Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 30
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TÓNSKÓLI Sigursveins heldur tón-
leikahátíð í Háskólabíói á morgun,
laugardag. Um er að ræða röð af
stuttum tónleikum sem hefjast kl.
12.30, 13.30, 14.30 og 15.30.
350 nemendur í hljómsveitum og
hópum koma fram á tónleikunum
undir stjórn kennara sinna. Tón-
leikarnir eru liður í hátíðarhöldum
í tilefni af því að skólinn er 40 ára á
þessu starfsári. Fyrst koma fram
Forskólakór, Léttsveit og Blásara-
sveit I. Þá Gítarsveitir, Blásarasveit
II og nemendur í Tónsmiðju.
Strengjasveitir 1, 2 og 3, og Stór-
sveit strengjanemenda eru næstar
og síðast verður Bach-hátíð þar
sem píanónemendur og Strengja-
sveit Tónskólans flytja þrjá kons-
erta fyrir tvö og þrjú píanó undir
stjórn Arnar Magnússonar.
Morgunblaðið/Sverrir
Strengjasveit Tónskóla Sigursveins ásamt stjórnanda sínum, Erni Magnússyni, á æfingu.
350 nemendur koma fram á
afmælistónleikum í Háskólabíói
Þetta bíókvöld byrjar ámat, því ég rataði loks-ins inn á einn prýðilegaljótan bíóstað, Le Re-
flet. Hann er beint á móti Reflet
Medicis bíói í rue Champollion,
lítilli hliðargötu upp af rue des
Ecoles, rétt við Boulevard Saint
Michel. Le Reflet hefur alla kosti
fyrir bíófólk, staðsetningu,
stemmningu, verð og opnunar-
tíma.
Á matseðlinum er eitthvað fyr-
ir alla, líka grænmetisætur. Gott
úrval er af salötum og ég valdi
mér Auvergne-salat, úr sveita-
skinku, gráðosti og valhnetum.
Úrvalið af víni í glösum er nokk-
uð gott og ég fékk mér Cotes du
Rhone. Það klikkar aldrei. Þar að
auki er það við hæfi fyrir bíófólk
því ef kjaftasagan er sönn þá
drekkur Catherine Deneuve
helst ekki annað.
Salat, vín og kaffi kostar 13
evrur, og það var borgað með
glöðu geði því þetta var gæða-
snarl. Eini þjónninn sem gekk
um beina stóð sig vel í annríkinu
og lét sig líka hafa það að tala við
gesti og spyrja tíðinda ofan af Ís-
landi.
Le Reflet er opinn til tvöá nóttunni og hægt aðfá að borða til klukkantólf. Þannig að sá sem
fer svangur á tíubíó þarf ekki að
fara í háttinn með garnagaul.
Það er léttir að sitja þarna í hléi
frá skarkalanum á St Michel og
horfa á plakötin af Jean Gabin
yfir götuna, en þar stendur yfir
hrina af myndum þjóðleikarans
þessar vikurnar, þar sem hann
leikur allt frá Maigret lögreglu-
foringja til rússnesks öreiga í
Leiguhjalli (Les Bas-fond),
meistaraverki Jean Renoir eftir
skáldsögu Maxim Gorki.
Þá mæli ég með Fritz Lang
hátíð til 28. mars í einu skemmti-
legasta listasafni Parísar, Musée
d’Orsay, fyrrum járnbrautarstöð
við Signu. Í því er mikil „optím-
ísering“ að fara í bíó á safninu,
því enginn endist til að stappa
kringum listaverk nema klukku-
tíma í einu, sama hvað þau eru
heillandi. Upp úr því fara þau að
renna ískyggilega saman.
Og þá erum við komin að
Perlustúlkunni, einu frægasta
málverki allra tíma eftir Ver-
meer, sautjándu aldar Hollend-
inginn sem lét ekki eftir sig nema
30 þekkt verk. Þau spóla hins
vegar endalaust í vitund lærðra
og leikra, svo hæglát sem þau
eru sjálf. Perlustúlkuna eða öllu
heldur Stúlkuna með perlu-
eyrnalokkinn hefur Tracy Chev-
alier, höfundur bókarinnar, sem
kvikmyndin er gerð eftir, séð í
Mauritshuis í Haag og þrifið
pennann. Hún er ekki ein um
það, því ég held að flestir rithöf-
undar sem þarna hafa komið hafi
á einn eða annan hátt fundið sig
knúna til þess að segja eitthvað
eða nota áhrifin sem þeir urðu
fyrir af þessari mynd, eða af Út-
sýn yfir Delft, öðru meistara-
verki Vermeers í Mauritshuis.
