Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 13
STOFNMÆLINGU botnfiska, tog-
ararallinu svokallaða, er nú að
ljúka en hún hófst 2. mars sl. Fjórir
togarar taka þátt í verkefninu. Að
sögn Jóns Sólmundssonar, verkefn-
isstjóra, hefur Bjartur NS þegar
lokið rallinu á fyrir Norðurlandi og
gerir Jón ráð fyrir að hinir tog-
ararnir, Páll Pálsson ÍS, Brettingur
NS og Ljósafell SU, ljúki rallinu um
og eftir helgi. Jón segir rallið hafa
gengið vel en enn sé of snemmt að
segja nokkuð til um niðurstöður
þess.
Togararallið, sem nú er farið í
20. sinn, beinist að því að meta með
aukinni nákvæmni stærð og nýliðun
botnlægra fiskistofna, einkum
þorsks en einnig ýsu og gullkarfa.
Með þessu móti er stefnt að traust-
ari grunni fiskveiðiráðgjafar. Vægi
þessa verkefnis hefur ennfremur
farið vaxandi hvað varðar vísbend-
ingar um stofnþróun ýmissa ann-
arra smærri nytjastofna eins og
steinbíts, löngu, keilu, skötusels,
hrognkelsis, skarkola, sandkola,
skrápflúru, þykkvalúru og lúðu.
Við mælinguna eru notuð stöðluð
veiðarfæri frá ári til árs og togað er
á sömu togstöðvum, til að fá sem
nákvæmastan samanburð.
Togararallinu að ljúka
HÓLMABORG SU, skip Eskju hf. á
Eskifirði, er með mestan kolmunna-
kvóta íslenskra skipa á þessu ári eða
rúm 54 þúsund tonn. Sjávarútvegs-
ráðherra ákvað á þriðjudag að kol-
munnakvóti Íslendinga yrði í ár 493
þúsund tonn og hefur Fiskistofa út-
hlutað kvótanum á skip á grundvelli
aflahlutdeildar.
Börkur NK frá Neskaupstað er
með næstmestan kvóta íslensku
skipanna eða rúm 52 þúsund tonn og
þá kemur Ingunn AK frá Akranesi
með rúm 47 þúsund tonn. Alls fær 31
skip úthlutað aflamarki í kolmunna á
árinu en 11 þeirra eru með innan við
1.000 tonna kvóta. Eskja hf. er með
mestan kolmunnakvóta einstakra
fyrirtækja. Jón Kjartansson SU, sem
einnig er gerður út af Eskju, er með
nærri 41 þúsund tonna kvóta og sam-
anlagt er Eskja því með nærri 95
þúsund tonna kolmunnakvóta á
árinu.
Elfar Aðalsteinsson, stjórnarfor-
maður Eskju, segir kolmunnakvót-
ann í samræmi við það sem búast
mátti við og gerir ráð fyrir að skip fé-
lagsins haldi senn til kolmunnaveiða,
nú þegar loðnuvertíðin er að fjara út.
Hann segir það skipta verulegu mál-
ið fyrir Eskju, og reyndar útgerðina í
heild, að fá að veiða þetta magn. „Það
er mikilvægt að úthlutaðar heimildir
okkar skerðist ekki hlutfallslega mið-
að við aðrar þjóðir sem nýta þennan
veiðistofn og við höldum okkar rétti
þegar til alþjóðlegrar skiptingar
kemur.
Það styrkir okkar stöðu í því tilliti
að sífellt meira hefur veiðst af kol-
munna innan íslensku lögsögunnar
og ekki þarf að sækja aflann eins
langt og þegar veiðar hófust. Við er-
um því jafnt og þétt að vinna okkur
inn dýrmæta alþjóðlega veiðireynslu.
Þó þurfa langtímasjónarmið að
ríkja í veiðum á kolmunna líkt og í
öðrum stofnum. Þess vegna er mik-
ilvægt að við höldum áfram að reyna
að ná samkomulagi við þær þjóðir
sem nýta stofninn með okkur,“ segir
Elfar.
