afar rómantískt að gifta
sig í mesta skammdeginu. Samkvæmt þessum gömlu
spádómum á að vera hægt að lesa í persónuleika brúðarinnar
eftir því hvenær ársins hún gengur í hjónaband. Útlistun á
skapferli brúðgumans var ekki að finna í þessari bók, enda
var það sennilega aukaatriði á sínum tíma þegar þetta var
ritað.
frá Vaxandi
1 árs Pappírsbrúðkaup
2 ára Bómullarbrúðkaup
3 ára Leðurbrúðkaup
4 ára Blómabrúðkaup
5 ára Trébrúðkaup
6 ára Sykurbrúðkaup
7 ára Ullarbrúðkaup
8 ára Bronsbrúðkaup
9 ára Viðarbrúðkaup
10 ára Tinbrúðkaup
11 ára Stálbrúðkaup
12 ára Silkibrúðkaup
13 ára Kniplingabrúðkaup
14 ára Fílabeinsbrúðkaup
15 ára Kristalsbrúðkaup
20 ára Postulínsbrúðkaup
25 ára Silfurbrúðkaup
30 ára Perlubrúðkaup
35 ára Kóralbrúðkaup
40 ára Rúbínbrúðkaup
45 ára Safírbrúðkaup
50 ára Gullbrúðkaup
60 ára Demantsbrúðkaup
65 ára Kórónudemantsbrúðkaup
70 ára Járnbrúðkaup
75 ára Atómbrúðkaup
brúðkaups-
afmæli