Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 45
Hitið olíuna í potti og brúnið hakkið við frekar
mikinn hita. Bætið hvítlauknum, hvítkálinu og
engiferrótinni út í og látið krauma í 5 mínútur
eða þar til hvítkálið fer að mýkjast. Bragð-
bætið með sojasósu og pipar og bætið
baunaspírunum út í. Hrærið öllu vel saman.
Skiptið deigörkunum í 20 hluta (u.þ.b.
10x20) og leggið u.þ.b. 2 tsk af fyllingu á
hverja örk. Rúllið örkunum upp og penslið
kantana með egginu til að samskeytin loði
saman. Steikið rúllurnar við frekar mikinn
hita þar til þær eru brúnar og stökkar. Berið
fram með sætri chilisósu (Thai chilisauce).
Fyrir 10 - 20 stk.
1 msk olía
300 g svínahakk
2 hvítlauksrif, pressuð
100 g fínt rifið hvítkál eða kínakál
2 tsk rifin, fersk engiferrót
2 msk sojasósa
½ tsk svartur, nýmalaður pipar
50 g ferskar baunaspírur
vorrúlludeigarkir eða fílódeigsarkir
egg til að pensla með
olía til steikingar
Fyrir 10
1,5 kg kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
5 msk balsamikedik
3 rauðlaukar, saxaðir
2 bakkar kastaníusveppir, smátt skornir
4 hvítlauksrif, pressuð
2-3 greinar ferskt rósmarín eða 2 tsk þurrkað
3 dl portvín, rauðvín eða þurrt sérrí
sjávarsalt eftir smekk
Fyrir 10
500 g kartöflur
500 g sætar kartöflur
ólífuolía
hlynsíróp
Flysjið kartöflurnar og skerið í teninga. Skolið og
þerrið kartöfluteningana og steikið í olíu þar til bit-
arnir eru ljósbrúnir að lit. Dreypið sírópinu yfir
þannig að kartöflurnar hjúpist. Kartöfluteningana
má síðan geyma við lágan hita í ofni fram að fram-
reiðslu. Einnig má forsteikja þær daginn fyrir fram-
reiðslu, kæla og hita síðan aftur í ofninum og
dreypa sírópinu yfir.
Sírópsristaðir kartöfluteningar
Geymslutími: Tveir sólarhringar í lokuðu íláti í kæli.
Skerið bringurnar í bita eða strimla og
brúnið í 1 msk af olíunni. Dreypið edik-
inu yfir og látið krauma þar til það hefur
gufað upp. Takið pönnuna af hitanum
og hitið það sem eftir er af olíunni á
annarri pönnu (djúpri). Brúnið rauðlauk-
inn og sveppina í olíunni í 1 mínútu.
Bætið hvítlauknum út í og látið krauma í
5 mínútur. Bætið kjúklingabitunum
saman við ásamt rósmaríni, hellið víninu
yfir og sjóðið í 30 mínútur. Bragðbætið
með salti og pipar og berið fram með
sírópsristuðum kartöfluteningum.
Vorrúllur með chilisósu
Má frysta eða útbúa með tveggja daga fyrirvara og geyma í kæli.
Uppskriftir og matreiðsla
Balsamik kjúklingur m. sírópsristuðum kartöflum