Málmey SK með mestan
úthafskarfakvóta
Fiskistofa hefur jafnframt úthlut-
að aflamarki í úthafskarfa til ein-
stakra skipa. Veiðiheimildir fyrir út-
hafskarfa skiptast á tvö veiðisvæði og
er heimilt að veiða 45 þúsund tonn á
innra svæðinu en 10 þúsund tonn á
því ytra, sem er sami kvóti og á síð-
asta ári. Frystitogarinn Málmey SK
er með mestan kvóta íslensku skip-
anna eða samtals 4.524 tonn á báðum
svæðum. Næst kemur Venus HF
með 4.334 tonna kvóta og þá Höfr-
ungur III AK með 3.749 tonn.
Fiskistofa úthlutar kolmunna
og úthafskarfa
Hólmaborg með
mestan kvóta
!"
#
$ % &
'(
'
#
)"
*
+
, -
&
((*
.
,*
"
/.
'(
+
*
0
) 1*
2*
"
&3
2*
"
13
)"
.
*
)"
//
2*
2
04
*
)"
.
5
/6+.
6/0/
/+6/
/64/0
#6 4
46
6+.
64
6
.
06./.
06/.4
06
64
.64/
46/
6
604#
#6.4
064
06..
EVRÓPUSAMBANDIÐ hyggst
grípa til aðgerða til að bjarga lífi þús-
unda höfrunga og annarra smáhvela
sem árlega festast í fiskinetum. Til-
lögur, sem skylda sjómenn til að
setja sérstakar ýlur í skip sín til að
fæla höfrunga og önnur smáhveli frá,
verða lagðar fyrir fund sjávarút-
vegsráðherra ESB sem hefst í
Brussel í næstu viku.
Aðgerðunum er sérstaklega beint
að bátum sem taldir eru vera ógn við
sjávarspendýr í Eystrasalti, Norð-
ursjó og Ermarsundi. Búist er við að
einhverjar þjóðir ESB fari fram á
undanþágur fyrir minni skip og báta,
enda séu höfrungafælurnar dýr bún-
aður. Gert er ráð fyrir að búnaðurinn
muni kosta um 520 þúsund krónur
og að hann þurfi að endurnýja á 18
mánaða fresti. Talið er að ESB muni
greiða niður kostnað útgerða við að
setja búnaðinn í skipin og hafa ýmis
fiskveiðisamtök stutt tillöguna, þar
sem smáhvalir geti valdið miklum
veiðarfæraskaða. Einnig segja for-
svarsmenn sjómanna að margir sjó-
menn beri mikla virðingu fyrir höfr-
ungum en samkvæmt þjóðtrú eru
höfrungar sálir drukknaðra sjó-
manna.
Um 300 þúsund höfrungar og
smáhveli flækjast óvart í veiðarfær-
um í heiminum á hverju ári. Höfr-
ungafælur hafa þótt gefa góða raun
þegar hvalir eru annars vegar en
virðast hafa þveröfug áhrif á sumar
selategundir. Þannig sækja vöðusel-
ir í hljóðið sem búnaðurinn gefur frá
sér.
ESB til bjargar
höfrungum
ÚR VERINU
NORÐURLJÓS voru rekin með 451
milljónar króna tapi á síðasta ári.
Tekjur félagsins drógust saman um
1,7% milli ára. Afskriftir félagsins á
síðasta ári námu alls rúmlega 1,4
milljörðum króna, þar af nema sér-
stakar afskriftir óefnislegra eigna og
fastafjármuna samtals 764 milljónum.
Heildarhlutafé í árslok 2003 nam
1.047 milljónum króna. „Hlutafé fé-
lagsins var á árinu fært niður um 80%
til jöfnunar á tapi fyrri ára. Í árslok
2003 var skuldum að fjárhæð 803,6
milljónir króna breytt í hlutafé að
nafnvirði 710,8 milljónir króna,“ segir
í ársskýrslu Norðurljósa.
Eftir fjárhagslega endurskipulagn-
ingu félagsins í upphafi árs 2004 nema
langtímaskuldir við lánastofnanir
5.270 milljónum króna.
Eignir félagsins námu 7.716 millj-
ónum króna í árslok 2003. Í ársbyrjun
2004 var hlutafé Norðurljósa aukið
um einn milljarð króna auk þess sem
félagið var sameinað Frétt ehf. Eignir
Norðurljósa að meðtöldum þessum
breytingum nema samtals 11.622
milljónum króna.
