Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 26
LANDIÐ 26 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 AUSTURLAND Egilsstaðir | Ljósmyndasafn Aust- urlands tók nýlega við einnar millj- ónar króna styrk frá Landsbanka Íslands. Á að verja fjárhæðinni til að flokka og tölvuskrá myndasafn vikublaðsins Austra. Aukinheldur verður fénu varið til að skrá filmu- safn Einars Vilhjálmssonar, fv. toll- varðar. Speglar athafna- og mannlíf á Austurlandi Þegar Austri hætti var mynda- safn blaðsins falið Ljósmyndasafni Austurlands til varðveislu og er um að ræða þúsundir mynda úr aust- firsku athafna- og mannlífi. Einar Vilhjálmsson tollvörður frá Seyðisfirði afhenti safninu um 500 eftirtökur og 2.800 filmur sem tengjast athafna- og mannlífi á Seyðisfirði og víðar, m.a. frá síld- arárunum. Stefnir Héraðs- skjalasafn Austurlands, sem Ljós- myndasafnið heyrir undir, nú að því að söfn Austra og Einars verði gerð aðgengileg fyrir þá sem áhuga hafa á austfirsku mannlífi. Landsbankinn styrkir Ljósmyndasafn Austurlands: F.v. Magnús Stef- ánsson, Héraðsskjalasafni Austurlands, Tryggvi Karelsson og Einar Kr. Jónsson, báðir frá Landsbanka Íslands. Styrkur til Ljósmynda- safns Austurlands Ljósmynd/Hrafnkell Jónsson „ÞETTA sorglega slys er tekið gríðarlega alvarlega af öllum að- ilum verksins og öryggisráðstafan- ir á þessum vinnustað verða yf- irfarnar ofan í kjölinn og efldar frekar.“ Þetta segir Sigurður Arn- alds hjá Landsvirkjun í kjölfar hörmulegs banaslyss í Kára- hnjúkavirkjun fyrr í vikunni. „Verktakinn, Impregilo, er að vinna tillögur að útfærslu á frekari öryggisráðstöfunum í og við gljúfr- ið“ segir Sigurður jafnframt. „Framkvæmdaeftirlit Landsvirkj- unar mun svo fara yfir þær og loks verður haft samráð við Vinnueft- irlit ríkisins. Sjálf vinnan við frekari örygg- isráðstafanir ofan við gljúfrið kall- ar sérstaklega á áhættumat, sem Impregilo er að vinna að núna. Það liggur ekki fyrir á þessu stigi hvenær framkvæmdir við þessar öryggisráðstafanir geta hafist, það munu allavega líða nokkrir dagar þar til svo getur orðið. Vinna við framkvæmdina sjálfa ofan í gljúfrinu, bæði við slysstað- inn og við stíflufyllingu neðar í gljúfrinu dregst síðan enn frekar, eða þar til allir aðilar verksins og Vinnueftirlit ríkisins telja nægar ráðstafanir gerðar.“ Vegna spurningar um hvort starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun hafi fengið sérstaka áfallahjálp í kjölfar banaslyssins segir Sigurður að eðli málsins samkvæmt hafi það einkum verið starfsmenn Arnar- fells sem veita þurfti áfallahjálp, en maðurinn sem lést vann fyrir það fyrirtæki. „Í fyrsta lagi komu tveir prestar af Héraði á vinnu- staðinn og hjúkrunarfræðingur frá Egilsstöðum. Jafnframt kom aust- ur reynt starfsfólk frá áfallateymi Landspítalans.“ Öryggisráðstaf- anir yfirfarnar ofan í kjölinn Kallar á nýtt áhættumat Skorradal | Nú er að ljúka sam- eiginlegu verkefni Listaháskóla Ís- lands og LBH, nokkurra vikna námskeiði sem nemendur beggja skóla hafa tekið þátt í. Námskeiðið hefur verið haldið til skiptis á Hvanneyri og í Reykjavík og rúm- lega 30 nemendur hafa tekið þátt. Hin aldna en jafnframt sérstaka Hreppslaug og umhverfi hennar varð fyrir valinu sem megin verk- efni og var annars vegar unnið með aðferðir í landslagsgreiningu, náttúra, menning, upplifun – og síðan byggt áfram á því til að koma með framtíðarsýn á skipulag staðarins og baðmenningu nýrrar aldar. Til stuðnings verkefnavinn- unni voru haldnir nokkrir fyrir- lestrar. Hólmfríður Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir, arkitektar hjá Arkibúllunni, sögðu frá baðhúsinu í Nauthólsvík og Olga Guðrún Sigfúsdóttir arkitekt sagði frá lokaverkefni sínu frá Tækniháskólanum í Berlín, um baðhús og baðlíf í Mývatnssveit, allt mjög fróðleg og áhugaverð er- indi. Ennfremur fóru nemendur í nokkrar ferðir um svæðið, gengu um og reyndu að draga til sín ,,anda staðarins“. