Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 39 MARK Joyce starfar semsérfræðingur í varnar-málasamstarfinu yfirAtlantshaf hjá RUSI (Royal United Services Institute) í Lundúnum, stofnun sem sinnt hefur rannsóknum og ráðgjöf í öryggis- og varnarmálum frá því árið 1831 og er til húsa undir sama þaki og brezka stjórnarráðið við Whitehall. Hann flytur í dag fyrirlestur í Odda, stofu 101, sem ber yfirskriftina „The Re- turn to Pragmatism in Transatlantic Relations“ í boði brezka sendiráðsins og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Eins og titill fyrirlestrarins gefur til kynna heldur Joyce því fram, að kreppan sem upp kom í tengslunum yfir Atlantshafið í kring um deilurnar um Íraksstríðið – með Frakka, Þjóð- verja og fleiri Evrópu- þjóðir öðrum megin „víglínunnar“ og Banda- ríkjamenn, Breta og fleiri hinum megin – sé tímabundinn útúrdúr frá þeirri uppbyggilegu þróun sem samstarf NATO-ríkjanna hefur gengið í gegnum á síð- ustu árum. Hann segir að það sé engan veginn óhjákvæmilegt að gjáin á milli bandamanna stækki. „Það sem ég er að benda á er að slík túlkun tekur ekki tillit til þess að áður en titring- urinn vegna Íraks- stríðsins ágerðist í fyrra hafði um langt skeið far- ið fram mjög uppbyggi- leg samvinna og samráð bæði yfir Atlantshafið og innan Evrópu og þessi samvinna komst mjög fljótt á góðan bataveg eftir að æsing- inn á síðasta ári lægði.“ Joyce segist þannig ekki vilja að gert sé of mikið úr ágreiningnum sem upp kom milli kjarnaríkja Atlants- hafsbandalagsins í fyrra. En til að samstarfið geti áfram blómgazt verði sú staðreynd að við- urkennast, að Evrópa og Bandaríkin eru að þróast í tvær ólíkar áttir hvað varðar áætlanir og fjárfestingar á sviði varnarmála. Það sé eðlilegt að Evrópuríkin hafi þar aðrar áherzlur en Bandaríkin, það þurfi ekki að hindra gott samstarf yfir Atlantshaf- ið. Bezta ráðið til að stuðla að því sé að raunsæi og hreinskiptni sé í fyrirrúmi í samskiptunum. Hvar passar ný varnar- málastefna ESB inn? „Ég held að það sé viðurkennt hjá ráðamönnum allra hlutaðeigandi landa, bæði austan hafs og vestan, að Bandaríkjamenn haldi áfram að draga úr hernaðarviðbúnaði sínum í Evrópu,“ segir Joyce. „Það er ekkert leyndarmál að bandarískir erindrek- ar hafa verið á ferðinni í Austur- og Suðaustur-Evrópu í því skyni að kanna aðstæður fyrir nýjar herstöðv- ar þar og eru að skipuleggja brott- flutning herliðs frá gömlu kald- astríðsherstöðvunum í Þýzkalandi. Að bandarískir hermenn séu þetta margir í þessum gömlu herstöðvum þjónar augljóslega ekki áþreifanleg- um hernaðarlegum tilgangi lengur og kostnaðurinn er dragbítur á brýnni verkefni sem Bandaríkjaher hefur að sinna annars staðar í heiminum. Það eru því allir að laga sig að þessu breytta umhverfi og þegar litið er fram á veginn er spurningin sú hvar ný öryggis- og varnarmálastefna Evrópusambandsins passar inn í þetta,“ segir Joyce. Sé sú nýja stefna í alvöru tilraun af hálfu Evrópumanna til að taka varnir sínar í eigin hendur segist hann telja að Bandaríkjamenn fagni því al- mennt, rétt eins og