Morgunblaðið - 21.03.2004, Blaðsíða 74
74 SUNNUDAGUR 21. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nýja-Sjáland er langt í burtfrá Íslandi. Svo langt íburtu að tímamismun-urinn er heilir þrettán
klukkutímar. Nýsjálendingar eru
m.ö.o. þrettán klukkustundum fyrri
til að sjá framtíð breytast í nútíð.
Keisha Castle-Hughes, borin í
Ástralíu en uppalin í Nýja-Sjálandi
(eins og svo margir) svaf þannig vær-
um svefni þrettán stundum áður en
símasamtalið við íslenska blaðamann-
inn átti sér stað. Klukkan var enda
6.30 að morgni að íslenskum stað-
artíma og blaðamaður að kroppa
svefnstírur. En Keisha var nýbúin að
kyngja kvöldmatnum og að klára
heimalærdóminn.
„Þetta er allt í lagi, þú ert ekkert að
trufla mig. Kom hvort eð er engu í
verk, var eiginlega bara að horfa á
sjónvarpið, að stelast,“ segir hún
glaðlega. Sambandið er slæmt og
undirstrikaði óþarflega mikið þessa
miklu fjarlægð milli okkar.
Töggur í stelpu
Það er greinilega töggur í stelpu,
svarar af ákveðni og full sjálfstrausts,
þroskuð miðað við aldur. Enda hlýtur
það veganesti að vera nauðsynlegt
þeim sem ætlar sér að verða góður
leikari einungis þrettán ára að aldri.
„Það er skrýtið að vera að tala við
einhvern á Íslandi,“ segir hún og
meinar það. „Eitthvað sem aldrei hef-
ur hvarflað að manni að ætti eftir að
gerast.“
„Er það ekki eitt af því sem er svo
spennandi við alla þessa athygli, að
upplifa hluti sem þú hefur aldrei gert
þér í hugarlund áður.“
„Jú, heldur betur. Þetta er æð-
islegt. Svo spennandi.“
Það er örugglega undarlegt að vera
í hennar sporum, að þurfa að starfa
og virka í fullorðinna heimi, þetta
ung. Veita viðtöl og þurfa að segja
eitthvað af viti við blaðamenn hvaðan-
æva úr heiminum. Hvernig er hægt
að ætlast til þess af einhverjum svo
ungum, jafnvel þótt hann hafi hæfi-
leika sem jafnist á við það sem hinir
fullorðnu geta best.
„Auðvitað datt mér aldrei í hug að
ég ætti eftir að leika í bíómynd, hvað
þá að hún myndi njóta slíkrar al-
heimshylli. Þetta er eiginlega yf-
irþyrmandi tilhugsun fyrir eins unga
manneskju og mig.“
– Hefur lífið breyst mikið hjá þér
eftir allt þetta „havarí“?
„Já og nei. Þetta hefur náttúrlega
verið ótrúleg reynsla sem ég bý að og
hefur örugglega mótað mig heilmikið
sem persónu. En samt finnst mér ég,
þegar upp er staðið, alveg sú sama.
Er bara í skólanum, læri heima og
umgengst sömu vinina og áður. Ætli
aðalmunurinn sé ekki að nú vita allir
hver maður er.“
– Og hvernig kanntu við það?
„Fyrst fannst mér það voðalega
spennandi og skemmtilegt en svo
vandist það og fór eiginlega að verða
einum of mikið. Nú held ég að ég sé
búin að læra að lifa með því og að
leiða það hjá mér. Allir í skólanum eru
líka mjög hjálpsamir og skilja vel að
mig langar ekkert að fá öðruvísi með-
höndlun en hinir krakkarnir.“
– En það verður kannski ekki aftur
snúið fyrir þig núna?
„Nei, ég er heldur ekkert að gera
mér vonir um það. Skiptir því mestu
að reyna að laga sig að breyttum að-
stæðum. Ég legg sjálf mest upp úr því
að geta verið eins mikið og ég get með
fjölskyldunni.“
Það var í skólanum í Mt Wellington
sem Keisha Castle-Hughes var upp-
götvuð. Þar var umboðsmaðurinn
sem uppgötvaði Anne Paquin, sem
hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta
aukahlutverk í Píanó aðeins 12 ára
gömul, að leita dauðaleit að stúlku
sem gæti farið með hlutverk frum-
byggjastelpunnar Paikeu sem mætir
ofsalegu mótlæti hjá afa sínum vegna
þess að hún er ekki drengurinn sem
hann óskaði sér að myndi í beinan
karllegg taka við af sér leiðtoga-
Prinsessan
Paikea
Hún er þrettán bráðum fjórtán og er skólastelpa
í Mt Wellington í Nýja-Sjálandi. En hún er líka
orðin fræg leikkona og búin að fá sína fyrstu
Óskarsverðlaunatilnefningu. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi við Keishu Castle-Hughes
sem fer með hlutverk Paikeu í Whale Rider.
Keisha Castle-Hughes leikur aðalhlutverkið í myndinni Whale Rider
Jack Black fer á kostum í
geggjaðri grínmynd sem rokkar!
Sýnd kl. 3 og 10.20. Sýnd kl. 5.30 og 8.
SV Mbl
Skonrokk
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
Frumsýning
Frá leikstjóranum Mel Gibson
Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta
mynd allra tíma
HP. Kvikmyndir.com
(Píslarsaga Krists)
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 10.10 . B.i. 12.
Allra síðustu
sýningar
Kl. 1.40, 3.45, 5.50 og 8. Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Frábær gamanmynd frá
leikstjóra
There´s Something About Mary
og Shallow Hal
r r fr
l i stj r
r ´s t i t r
ll l
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Með íslenskum texta
FRUMSÝNING
Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma
kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 16 ára.
11 Óskarsverðlaun
Yfir 95.000 gestir
Fleiri börn...meiri vandræði!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 16 ára.
HP. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
(Píslarsaga Krists)
R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R I
FERMINGARTILBOÐ
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 ı Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
Myndsmiðjan Egilsstöðum ı Framköllunarþjónustan Borgarnesi ı Filmverk Selfossi
Fujifilm stafræn myndavél A310,
allt að 6 milljónir díla,
með 128MB auka minniskort
kr. 35.500
Pentax Sjónauki 8x21
kr. 5.950
F
lo
tt
ar
fe
rmi
ngargjafir!
Pentax Espio 60V 35-60mm
með þremur Fuji filmum
kr. 7.990
A310
Sjónaukar 8x21
Allir viðskiptavinir geta, til loka apríl, tekið þátt í ferðaleik
Fujifilm – ferðavinningur að verðmæti kr. 250.000.