Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 59 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefin/n og fróð- leiksfús og hefur mikinn áhuga á heimspeki og trúar- brögðum. Leggðu hart að þér á þessu ári því þú munt uppskera árið 2005. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Merkúr er í merkinu þínu og það fyllir þig löngun til að tala við alla sem á vegi þínum verða. Þér finnst þú hafa eitt- hvað mikilvægt fram að færa. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú vilt halda hlutunum sem mest út af fyrir þig í dag. Þetta er góður tími til að líta í eigin barm og skoða sjálfa/n þig með gagnrýnum augum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gefðu þér tíma til að skoða samband þitt við fólkið í kringum þig í dag. Stefnirðu að þínum eigin markmiðum eða læturðu umhverfið hafa of mikil áhrif á þig? Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Varastu að týna þér í smáat- riðunum í vinnunni í dag. Þetta er góður dagur til við- ræðna við yfirmann þinn og fólk í áhrifastöðum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þetta er góður tími til að hefja einhvers konar nám. Reyndu að auka þekkingu þína og skilning á framandi hugmyndafræði og menn- ingu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú munt líklega taka þátt í samræðum um fjármál og sameiginlegar eignir í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Merkúr er beint á móti merk- inu þínu og mun verða það næstu vikurnar. Þetta veitir þér tækifæri til að koma ýms- um óvissuatriðum á hreint. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert að velta fyrir þér leið- um til að bæta heilsu þína með auknu hreinlæti, bættu mataræði og meiri hreyfingu. Þetta er af hinu góða. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú nýtur þess að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér og lesa, skrifa eða ráða kross- gátur í dag. Það er eins og þú þurfir svolítið frí frá um- hverfi þínu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert í nánari samskiptum við foreldra þína en venju- lega. Þú þarft líka á óvenju- mikilli einveru að halda þessa dagana. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er eitthvert eirðarleysi í þér sem mun vara næstu dagana. Þetta er því ekki rétti tíminn til að taka það ró- lega. Láttu hendur standa fram úr ermum og gerðu það sem gera þarf. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert að reyna að auka lífs- gæði þín og eyðir því meiru þessa dagana en þú ert vön/ vanur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FYRSTU VORDÆGUR Ljósið loftin fyllir, og loftin verða blá. Vorið tánum tyllir tindana á. Dagarnir lengjast, og dimman flýr í sjó. Bráðum syngur lóa í brekku og mó. Og lambagrasið ljósa litkar mel og barð. Og sóleyjar spretta sunnan við garð. – – – Þorsteinn Gíslason. LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 13. mars, er sjötug Hugrún Kristinsdóttir, Hjúkr- unarheimilinu Víðinesi. 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 13. mars, er sjötugur Sigurður Magnússon, fyrrverandi rafmagnseftirlitsmaður, kanslari í Þingstúku al- þjóðareglu Góðtempara IOGT í Reykjavík. Sigurður er að heiman í dag. „ANDSTÆÐINGARNIR eru með þrjú grönd á heilanum,“ segir Eddie Kantar í inngangi sínum að þraut dagsins, sem er snýst um það að finna réttu vörnina gegn frekjulegum þremur gröndum. Þetta er sveita- keppni. Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♠D109 ♥872 ♦ÁKG106 ♣98 Austur ♠ÁG6 ♥D95 ♦932 ♣KD74 Vestur Norður Austur Suður Pass Pass 1 lauf 1 hjarta Pass 2 tíglar Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Lesandinn er í austur og vestur kemur út með spaðaþrist, fjórða hæsta. Sagnhafi lætur níuna úr blindum og gosinn heldur (fjarkinn frá suðri). Hvað nú? Alla vega er sjálfsagt að hlamma niður spaða- ásnum í öðrum slag til að kanna hvort útspil makk- ers sé frá kóngnum fjórða eða fimmta. En ef vestur sýnir ekki tvistinn væri glapræði að spila spaða áfram – þá er hætt við að austur ráði ekki við þrýstinginn í lokastöðunni: Norður ♠D109 ♥872 ♦ÁKG106 ♣98 Vestur Austur ♠K753 ♠ÁG6 ♥G6 ♥D95 ♦875 ♦932 ♣6532 ♣KD74 Suður ♠842 ♥ÁK1043 ♦D4 ♣ÁG10 „Góður makker á hjartagosann í þessari stöðu,“ segir Kantar, en þá dugir að skipta yfir í laufkóng í þriðja slag. Við sjáum hvað gerist ef vörnin tekur fjóra spaðaslagi strax. Sagnhafi tekur alla tíglana og sá síðasti þvingar austur með Dxx í hjarta KD í laufi. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. 0-0 Rge7 6. He1 Rg6 7. c3 Be7 8. d4 Bd7 9. Rbd2 0-0 10. Rf1 exd4 11. cxd4 b5 12. Bb3 Bg4 13. Be3 Ra5 14. h3 Rxb3 15. axb3 Bc8 16. Dc2 Bb7 17. Rg3 Bf6 18. Rh5 Be7 19. d5 He8 20. Dc3 Bf8 21. Bg5 Dd7 Staðan kom upp á Reykjavíkur- skákmótinu sem stendur nú yfir í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Davíð Kjart- ansson (2.267) hafði hvítt gegn Stefáni Bergssyni (2.036). 22. Bf6! Re5 svartur hefði tapað drottn- ingunni eftir 22. ... gxf6 23. Rxf6+. 23. Rxe5 dxe5 24. Rxg7! h6 hvítur hefði mátað eftir 24. ... Bxg7 25. Dg3. 25. Rxe8 Hxe8 26. Hac1 Ha8 27. Dxe5 Kh7 28. Dg3 og svart- ur gafst upp. Í dag er frí- dagur á mótinu en 17. mars nk. hefst atskákmót þar sem Kasparov og Karpov verða á meðal keppenda. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MEÐ MORGUNKAFFINU MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Rannsóknir sýna að 28% af skurðaðgerðum eru ónauð- synlegar, svo við tökum bara 72% af þessari ... Erum að taka upp glæsilegan sparifatnað fyrir fermingarnar Dragtir - Jakkar - Toppar - Kápur - Peysur Buxur - Bolir - Pils Fallegar vörur á góðu verði Opnunartími mán. - fös. kl. 11-18 & lau. kl. 12-16 Hverafold 1-3 Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.