Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 50
MINNINGAR 50 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jón Árni Jónsson(Addi) fæddist á Sölvabakka 7. októ- ber 1937. Hann lést 9. mars síðastliðinn. Árni var yngstur af sjö systkinum, börn- um Jóns Guðmunds- sonar bónda á Sölva- bakka, f. 26.11. 1892, d. 3.7. 1992, og konu hans Magðalenu Karlottu Jónsdóttur, f. 7.12. 1892, d. 3.4. 1972. Systkini Árna eru: Jón Árni, f. 1921, d. 1935, Guðmundur Jón, f. 1925, d. 1983, Guðný Sæ- björg, f. 1926, Ingibjörg Þórkatla, f. 1928, Finnbogi Gunnar, f. 1930, d. 9.1. 2004, og Sigurður Kristinn, f. 1933. Árni kvæntist 13. júní 1965 Björgu Bjarnadóttur, f. 14.10. 1944, frá Haga í Þingi. Björg er dóttir Bjarna Jónssonar og Jófríð- ar Kristjánsdóttur. Dætur Adda og Boggu eru fimm: 1) Magðalena Karlotta húsmóðir og bóndi, f. 1.8. 1965, gift Guðna Úlfari Ingólfs- syni bónda í Drangshlíðardal und- ir Eyjafjöllum, börn: Ásdís Björg Gestsdóttir, f. 4.2. 1986, Lilja Dögg, f. 25.9. 1988, Árný Rún, f. 10.10. 1992, Ingólfur Freyr, f. 15.1. 1994, d. 17.8. 1994, Ingólfur Freyr, f. 30.3. 2001, og Jóna Guð- laug, f. 13.8. 2003, Guðnabörn. 2) Jófríður félagsráðgjafi, f. 13.11. 1967, býr með Jóni Rögnvaldssyni vélvirkja á Svangrund í Refasveit, dóttir þeirra Helga Björg, f. 14.4. 2003. 3) Bjarney Ragnhild- ur ljósmóðir, f. 15.11. 1968, býr með Baldvini Sveinssyni bónda á Tjörn á Skaga, sonur þeirra Kristmundur Elías, f. 21.3. 2003. 4) Jóna Finndís vatnaverk- fræðingur, f. 7.11. 1974. 5) Anna Mar- grét landbúnaðar- ráðunautur, f. 28.9. 1976, býr með Sæv- ari Sigurðssyni vél- smiði á Sölvabakka. Addi ólst upp á Sölvabakka í stórum systkinahópi, gekk í barnaskóla (farskóla) og vann við bú foreldra sinna þar til þau brugðu búi árið 1964. Árin 1964– 1966 vann hann við lögreglustörf og verkamannavinnu á Seyðis- firði, Vestmannaeyjum, Blönduósi og víðar. Addi og Bogga hófu bú- skap á Sölvabakka árið 1966. Meðfram búskap vann hann ýmis störf, m.a. var hann í héraðslög- reglunni í tíu ár. Addi var virkur í ýmsum félagsstörfum í sveitarfé- laginu og nágrenni, t.d. í Lions- klúbbi Blönduóss. Hann var for- maður veiðifélagsins Hængs, hreppsnefndarmaður og fjall- skilastjóri í Engihlíðarhreppi í áratugi. Útför Jóns Árna fer fram frá Höskuldsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku besti pabbi minn er fallinn frá, svo skyndilega að það er eins og fótunum sé kippt undan okkur öllum sem eftir erum og við klípum okkur fast til að gá hvort þetta hafi ekki örugglega verið slæmur draumur. Aldrei á hann pabbi eftir að hringja aftur, „bara til að heyra í einhverjum skemmtilegum,“ eins og hann gerði svo oft þegar hann var einn heima. Ekki heldur að syngja „Fram í heið- anna ró“ í góðum hópi þar sem hann var svo oft hrókur alls fagnaðar. Pabbi var fæddur á Sölvabakka, yngsti sonur hjónanna Jóns Guð- mundssonar og Magðalenu Jóns- dóttur. Það var þeim mikið ánægju- efni þegar pabbi og mamma fóru á búa á Sölvabakka 1966 eftir að jörðin hafði verið í eyði í 2 ár og fluttust þau fljótlega í hornið til þeirra. Þar ól- umst við upp systurnar í skjóli tveggja kynslóða og betra veganesti er vart hægt að hugsa sér. Pabbi var félagslyndur og oft val- inn til ábyrgðarstarfa í sveitinni. Hann var lengi formaður veiðifélags- ins, í stjórn búnaðarfélags og í hreppsnefnd. Hann var fjallskila- stjóri um árabil og virkur í Lions- hreyfingunni hin síðari ár. Í fé- lagsmálum var hann mikill diplómat og átti gott með að fá fólk með sér til starfa. Mamma