Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ó neitanlega er for- vitnileg niðurstaða skoðanakönnunar, sem Fréttablaðið birti á miðvikudag. Þar kváðust átta af hverjum tíu telja „rétt að forseti Íslands eigi að hafa vald til að skjóta um- deildum málum í þjóðaratkvæða- greiðslu“ eins og spurningin var, heldur klunnalega, orðuð. Þessi niðurstaða sýnist til marks um að málflutningur Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á undanliðnum vikum eigi mikinn hljómgrunn meðal þjóðarinnar. „Málskotsrétturinn“ svonefndi hefur verið nokkuð til umræðu í lýðveldinu að undanförnu. Ólafur Ragnar Grímsson hefur haldið því fram að sá réttur sé ótví- ræður og hef- ur skýrt frá því að hann hafi tvívegis íhugað að beita þessu valdi forseta. Um þennan rétt og tengsl hans við þingræðið deila virtir lögfræðingar og stjórn- málamenn hafa séð ástæðu til þess að tjá sig um málið. Nú hefur Ólafur Ragnar Grímsson boðað að hann hyggist efna til „samræðu við þjóðina“ um forsetaembættið. Í þessum orðum forsetans sýnist felast að hann hyggist kynna sjónarmið sín í þessu deilumáli fyrir þjóð- inni og hann hefur látið að því liggja að það verði gert á fund- um með kjósendum komi til for- setakosninga í sumar. Ólafur Ragnar Grímsson hefur lagt áherslu á að forsetinn sé sá for- ustumaður Íslendinga, sem kjör- inn sé beinni kosningu. Hann og fleiri líta á forseta Íslands sem eins konar „öryggisventil“, eins konar sérlegan „þjóðarfulltrúa“, sem gripið geti inn í hyggist stjórnmálamennirnir með ein- hverjum hætti hundsa vilja al- mennings í umdeildum stór- málum. Forsetinn hefur nefnt að til greina kæmi að beita þessu um- deilda valdi kæmi einhverju sinni til þess að ráðamenn ís- lenskir hygðust leiða þjóðina inn í Evrópusambandið án þjóð- aratkvæðagreiðslu. Þegar að því kemur að Íslendingar taki af- stöðu til Evrópusambands- aðildar, sem trúlega gerist á næstu 7 til 12 árum, er fræðilega mögulegt að ráðamenn hyggist hundsa kröfur um þjóð- aratkvæðagreiðslu. Slík krafa kom fram af nokkrum þunga þegar Íslendingar gerðust aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu enda fól sú þátttaka í sér umtals- vert fullveldisafsal. Aðild að Evrópusambandinu fæli á hinn bóginn í sér svo risavaxið skref að afar hæpið verður að telja að til þess kæmi að forseti sæi sig neyddan til að virkja „málskots- réttinn“. Vigdís Finnbogadóttir, forveri núverandi forseta, sagði ein- hverju sinni að hún gæti hugsað sér að beita þessu valdi þjóð- höfðingjans og nefndi sem dæmi að það myndi hún gera hygðust ráðamenn hér á landi innleiða dauðarefsingar. Þetta tilbúna dæmi er augljóslega fráleitt. Við flestum þeim, sem búa yfir sæmilegri meðvitund, blasir að forsetaembættið skortir inntak og merkingu. Sá tilbúni hátíð- leiki, sem einkennir það, er í litlu samhengi við nútímann og sam- félag sem, blessunarlega, hefur tekið allnokkrum breytingum á undanliðnum árum. Hirðvæðing embættisins á síðustu 20 árum eða svo hefur einnig orðið til þess að margir hafa endur- skoðað hug sinn til þess. Svo virðist sem Ólafur Ragnar Grímsson geri sér þetta ljóst enda fer þar ágætlega jarð- tengdur maður. Framganga hans, sem vakið hefur deilur, sýnist mótast af tilraunum til að gefa embætti þessu inntak og merkingu umfram það, sem fal- ist hefur í ræðum um meira og minna viðtekin sannindi og þátt- töku í opinberum athöfnum, sem fáir hafa áhuga á. Um aðferðir hans og rökstuðning má vit- anlega deila en sanngjarnt og eðlilegt virðist að túlka fram- göngu forsetans á þann veg að hún feli sér viðleitni til að fá embættinu tilgang og merkingu í nútímanum. Vandinn í þessu viðfangi blasir