Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 20
Suðurlandsvegi - 851 Hellu
Sími 487 5700 - Fax 487 5701 - hotelranga@icehotel.is
Hotel Rangá
3ja rétta matseðill með fordrykk, morgunverði
og gistingu frá 18. mars til 1. apríl:
Standard 9.400 á mann
Superior 9.900 á mann
Deluxe 10.900 á mann
SKELFISKDAGAR
4ra rétta matseðill með fordrykk, morgunverði
og gistingu frá 2. til 12 apríl:
Standard 10.200 á mann
Superior 10.700 á mann
Deluxe 11.700 á mann
Tilboð miðast við gistingu í tveggja manna herbergi.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Reiðvegir í Ölfusdal | Hveragerðisbær
og hestamannafélagið Ljúfur standa í sam-
einingu að lagningu reiðvega í Ölfusdal, of-
an Hveragerðis. Er talið að
þetta sé í fyrsta sinn sem
Hveragerðisbær beitir sér
fyrir reiðvegagerð í sveitar-
félaginu, að því er fram
kemur á vef bæjarins.
Vegirnir koma til með að
bæta aðstöðu til útreiða í
dalnum stórlega og auka mjög á fjölbreyti-
leika í leiðavali fyrir reiðmenn. Hér er einn-
ig að koma til framkvæmda eitt af þeim at-
riðum sem títt voru nefnd á íbúaþingi í
Hveragerði sem haldið var í apríl 2003.
Reiðvegirnir sem verið er að leggja eru
um hálfur annar kílómetri að lengd og er
kostnaður um þrjár milljónir kr.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Hugvit og hagleikur | Ákveðið hefur verið
að efna til sýningar í Félagsheimilinu Þjórs-
árveri á verkum hinna mörgu uppfinninga-
manna, hönnuða og listasmiða sem lifað hafa
og starfað í Villingaholtshreppi. Yfirskrift
sýningarinnar verður Hugvit og hagleikur.
Úr sveitinni hafa komið uppfinningar og
smíðisgripir sem síðan hafa spurst um landið
og jafnvel víða um heim, segir í frétt
Fréttavefjar Suðurlands. Sýningin verður
opnuð á sumardaginn fyrsta, 22. apríl, og
stendur til 25. apríl. Forseti Íslands og kona
hans hafa þegið boð um að vera viðstödd
opnun sýningarinnar.
Sýningin er samstarfsverkefni Þjórs-
árvers, Ungmennafélagsins Vöku og Kven-
félags Villingaholtshrepps.
Suðurfjarðagöng | Hreppsnefnd Tálkna-
fjarðarhrepps leggur mikla áherslu á að
jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar
verði að veruleika sem fyrst og samhliða
verði unnið að gerð heilsársvegar yfir Dynj-
andisheiði. Hreppsnefndin samþykkti
ályktun þessa efnis á fundi sínum fyrir
skömmu.
Þetta hefði tvíþætt áhrif, segir í sam-
þykktinni, annars vegar tengingu milli suð-
ur- og norðursvæðis Vestfjarða og hins veg-
ar myndi framkvæmdin kalla á aukna
atvinnustarfsemi á svæðinu meðan á fram-
kvæmdum stendur. Í framhaldinu opnast
möguleikar á enn frekari samvinnu milli
sveitarfélaga, fyrirtækja og í félagsstarfi.
Hornfirska skemmti-félagið sem staðiðhefur fyrir tónlist-
arveislunni „Með allt á
hreinu“ á Hótel Höfn við
góðar undirtektir mun
bregða undir sig betri fæt-
inum og halda í víking til höf-
uðborgarinnar, þar sem sýnt
verður á skemmtistaðnum
Broadway í kvöld. „Með allt
á hreinu“ er eins og nafnið
ber með sér dagskrá byggð á
lögum úr samnefndri mynd
Stuðmanna og þar rekur
hver smellurinn annan.
Hornfirska hljómsveitin
KUSK mun síðan leika á
dansleik að lokinni skemmt-
un. „Nú er bara um að gera
fyrir Hornfirðinga búsetta á
höfuðborgarsvæðinu og
aðra, að dusta rykið af spari-
skónum og skella sér í fjörið
á Broadway,“ segir á sam-
félagsvef Hornafjarðar.
Heiðursgestur kvöldsins
verður Valgeir Guðjónsson
en hann á hlut í ellefu af
þeim fimmtán lögum sem
flutt verða.
Með allt á hreinu
Búðardalur | Konurnar í
Kvenfélaginu Þorgerði
Egilsdóttur í Dölunum
héldu „gellukvöld“ með
bleiku þema, þar sem all-
ar helstu gellur Dalanna
komu saman. Þær
skemmtu sér vel eins og
sést á myndinni af
Steinu, Helgu, Völu og
Fríðu.
„Leoncie Dalanna“
söng og dansaði, það
kom leynigestur og kosn-
ar voru gellur kvöldsins.
