Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERFIÐ deila er komin upp í Beethoven- sinfóníuhljómsveitinni í Bonn í Þýskalandi en 16 fiðluleikarar krefjast þess að fá kauphækkun. Ástæðan er sú, að þeir spila miklu meira en félagar þeirra með blást- urshljóðfærin. Í hljómsveitinni eru alls 106 manns en fiðluleikurunum finnst sem verið sé að níðast á þeim. Michael Horn, aðstoðarstjórnandi hljómsveitarinnar, segir, að þetta vanda- mál sé ekki nýtt af nálinni enda sé hlut- verk strengjahljóðfæra í klassískum verk- um yfirleitt miklu meira en blásturshljóðfæra. Sumir eigi því oft náð- uga daga en aðrir sveitist blóðinu á hverj- um tónleikum. Súpa og sjúklingar FRESTA hefur orðið nokkrum mik- ilvægum skurðaðgerðum á sjúkrahúsi í Nottingham á Englandi vegna alvarlegra afglapa og ólíðandi framferðis læknisins, sem átti að framkvæma þær. Heitir hann Terence Hope og er kunnur sérfræðingur í taugaskurðlækningum en í einu mat- arhléinu gerði hann sér lítið fyrir og fékk sér aftur á súpudiskinn án þess að borga fyrir það. Raunar segist hann aðeins að hafa verið að næla sér í nokkra brauðten- inga í súpunni en söm er gjörðin og agabrot er agabrot. Vegna þess hefur hann verið sendur í frí meðan sjúkrahússtjórnin fjallar um málið. Skaut hún því fyrst til heilbrigð- isráðuneytisins en þar var málinu vísað frá. Maður eða tákn? HJÓNUM nokkrum í Georgíuríki í Banda- ríkjunum varð heldur betur sundurorða er þau fóru að sjá kvikmynd Mel Gibsons um þjáningu Krists. Hélt deilan áfram eft- ir að sýningu lauk og er heim var komið létu þau hendur skipta og skæri til áhersluauka. Var þeim þá stungið í stein- inn en konan sagði, að misklíðin hefði snú- ist um það hvort guð, faðir almáttugur í heilagri þrenningu hefði verið maður eða táknræn mynd. „Annað var það nú ekki,“ sagði konan. Aukin kurteisi ÍBÚAR Parísarborgar hafa lengi haft orð á sér fyrir hroka og tillitsleysi en nú er ekki annað að sjá en þessi þjóðlegi siður sé að deyja út. Þeir eru farnir að slökkva á far- símunum sínum á veitingastöðum og spyrja jafnvel viðstadda hvort þeir megi reykja. Og ekki nóg með það. Þeir eru líka farnir að þrífa upp saurinn, sem hundarnir þeirra skilja eftir á gangstéttum og annars staðar. Sagt er, að í Frakklandi séu gæludýrin jafnmörg mannfólkinu og áætlað er, að hundarnir einir séu um átta milljónir. Það er því ekkert lítið, sem þeir láta frá sér. Meginskýringin á auknum þrifnaði er hins vegar sú, að nú sér fjölmenn sveit manna um ekkert annað en að fylgjast með hunda- eigendum og sektin við því að skíta út gangstéttirnar getur verið allt að 40.000 ísl. kr. Ljótt að svindla ÞAÐ er grafalvarlegt mál að svindla á prófi en óvíða eins og á Indlandi. Þegar 500.000 námsmenn gengust undir próf í Bihar-ríki á dögunum gættu þeirra 5.000 lögreglumenn auk kennaranna og árvökul augu þeirra létu ekkert fram hjá sér fara. Komst upp prófsvindl hjá 168 náms- mönnum og hafa þeir nú verið fangels- aðir. ÞETTA GERÐIST LÍKA Nei, nú er komið nóg Reuters UPP Á þennan myndarlega kaffibolla var boðið í Moskvu í gær en í hann fóru 30 l af vatni, 70 l af mjólk og sjö kíló af kaffi. Á það að heita nýtt met. Kaffisopinn indæll er TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðií gær að stjórnvöld í Líbýu væru reiðubúin að ganga til liðs við Vesturlönd í baráttunni gegn hryðjuverkaógninni. Lét Blair þessi ummæli falla eftir að hafa átt viðræður við Muammar Gaddafi Líbýuleiðtoga í bedúína-tjaldi skammt frá höfuðborginni, Trípólí. Fundur Blairs og Gaddafis þótti sögulegur og til marks um þau miklu umskipti sem átt hafa sér í afstöðu Líbýumanna til Vesturlanda á síð- ustu mánuðum. Fyrir um þremur mánuðum lýsti Gaddafi óvænt yfir því að Líbýumenn hefðu