við. Forsetanum er ætlað að vera „sameiningartákn þjóð- arinnar“. Vissulega er það ákveðið rannsóknarefni að ein- hver vilji taka að sér að sinna því hlutverki en mikilvægara er þó að „sameiningartáknið“ get- ur, eðli málsins samkvæmt, ekki tjáð sig um umdeild mál í sam- félaginu. Geri viðkomandi það er forsetinn, bæði efnislega og rök- lega, dæmdur til að ganga gegn hlutverki sínu. Þess vegna er forseti Íslands dæmdur til að hafa engar skoðanir og getur í raun ekki tjáð sig um neitt um- fram sjálfgefin og viðtekin sann- indi. „Sameiningartákninu“ er þannig gert að vera utan og handan samfélagsins, sem því er í senn ætlað að sameina og vera fulltrúi fyrir. Þetta er vitanlega fráleit og óþolandi aðstaða. Til eru þeir, sem leggja vilja þetta embætti niður. Sú nið- urstaða væri á allan veg hin heppilegasta. Á hinn bóginn er það svo að þeir, sem eru þess- arar hyggju, mynda jaðarhóp í samfélaginu. Því fer fjarri að meirihlutastuðningur sé við þessa afstöðu og afar ólíklegt má telja að breyting verði þar á í fyrirsjáanlegri framtíð. Á hinn bóginn hljóta menn að hugsa til þeirrar stöðu, sem skapast kann í lýðveldinu nú í sumar fari svo að Ólafur Ragnar Grímsson efni til funda í því skyni að kynna hina umdeildu sýn sína til embættisins og valds forseta. Munu þeir stjórn- málamenn og lögfræðingar, sem eru á öndverðri skoðun, sjá sig knúna til að andmæla forset- anum í miðri kosningabaráttu? Nauðsynlegt sýnist að stjórn- arskrá lýðveldisins verði endur- skoðuð sem fyrst m.a. í þeim til- gangi að eyða óvissu um hvert vald, hlutverk og verksvið for- seta skuli vera þar sem þjóðin er greinilega þeirrar skoðunar að viðhalda beri því embætti. Forseti og nútíminn Sanngjarnt og eðlilegt virðist að túlka framgöngu forsetans á þann veg að hún feli sér viðleitni til að fá embættinu til- gang og merkingu í nútímanum. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ✝ Laufey SigurrósÁsgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 10. apríl 1918. Hún lést á Landakotsspít- ala 20. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Þorsteins- dóttir úr Hafnar- firði, f. 20.8. 1882, d. 20.10. 1935, og Ás- geir Ásmundsson frá Stóra-Seli í Reykja- vík, f. 4.9. 1883, d. 8.1. 1960. Alsystkini Laufeyjar eru Ás- mundur Kristinn skákmeistari, f. 1906, d. 1986, Ástvaldur Helgi, f. 1908, d. 1980, Gunnar Aðalsteinn, f. 1909, d. 1980, Guðrún, f. 1910, d. 1923, Þórarinn er fórst á stríðsárunum, Guðlaugur Adólf, f. 1915, d. 1958, Borghildur, f. 6. júní 1919, auk tveggja Bryndísa er létust ungar. Hálfsystir Laufeyjar sam- mæðra er Guðrún Welding, f. 25. apríl 1928. Fyrsti eiginmaður Laufeyjar var Frank Cassata, heildsali í Reykjavík, f. 1911, annar eiginmaður hennar var Björn Guðmundsson kenn- ari, f. 1917, d. 1976. Síðar giftist Laufey Ólafi Th. Ólafssyni vélstjóra, f. 1922, d. 1989. Útför Laufeyjar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 14.30. Laufey móðursystir mín hefur nú lokið ferð sinni hér á jörð. Hún fæddist hinn 10. apríl 1918, næst- yngsta barn hjónanna Þórunnar Þorsteinsdóttur og Ásgeirs Ás- mundssonar frá Stóra-Seli. Þau voru 10 alsystkinin, en nú er móðir mín, Borghildur Ásgeirsdóttir, sú yngsta í hópnum orðin ein eftir, auk hálfsystur sinnar, Guðrúnar Weld- ing, er býr í Noregi. Móðir mín bið- ur Guð að blessa systur sína og veit að hún fær góðar móttökur á himn- um hjá Þórunni ömmu minni og Ás- geiri afa, og að það verða fagnaðar- fundir hjá þeim Óla þegar þau nú hittast á ný. Margar minningar um þessa stór- brotnu konu þyrlast upp í huga mér. Það var aldrei nein lognmolla í kringum hana frænku mína. Hún var