Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 60

Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 60
DAGBÓK 60 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Ör- firisey kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Í kaffinu eftir bingó kemur Jón Kr. Ólafs- son, söngvari frá Bíldudal, og kynnir nýjasta diskinn sinn sem hefur að geyma tónlist fyrir alla. Allir velkomnir. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16.30 smíðar. Bingó, spilað 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 vefnaður og frjálst spilað í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðslustofan opin, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa kl. 9–16.30, gönguhópur kl. 9.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fræðsla í Garðabergi kl. 14, rætt verður um slys í heima- húsum. Fótaaðgerða- stofan s. 899 4223. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, brids kl. 13, billj- ard kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Snúður og Snælda sýna „Rapp og rennilása“ í dag kl. 14. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. bókband, kl. 10 létt ganga, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefnaður, kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bók- band. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlist, kl. 10 ganga. Kl. 14 Gleði- gjafarnir syngja. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurð- ur, baðþjónusta, fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Fótaaðgerðir virka daga, hársnyrting þriðjudag til föstudags. Norðurbrún 1. Kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrídans. Kl. 13.30 sungið við flygilinn við undirleik Sigurgeirs, kl. 14.30–16 dansað í kaffitímanum við laga- val Halldóru. Terta með kaffinu. Allir vel- komnir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morgun- stund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Framsóknarfélag Mosfellsbæjar. Fé- lagsvist í kvöld í Fram- sóknarsalnum í Mos- fellsbæ í Háholti 14, 2. hæð, kl. 20.30. Tekin verða saman 5 efstu kvöldin af 8 ( frá 13. feb. til 2. apríl) og fyrir þau veittur ferðavinn- ingur. Félag einhleypra. Fundur á morgun kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Heitt á könnunni. Munið gönguna mánu- daga og fimmtudaga. Minningarkort Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tómas- syni, s. 487 8842, í Mýr- dal hjá Eyþóri Ólafs- syni, Skeiðflöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551 1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Í dag er föstudagur 19. mars, 79. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða. (Mt. 7, 8.)     Þegar saklausir borg-arar í Madríd eru myrtir með hrottafengn- um hætti standast Sverr- ir og Ármann Jakobs- synir ekki freistinguna að klifra upp á sápukass- ann og senda lesendum sínum skilaboð um að þeir hafi nú aldeilis haft rétt fyrir sér, segir Jón Einarsson á vef ungra framsóknarmanna. „Það er rauður þráður í grein- um þeirra bræðra að ef Spánn hefði ekki stutt innrásina í Írak þá hefði hann sloppið við þetta hryðjuverk. Það er al- deilis að menn eru orðnir miklir að geta gefið út vottorð um það hvaða ríkjum verður þyrmt við hryðjuverkum og hverj- um ekki.“     Hann segir Spánverjavita að sífelld eftir- gjöf fyrir ofríkismönnum þýði ekki að þeir muni snúast til betri vegar. „Stundum þurfa menn að taka ákvarðanir sem menn vildu helst vera lausir við að taka. Rétt eins og alltaf þegar menn taka ákvörðun um það að standa uppi í hárinu á ofbeldismönn- um og ribböldum. Þá reynir á það að maður hafi kjark til að taka sjálfstæða ákvörðun þrátt fyrir hótanir um „refsiaðgerðir og hefnd- arráðstafanir“. Stuðning- urinn við innrásina í Írak er ein slík ákvörðun.     