Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðbær | Nú stendur yfir sýning í
Höfuðborgarstofu, þar sem sjá má
ljósmyndir af ýmsum hraunhellum,
þar á meðal hvelfingunni í Þrí-
hnúkagíg auk líkans af hugmynd
að útsýnispalli innan í Þríhnúka-
gíg, auk búnaðar sem notaður er
við hellakönnun.
Sýningin er á vegum Árna Stef-
ánssonar, augnlæknis og hella-
könnuðar, sem nýlega setti fram
nýstárlegar hugmyndir um útsýn-
ispallinn innan í gígnum, en þær
hugmyndir hafa hlotið afar góðar
undirtektir undanfarið. Þar er
einnig að finna ítarefni, þar sem
fjallað er um hella og hellakönnun.
„Ég hef haft áhuga á hraun-
hellum síðan ég man eftir mér,“
segir Árni. „Mig hefur langað til
að sýna fólki hella og varðveita þá.
Varðveislan er hluti af því að ég
stend í þessu núna. Ég hef reynt
að stuðla að því að viðkvæmum
hellum sé lokað. Margir hellar eru
með afar viðkvæmar hraunmynd-
anir sem geta eyðilagst við
minnstu snertingu, þess vegna er
gríðarlega mikilvægt að fara var-
lega um hella og loka viðkvæm-
ustu hellunum algerlega fyrir um-
ferð fólks.
En það er heldur ekki nóg að
loka og læsa, það verður líka að
endurgjalda. Fólk verður að hafa
aðgang að hellum. Ég er líka ekki
síst að hugsa um unga fólkið okk-
ar í þessu samhengi að bjóða því
upp á möguleika á að skoða svona
hella án þess að þeir skemmist
varanlega, sérstaklega þá hella
sem eru ekki eins viðkvæmir fyrir
hnjaski.“
Árni segir aðalkostinn þann að
um leið og Þríhnúkagígur er
stærsta hraunhvelfing landsins er
hann afar nálægt höfuðborg-
arsvæðinu og auðvelt að nálgast
hann með því að leggja stuttan
veg að svæðinu. „Þó er gríðarlega
mikilvægt að búa svo um svæðið
að umgangur valdi ekki raski. Það
þyrfti að leggja göngustíga og
setja niður öryggiskeðjur til að
fólk valdi ekki skaða á sjálfu sér
eða náttúrunni. Það þarf að ganga
frá náttúrunni þannig að hún þoli
ágang, það er til dæmis búið að
eyðileggja fjölda náttúrufyr-
irbrigða um allt land með ágangi,“
segir Árni. „Mín megináhersla er
að koma í veg fyrir að svæðið
verði fyrir skaða.“
Samhliða sýningunni hefur Árni
staðið fyrir viðhorfskönnun meðal
sýningargesta og virðast svörin
langflest vera á einn veg. Ef
marka má þau gögn sem nú blasa
við eru gestirnir afar spenntir fyr-
ir hugmyndum Árna og væru nær
allir tilbúnir til að greiða hátt að-
gangsgjald að hraunhvelfingunni.
„Þetta er til vitnis um að almenn-
ingsálitið er með þessu og fólk er
mjög hrifið af þessum hug-
myndum. Uppi í Bláfjöllum eru
kjörnar aðstæður fyrir eld-
fjallaþjóðgarð, þar er þessi mikli
gígur, þar eru hrauntraðir, eld-
stöðvar og hellar, mjög margt sem
er hægt að sýna fólki. Það eru
mjög mörg fyrirbrigði þarna sem
eru mjög merkileg. Bláfjallasvæðið
er perla innan seilingar frá
Reykjavík,“ segir Árni og bætir
við að ekki sé æskilegt að erlendir
fjárfestar borgi fyrir útsýnispall-
inn innan í hraunhvelfingunni, því
þeir hafi ekki sömu hagsmuna að
gæta í náttúruvernd og Íslend-
ingar. „Því er það von mín að við
Íslendingar getum staðið saman
um að byggja þennan útsýnispall.
