Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 27
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 27 MÖRGUM unglingnum eflaust til ánægju, en foreldrum til ama, hef- ur nú verið sýnt fram á að það sé eðlilegt að unglingar séu latari en annað fólk. Ungdómurinn getur nú borið við líffræðilegum ástæðum þegar hann er sakaðir um leti, því nýlegar rannsóknir á heila unglinga hafa leitt í ljós að þeir geti bara ekkert að þessu gert! Á vefmiðli Evening Standard segir frá rannsókninni, en þar voru heilar fullorðinna og unglinga skannaðir og bornir sam- an. Kom þá ýmislegt í ljós sem skýrt gæti af hverju unglingar eru sumir svo latir og áhugalausir sem raun ber vitni. „Margir unglingar virðast hafa skertan drifkraft,“ segir Dr. David Hummer sem fór fyrir rannsókninni. „Svo virðist sem sá hluti heilans sem drífur fólk áfram sé ekki fullþroskaður eða a.m.k. mun óvirkari en í full- orðnum.“ Unglingar í rannsókninni voru ekki tilbúnir að leggja mikið á sig til að öðlast umbun þó þeir segðu svo sjálfir. „Hjá þeim snýst allt um að fá eitthvað fyrir sinn snúð á sem skemmstum tíma og þurfa að leggja sem minnst á sig. Einnig komumst við að því að unglingar hafa tilhneigingu til að taka meiri áhættu en fullorðnir, og það kann að skýra að einhverju leyti óhlýðni margra þeirra sem og misnotkun á áfengi og eiturlyfjum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Letin eðlileg?  UNGLINGAR Mazda3er vel búinn og kraftmikill bíll sem flú ver›ur a› sko›a. Opi› frá kl. 12-16 laugardaga Aukahlutir á mynd: álfelgur og vindskei› á afturhlera B ÍL L ÁR SIN S Í EVRÓPU 200 4 H im in n o g h a f Mazda3 T 1,6 l kostar a›eins1.795.000 kr. Bíll ársins í Danmörku, Finnlandi og Tékklandi. Anna› sæti› í vali á bíl ársins í Evrópu ásamt V W Golf. Máta›u ver›launasæti›! Örfáar hitaeiningar Gómsæta bökunardufti› frá - einfaldlega létt og gott! KVEF- og flensusjúklingum er gjarnan bent á að drekka mikinn vökva til að flýta fyrir bata, en þessi lækn- isráð eru sennilega röng og geta í raun gert illt verra, sér í lagi ef börn eiga í hlut. Rannsókn bendir til að ef meiri vökvi er innibyrtur en líkaminn þarfnast á sama tíma og hann er að fást við sýkingu, geti það leitt til of mikils „vökvaflæðis“ sem um síðir geti haft áhrif á heilann, leitt til yfirliða og jafnvel dauða, samkvæmt niðurstöðum Chris Del Mar, prófessors við háskólann í Queensland í Ástralíu. Frá þessu hefur verið greint í breska læknatímaritinu British Medical Journal. „Besta ráðið, sem við ættum að gefa sjúklingum, er einfaldlega að drekka þegar þorstinn sækir að þeim. Merki eru um að ofneysla vökva geti skaðað fremur en gagnast sjúklingum og á það sér í lagi við um veik börn, sem áhyggjufullir foreldrar hvetja gjarnan til að drekka mikið. Óhóf- leg vökvainntaka getur á hinn bóginn haft áhrif á náttúrulegt gangverk líkamans við að nýta sér vökvann ámeðan á veikindum stendur,“ segir Del Mar. Fullorðnir mega eiga von á því að fá tvær til fimm pestir á ári og eru læknisráðin venjulega þau að halda vel á sér hita og drekka mikið til að koma í veg fyrir þorn- un líkamsvefja. Del Mar og sam- starfsmenn hans framkvæmdu vökvaprófanir á sjúklingum með öndunarfærasýkingar, en fundu litlar sem engar vísbendingar um að vökvainntakan gagnaðist sjúk- lingum og það kom þeim verulega á óvart. Þvert á móti segjast þeir hafa fundið óbeinar vísbendingar um að ofneysla vökva í veikindum gæti verið skaðleg. Á meðan á öndunarsýkingum stendur, eins og kvefi, flensu og bronkítis, losar líkaminn sig við mikið af vatnsbindandi efni, þekkt sem þvagtemprandi hormón. Hugsanlegt er að mikil vökva- inntaka á sama tíma geti leitt til salttaps og vökvaflæðis, að sögn Del Mar. „Ofneysla vökva getur truflað það jafnvægi, sem líkam- inn er að reyna að viðhalda. Það getur orðið til þess að heilinn verður vatnsósa sem leitt getur til deyfðar, drunga, svefnsýki, við- kvæmni, krampakasta, yfirliða, svefndás og jafnvel dauða.“ Passa þarf ofþornun Í viðtali við Daily Mail sagðist breski læknirinn Chaand Nagpaul í kjölfar rannsóknarinnar hafa af því áhyggjur ef foreldrar ætl- uðu að taka upp á því að halda vökva frá veikum börnum sínum í kjölfar þess- ara niðurstaðna. „Rann- sóknin sýnir hugsanlega og óbeina áhættu af of mikilli vökvainntöku, en samkvæmt minni reynslu er það ekkert sem gerist í raun. „Flestir foreldrar þurfa að ganga á eftir börnum sínum til að drekka þegar þau eru með öndunarsýkingar eða hafa hita, niðurgang og gubbupest. Það er hinsvegar veruleg hætta á uppþornun við þessar aðstæður og því er nauðsynlegt að tryggja að börnin fái nóg af vökva til að koma í veg fyrir þornun og meiri veikindi. Ég tel að læknar muni eftir sem áður hvetja foreldra til að gefa veikum börnum sínum skynsamlegt magn af vökva.“  HEILSA| Of mikill vökvi getur verið varhugaverður Skaði meiri en gagnsemi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.