Morgunblaðið - 26.03.2004, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 26.03.2004, Qupperneq 68
ÍÞRÓTTIR 68 FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MARCUS Allbäck, sænski landsliðs- maðurinn í knattspyrnu sem leikur með Aston Villa í ensku úrvals- deildinni, hefur fjárfest í íslensku leikmönnunum Jóhanni B. Guð- mundssyni og Tryggva Guðmunds- syni, sem leika með Örgryte í Sví- þjóð. Allbäck er einn af fjórum aðilum sem hafa stofnað hlutafélag og það hefur keypt samninga fimm erlendra leikmanna af Örgryte fyr- ir samtals 10 milljónir sænskra króna, eða um 95 milljónir ís- lenskra króna. Það eru samningar Jóhanns og Tryggva og að auki samningar Brasilíumannsins Paul- inho Guára og Zambíumannanna Edwin Phiri og Boyd Mwila. Anders Lundberg, talsmaður Ör- gryte, skýrði frá þessu nú í vikunni á vef stuðningsmanna félagsins. „Ef einhverjir af þessum fimm leik- mönnum verða seldir fær hluta- félagið stærstan hlut af hagn- aðinum en Örgryte aðeins lítinn hluta. Þegar að því kemur að hluta- félagið kaupi unga leikmenn af okkur snýst þetta við, þá fær Ör- gryte stærsta hlutann þegar þeir verða seldir,“ sagði Lundberg. Allbäck er annar tveggja ein- staklinga sem stofnuðu hlutafélagið en tvö sænsk byggingafyrirtæki eru ennfremur hluthafar. Annað þeirra er í eigu föður hans, Stefans Allbäcks. Allbäck, sem lék um ára- bil með Örgryte, hefði mikinn hug á að ljúka ferlinum með félaginu. Allbäck fjárfestir í Jóhanni og Tryggva JENS Lehmann, markvörður Ars- enal, fær að láta ljós sitt skína í vin- áttulandsleik Þjóðverja og Belga sem fram fer í Köln í næstu viku. Rudi Völler, landsliðsþjálfari, valdi Lehmann og Timo Hildebrand, Stuttgart, í markvarðarstöðurnar en fyrirliðinn Oliver Kahn, Bayern München, fær hvíld að þessu sinni. Lehmann og Kahn hafa eldað grátt silfur saman á undanförnum miss- erum en Lehmann hefur haldið því statt og stöðugt fram að hann eigi skilið að vera aðalmarkvörður. Deilur þeirra í þýskum fjölmiðlum gengu það langt að Völler varð að skerast í leikinn og hefur hann rætt einslega við þá báða. Landsliðs- hópur Þjóðverja er þannig: Jens Lehmann (Arsenal), Timo Hilde- brand (Stuttgart), Frank Baumann (Bremen), Arne Friedrich (Hertha Berlín), Philipp Lahm (Stuttgart), Jens Nowotny (Leverkusen), Christian Worns (Dortmund), Christian Rahn (Hamburg), Michael Ballack (Bayern), Jens Jeremies (Bayern), Fabian Ernst (Werder Bremen), Paul Freier (Bochum), Torsten Frings (Dortmund), Seb- astian Kehl (Dortmund), Dietmar Hamann (Liverpool), Carsten Ram- elow (Leverkusen), Bernd Schneid- er (Leverkusen), Fabian Ernst (Bremen), Fredi Bobic (Hertha Berlín), Miroslav Klose (Kais- erslautern), Kevin Kuranyi (Stutt- gart), Oliver Neuville (Leverkusen). Lehmann fær tækifæri á kostnað Kahns ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR Snæfell – Njarðvík 91:89 Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi, undanúr- slit úrvalsdeildar karla, Intersport-deildar, þriðji leikur, fimmtudaginn 25. mars 2004. Gangur leiksins: 1:6, 5:10, 10:12, 14:18, 18:24, 22:27, 22:33, 25:38, 27:43, 27:48, 29:50, 31:54, 35:57, 38:61, 40:65, 43:69, 49:69, 55:75, 57:79, 61:81, 68:82, 73:84, 81:85, 84:86, 88:86, 91:86, 91:89. Stig Snæfells: Edmund Dotson 26, Corey Dickerson 23, Hlynur Bæringsson 19, Sig- urður Þorvaldsson 12, Hafþór Gunnarsson 8, Lýður Vigniss. 