Sýningin verður í Höfuðborg-
arstofu til annars apríl. Í maí
hyggst Árni síðan setja hana upp í
Kópavogi, en Þríhnúkasvæðið er
innan landamerkja Kópavogs og
segir hann Kópavogsbúa hafa mik-
illa hagsmuna að gæta.
Árni Stefánsson sýnir hellaskoðunarmyndir og búnað í Höfuðborgarstofu
Almenningur hrif-
inn af hugmyndum Morgunblaðið/Árni SæbergÁ sýningu Árna Stefánssonar má sjá myndir af hellum,
hellaskoðunarbúnað og fleira tengt hellaskoðun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bláfjallasvæðið er afar ríkt af sérstökum hraunmyndunum og kjörið fyrir eldfjallafræðslu.
Garðabær | Bókasafn Garðabæjar
mun á komandi vikum taka í notkun
tölvukerfið Gegni. Yfirfærsla gagna
úr eldra tölvukerfi í nýja kerfið mun
eiga sér stað dagana 25. mars til 5.
apríl og um leið verður eldra kerfinu
lokað. Af þeim sökum geta engin út-
lán farið fram í
safninu á þessu
tímabili. Þetta
kemur fram á
upplýsingavef
Garðabæjar,
www.gardabaer-
.is.
Bókasafnið
verður eftir sem áður opið og verður
m.a. sektarlaus vika dagana 26.
mars til 2. apríl, en þá gefst lánþeg-
um kostur á að skila bókum og öðr-
um gögnum, sem eru komin í van-
skil, án þess að borga sektir.
Laugardaginn 3. apríl verður safnið
alveg lokað og nýja tölvukerfið verð-
ur svo tekið í notkun mánudaginn 5.
apríl og geta þá útlán væntanlega
hafist á ný.
Tölvukerfið Gegnir, eða Aleph
500, var valið af nefnd á vegum
menntamálaráðherra sem kerfi sem
öll bókasöfn landsins gætu samnýtt.
Kerfið verður aðgengilegt öllum al-
menningi á Netinu og mun þannig
auðvelda aðgang að bókfræðilegum
upplýsingum og samnýtingu á bóka-
kosti landsmanna.
Landskerfi bókasafna hf., fyr-
irtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga,
annast innleiðingu og rekstur Gegn-
is. Kerfið hefur þegar verið tekið í
notkun í nokkrum bókasöfnum á
landinu s.s. Þjóðarbókhlöðu, Bóka-
safni Háskólans á Akureyri,
Menntasmiðju Kennaraháskóla Ís-
lands og fleiri söfnum.
Nýtt tölvukerfi í
bókasafni
Skólahljómsveit 40 ára | Í til-
efni 40 ára afmælis Skólahljóm-
sveitar Mosfellsbæjar verða haldnir
afmælistónleikar í Íþróttahúsinu í
Varmá á morgun, 20. mars kl. 15.
Stjórnandi skólahljómsveitarinnar
og stofnandi er Birgir D. Sveinsson.
Á efnisskrá verða fjölmörg
skemmtileg verk og gestir koma í
heimsókn. Kynnir verður Þórunn
Lárusdóttir, sem lék með sveitinni í
mörg ár og einsöngvarar Íris Hólm
Jónsdóttir og Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir. Aðgangseyrir er þúsund krónur,
en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Selt verður kaffi, gos, sælgæti og
kleinur í hléi. Ágóði sölunnar rennur
í ferðasjóð hljómsveitarinnar.
1
w w w. g u l a
VORIÐ ER
Vertu vel upplýstur með ljósum frá Ljósbæ
Faxafeni 14 s. 568 0850
Fyrir páska og fermingar
50% afsláttur
Ekta pelsar
Mikið úrval
fermingargjafa
Sigurstjarna
Bláu húsin v/Fákafen s. 588 4545
Pílutjöld ehf
Faxafeni 12
108 Reykjavík
s. 553 0095
www.pilu.is Gardínur fyrir alla glugga 15 % kynningarafsláttur
af öllum vörum
12. - 20. mars
w w w . u n i k a . i s
Unika • Fákafeni • Sími 568 6700