Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 37

Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 37 FYRRVERANDI orku- málastjóri, Jakob Björnsson, skrifaði nýlega grein hér í blaðið sem hann kallaði „Að ganga með klofna umhverfisvitund“ (Mbl. 8. mars). Klofningurinn stafar af því að mönnum getur þótt mikið til um öræfafegurð Íslands en hljóta samt að fórna henni fyrir ál- bræðslur, þar eð sömu bræðslur knún- ar af kolum myndu menga snöggtum meira en álver sem ganga fyrir vatns- orku. Til gleggri skilnings nefnir Jak- ob þessa afstöðu upp á ensku: environmen- tal schizophrenia. Íslendingar hafa sumsé loksins fengið hlutverk í samfélagi þjóðanna: að fórna öræfunum til að bræða heiminum ál. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem nefndur Jakob stingur niður penna, greinar hans í sömu veru hljóta að skipta tugum, ef ekki hundruðum. En aldrei nokkurntímann virðist hann setja spurningamerki við forsendur sínar: sjálfa neysluna sem kallar á allar þessar bræðslur. Nú lifum við Vest- urlandabúar í samfélögum sem ganga fyrir glórulausari kapp- neyslu en áður hefur þekkst, enda ekki nóg með að mengunin sem af henni hlýst boði þessum lifn- aðarháttum skapadægur, heldur er helsti heilsufarsvandi íbúanna nú þegar offita og hreyfingarleysi. Er það hugsjón Jakobs að Ís- lendingar leggist á bakið og bjóði þessum lifnaðarháttum veiðileyfi á náttúru landsins? Hvað á að kalla slíka afstöðu? Umhverfislega kvalasýki (environmental masochism)? Hefur aldrei hvarflað að honum að okkur beri þvert á móti að varðveita það náttúruríki sem sætir æ meiri eftirspurn í veröld sem nú þegar nagar sig í hand- arbökin yfir þeim óafturkræfu spjöllum sem unnin hafa verið á umhverfi iðnríkjanna gömlu (sem snúa reyndar í æ ríkari mæli baki við stóriðju og vilja helst koma henni með öllu af höndum sér til landa sem búa við nógu frumstætt stjórnarfar til að gína við henni). Sú framkvæmd sem fyrrverandi orku- málastjóri hefur ekki þreyst á að bera í bætifláka fyrir - Kárahnjúkavirkj- un - kom til þegar ekkert í efna- hagslífi þjóðarinnar kallaði á hana, nema síður væri. Og lyfti- stöngin sem hún átti að vera Austurlandi hefur reynst eitthvað pastursminni en vænst var, þar eð verktakinn kaus að flytja vinnuafl- ið inn með þeim eindæmum og ax- arsköftum sem fyllt hafa fjölmiðla landsins nú um hríð - og sér ekki fyrir endann á. Eftir standa óheyrilegri spjöll en áður var órað fyrir, í vændum er álbræðsla sem væntanlega mun ganga fyrir innfluttu vinnuafli einnig - eða hvað? Hvað á að kalla ráðslag á borð við þetta? Umhverfislegan kvala- losta (environmental sadism)? Að láta gott af sér leiða? Pétur Gunnarsson svarar Jakobi Björnssyni ’Er það hugsjón Jakobsað Íslendingar leggist á bakið…‘ Pétur Gunnarsson Höfundur er rithöfundur. mbl.isFRÉTTIRSMStónar og tákn Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Kedjur og tannhjól www.lyfja.is Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt www.sokkar.is OROBLU ráðgjafi aðstoðar við val á sokka- buxum í dag kl. 14-18 í Lyfju Garðatorgi, á morgun kl. 14-18 í Lyfju Laugavegi og kl. 13-17 í Lyfju Lágmúla. Sokkabuxur fylgja öllum Oroblu vörum sem kaupauki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.