Og þó svo að mennhefðu viljað vera lausir við að þurfa að taka svo alvarlega ákvörðun varð hún ekki umflúin. Og sú ákvörðun var tekin þrátt fyrir hót- anir og ógnanir. Því þeg- ar við erum hætt að taka ákvarðanir sjálf þá höf- um við orðið óttanum að bráð. Þá hafa hryðju- verkamennirnir í raun sigrað. Þá erum við ekki lengur frjáls í skoðunum okkar, hugsunum og hugmyndum heldur háð eigin ótta og fordómum,“ segir Jón.     Illt sé þegar menn teljisig geta náð einhverju fram með því að beita voðaverkum. „Það að sprengja sig að samn- ingaborðinu getur aldrei verið ásættanleg lausn. Pólitískt vald á ekki að koma úr byssuhlaupi. Og ekki er það betra þegar menn eru að nota hryðju- verk til að slá sjálfa sig til riddara.“     Í þessu samhengi bendirJón á að menn ættu að sýna þeim sem misstu lífið eða slösuðust í sprengitilræðinu í Madr- íd þá virðingu að slá sér ekki upp á þessum harm- leik. „Ekki hefði ég að óreyndu átt von á að þeir bræður Jakobssynir myndu slá Íslandsmet í ófyrirleitni og skeyting- arleysi gagnvart mann- legum harmleik í grein- arskrifum sínum. En lengi skal manninn reyna. Eða öllu heldur mennina. Báða.“ STAKSTEINAR Pólitískt vald á ekki að koma úr byssuhlaupi Víkverji skrifar... Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Kefla-vík er eitt af andlitum Íslands gagnvart umheiminum. Þar stendur líka hér og þar „velkomin heim“ á ís- lenzku á auglýsingaspjöldum. Eldri hjónum, sem Víkverji hafði tal af, fannst þau hins vegar ekki mjög vel- komin í flugstöðinni þegar þau komu heim úr fríi á dögunum. Konan hafði orðið fyrir slysi í ferðalaginu, var beinbrotin og tognuð, ófær til gangs og veik af verkjalyfjunum sem henni voru gefin fyrir heimferðina. Strax ytra var því haft samband við Leifs- stöð og beðið um að hjólastóll yrði til reiðu þegar flugvélin kæmi að flug- stöðinni. x x x Dágóð bið varð á því að nokkurhjólastóll léti sjá sig. Starfs- maður kom með stólinn, skildi hann eftir og aðstoðarlaust ýtti eiginmað- urinn stólnum inn í stöð. Það var ekki fyrr en komið var niður á neðri hæð flugstöðvarinnar og hjónin á leið út úr henni, að annar starfs- maður spurði af hverju þau hefðu ekki fengið aðstoðarmann með stól- inn alla leið eins og þau ættu rétt á. Enginn hafði sagt þeim það áður – en hefði óneitanlega verið gott að vita að þau ættu heimtingu á slíku. x x x Þegar komið var í farangurs-móttökuna voru engar farangurskerrur lausar, enda hjónin orðin á eftir ferðafélögum sínum. Eiginmaðurinn spurði flugvall- arstarfsmann hvort kerrurnar kæmu ekki – konan hans væri í hjólastól og hann kæmist illa af án kerru fyrir töskurnar. Hann fékk þau svör að kerrunum væri safnað saman jafnóðum fyrir utan flugstöð- ina og skilað inn í farangurssalinn aftur. Það leið og beið og engar kerr- ur komu inn. Í gegnum tollhliðin sá maðurinn að rétt fyrir framan þau, í svo sem tíu metra fjarlægð, stóð heil þvaga af farangurskerrum, sem eng- inn hirti um að koma inn fyrir aftur. Hann bar sig upp við tollvörð í hlið- inu, útskýrði aðstæður þeirra hjóna og spurði hvort hann vildi vera svo vænn að ná í eina kerru fyrir sig. Nei, var svarið, það er verktaki í því. Sama spurning var þá borin upp við lögreglumann í salnum, sem brást við á allt annan veg, sótti kerruna og hjálpaði hjónunum í gegnum tollinn. Fyrir