hefur líka alltaf stað- ið eins og klettur við hlið hans, heima og heiman og tekið virkan þátt í bæði félagsmálum og búverkum með hon- um. Samheldni þeirra tveggja var einstök, sem og virðingin fyrir hvort öðru. Ekki man ég eftir styggðaryrð- um þeirra á milli, eða leiðinda umtali um náungann. Nöfnin Addi og Bogga eru í mínum huga samtvinnuð eining. Göngur og réttir voru jafnan góð- ur tími hjá fjölskyldunni. Pabbi lagði mikinn metnað í að sinna fjallskilum vel og raða göngum niður þannig að vel væri skipað í hverja leit. Þegar safnast var saman á Þverá með hrossin kvöldið fyrir göngur var oft glaumur og gleði. Það var alveg sér- stakt að fá að taka þátt í þeirri gleði og heyra sönginn og sögurnar við eldhúsborðið. Vakna síðan að morgni, taka hesta og ríða fram til fjalla. Þessar minningaperlur eru einhverjar þær dýrmætustu sem ég á. Veiðifélagið var honum líka kært og í gegnum það eignaðist hann marga góða vini. Honum var það svo lagið að eignast vini en ekki bara kunningja. Hann lét sér einfaldlega annt um fólk. Lífsgleði, bjartsýni, jákvæði og ljúfmennska hafa ætíð verið bestu eiginleikar föður míns. Hans besta fyrirmynd var örugglega amma og til hennar sótti hann svo mikið. Kær- leikur hennar var honum afar dýr- mætur fjársjóður. Hann var góð fyrirmynd fyrir okk- ur, kvenfélagið sitt, eins og hann kallaði okkur systurnar, og hvatti okkur alltaf til að gera vel og standa okkur til jafns við strákana ef svo bar undir. Ekki fannst honum verra ef við höfðum þá undir í ærslafullum leik unglinganna á sumrin. Elsku besta mamma mín, til þín sækjum við kjark og hughrekki sem þú hefur í svo ríkum mæli, til að tak- ast á við söknuðinn og leyfum minn- ingunum að flæða um okkur og sjáum í huga okkar brosið hans pabba þar sem hann leiðir lítinn afa- dreng um grænar grundir nýrra heimkynna. Magðalena. Elsku pabbi minn, ég sakna þín svo mikið. Lítil hnáta leiddi ég pabba suður í fjárhús til að hjálpa til við sauðburð- inn. Aðeins stærri var ég komin á hestbak á Mána til að hjálpa til við að smala, farin að kippa á milli bagga og moka í blásarann. Seinna kom ég heim á Sölvabakka, pabbi stóð í dyr- unum, faðmaði mig og bauð upp á spæld egg og beikon í hádegismat áður en við færum í útiverkin. Við keyrðum norður á Þverárfjall að huga að kindum, við fórum út í Dali að athuga hvernig hrossin okkar hefðu það, við sátum uppi á hey- stabbanum og spjölluðum saman. Um síðustu jól leiddumst við pabbi suður í fjárhús og gáfum kindunum. Í fimm systra hópi ólst ég upp á Sölvabakka. Mamma og pabbi ólu okkur upp, í ást, gleði og trausti, samhent í einu og öllu. Frá því ég var pínulítil skotta hef ég vitað að sam- band þeirra er einstakt. Elsku mamma, við verðum alltaf við hliðina á þér, eins og hann pabbi hefði viljað. Guð geymi þig alla tíð, elsku pabbi minn. Jóna Finndís. Elsku pabbi minn. Það er erfitt að hugsa sér til- veruna án þín. Þú hefur svo lengi verið fastur punktur og stoð í lífi mínu, sá sem mátti stóla á til að leita ráða og umfram allt ræða málin. Það var alveg sama af hvaða toga það var, alltaf var svo gott að ræða við þig um málefni lífsins. Þú hafðir þann ein- staka hæfileika að geta hlustað þann- ig að maður gat trúað þér fyrir hverju sem var. Ég vissi það reyndar fyrir, en nú á þessum erfiða tíma, þá heyri ég líka frá svo mörgum öðrum hið sama. Þú varst bara þannig mað- ur. Það var alltaf tilhlökkunarefni hjá mér að fara með þér í fjárhúsin að gefa. Þá tókum við okkur oftast stund til að setjast niður og spjalla