Morgunblaðið - 12.03.2004, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 12. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
www.sveit.is
erlenda
r
sÉrferÐ
ir
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
• N
M
1
1
6
2
6
/ S
IA
.IS
NIÐURSTÖÐU sem ekki felur í
sér sektargreiðslu er að vænta í
rannsókn Samkeppnisstofnunar á
meintu samráði tryggingafélag-
anna Tryggingamiðstöðvarinnar,
Sjóvár-Almennra trygginga hf. og
VÍS, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður Trygginga-
miðstöðvarinnar hf., sagði á aðal-
fundi félagsins í gær að vonir
stæðu til þess að viðunandi niður-
staða næðist varðandi rannsókn
Samkeppnisstofnunar á meintu
ólögmætu samráði tryggingafélag-
anna. „Félagið hefur hrakið ásak-
anir stofnunarinnar og telur álykt-
anir hennar um ólögmætt samráð
alrangar og ekki á rökum reistar.
Eftir viðræður sem forstjóri fé-
lagsins ásamt framkvæmdastjór-
um VÍS, Sjóvár og SÍT hafa átt
með fulltrúum Samkeppnisstofn-
unar standa nú vonir til að ásætt-
anleg niðurstaða fáist í málinu á
næstunni,“ sagði Gunnlaugur í
ræðu sinni.
Trygginga-
félög þurfi ekki
að borga sektir
Von er um/16
SJÖTTU bekkingar MR lögðu yngri bekkinga í
hinum árlega og rótgróna gangaslag skólans sem
fram fór í gær. Í gær tóku stúlkur í fyrsta skipti
þátt í gangaslagnum og börðust þær vel þær
fimm mínútur sem það tók sjöttu bekkinga að
knýja fram sigur. Anna Heiða Gunnarsdóttir,
nemandi í 6-R, var ein þeirra 20 kvenna sem slóg-
ust. „Þetta var rosalega gaman,“ sagði Anna.
„Okkar hlutverk var að ryðja þeim sem voru í
stiganum burtu og brjóta múrinn fyrir strákana.
Síðan vorum við nokkurs konar fótstig fyrir þá,
sem þeir nýttu sér til að hoppa yfir hópinn.“
Áralöng hefð er fyrir gangaslag MR, sem fer
þannig fram að dimmitendi, eða sjöttu bekkingar
með Inspector plateraum (hringjara) í broddi
fylkingar, reyna að hringja inn til fimmtu
kennslustundar. Remanentar, eða 3., 4. og 5.
bekkingar, reyna að varna þeim aðgengis að
bjöllunni. Takist þeim að halda eldri bekkingum
frá bjöllunni í 15 mínútur fá þeir frí í kennslu-
stundinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stelpurnar láta til sín taka í gangaslag
NÚ liggur fyrir að tveir sakborninga
í líkfundarmálinu í Neskaupstað
hafa játað aðild sína að málinu.
Morgunblaðið hefur fyrir því örugg-
ar heimildir. Einn þremenninganna
játaði fyrstur og annar játaði nokkru
seinna. Þriðji sakborningurinn neit-
ar aðild að málinu.
Sakborningarnir þrír komu fyrir
dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Þar staðfestu þeir ítarlegar frá-
sagnir sem þeir hafa gefið í yfir-
heyrslum hjá lögreglu. Réttargæslu-
menn sakborninganna voru
viðstaddir. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa yfirheyrslurn-
ar enn styrkt þann grun lögreglu að
atburðarás hafi verið með þeim
hætti sem lýst var þegar upphaflega
var gerð krafa um gæsluvarðhald yf-
ir mönnunum þremur.
Fíkniefnin líklega frá Litháen
Talið er víst að málið hafi upphaf-
lega snúist um fíkniefnainnflutning.