2, Dondrell Whitmore 1. Fráköst: 22 í vörn – 18 í sókn. Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 26, Páll Kristinsson 21, William Chavis 13, Brandon Woudstra 12, Halldór Karlsson 9, Guðmundur Jónsson 4, Friðrik Stefánsson 2, Egill Jónasson 2. Fráköst: 24 í vörn – 13 í sókn. Villur: Snæfell 18 – Njarðvík 30. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Aðal- steinn Hjartarson, dæmdu erfiðan leik ágætlega. Áhorfendur: 620. HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Fram – KA/Þór ....................................27:31 Mörk Fram: Kristín Gústafsdóttir 8, Íris Sverrisdóttir 6, Elísa Viðarsdóttir 3, Marthe Sördal 2, Anna M. Sighvatsdóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Ásta B. Gunn- arsdóttir 2, Arna Eir Einarsdóttir 1, Eva Harðardóttir 1. Mörk KA/Þórs: Cornelia Réte 10, Guðrún Tryggvadóttir 8, Erla Tryggvadóttir 4, Sandra Jóhannsdóttir 4, Katrín Andrés- dóttir 2, Guðrún L. Guðmundsdóttir 2, Inga Dís Sigurðardóttir 1. Haukar – FH .........................................28:26 Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 9, Ragnhildur Guðmundsdóttir 4, Anna Hall- dórsdóttir 4, Ingibjörg Karlsdóttir 3, Sandra Anulyté 3, Áslaug Þorgeirsdóttir 2, Tinna Halldórsdóttir 1, Martha Her- mannsdóttir 1, Erna Þráinsdóttir 1. Mörk FH: Gunnur Sveinsdóttir 8, Dröfn Sæmundsdóttir 6, Sigrún Gilsdóttir 3, Guð- rún Hólmgeirsdóttir 3, Björk Ægisdóttir 2, Bjarný Þorvarðardóttir 2, Þórdís Brynj- ólfsdóttir 2. Valur – Grótta/KR...............................28:22 Mörk Vals: Drífa Skúladóttir 7, Kolbrún Franklín 6, Árný Ísberg 4, Hafrún Krist- jánsdóttir 3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 2, Díana Guðjónsdóttir 2, Ágústa Edda Björnsdóttir 2, Elfa Björk Hreggviðsd. 2. Mörk Gróttu/KR: Eva Björk Hlöðvers- dóttir 6, Aiga Stefane 5, Eva Margrét Kristinsdóttir 4, Anna Ú. Guðmundsdóttir 3, Ragna K. Sigurðardóttir 2, Íris Á. Pét- ursdóttir 1, Hera Bragadóttir 1. Víkingur – ÍBV .....................................28:23 Mörk Víkings: Natasa Damiljanovic 10, Anna K. Árnadóttir 8, Eygló Jónsdóttir 4, Ásta B. Agnarsdóttir 2, Valgerður Árna- dóttir 2, Margrét Egilsdóttir 1, Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir 1. Mörk ÍBV: Sylvia Strass 8, Birgit Engl 6, Þorsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir 2, Nína K. Björnsdóttir 1, Anja Nielsen 1, Ester Óskarsdóttir 1. ÍBV 23 18 0 5 716:587 36 Valur 23 16 1 6 559:481 33 Stjarnan 23 16 0 7 578:521 32 Haukar 23 13 1 9 621:605 27 FH 23 12 0 11 611:570 24 Víkingur 24 10 1 13 559:579 21 Grótta/KR 23 9 3 11 561:585 21 KA/Þór 23 6 1 16 556:660 13 Fram 23 0 1 22 484:657 1 KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn 16 liða úrslit, síðari leikir: Club Brugge – Bordeaux........................ 0:1 – Marouane Chamakh 84. – 23.717.  Bordeaux áfram, 4:1 samanlagt. PSV Eindhoven – Auxerre ..................... 