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tveir skólar eiga samstarf með þessum hætti og er það mál þeirra sem tóku þátt í þessu að þrátt fyr- ir ýmislegt sem e.t.v. mætti betur fara, væru kostirnir við sameig- inlega vinnu þeim mun fleiri en gallarnir og því verður tvímæla- laust haldið áfram með sameig- inleg verkefni og samstarf þessara tveggja skóla sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði skipulags– og byggingarlistarmenntunar á Ís- landi. Svokallaður ,,gegnumgang- ur“, þ.e.a.s. þar sem verk nemenda eru hengd upp og kynnta þau. Voru þau kynnt í vinnusal um- hverfisskipulagsbrautar (Nýja skóla) á Hvanneyri í gær og verða kynnt í húsnæði Listaháskólans í Reykjavík í dag, föstudeginum 19. mars kl. 10–15. Kynninginer öllum opin og ættu þeir sem áhuga hafa á þessum málum að koma við á kynningarstað. Landbúnaðarháskólinn og Listaháskólinn í samstarfi Morgunblaðið/Davíð Pétursson Þeir nemendur á umhverfisskipulagsbraut á Hvanneyri sem tóku þátt í verkefninu. Fljót | „Meirihluti geitanna er bor- inn. Þær byrja sífellt fyrr að bera, núna komu fyrstu kiðin í janúar en í fyrra fóru þau að fæðast í byrjun febrúar,“ sagði Ásdís Sveinbjörnsdóttir, bóndi á Ljóts- stöðum í Skagafirði. Ásdís hefur verið með geitur á búi sínu í um tuttugu ár. Nú eru þær um tuttugu talsins. Ásdís er einnig með kindur en segir að kindur og geitur séu gerólíkar skepnur. Geiturnar halda sig yf- irleitt í hóp yfir sumarið og ganga í fjallinu fyrir ofan bæinn. Þær sækja ekki í túnið til að bíta eins og kindur gera oft en eiga hins vegar til að fara í heyrúllur á túninu. Ekki til að éta heldur að hnoða þær með hornunum og þá koma oftast göt á plastið sem er alveg afleitt. „Það er gaman að þessu greyj- um, sérstaklega kiðunum meðan þau eru ung. Þó þetta virðist villt- ar skepnur við fyrstu sýn hænast þær auðveldlega að manninum, ekki síst ef þeim er gefið eitthvað sem þeim finnst gott, til dæmis brauð. Ég get kallað á þær þegar þær eru úti jafnvel þótt þær séu uppi í fjalli og þá koma þær hing- að heim til mín,“ sagði Ásdís Sveinbjörnsdóttir. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Hluti geitanna á Ljótsstöðum í Skagafirði með kiðin sín. Kiðin koma sífellt fyrr í heiminn Grundarfjörður | Frá því sl. haust hafa börnin í Grunnskólanum í Grundarfirði átt þess kost að kaupa heitan mat í hádeginu. Maturinn kemur frá veitingahúsinu Kaffi 59 alla daga vikunnar nema föstudaga en þann dag er skólinn hjá nem- endum búinn um hádegisbil. Til þess að hægt væri að fara af stað með slíka þjónustu var gerð könnun meðal for- eldra og þurftu 100 nemendur að vera ákveðnir í að notfæra sér hana til þess að þetta væri mögulegt. Að sögn Birnu Guðbjartsdóttur, starfsmanns á Kaffi 59, hefur börnunum líkað mat- urinn vel og nú eru um 140 nemendur af tæplega 200 sem eru áskrifendur að matnum og flestir kennarar og mest af starfsfólki skólans. Þegar fréttaritara bar að garði um daginn var nautagúllas í matinn og krakk- arnir komu í röðum til að fá skammt- inn sinn. „Svolítið meira af kjöti,“ sagði einn en annar bað um meiri kartöflustöppu. Eftir að skammt- urinn var kominn á diskinn fór hver nemandi inn í sína heimastofu. Fá heitan mat í hádeginu Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.