flestir aðrir. „Það sem ýmsir í Washington óttast hins vegar er að út úr þessari viðleitni ESB gæti komið stefna sem beinlínis storkaði stefnu Bandaríkjamanna í al- þjóðamálum. Það sem forsvarsmenn Evrópuríkjanna þurfa að gera er að sannfæra bandaríska bandamenn sína um að þetta sé ástæðulaus ótti,“ bætir hann við. Spurður hvort hryðjuverkin og stjórnarskipti á Spáni kunni að breyta viðhorfi ráðamanna í Wash- ington til þess hvaða vægi Vestur-Evrópa hafi í hnattrænum ör- yggismálaáætlunum þeirra, svo sem um skipulag bandarískra herstöðva erlendis, segir Joyce að enn sé of snemmt að hlaupa að ályktunum um þetta. Inntur eftir því hvort hugsanlegt væri að nú, þegar Vestur-Evrópa væri augljóslega orðinn „vígvöllur hins hnatt- ræna hryðjuverka- stríðs“ kunni spurning- in um áframhaldandi veru bandarísks her- liðs í varnarstöðinni í Keflavík að birtast í nýju ljósi, segir Joyce að viðræðurnar um endurnýjun varnar- samnings Íslands og Bandaríkjanna tengist augljóslega hinu víð- tækara ferli endur- skipulags á dreifingu bandaríska heraflans um heiminn, sem verið hefur í gangi allt frá lokum kalda stríðsins. „Ég held að uppákom- ur eins og hryðjuverkin á Spáni muni litlu breyta um þetta ferli; það er verið að loka fjölda „kaldastríðs-herstöðva“ í Vestur- Evrópu, bandarískir hermenn verða sendir annað. Hvort hryðjuverkin og stjórnarskiptin á Spáni muni verða bandarískum ráðamönnum tilefni til að endurskoða stefnu sína gagnvart Vestur-Evrópu - ég myndi segja já; en Evrópumenn hafa meiri reynslu af að kljást við ógnina af hryðjuverkum en Bandaríkjamenn – mér er því ekki ljóst hver áhrif þetta kann að hafa á tengslin yfir Atlantshafið. Það á eftir að skýrast,“ segir Joyce. Hann segir hins vegar athyglisvert, að í sömu ræðunni og Zapatero, leiðtogi spænskra sósíalista og verðandi for- sætisráðherra, tilkynnti um fyrirhug- aða heimköllun spænska herliðsins í Írak tók hann skýrt fram að Spánn myndi áfram beita sér af afli í stríðinu gegn hryðjuverkum. Þetta sýni glöggt hvernig í Evrópu sé almennt litið á Íraksstríðið og stríðið gegn hryðjuverkum sem tvö ólík stríð, en ráðamenn í Washington vilji alls ekki að þessi greinarmunur sé gerður. „Í opinberri orðræðu í Bandaríkjunum hefur Íraksstríðið verið réttlætt með því að það væri nauðsynlegur þáttur í stríðinu gegn hryðjuverkum. Evr- ópubúar kyngdu þessari röksemd hins vegar fæstir, alveg frá byrjun,“ segir Mark Joyce. Tengslin yfir Atlantshaf á góðum batavegi Brezki varnarmálasérfræðingurinn Mark Joyce segir í samtali við Auðun Arnórsson að horfur séu góðar á að bandamenn beggja vegna Atlantshafs- ins finni aftur rétta taktinn í samskiptunum innan NATO, en meiri hreinskilni sé þörf. Mark Joyce ’Í Wash-ington óttast ýmsir að ný stefna ESB kunni að storka stefnu Bandaríkj- anna í al- þjóðamálum.‘ auar@mbl.is ýðir að bankarnir verða að skila semi til þess að vera frambæri- stingakostur. Eigið fé bankanna ðanna er samtals um 100 millj- í er ljóst að til þess að mæta þess- þarf hagnaður þeirra að vera milljarðar króna samtals á ári.