hætt við áætlanir um að koma sér upp gjöreyðingarvopnum og skýrði frá því að stjórnvöld þar tækju alþjóðlegu eftirliti með þeirri ákvörðun fagnandi. Saman gegn öfgum og hryðjuverkum Eftir fundinn sagði Blair við fréttamenn að sinnaskipti Líbýumanna væru „stórbrotin“. Gaddafi og undirsátar hans hefðu skapað for- dæmi sem önnur arabaríki ættu að veita at- hygli. Blair kvað Gaddafi hafa lýst yfir því að áfram yrði haldið á braut samstarfs við Vest- urlönd enda gerði Líbýuleiðtoginn sér ljóst að framtíð landsins yrði best tryggð með nýju og breyttu sambandi við umheiminn. Blair sagði að á fundinum hefði komið fram í máli Gaddafis að hann hygðist taka þátt í „bar- áttunni gegn Al-Qaeda [hryðjuverkanetinu], öfgum og hryðjuverkum, sem ógna ekki ein- göngu Vesturlöndum heldur og arabaheimin- um“. „Það er gott að vera kominn hingað eftir þessa löngu bið,“ sagði Blair við upphaf fundar þeirra Gaddafis. „Þú barðist mjög fyrir þessu máli,“ svaraði Gaddafi á ensku og virtist eiga við framgöngu Blairs í því skyni að bæta samskipt- in við Líbýu. För Blairs til Líbýu var ekki óum- deild í Bretlandi og urðu margir til að minna á að það hefði fyrst verið í fyrra sem Líbýumenn féllust á að greiða bætur fyrir hryðjuverkið yfir skoska bænum Lockerbie árið 1988 þegar flugumenn á vegum Gaddafis sprengdu í loft upp þotu með þeim afleiðingum að 270 fórust. Er það mannskæðasta hryðjuverk í sögu Evr- ópu. Þá þótti ýmsum ekki við hæfi að breski for- sætisráðherrann færi beint á fund Gaddafis eft- ir að hafa verið viðstaddur minningarathöfn um þá sem fórust í árásum hryðjuverkamanna í Madríd fyrr í mánuðinum. Breskur forsætisráðherra hefur aldrei sótt Líbýu heim frá því að landið hlaut sjálfstæði ár- ið 1951. Gaddafi hefur stjórnað landinu frá 1969. Allt þar til í fyrra hafa stjórnvöld á Vesturlönd- um talið hann í hópi útlaga og hryðjuverkafor- ingja. Blair fagnar „stórbrotnum“ sinnaskiptum Gaddafis Sögulegur fundur leiðtoganna í bedúínatjaldi skammt frá Trípólí sagður sýna vilja til samstarfs gegn hryðjuverkaógninni Trípólí. AFP. AP Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræðir við Muammar Gaddafi í tjaldi Líbýuleiðtogans skammt frá Trípólí. ’Gaddafi og undirsátarhans hefðu skapað for- dæmi sem önnur arabaríki ættu að veita athygli.‘ SUHARTO, fyrrverandi forseti Indónesíu, er efstur á lista yfir spilltustu menn fyrr og síðar. Áætlað er, að hann hafi stolið frá sinni eigin þjóð allt að 2.500 milljörðum ísl. kr. Kemur þetta fram í skýrslu, sem sam- tökin Transparency International, IT, hafa birt en í henni er sýnt fram á hvernig póli- tísk spilling og mútuþægni halda sumum þróunarríkjum í fátæktargildru. Sagði frá þessu á fréttavef BBC, breska ríkisútvarps- ins, í gær. „Í þágu almannahagsmuna“ Næstur á eftir Suharto kemur Ferdinand heitinn Marcos, forseti Filippseyja, en þýfið hans er áætlað upp undir 720 milljarðar kr. Þá kemur Mobutu Sese Seko, forseti Zaíres, en hann er sagður hafa stolið allt að 360 milljörðum kr. eða 40% af þeim 864 millj- örðum kr., sem ríkið fékk í erlenda aðstoð í 32 ára valdatíð hans. Þeir 10 efstu á spillingarlistanum eru ým- ist látnir eða ekki lengur við völd en á eftir þeim nokkrir núverandi valdhafar. Meðal þeirra má nefna Jose Eduardo Dos Santos, forseta Angóla; Teodoro Obiang, forseta Miðbaugs-Gíneu, og Nursultan Naz- arbajev, forseta Kasakstans. Var það raunar fyrir slysni, að upp komst, að hann hafði flutt 72 milljarða ísl. kr. á bankareikninga erlendis „í þágu almannahagsmuna“. Suharto efstur á spillingarlista Stal allt að 2.500 milljörðum kr. Suharto er sagður hafa stolið frá sinni eigin þjóð allt að 2.500 milljörðum ísl. kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.