Ekki einu sinni ég er þar undan-
tekning.
Ég er hins vegar í frekar vond-
um málum að skrifa um þessa
bíómynd sem ég sá í góðum og
þægilegum sal með nóg pláss
fyrir bífur í UCG Odéon (við
samnefnda metróstöð) því hún er
eitthvað svo froðukennd. Hún
gleður augað og heldur athygli
og það eru a.m.k. tvær áhuga-
verðar persónur í henni, grimm-
ur og gráðugur patrón málarans
og svo konan hans. En sjálfur
Vermeer er í engum fókus og
eiginlega ekki heldur þjón-
ustustúlkan (leikin af Scarlett
Johansson) sem verður smám
saman hjálparkokkur hans, og
endar ódauðleg í myndinni, með
perlueyrnalokkinn sem Tracy
Chevalier lætur vera úr búi hús-
freyjunnar.
Það er út af fyrir sig snið-ug hugmynd að skrifaskáldsögu kringumþetta meistaraverk, en
mér finnst grunsamlegt að
höfundurinn hefur síðan varpað
sér yfir eitt dásamlegasta vef-
listaverk sem hefur verið snúið
saman í okkar heimshluta, og
skrifað skáldsögu um Konuna og
einhyrninginn. Þeir sem vilja
hins vegar skoða þessa dáfögru
og einkennilegu veggtepparunu
(La Dame a la Licorne) geta
brugðið sér á Cluny safnið sem
er næsti bær við veitingastaðinn
frá í upphafi.
Það helsta sem bíómyndin um
Perlustúlkuna skildi eftir sig fyr-
ir mig er umhugsunin um hvað
það er lítið og skrýtið að hún var
einhvern tímann til í alvörunni
stúlkan sem myndin er af, og að
þetta tiltekna andlit hverfur ekki
sjónum meðan heimurinn er til í
þeirri mynd sem við þekkjum
hann núna.
B í ó k v ö l d í P a r í s
Perlustúlkan
auðdauðlega
Eftir Steinunni Sigurðardóttur
Jan Vermeer (1632–1675).
Stúlka með perlueyrnarlokk.
Borgarleikhúsið
– Þrjár Maríur
Síðustu sýningar á einleiknum
Þrjár Maríur eftir Sigurbjörgu
Þrastardóttur verða á Litla sviði
Borgarleikhússins á laugardag og
sunnudag.
Að sýningunni stendur Strengja-
leikhúsið í samvinnu við Borgar-
leikhúsið.
Iðnó – Einþáttungar
Síðustu sýningar á tveimur
einþáttungum Höfundaleikhúss
Dramasmiðjunnar, Korter eftir
Kristínu Elfu Guðnadóttur og Stóra
Málið eftir Svan Gísla Þorkelsson
verða á laugardag og sunnudag.
Síðasta frumsýning í Höfundaleik-
húsi er svo helgina 27. og 28. mars
en þá verður sýndur gamanleikur-
inn Yndislegt kvöld eftir Pál Her-
steinsson.
Borgarleikhúsið
– Draugalestin
Síðasta sýning á Draugalest Jóns
Atla Jónassonar á Nýja sviði Borg-
arleikhússins verður á sunnudag.
Leiksýningum lýkur
Ársfundur Séreignalífeyrissjó›sins ver›ur haldinn
29. mars 2004, kl. 17.15 í höfu›stö›vum KB banka
a› Borgartúni 19, 4. hæ›.
Stjórn sjó›sins vill hvetja sjó›félaga til a› mæta á fundinn.
1. Fundarsetning.
2. Sk‡rsla stjórnar.
3. Ársreikningur fyrir li›i› starfsár lag›ur fram.
4. Tryggingafræ›ileg úttekt.
5. Fjárfestingarstefna sjó›sins.
6. Sameining Séreignalífeyrissjó›sins og Frjálsa lífeyrissjó›sins.
7. Önnur mál.
DAGSKRÁ
ÁRSFUNDUR
SÉREIGNALÍFEYRISSJÓ‹SINS