“ bendir á að stundum virðist sem samasemmerki á milli hagnaðar g þjónustugjalda eða vaxtakjara mennings. Það sé þó ekki rétt því nn hjá bönkunum sé fyrst og narri þjónustu en hinni almennu nkaþjónustu. n af henni hefur verið mjög jöfn kki hún sem hefur gert bankana i fjárfestingakosti. Þetta þurfum smenn bankanna að skýra og i, þ.e. að hagnaðurinn tengist oft ærri fyrirtækjaverkefnum, verk- ndis o.s.fr.v. en þannig hefur tek- heildarafkomuna en ekki vegna karnir starfi með óeðlilega háum öldum eða vaxtamun á innlendum egir Halldór. uleikar á enn frekari hagræðingu finu? ætla að enn megi hagræða í við- aþjónustunni. Á síðustu fimm ár- otkun á rafrænum heimabönkum arlega en á sama tíma hefur um og afgreiðslustöðvum lítið t fækkað. Árið 1997 voru 181 í landinu og þau voru 178 árið yrir að helmingur allra daglegra ipta eigi sér nú stað með rafræn- n var innan við 10% árið 1997. vert útibú eru einnig mjög fáir útibú þjónar þannig aðeins 1.600 fir 3.000 í Danmörku og Svíþjóð. in myndi ekki þurfa að bitna á num enda hægt að hagræða mik- erfinu án þess að það hefði áhrif á aðgang landsmanna að fjármálaþjónustu.“ Hvers vegna hefur ekki orðið hraðari þróun að þessu leyti? „Þrátt fyrir allt hefur samruninn í banka- kerfinu verið á milli banka og fjárfestinga- banka,“ segir Halldór. „Á liðnum fimm árum hefur ekki orðið samruni milli tveggja við- skiptabanka þar sem hagræðingin væri mest. Margir sáu fyrir sér að mikil hagræð- ing myndi nást með því að auka samvinnu sparisjóðanna og bankanna en það var gripið inni í það ferli.“ Hver er afstaða samtakanna í því máli? „Frá sjónarhóli atvinnugreinarinnar verð- ur það að teljast nokkuð sérstakt að sjálfs- forræði sparisjóðanna var minnkað og um leið möguleikar þeirra til að hagræða. Stjórnir sparisjóðanna voru bestu aðilarnir til að meta hvort það myndi best tryggja hagsmuni þeirra, stofnfjáreigenda og við- skiptavina til lengri tíma að starfa með öðr- um banka. Stjórn SPRON komst að þeirri niðurstöðu og fyrst SPRON komst að þeirri niðurstöðu er eðlilegt að spyrja hvort ekki mætti ætla að miklu minni sparisjóðir ættu þeim mun heldur að komast að slíkri nið- urstöðu. Þess vegna tel ég að flestir sem hafa skilning á mikilvægi og þörfum þess- arar vaxandi atvinnugreinar, sem fjármála- þjónustan er, harmi að möguleikar spari- sjóðanna til að taka þátt í hagræðingu að eigin frumkvæði og með ákvörðun eigin stjórna hafi verið þrengdir. Í þessu efni tek ég þó fram að ég er ekki að mæla fyrir ein- hverjum öðrum leiðum en þeim að þetta ger- ist með vilja sparisjóðanna sjálfra.“ Halldór segir atvinnugreinina hafa kallað eftir því að hér verði sköpuð skilyrði fyrir mjög sterk fyrirtæki á heimamarkaði. Það hafi sýnt sig í allri útrás og alþjóðavæðingu atvinnulífsins að fyrirtæki með sterkan heimamarkað séu þau fyrirtæki sem hafi haft burði til þess að hasla sér völl á erlendum mörkuð- um. Af þessum sökum sé eitt helsta hagsmunamál Sam- taka banka og verðbréfafyr- irtækja og viðskiptavina þeirra að húsnæðislánakerf- ið verði fært frá ríkinu og til bankanna enda hnígi að því mörg veigamikil