Á aðalfundi Norðurljósa í gær kom
Kári Stefánsson inn í stjórn félagsins
í stað Kristins Bjarnasonar, sem kjör-
inn var í stjórn við sameininguna í lok
janúar sl. Aðrir í stjórn eru Skarphéð-
inn Berg Steinarsson, Gunnar Smári
Egilsson, Halldór Jóhannsson og
Pálmi Haraldsson.
Skuldir ÍÚ lækkuðu
um 2,9 milljarða
Í gær var ennfremur birt uppgjör
dótturfélags Norðurljósa, Íslenska
útvarpsfélagsins, sem rekur nokkrar
sjónvarps- og útvarpsstöðvar, þ. á m.
Stöð 2, Sýn og Bylgjuna. ÍÚ var rekið
með 374 milljóna króna tapi árið 2003
en árið áður skilaði rekstur félagsins
46 milljóna króna tapi. Tekjur ÍÚ
námu um 3,2 milljörðum króna sem
er svipað og árið áður. Það á einnig
við um rekstrarhagnað fyrir afskriftir
(EBITDA) sem var um 300 milljónir.
Fjármunaliðir versnuðu hins vegar
um 442 milljónir frá fyrra ári, mest
vegna gengistaps, og voru 267 millj-
ónir færðar til gjalda.
Eigið fé og skuldastaða ÍÚ tók
stakkaskiptum frá fyrra ári enda var
hlutafé aukið um ríflega 2,5 milljarða
króna í árslok 2003 þegar skuldum við
móðurfélagið Norðurljós var breytt í
hlutafé. Eigið fé var því um áramót
1,9 milljarðar og skuldir ÍÚ lækkuðu
um 2,9 milljarða frá fyrra ári. Þar af
lækkuðu langtímaskuldir um 2,1
milljarð við færslu langtímalána á
móðurfélagið. Veltufé frá rekstri
versnaði um 223 milljónir árið 2003 og
var neikvætt um 12 milljónir. Hand-
bært fé félagsins batnaði um 981
milljón, mest vegna breytinga á
skuldastöðu, og var 704 milljónir.
Norðurljós töpuðu 450
milljónum í fyrra
+
!
"
#
$#
%
"
&'
(
(!
(
)#
*+'
!
(
(
,-.
/,
0+&1/,
.)2
Í SKÝRSLU forstjóra Norðurljósa, Sigurðar G. Guð-
jónssonar, um starfsemi Norðurljósasamstæðunnar á
síðasta ári, sem hann lagði fram á aðalfundi félagsins í
gær, er rakin atburðarás endurfjármögnunar samstæð-
unnar. Sigurður segir að allt frá því í upphafi mars 2001
hafi viðræður um endurfjármögnun félagsins verið „afar
ómarkvissar og í raun gengið út á það eitt að viðhalda yf-
irráðum Jóns Ólafssonar yfir félaginu í gegnum NLC
Holding S.A.“
„Engin markviss vinna átti sér stað af hálfu stjórnar
Norðurljósa til að leysa félagið undan þeim skuldabagga
sem á því hvíldi. Stjórnarformaður félagsins dvaldi að
mestu erlendis, einkum í London og reyndi að hafa uppi
á hugsanlegum aðilum til að koma með nýtt fé inn í
Norðurljós og/eða ráðgjöf um framhald og framgang
endurfjármögnunar Norðurljósa. Meðal þeirra félaga
sem til greina komu var ECO3 Capital,“ segir Sigurður.
Tálsýn og bull á stjórnarfundi
Segir í skýrslunni að stjórnarformanninum, Jóni
Ólafssyni, hafi verið veitt umboð stjórnar til að semja við
ensk fjármálafyrirtæki um endurfjármögnun, þ.á m. við
fyrrnefnt ECO3 Capital, en frá því hafi hins vegar aldrei
heyrst múkk, eins og segir í skýrslunni.
Sigurður segir frá því í skýrslunni að um miðjan júlí
hafi ennfremur verið fundað með fulltrúum skuldabréfa-
eigenda og þeim kynntar tillögur um meðferð krafnanna
við endurfjármögnun sem fallið hafi í grýttan jarðveg.
„Stjórnarformaður félagsins hélt sig sem mest utan við
þær [umræður] og dvaldi bróðurpart þessa mánaðar eins
og annarra utan íslenskrar lögsögu,“ segir í skýrslunni.