3:0 Mateja Kezman 4., 27., Mark van Bommel 73. – 28.000.  PSV áfram, 4:1 samanlagt. Roma – Villarreal .................................... 2:1 Emerson 10., Antonio Cassano 51. – Sonny Anderson 66. Rautt spjald: Jonathan Zeb- ina 89. (Roma). – 29.000.  Villarreal áfram, 3:2 samanlagt. Barcelona – Celtic ................................... 0:0 78.000.  Celtic áfram, 1:0 samanlagt. Inter Mílanó – Benfica ............................ 4:3 Obafemi Martins 45., 69., Alvaro Recoba 60., Christian Vieri 64. – Nunu Gomes 36., 67., Tiago 77. – 27.638.  Inter Mílanó áfram, 4:3 samanlagt. Mallorca – Newcastle.............................. 0:3 – Alan Shearer 46., 89., Craig Bellamy 78.  Newcastle áfram, 7:1 samanlagt. Marseille – Liverpool .............................. 2:1 Didier Drogba 38. (víti), Abdoulaye Meite 58. – Emile Heskey 15. Rautt spjald: Igor Biscan 36. (Liverpool). – 50.000.  Marseille áfram, 3:2 samanlagt. Valencia – Genclerbirligi ....................... 2:0 Mista 64., Vicente 94. Rautt spjald: Ozkan 86. (Genclerbirligi). 29.000.  Valencia áfram, 2:1 samanlagt. Í 8 liða úrslitum mætast: Bordeaux– Valencia Marseille – Inter Mílanó Celtic – Villarreal PSV Eindhoven – Newcastle KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin, und- anúrslit, þriðji leikur: Grindavík: UMFG – Keflavík...............19.15 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni Neðri deild karla, C-riðill: Reykjaneshöll: Víkingur Ó. – KS..............20 Neðri deild karla, B-riðill: Fífan: Breiðablik – Selfoss ........................21 BLAK 1. deild kvenna: Digranes: HK – Þróttur N. ..................21.15 Hagaskóli: Þróttur R. – KA.......................21 Í KVÖLD Alan Shearer, fyrrum fyrirliðienska landsliðsins, skoraði tvívegis þegar Newcastle brá sér til Mallorca og lagði heimamenn 3:0. Nescastle vann einnig í fyrri leiknum, þá 4:1 og komst því örugglega áfram 7:1. Fyrri hálfleikur var markalaus en markvörður heimamanna var ekki alveg vaknaður eftir hléið þegar Shearer nýtti sér sofanda- hátt hans og skoraði. Craig Bell- amy kom inn á sem varamaður í liði Newcastle og bætti öðru marki við á 78. mínútu og Shearer því þriðja mínútu fyrir leikslok. Ungur markvörður Mallorca, Miguel Garro „Miki“ stóð vel fyrir sínu í fyrri hálfleik og varði þá nokkrum sinnum vel frá sóknar- mönnum gestanna. Hann hitti hins vegar ekki boltann þegar hann ætl- aði að spyrna frá marki í upphafi síðari hálfleiks og boltinn fór til Shearers sem nýtti reynslu sína til fullnustu og skoraði í autt markið. Newcastle mætir PSV Eindhov- en í átta liða úrslitunum og þar mun Boggy Robson, stjóri New- castle, hitta fyrir einn af sínum gömlu klúbbum en hann var við stjórnvölinn um tíma hjá hollenska félaginu. Vonbrigði hjá Liverpool Liverpool hafði gert sér vonir um að komast í næstu umferð þrátt fyrir að ná aðeins 1:1 jafntefli við Marseille í fyrri leik liðanna. Byrj- unin lofaði góðu því Emile Heskey kom liðinu yfir eftir aðeins stund- arfjórðung, skoraði framhjá Fabien Barthez, fyrrverandi markverði Manchester United, sem nú ver mark franska