Nú þykir líklegast að Vaidas Jucivic-
ius hafi borið fíkniefnin innvortis alla
leið frá Litháen. Stífla í meltingar-
vegi hafi leitt hann til dauða föstu-
daginn 6. febrúar. Sakborningarnir
þrír, Tomas Malakauskas, Grétar
Sigurðsson og Jónas Ingi Ragnars-
son, hafi ákveðið að flytja lík hans til
Neskaupstaðar og sökkt því í höfn-
ina, þar sem það fannst 11. febrúar.
Sakborningarnir voru úrskurðaðir
í gæsluvarðhald til 24. mars nk. Þeir
kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar,
sem staðfesti hann.
Tveir hafa játað í
líkfundarmálinu
Sakborningar staðfestu framburð fyrir dómara
SÓKNARFÆRI Flugleiða liggja í
flugrekstri fremur en ferðaþjónustu,
þ. á m. í alþjóðlegu leiguflugi og al-
þjóðlegu fragtflugi. Þetta kom fram í
máli Hannesar Smárasonar, sem
kjörinn hefur verið stjórnarformaður
Flugleiða, á aðalfundi félagsins í gær.
„Frumþekking Flugleiða liggur í
flugrekstri og teljum við þar mikil
tækifæri til sóknar. Því er kannski
rétt að fyrirtækið einbeiti sér meira
að fluginu og ívið minna að öðrum
tengdum rekstri,“ sagði Hannes.
Hann sagði að áhuga nýrra eigenda á
félaginu mætti m.a. rekja til þeirra
tækifæra sem liggi í framtíð þess og
þau séu fjölmörg.
Mikil umskipti urðu í stjórn Flug-
leiða á fundinum í gær, m.a. hætti
Hörður Sigurgestsson sem stjórnar-
maður eftir 20 ára setu, þar af hefur
hann verið formaður stjórnar í 13 ár.
Nýja stjórn Flugleiða skipa Hann-
es Smárason formaður, Benedikt
Sveinsson, Hreggviður Jónsson, Jón
Ásgeir Jóhannesson, Jón Helgi Guð-
mundsson, Pálmi Haraldsson og
Ragnhildur Geirsdóttir.
Sóknarfæri í flugrekstri
fremur en ferðaþjónustu
Aðalfundur Flugleiða/12
UNNIÐ er að tilraunaverkefni fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar
varðandi miðlæga kjörskrá þannig að
fólk geti kosið á hvaða kjörstað sem
er og þurfi ekki að fara á einn tiltek-
inn kjörstað til að kjósa eins og nú er.
Þetta er meðal þess sem kemur fram
í stefnu ríkisstjórnarinnar um upp-
lýsingasamfélagið 2004–2007 undir
yfirskriftinni Auðlindir í allra þágu.
Samkvæmt stefnumótuninni á að
vinna að undirbúningi miðlægrar
kjörskrár til notkunar í sveitar-
stjórnar- og alþingiskosningum með
það að markmiði að kjósandi geti
mætt á hvaða kjörstað sem er til þess
að kjósa og að hægt verði að nota
upplýsingatæknina við sjálfa kosn-
inguna. Er lagt til að dóms- og félags-
málaráðuneytið vinni sameiginlega
að tilraunaverkefni á þessu sviði við
næstu sveitarstjórnarkosningar árið
2006.
Einnig kemur fram að á þessu og
næsta ári á að kanna hvernig og á
hvaða sviðum megi auka samráð og
samskipti milli almennings og opin-
berra aðila. Gerðar verði meðal ann-
ars tilraunir með uppsetningu um-
ræðutorga, þar sem fram fari
skoðanaskipti um afmörkuð málefni.
Segir að slík umræðutorg falli vel að
hugmyndum um íbúalýðræði og auk-
inni þátttöku almennings í að móta
sitt nánasta umhverfi og verða sveit-
arfélög, ráðuneyti og ríkisstofnanir
hvött til þess að koma upp slíkum
umræðutorgum.
Tilraunaverkefni um
miðlæga kjörskrá
Hægt að
kjósa hvar
sem er 2006
Upplýsingatæknin/33