Í september gerði stjórnarformaður Norðurljósa enn
grein fyrir áhuga erlendra fjárfesta sem vildu festa fé í
Norðurljósum, en einn þeirra er Marcus Evans sem síð-
ar kom til Íslands og ræddi m.a. við forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, um aðkomu sína að Norðurljósum. „Það
er skemmst frá því að segja að allt reyndist það sem
fram hafði komið hjá stjórnarformanni Norðurljósa á
stjórnarfundinum 9. september tálsýn ein og í raun bull,“
segir í skýrslu Sigurðar. Þegar á reyndi hafi tilboð Ev-
ans til lánardrottna hérlendis verið í litlu samræmi við
það sem áður hafði verið kynnt fyrir stjórn og kröfu-
höfum.
Ekki leyst með leik
Þann 17. október 2003 ritar Sigurður G. Guðjónsson
tölvupóst til Jóns Ólafssonar. „Ég hef sagt það við þig
Jón oftar en einu sinni og það síðast í gær að endur-
fjármögnun Norðurljósa verður ekki leyst með neinum
leik heldur fundum eigenda og lánardrottna. Það sem
Þórarinn Viðar [lögfræðingur Marcusar Evans] er að
gera fyrir hvern sem það er svo sem og senda út á mánu-
dag 20. október er leikur sem ég bið að verði stoppaður
nú þegar, nema allt eigi til andskotans að fara. Bjarni
Brynjólfs, Hallgrímur í Sparisjóði vélstjóra og Friðjón
hjá Lífiðn kæra sig ekki um svona smánarboð eins og
Þórarinn ætlar sér að senda.“
Aðeins töfrar geta bjargað
Í lok október sendir Sigurður tölvupóst til stjórnar-
manna Norðurljósa sem lagður var fram á stjórnarfundi
4. nóvember 2003: „Eftir að hafa fylgst með tilraunum
stjórnenda og eigenda Norðurljósa til endurfjármögn-
unar félagsins [...] eru það að mínu mati aðeins töfrar,
sem nú geta bjargað Norðurljósum frá gjaldþroti, nema
stjórnin taki sig saman í andlitinu og leggi fyrir lán-
ardrottna raunhæfar tillögur um endurfjármögnun.“
Þá segir Sigurður í bréfinu að: „Allar aðgerðir stjórna
eða stjórnenda félaganna sem leitt geta til rýrnunar
hinna veðbundnu eigna sem leiða mundu til þess úr
fullnustu möguleikum kröfuhafanna dragi getur leitt til
persónulegra ábyrgða stjórnar og stjórnarmanna bæði
bóta- og ekki síður refsiábyrgðar t.d. vegna veðsvika.“
Í lok bréfsins kemur svo áskorun til stjórnarmanna:
„Ágætu stjórnarmenn, ég vona að þið gerið ykkur grein
fyrir því að ábyrgð ykkar er mikil í dag eins og fjárhag
Norðurljósa er komið. Seta í stjórn þessa félags sem er
með fast að þrjú hundruð stöðugildi starfsmanna og velt-
ir nærri 6 milljörðum á ári en skuldar lánardrottnum
öðrum en viðskiptamönnum 6,9 milljarða er ekki eitt-
hvað sem afgreitt verður með þögn á stuttum mánaðar-
legum stjórnarfundum heldur aktívu starfi.“
Í samtali við Morgunblaðið í gær segir Sigurður að sér
hafi þótt tímabært að gera grein fyrir þeirri atburðarás
sem í byrjun þessa árs leiddi til endurskipulagningar
Norðurljósa. „Þarna er bara verið að gera upp fortíðina,“
segir Sigurður. Hann segir að ekki sé um að ræða per-
sónulegt uppgjör sitt við Jón Ólafsson. „Þetta er bara til
að menn hafi það á hreinu hvers vegna það tók rúm tvö
ár að endurfjármagna Norðurljós.“ Hann kveðst bjart-
sýnn á framtíðina. „Nú erum við með félag sem er minna
skuldsett og með meiri veltu. Við erum með strúktúr á
lánum sem félagið á að geta staðið við ef ekkert óvænt
gerist. Þetta er allt allt annað félag,“ segir Sigurður.
Forstjóri Norðurljósa um tilraunir til endurfjármögnunar
Ómarkvissar og gengu
aðeins út á yfirráð Jóns
Morgunblaðið/Ásdís
Uppgjör við fortíðina Sigurður G. Guðjónsson.