liðsins. En þeir rauðklæddu gátu ekki leyft sér að slaka neitt á og gerðu það ekki heldur sóttu mun meira en heimamenn. Owen komst í gegn en missti boltann aðeins og langt frá sér og Barthez náði honum. Liverpool virtist í ágætum málum allt þar til dómarinn dæmdi víta- spyrnu á Biscan fyrir að toga í Steve Marlet. Biscan var aukin- heldur rekinn af velli. Heimamenn skoruðu úr vítinu og snemma í síð- ari hálfleik gerðu þeir annað mark og þar við sat. Celtic gerði vel þegar liðið fór til Barcelona og náði markalausu jafntefli gegn heimamönnum sem hafa verið á mikilli siglingu síðustu vikurnar. Celtic vann 1:0 þegar lið- in mættust í Glasgow í fyrri leikn- um og komst því áfram á því marki. Celtic mætir öðru spænsku liði í átta liða úrslitunum því Vill- arreal er næsti mótherji, en liði lagði Roma 3:2 samanlagt. PSV lagði Auxerre 3:0 og er komið áfram eins og Inter sem vann Benfica 4:3 en fyrri leikur lið- anna endaði með markalausu jafn- tefli.Valencia komst einnig áfram í gærkvöldi með því að leggja tyrk- neska liðið Genclerbirligi 2:0 í framlengdum leik, en tyrkir unnu 1:0 í fyrri leiknum. Reuters Alan Shearer skoraði tvívegis fyrir Newcastle í gærkvöldi í UEFA-leiknum á Mallorca. Liverpool úr leik í UEFA LIVERPOOL er úr leik í UEFA bikarnum í knattspyrnu eftir 2:1 tap í Marseille í gærkvöldi. Newcastle var hins vegar ekki í vandræðum þegar liðið heimsótti Real Mallorca og vann 3:0. Celtic gerði sér lít- ið fyrir og náði markalausu jafntefli við Barcelona á Nou Camp í Barcelona og kemst skoska liðið áfram þar sem leikmenn þess fögnuðu sigri í Glasgow í fyrri leiknum. Skipt um markvörð GUÐMUNDUR Guðmunds- son, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, varð að gera eina breytingu á landsliðshópi sín- um sem heldur í dag til Frakklands þar sem liðið mætir heimamönnum í tví- gang í næstu viku. Reynir Þór Reynisson, markvörður Víkings, getur ekki farið með liðinu vegna meiðsla og í hans stað valdi Guðmundur Björgvin Gúst- avsson, markvörð HK. JALIESKY Garcia Padron, landsliðsmaður í handknatt- leik og leikmaður þýska liðs- ins Göppingen, er tognaður í baki og gat því ekki gefið kost á sér í íslenska lands- liðið sem mætir Frökkum í byrjun næstu viku í Frakk- landi. Heimildir Morgunblaðsins herma að Garcia hafi tognað í baki í síðustu viku. Ekki hafi verið um alvarlega togn- un að ræða. Garcia lék með Göppingen gegn Hamburg á síðasta laugardag en var sprautaður í bakið fyrir leik- inn. Síðan hafi hann verið í meðferð í vikunni og útlitið sé gott að hann nái sér á næstu dögum. Vegna þessa og veikrar stöðu Göppingen í þýsku 1. deildinni hafi for- ráðamenn liðsins ekki viljað að hann færi til móts við ís- lenska landsliðið í Frakk- landi. Þess í stað að hann héldi sig heima í Göppingen og safnaði kröftum undir lokasprettinn í þýsku 1. deildinni. Göppingen er í 16. og þriðja síðasta sæti og því í fallhættu. Falli liðið niður í 2. deild er talið að það verði af 60 til 70 milljóna króna tekjum auk þess sem samn- ingar við sterka leikmenn verða í uppnámi. Garcia togn- aður í baki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.