dugnaðarforkur, klæðskeri góð- ur sem aldrei féll verk úr hendi. Fyrstu minningar mínar af henni eru þar sem hún situr innan um hlaða af herrahálsbindum sem hún var að sauma. Hún útskýrði fyrir mér hve vandasamt verk er að sníða og sauma falleg herrabindi, ekkert má út af bregða, öll spor hnífjöfn, og hálsbindin í Harrods komast ekki í hálfkvisti við handbragð hennar. Hún var glæsileg kona og smekk- vís, mikill fagurkeri og heimili henn- ar líktist listasafni þar sem hverjum hlut var vandlega valinn staður og vel hugsað um þá. Hún var mjög hæfileikarík og allt lék í höndunum á henni. Úti á stóru svölunum rækt- aði hún fagrar rósir sem lifðu af harða veðráttu enda pakkað inn í steinull á veturna, og á sumrin framreiddi hún rjómapönnukökur og kaffi á sólardögum í suðræna garðinum sínum á 8. hæð. Hún spilaði á píanó og orgel, og alltaf var hún að læra eitthvað nýtt, enda góðum gáfum gædd. Eftir langan vinnudag sótti hún kvöld- skóla í öllu milli himins og jarðar, og símenntun var ekki nýyrði í hennar huga. Hún talaði ensku og dönsku lýtalaust, og fannst því sjálfsagt að eyða nokkrum árum í að læra ís- lensku til hlítar, sat oft við sauma á kvöldin með málfræðibækurnar opnar sér við hlið til þess að nota heilann á meðan hendurnar voru að sýsla. Á efri árum eftir að hún varð ekkja fór hún að sækja einkatíma í þýsku, og var svo allt í einu horfin til Þýskalands á sumarnámskeið, þar sem hún stundaði skóla 8 tíma á dag, og fór svo út að skemmta sér á kvöldin með unga fólkinu í skólan- um þótt hún væri hátt á áttræð- isaldri, enda undi hún hag sínum best innan um ungt fólk, henni fannst eldra fólk eitthvað svo gam- aldags í hugsun og það þótt það væri meira en 20 árum yngra en hún. Fyrsti eiginmaður Laufeyjar var Frank Cassata, og fluttist hún með LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR ✝ Elí Rósinkar Jó-hannesson húsa- smíðameistari fædd- ist á Hlíð í Álftafirði við Ísafjarðardjúp 19. október 1925. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 18. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Málfríður Sigríður Sigurðar- dóttir, f. 15. maí 1885, d. 5. maí 1956 og Jóhannes Einar Gunnlaugsson, f. 27. maí 1882, d. 2. apríl 1942. Elí var yngstur 17 systkina sem öll eru nú látin. Elí kvæntist 17. maí 1947 Matt- hildi Kristinsdóttur, f. á Brimnesi í Viðvíkursveit í Skagafirði 13. janúar 1924, d. 3. desember 1997, ættaðri úr Skagafirði. Börn þeirra eru: 1) Gunnar Stefán, f. 16. ágúst 1950, kvæntist Elínu E. Ellertsdóttur, f. 8. júní 1951, þau skildu. Börn þeirra eru Gunnhild- ur Ásta, Hrafnhildur, Bryndís og Stefán Carl. Gunnar Stefán og El- ín eiga sjö barnabörn. 2) Kristín, f. 14. ágúst 1951, gift Þóri Þór- arinssyni, f. 24. september 1949. Synir þeirra eru Elí Þór, Brynjar Logi og Ingimar Trausti. Kristín og Þórir eiga sjö barnabörn. 3) Agnes, f. 30. ágúst 1954, gift Árna Bergi Sigurbergssyni, f. 4. mars 1948, d. 30. nóvember 2001. Synir þeirra eru Sigurbergur og Finnur Már. Agnes og Árni Berg- ur eiga tvö barnabörn. Synir Árna Bergs eru Eðvald Ingi, hann á fjögur börn og Hjörleifur. 4) Málfríður, f. 9. október 1959, gift Víði Þormar Guðjónssyni, f. 15. maí 1957. Börn þeirra eru Matthild- ur Elín, Karen og Arnór. Málfríður og Víðir Þormar eiga eitt barnabarn. 5) Kristbjörg, f. 26. september 1962. Synir hennar eru Elí Rósinkar og Agnar Bergur Sigurgeirs- synir. Sambýlismað- ur Kristbjargar er Sigurjón Guðmunds- son, f. 9. febrúar 1964. 