Þá var kosinn kynþokka-
fyllsti maður Dalanna og
hlaut Stefán Jónsson
bankastjóri þann titil.
Að sjálfsögðu var boð-
ið upp á gellur í forrétt
og lambakjöt í aðalrétt
og var það Gunnar
Björnsson, veit-
ingamaður í Dalakjöri,
sem sá um matinn.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Gellukvöld hjá Dalakonum
Allar hafa yrkingarSigrúnar Har-aldsdóttur verið
orðlausar undanfarið
vegna vorsins sem er í
nánd:
Ljúf í sinni lifnar glóð
létta fákar sporið.
Hugur fanginn yrkir óð
út í bjarta vorið.
Jón Ingvar Jónsson
yrkir á annan veg um
vorið:
Vorar ört og himinn hér
heiðskír er að vonum.
Frekar hvimleitt finnst nú
mér
fólkið undir honum.
Erlingur Sigtryggsson
slær á létta strengi:
Í sól og blíðri sunnanátt
er sælt að búa á Fróni.
Á himni og jörðu finnst
samt fátt
svo fínt að líki Jóni.
Sigrún er sammála
Jóni um að fólk geti ver-
ið pirrandi og slær botn-
inn í þetta:
Þrautir sárar þjaka Jón
þursar kvelja og hryggja.
Asnar, bjálfar, fífl og flón
fæla hann og styggja.
Vorið kemur
Hrunamannahreppur | Stofnað
hefur verið fyrirtæki á Flúðum
þar sem framleidd er ný gerð af
snakki sem ekki hefur fengist
áður hér á landi. Það eru hjónin
Bozena Maria Jozefik og Michal
Jerzy Jozefik sem standa að
framleiðslunni og eru meðal
margra Pólverja sem sest hafa
að hér á landi á síðari árum.
Snakkið heitir Mais Puffs er
unnið úr grófmöluðum maís sem
keyptur er frá Póllandi. Það
verður með um tuttugu bragð-
efnum og mismunandi salt.
Hjónin hafa keypt vélar fyrir
nokkrar miljónir króna og kom-
ið þeim fyrir í bílskúrnum en
segjast þurfa að bæta við véla-
kost og húsnæði ef vel gengur
að selja.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Framleiðsla: Bozana og Michel ásamt börnum sínum, Milenu og Filíp, við aðal framleiðsluvélina.
Snakk framleitt á Flúðum
Nýjung
ANVEST, Atvinnuþróunarfélag Norður-
lands vestra, mun leiða fjölþjóðlegt verkefni
um strandmenningu á norðurslóðum Evr-
ópu og er það hluti af Norðurslóðaáætlun
Evrópusambandsins. Verkefnið, sem nefn-
ist NORCE, mun líklega hefjast í vor og
ljúka vorið 2007 en heildarumfang þess er
rúmlega 1,2 milljónir Evra. Framtíðarsýn
NORCE er að varðveita og kynna náttúru-
og menningarverðmæti við sjávarsíðuna,
efla ferðaþjónustu í fámennari strandsvæð-
um, viðhalda og efla búsetu í dreifbýlinu og
stuðla að vistvænni þróun, að því er fram
kemur á vef Atvinnuþróunarfélags Norður-
lands vestra.
Þátttakendur í verkefninu koma frá átta
löndum. Fyrir Íslands hönd taka þátt, auk
ANVEST, Atvinnuþróunarfélag Þingey-
inga sem vinnur með ströndina frá Húsavík
að Langanesi, Byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna sem vinnur með strönd
Húnaflóa og Minjasafnið að Hnjóti en það
vinnur með strönd Breiðafjarðar og eyjarn-
ar. Þá eru einnig með í verkefninu aðilar frá
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Hjaltlandseyj-
um, Orkneyjum, Færeyjum og Grænlandi
og einn aukaaðili frá Kanada.
Nýtt í þágu ferðaþjónustu
Markmiðið með NORCE er meðal annars
að þróa net gönguleiða og stíga við strönd-
ina og milli stranda og fjarða, sem tengjast
ferðaleiðum á sjó, efla aðstöðu til skoðunar á
villtum dýrum við sjávarsíðuna, svo sem sel-
um, fuglum og kynna matarmenningu á
strandsvæðum á nýjan hátt með því að gefa
út sameiginlega matreiðslubók.
Gefa á út sameiginlegt kynningarrit um
strandmenningu á viðkomandi svæðum,
standa á fyrir námskeiðum er tengjast efl-
ingu strandmenningar í ferðaþjónustu,
smíða árabáta og kynna notkun þeirra og
notagildi í ferðaþjónustu og koma á
tengslum milli einstaklinga, stofnana og fé-
laga á þátttökusvæðunum sem vinna á
einhvern hátt með strandmenningu eða
menningarferðaþjónustu við sjávarsíðuna.
Kynna strand-
menningu á
norðurslóðum
pebl@mbl.is