utan flugstöðina tók ekkibetra við. Þar lokuðu gangveg- inum út á bílastæðin, þar sem ætt- ingi þeirra beið með bíl, tvær rútur sem lagt var þétt saman. Eldriborg- arinn, sem nú var orðinn nokkuð brúnaþungur, spurði annan rútubíl- stjórann hvort hann væri reiðubúinn að bakka svo sem hálfan annan metra svo hann gæti ýtt konunni sinni í hjólastólnum fram fyrir rút- una (um leið og hann drægi farang- urskerruna á eftir sér). Nei, var enn svarið. Kemur ekki til mála. Í því ók hin rútan á brott og gamli maðurinn sætti þá færis að biðja ættingjann að koma með bílinn að gangstéttinni svo koma mætti gömlu konunni upp í hann. Þá ætluðu rútubílstjórinn og aðstoðarkona hans endanlega að ær- ast, af því að bílstjórinn hafði hugsað sér að færa rútuna í stæði hinnar, og vörðu dágóðri stund í að skamma hjónin fyrir þetta tillitsleysi við rútubílstjórastéttina – í stað þess að nota tímann bara til að hjálpa þeim að koma sjálfum sér og farangrinum upp í bílinn. Svona er nú tekið fallega á móti gömlu og farlama fólki á flugvell- inum í Keflavík. LÁRÉTT 1 gleypir í sig, 4 afundn- ar, 7 barin, 8 kynjuð, 9 lík, 11 mjög, 13 belti, 14 hirðuleysi, 15 hrósað, 17 ófús, 20 tónn, 22 káka, 23 votviðrið, 24 skyld- mennið, 25 beiska. LÓÐRÉTT 1 vígja, 2 móðir, 3 heim- ili, 4 skordýr, 5 smá, 6 gler, 10 átölur, 12 upp- tök, 13 títt, 15 lyfta, 16 girnd, 18 fuglum, 19 skræfa, 20 hafði upp á, 21 digur LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 Hofteigur, 8 góður, 9 iglan, 10 iðn, 22 afræð, 13 asnar, 15 hatta, 18 elgur, 21 ull, 22 götum, 23 detta, 24 flandraði. Lóðrétt: 2 orðar, 3 tárið, 4 ilina, 5 uglan, 6 egna, 7 snýr, 12 æst, 14 sel, 15 hagl, 16 titil, 17 auman, 18 eldar, 19 getið, 20 róar. Krossgáta   Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html ÞESSI fríði og föngulegi hópur var í Gaggó Vest vet- urinn 1958–1959. Nokkrum úr þessum hóp finnst kom- inn tími til að koma saman aftur og rifja upp góðar og gamlar minningar frá þess- um tíma. Hefur því verið ákveðið að efna til sameig- inlegrar kvöldmáltíðar um miðjan maí. Aðal skemmti- atriði kvöldsins verður: „Gettu hver (ég er?)“ Því eru þeir sem bera kennsl á sjálfa sig á mynd- inni vinsamlega beðnir um að hafa samband við eftir- talda aðila: Guðjón Mar- geirsson, sími 561 1088 (vinna); Kjartan Norðfjörð, sími 561 9050 (vinna); Katr- ínu Eymundsdóttur, sími 465 2271; Sigrúnu Odds- dóttur, sími 554 3459. Að versla mjólk og nammi Í ÖLLU auglýsingaflóðinu fyrir síðustu jól mátti lesa auglýsingar eins og: „Versl- ið SONY“. Eða: „Verslið jólagjafirnar hjá okkur.“ Í Gaggó í gamla daga var kennt að sögnin „að versla“ væri ekki áhrifssögn heldur væri hún sjálfstæð og þess vegna verslum við ekki mat eða bækur heldur kaupum við mat eða bækur. Þess vegna kaupa sumir SONY og sumir kaupa jólagjafirn- ar í næstu bókabúð. Nú eru páskar framund- an og við erum aftur hvött til að „versla“ og nú eigum við að „versla“ fermingar- gjafirnar hjá ákveðinni hljómtækjaverslun eða ákveðinni heilsuræktar- stöð. Í fyrradag heyrði ég unga móður segja við barn- ið sitt sem sat í kerru inni í matvöruverslun: „Bíddu hérna, Kiddi minn, mamma ætlar að versla mjólk.“ Þeg- ar ég var á leið út úr um- ræddri verslun kom ungur drengur með móður sinni inn í sömu verslun. Hann sagði við mömmu sína: „Mamma, viltu versla fyrir mig nammi?“ Siggi. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is 4. bekkur Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1958–1959

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.