6) Steindór Jó- hannes, f. 16. októ- ber 1965, kvæntur Valgerði Guð- laugu Guðgeirsdóttur, f. 12. júlí 1968. Synir þeirra eru Hinrik og Guðgeir Ingi. Sonur Steindórs frá fyrra hjónabandi er Kristinn. Elí ólst upp hjá foreldrum sín- um á Hlíð þar til hann fluttist með móður sinni til Hnífsdals eftir lát föður hans. Í Hnífsdal stundaði hann sjómennsku þar til hann fór suður til náms í trésmíði við Iðn- skólann í Reykjavík. Eftir það voru smíðarnar hans ævistarf og fjölmargar byggingar standa eft- ir hann, bæði háar og lágar. Síð- ustu ellefu ár starfsævi sinnar vann hann á trésmíðaverkstæði Landspítalans við Hringbraut. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Elí og Matthildur í Borgarnesi en árið 1953 fluttu þau í Kópavog þar sem þau bjuggu alla tíð síðan, lengst af á Bjarnhólastíg 9. Eftir lát Matthildar flutti Elí á sambýli aldraðra á Skjólbraut 1a en síð- asta ár ævi sinnar bjó hann á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför Elís fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku Elli minn. Nú er komið að kveðjustund. Fyrir 30 árum fór ég að slá mér upp með dóttur þinni Mallý og þú og Mattý tókuð mér strax opnum örmum. Ég var fljótur að átta mig á því hvaða gæðasál þú hafðir að geyma, alltaf tilbúinn að rétta fram hjálparhönd og gefa góð ráð. Þær eru margar minningarnar sem þjóta um huga minn. Þegar þú hvattir okkur til að kaupa okkar fyrstu íbúð hjá Byggingu í Engihjall- anum. Seinna varðst þú fyrsti maður til að styðja mig og fjölskylduna mína í að reisa okkur heimili í Bæjargilinu og tókst ekki annað í mál en að vera meistari að húsinu og lagðir ómældan tíma í að hjálpa til. Seinna, allar ferð- irnar í Garðabæinn í vinnusloppnum með verkfæratöskuna til að dytta að hinu og þessu. Elsku Elli minn, þín verður sárt saknað eftir öll þessi góðu ár með þér og Mattý og þær góðu og yndislegu stundir sem ég, Mallý og börnin átt- um með ykkur. Ég veit að þú ert hvíldinni feginn og kominn til Mattý- ar þinnar. Guð blessi þig og geymi. Þinn tengdasonur, Víðir. Elsku afi. Það er sárt til þess að hugsa að þú sért farinn frá okkur. Það er þó einnig léttir að hugsa til þess að nú ertu laus við þann ömurlega sjúkdóm, Alz- heimer, sem þú þjáðist af síðustu ár. Ég þarf ekki að hugsa mig tvisvar um þegar ég segi að þú hafir verið ljúfasti maður sem ég hef nokkurn tímann kynnst, þú varst sá allra ljúf- asti, elsku afi, og það vita allir sem til þín þekktu. Það er margs að minnast þegar ég hugsa til baka því það voru ófáar stundirnar sem ég átti með ykkur ömmu, það leið vart sá dagur að við hittumst ekki. Dýrmætar minningar sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu. Við tvö að borða kaldan hafra- graut í hádeginu, Olsen Olsen við eld- húsborðið, dundað í bílskúrnum, ís- bíltúrar og svo mætti lengi telja. Þú svoleiðis dekraðir við okkur barna- börnin, afi, þér var svo umhugað um þá sem stóðu þér næst. Alltaf hafðir þú samt orð á því, sama hve mikið þú gafst eða hjálpaðir, að þetta væri ósköp lítið. Já, akkúrat svona varstu og minninguna um þig mun ég geyma sem gull. Ég mun sakna þín ósköpin öll en það gleður mig að hugsa til þess að nú ertu kominn í ömmu-faðm. Hvíl í friði, elsku hjartans afi. Þín Matthildur. Elsku afi. Þú kvaddir okkur að morgni fimmtudags en eftir sitja hlýjar, ríkar minningar um þig. Góðar gleðiríkar minningar sem ylja mér um hjartað. Ég hef varla verið meira en fjögurra ára þegar þú gafst mér bréfpening sem ég mátti fara með í búðina til að kaupa grænan frostpinna. Ég gekk svo stolt niður Bjarnhólastíginn og hélt í bréfpeninginn með báðum höndum, staðráðin í að standa undir því mikla trausti sem þú sýndir mér. Suðurbraut í byggingu, ég var agn- dofa yfir getu þinni til að byggja allt ELÍ RÓSINKAR JÓHANNESSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.