þegar við vorum hálfnuð með gjöfina og stundum oftar. Þá sátum við hvort á móti öðru og ræddum saman, stundum án orða enda vissum við svo oft hvað hitt var að hugsa að það var líka hægt. Ég á eftir að sakna þess- ara stunda mikið. Þegar ég hugsa til baka þá koma upp í hugann svo margar minningar, óteljandi eins og sóleyjarnar á túninu. Þær einkennast svo margar af því hvað þú varst alltaf að hugsa um okkur dætur þínar, mömmu og okkar nánustu. Ég man þegar hann Feykir minn var folald, að þá var mér svo annt um að hann yrði nú ekki skítugur í stíunni og þú barst undir hann moð á hverjum degi og ég held að hreinna folald hafi aldrei komið út úr hesthúsinu að vori eins og hann þá. Svona varst þú, alltaf að hugsa um að gleðja okkur og að okk- ur liði vel. Eins varst þú alltaf svo stoltur af okkur í hverju sem við tók- um okkur fyrir hendur og það studdi svo sannarlega við bakið á okkur, hvort sem var í leik eða starfi. Ég gleymi því aldrei þegar þú reiddir rósina í hnakktöskunni fram í Trölla til að færa mér frá ykkur mömmu á tvítugsafmælinu mínu, þegar við vor- um í eftirleit. Heldur ekki þegar þú varst að keyra mig suður á Hvann- eyri og gafst mér hana Drottningu mína á leiðinni, því mér hafði litist svo vel á hana þegar við vorum að taka frá. Eða þegar þú sagðir við mig í sumar að það væri réttast að ég ætti hana Siggu, hún hefði nú eiginlega alltaf verið mitt hross. Eftir að við Sævar tókum við búi nú um áramótin, þá varst þú alltaf boðinn og búinn að aðstoða okkur, það brást varla að þú værir búinn að sópa garðana og setja í einn vagn þegar við fórum saman að gefa kvöldgjöfina, til að létta verkin. Þú varst óþreytandi að segja okkur og lofa okkur að finna hvað þér þótti vænt um okkur öll, svo endalaust hlýr og gefandi. Fjölskyldan var þitt forgangsmál og það er ykkur mömmu að þakka hvað hún er sam- heldin, hefur alltaf staðið saman og gerir það einnig nú sem endra nær. Það er mikill styrkur fyrir okkur öll. Þú varst alltaf svo léttur í lund og tókst lífinu með bros á vör og hnyttn- um tilsvörum. Þú varst félagslyndur og hafðir gaman af að sitja í góðum hóp vina og fjölskyldu, henda gaman að atburðum dagsins og segja sögur af liðnum stundum. Það verður skrýtið að sitja uppi á Þverá kvöldin fyrir göngur og hafa þig ekki við borðið hjá okkur með kímniglampa í augunum og bros á vör eða þá skelli- hlæjandi. Þú varst líka alltaf svo iðinn við að segja okkur sögur af liðinni tíð, hvernig hlutirnir hefðu verið þegar þú varst að alast upp, skemmtilegar sögur af samskiptum ykkar systkin- anna, afa og ömmu og svo ótal margt fleira. Jólasveinavísurnar lærðum við líka af þér og margar aðrar vísur sem við höfðum gaman af. Þú hafðir svo einstakt lag á að hafa gaman af því sem þú tókst þér fyrir hendur og það smitaði út frá sér. Það var alltaf svo gott að vinna með þér pabbi minn og við höfðum gott lag á að vinna hlutina saman. Við töluðum oft um að það væri alltaf auðveldara að vinna hlutina saman, og þá ekki kannski síst vegna þess að það er alltaf svo miklu skemmtilegra. Þú kenndir mér líka svo margt, að hugsa vel um skepnurnar, hirða vel um allan búskapinn og ég mun búa að þeirri reynslu alla mína tíð. Von- andi tekst mér ásamt Sævari að halda uppi merki Sölvabakkabúsins í framtíðinni. Ég gæti eflaust skrifað heila bók um allar minningarnar sem ég á um þig, pabbi minn, og þær eru allar svo hlýjar og skemmtilegar. Ég er enda- laust þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að eiga með þér því þótt