rök. Slík breyt- ing myndi styrkja þjónustu bankanna heima og efla þá og styrkja um leið alþjóðlega sam- keppnishæfni þeirra. Halldór segir annað baráttumál snúast um að herða enn ákvæði um bankaleynd og að hér verði sköpuð sam- bærileg skilyrði við það sem best gerist í minni ríkjum sem hafi byggt upp öfluga fjár- málaþjónustu, t.d. Lúxemborg. Hvernig fer saman að búa til stór og öflug fjármálafyrirtæki, sem hafa forsendur til að hasla sér völl erlendis, og tryggja um leið samkeppni á heimamarkaði? „Fyrirtækin sem starfa alþjóðlega hafa stækkað og eflst, m.a. með fjölþættara tekjustreymi frá útlöndum, og hafa orðið enn öflugri þjónustufyrirtæki á innanlands- markaði. Og ég tel að íslenskir neytendur njóti mjög góðs af bættri afkomu bankanna og af þeirri nýju starfsemi sem þeir hafa ver- ið að fara út í. Aðilar sem starfa eingöngu á heimamarkaði hafa takmarkaða möguleika.“ Nú hafa verið sett lög um sparisjóðina og félagsmálaráðherra virðist ekki mjög fús að færa íbúðalánin til bankanna. Hverjir eru þá möguleikarnir til að hagræða á innlendum markaði? „Þeir verða eftir sem áður einkum þrenns konar. Í fyrsta lagi hlýtur sparisjóðalöggjöf- in að kalla á að bankarnir endurskoði sam- starfs- og samrunamöguleika sinna eininga. Þetta hefur auðvitað komið fram hjá fleiri en einum af forsvarsmönnum bankanna. Ef ég tala fyrir hönd Landsbankans þá teljum við að þetta hljóti að gerast. Það þarf ekki endi- lega að þýða að menn séu að horfa á fullan samruna viðskiptabanka sem einhverjir kynnu að hafa efasemdir um og ef til vill mætti deila um út frá samkeppnissjónarmið- um. En ég tel mikilvægt að menn fara að líta á íslensku fyrirtækin í alþjóðlegu samhengi að þessu leyti. Smám saman endurskilgreina menn væntanlega hluta af þessum markaði sem samevrópskan markað. Það gæfi bönk- unum væntanlega kost á því að horfa á nýja möguleika í samvinnu sín á milli eða með samruna einstakra eininga. Í öðru lagi má reikna með auknum þrýstingi af hálfu neyt- enda um bætt framboð og vöruþróun í íbúða- lánum og að bankarnir taki þá lánaþjónustu að sér. Í þriðja lagi hafa bankar og verð- bréfafyrirtæki bent á að koma mætti á betri verkaskiptingu milli þeirra, lífeyrissjóða og tryggingafélaga. Við höfum bent á það að líf- eyrissjóðir og tryggingafélög lúta ekki sömu reglum í lánastarfsemi og bankarnir og það má vel hugsa sér að ná mætti fram meiri sér- hæfingu með því að hver aðili á þessum markaði einbeitti sér að því sem hann vænt- anlega hefur sérþekkingu á. Varðandi ofan- greind áhersluatriði eru fjármálafyrirtækin að leggja höfuðáherslu á að leikreglurnar hér verði þær sömu og í Evrópu og að ekki sé verið að þrengja að þeirri atvinnugrein sem fjármálaþjónustan er. Við vörum við því í lengstu lög að menn breyti leikreglunum og setji í lög séríslensk ákvæði. Það er það sem atvinnugreininni mun koma verst og framþróun í samfélaginu öllu enda beint samband á milli vaxtar og þróunar fjármála- þjónustu og atvinnulífsins í heild.