sökn- uðurinn sé sannarlega sár, þá munu minningarnar ylja okkur um alla framtíð. Guð veri með þér alla tíð, elsku pabbi minn. Þín Anna Margrét. Það er venjulegur þriðjudagur þegar síminn hringir og í kjölfarið finnst mér sem heimurinn hrynji. Tengdafaðir minn, Addi á Sölva- bakka, er látinn. Síst átti ég von á því, á mánudeginum þegar við kvöddumst, að það yrði okkar síðasta kveðja. Það síðasta sem við ræddum um var hvort við kæmum í heimsókn fyrir sauðburð. Það hefðum við gjarna viljað, en á öðrum forsendum. Á svona stundum reynist okkur erfitt að skilja, og spurningar vakna. Af hverju? Til hvers? Af hverju varstu hrifinn svona skyndilega úr þessum heimi, svona fljótt? Mér fannst þú eiga eftir að gera svo margt fyrir þig sjálfan og með Boggu. Tími er samt alltaf afstæður mæli- kvarði. Þú hafðir svo sannarlega skil- að góðu og miklu starfi, áttir stóra og samheldna fjölskyldu sem var þér svo kær, og þið hjón höfðuð byggt upp gott bú sem þið höfðuð nýlega látið í hendur næstu kynslóðar. „Vel notað líf er langt líf“ stendur einhvers staðar. Það finnst mér eiga vel við þitt lífshlaup. Þó okkur fynd- ist það hefði átt að verða lengra get- um við sætt okkur við það að þú not- aðir það vel og máttir vera stoltur af því. Hugurinn hvarflar nú til þess hve oft var gaman í samheldnum og glað- værum hópi í eldhúsinu á Sölva- bakka, einnig til þeirra tíma þegar við gengum saman til gegninga, ann- ar gestur hjá hinum, spjölluðum saman og bárum saman bækur okk- ar. Mér er hugsað til þess hve mikil eftirvænting og tilhlökkun ríkti iðu- lega í bílnum á leið til Adda afa og Boggu ömmu þó leiðin þætti stund- um löng. Auðvitað verður áfram til- hlökkun þegar farið verður á Sölva- bakka en það verður ekki eins og áður. Minningin um allar þessar stundir er ómetanleg. Það hafa verið forréttindi og mikill fjársjóður að hafa þekkt þig og átt þig að sem sannan vin í þessi 17 ár sem liðin eru síðan ég kom fyrst á Sölvabakka. Fyrir það vil ég þakka. Þín verður sárt saknað, en ég veit að annars staðar bíður þín útréttur faðmur dóttursonar sem er tilbúinn að taka á móti afa sínum. Hvíl þú í friði kæri vinur. Elsku Bogga mín. Ég bið Guð að gefa okkur öllum styrk til að skilja og sætta okkur við það sem við getum ekki breytt. Guðni Úlfar. Þriðjudaginn 9. mars sl. var mér færð sú sorgarfregn að tengdafaðir minn Addi á Sölvabakka væri dáinn. Þetta gat ekki og mátti ekki vera satt, hann tengdapabbi, maður á góð- um aldri, rétt nýhættur búskap og ætlaði að fara að njóta efri áranna og sinna sínum hugarefnum sem ekki hafði gefist tóm til í amstri hvers- dagsins. Svona er lífið. Enginn veit hve lengi og jafnt kertið hans brennur, og kertið hans Adda er nú brunnið niður í stjakann. Ég kynntist Adda og fjölskyldu hans fyrst að ráði uppúr 1990 þegar hann fékk mig til að dytta að vélum fyrir sig. Það tókst strax frá fyrsta degi með okkur mikil og góð vinátta sem aldrei hefur fallið blettur eða hrukka á. Ferðirnar á Sölvabakka sem urðu ófáar voru mér ætíð til- hlökkunarefni og átti ég margar ánægjustundir með fjölskyldunni við létt spjall og hlátrasköll. Addi var mikill og hlýr fjölskyldufaðir og studdi kvenfélagið sitt (eins og hann kallaði Boggu og dæturnar gjarnan) með ráðum og dáð. Í mínum huga er og verður Addi alltaf fyrirmynd mjúka mannsins því honum var svo eðlilegt að sýna ein- lægar tilfinningar. Ég öfundaði Adda svolítið af þessum hæfileika og ósk- aði mér þess að ef ég eignaðist konu og börn þá gæti ég orðið eins fjöl- skyldufaðir og