“ Eru einingar hér of litlar ef horft er til er- lendra markaða og þarf að hafa áhyggjur af vaxandi erlendri skuldsetningu? „Stærstu fjármálafyrirtækin eru núna að verða í hópi þeirra tíu stærstu á Norðurlönd- unum. Það eru tengsl á milli stærðar fyr- irtækja og lánshæfismats þeirra. Þannig að hluti af því að styrkja fjármálafyrirtækin hér felst einfaldlega í því að leyfa þeim að ná ákjósanlegri lágmarksstærð, þ.m.t. með yf- irtöku íbúðalána. Það myndi bæta lánshæf- ismat þeirra og aðgang að fjármagni og lækka fjármögnunarkostnað íslenska bankakerfisins sem aftur kæmi öllum neyt- endum til góða. Bankarnir mæta eftirspurn og eftirspurnin nú er í lán í erlendum mynt- um vegna þess vaxtamunar sem er milli krónunnar og helstu mynta. Að mínu mati hafa bankarnir sýnt fyrirhyggju í erlendri lántöku með útvíkkun á lántökuformum, m.a. með bæði skammtíma og langtíma lána- römmum og mun betri landfræðilegri dreif- ingu en var t.d. fyrir aðeins 3–5 árum. Þá hafa bankarnir verið að taka lengri lán á al- þjóðlegum mörkuðum, til fimm ára og jafn- vel lengur, og mætt með því þeim ábend- ingum sem borist hafa frá Seðlabankanum varðandi aukið öryggi.“ Geta menn sótt aukna stærð út fyrir Ís- land, t.d. hugsanlega til Norðurlandanna? „Hér er nægjanlegt fjármagn, hér er mik- ið laust fé sem leitar að góðum fjárfestinga- kostum. Ég tel að íslensku fjármálafyrir- tækin muni í auknum mæli verða fjárfestar erlendis og að það sé orðnar minni líkur á að erlendir aðilar fjárfesti verulega í fjármálageiran- um hér. Íslensku bankarnir hafa fullkomlega burði til þess að keppa á jafnréttis- grundvelli við meðalstóra og jafnvel stærri banka í ná- grannaríkjunum. Miðað við rekstrarumfang og afkomu þeirra er alveg eins líklegt að þeir vaxi með fjárfestingum utan Íslands eins og öfugt. Báðir kostirnir eru þó auðvitað fyrir hendi. Halldór segir atvinnulífið og samfélagið allt njóta góðs af starfsemi öflugra fjármála- fyrirtækja. „Þau eru auðvitað fullkomlega meðvituð um það að fyrirtækin þurfa að lifa í góðri sátt við samfélag sitt. Það er vand- fundin sú atvinnugrein hér á landi sem sýnir með eins skýrum hætti samfélagslega ábyrgð. Bankar og fjármálastofnanir eru helstu bakhjarlar íþróttafélaga, öflugir stuðningsaðilar lista og menningarlífs auk þess að styðja veglega fjölmörg góðgerðar- samtök.“ ð hagræða ankakerfinu Morgunblaðið/Ásdís ð að teljast nokkuð sérstakt að sjálfsforræði sparisjóðanna var minnkað.“ rirtæki hafa stækkað mjög kaðsverðmæti tíu stærstu fyr- á Verðbréfaþingi var um 115 króna árið 2000 en er nú komið rða og hefur því aukist um kaðsvirði bankanna hefur á vaxið úr því að vera um 100 króna í um 250 milljarða nú eða Þannig að bankakerfið hefur í að vaxa hratt í umsvifum en þó kt við atvinnulífið. Það er í raun karnir hafa náð að stækka hratt ðu þeir ekki getað veitt íslensk- kjum nauðsynlega þjónustu og þá væntanlega leitað annað. Ís- karnir hafa orðið samkeppn- amkeppni við erlenda banka.“ xtur í t við nnulífið „Þetta þýðir að bank- arnir verða að skila 14–15% arðsemi til þess að vera fram- bærilegur fjárfest- ingakostur.“ arnorg@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.