hann. Addi minn, þegar við Fríða dóttir þín hófum sambúð og byggðum okk- ur heimili í túnfætinum hjá þér fannst mér að þú yrðir alltaf til stað- ar sem einn af föstu punktunum í til- verunni, og það yrði alltaf hægt að leita ráða hjá þér, eða bara fá knús. En sá sem öllu ræður var á annarri skoðun og kallaði þig til annarra starfa. Sorglegast finnst mér að litla dóttir okkar Fríðu og hin litlu barna- börnin skuli ekki fá að kynnast þér og njóta samvista við þig. Þú varst jú einu sinni besti afi í heimi. Minning- arnar um þig tekur enginn frá okkur sem lifðum með þér, og þær eiga eft- ir að gleðja okkur í framtíðinni. Það verður alltaf gott að koma á Sölvabakka. Það verður öðruvísi gott þegar Adda vantar við borðshornið með brosið sitt og hnyttnu athuga- semdirnar, en hláturinn og lífsgleðin eru varanlega sest að í gamla hlýlega húsinu á Sölvabakka. Elsku Bogga, dætur og barna- börn, megi góður guð styrkja ykkur og styðja í gegnum sorgina, ykkar missir er mikill. Það er í eðli góðs fólks að vaxa og þroskast af mótlæt- inu. Guð veri með ykkur. Jón Rögnvaldsson. Elsku afi. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar við hugs- um um þig. Hvernig þú sagðir alltaf „habði“ í staðinn fyrir „hafði“, hvern- ig við heyrðum alltaf hláturinn þinn út um allt hús, og hádegisblundurinn þinn, allt þetta venjulega. Við mun- um líka eftir því þegar við ætluðum að safna hári svo við gætum búið til hárkollu handa elsku afa, og hvað var erfitt að fá okkur til að henda hárinu þegar við fórum í klippingu. Elsku afi. Þó að við vitum að þú verðir hjá okkur og hugsir um okkur, þá er erfitt að skilja að þú komir aldrei aftur til okkar. Þegar við hugs- um um þig, þá trúum við því ekki. Okkur líður eins og þegar við förum næst á Sölvabakka þá verðir þú þar með ömmu að bíða eftir okkur. Elsku afi, þú ert svo yndislegur og hjartahlýr. Við söknum þín en við vit- um að þú munt hjálpa okkur að tak- ast á við söknuðinn og sorgina. Horfi upp í himininn þar sem þú ert. Mjúkur blær strýkur burt tár eins og höndin þín og ég veit að þú ert hjá okkur. Samt sakna ég þín. (Á.B.G.) Ásdís Björg, Lilja Dögg, Árný Rún, Ingólfur Freyr og Jóna Guðlaug. Þegar ég fékk fregnina um bróður minn um hádegið á þriðjudaginn var eins og lífið stöðvaðist. Gat þetta ver- ið satt að Addi væri allur? Hvernig átti ég að lifa án hans, við sem aldrei höfum verið lengra frá hvor öðrum en að hægt væri að ná hvor til annars án mikillar fyrirhafnar? En svo rann sannleikurinn upp fyrir mér og þá fór ég að hugsa og það er svo margs að minnast bæði gaman og alvarlegt. Ég man t.d. eftir því þegar Bergur í Kambakoti kom og skildi byssuna sína eftir suður í fjárhúsum og við bræður þurftum að sjálfsögðu að handleika byssuna og laumuðumst suður eftir. Pabbi hafði kennt mér að beina byssu alltaf til jarðar og svo gerði ég. Ekki datt okkur í hug að byssan væri hlaðin og ég tók í gikk- inn, hún var sko ekki bara hlaðin heldur líka spennt og skotið hljóp úr henni í grindurnar og skildi þar eftir kringlótt gat sem minnti okkur á að við hefðum sloppið tiltölulega vel frá hættulegum leik. Við flúðum svo nið- ur í Sandgil alveg niður að sjó. Addi fór upp Dagsláttuhornið en ég upp Hrútshvamminn, við höfðum bara verið að gá að silunganetunum. Þegar Addi og Bogga fóru að búa á Sölvabakka árið 1966 hafði jörðin verið í eyði í tvö ár en ég held það megi segja að Bogga hafi hvatt mjög til þess. Þá fóru hlutirnir að gerast. JÓN ÁRNI JÓNSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.