Morgunblaðið - 26.03.2004, Síða 7

Morgunblaðið - 26.03.2004, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26|3|2004 | FÓLKIÐ | 7 Það fer fátt jafnmikið í taugarnar á mér og þegar fólk slengir þeirri firru í andlitið á mér að nám sé ekki vinna. Nám er ekki aðeins vinna heldur er það tvöföld, ef ekki þreföld vinna. Margir telja mig ef til vill mála skratt- ann á vegginn í þessum efnum en dokið við. Ég er þekkt fyrir lítið annað en málefnalega umræðu og leiði því fram þrjú sönnunargögn máli mínu til stuðnings: Sönnunargagn A – Nám spyr ekki um 40 stunda vinnuviku eða reglur EES um hæfileg- an hvíldartíma. Námsmaðurinn stritar myrkr- anna á milli, jafnvel heilu sólarhringana án þess að fá kaffitíma eða klapp á bakið frá yf- irmanni sínum. Námsmaðurinn er sinn eigin herra með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgir. Hann fær ekki greidda veikindadaga eða fæðingarorlof og verði hann fyrir því óláni að missa af kennslu mun enginn vinna verkið fyrir hann. Námið er sífellt á herðum hins samviskusama námsmanns (held ég – enda geri ég mér ekki alveg grein fyrir því hvort ég falli undir þá skilgreiningu). Sönnunargagn B – Til að eiga brauð að bíta reynir námsmaðurinn að vinna með námi sínu. Eftir +70 stunda námsviku heldur hann þreyttur – en þó glaður í bragði – inn á vinnu- staðinn sinn. Hann tekur við verkefnum þeim sem að honum eru rétt þegjandi og hljóð- laust og vinnur þau samviskusamlega, hratt og örugglega. Ég þori að fullyrða að menn hafa aldrei heyrt námsmenn kvarta yfir lélegri vinnuaðstöðu, þungu lofti eða vondum mat á árshátíð. Námsmaðurinn sættir sig við flest – enda er hann „aðeins“ námsmaður. Sönnunargagn C – Fyrir allt sitt strit má velta því fyrir sér í hvaða formi umbun náms- mannsins er. Jú, umbunin er gífurleg – bankastarfsmenn andvarpa þegar náms- maður nálgast, vinnandi fólk telur náms- menn sofa heilu og hálfu dagana og versl- unarmenn telja námsmenn níska. Varnaðarorð á ég til þeirra er tilheyra þessum hópum. Einn góðan veðurdag mun hinn sí- blanki, síþreytti og níski námsmaður verða ríkur og stjórna fjárframlögum á elliheimilið ykkar. Andvarp ykkar verður geymt en ekki gleymt á skuldadögum! Vel má vera að einhverjar þær mítur sem umlykja námsmanninn séu sannar en annað er þeim mun ljósara, að líf vísitölunáms- mannsins er síður en svo tekið út með ein- tómri sæld. Margan kann eflaust að undra þessa neikvæðni en orð mín má ekki mis- skilja. Námsmenn eiga sína góðu daga. Best- ir þykja mér þó föstudagar. Á föstudögum get- ur maður ráfað um stórmarkaðina, kýlt vömbina og borðað eins og maður getur í sig látið af góðgæti á kynningum – ókeypis! Lán- samur námsmaður þarf lítið til að gleðjast. Heiðrún Lind Marteinsdóttir JÁRNSKVÍSAN NATNI NÁMS- MANNSINS kjavíkur voru nánast eins misjöfn og þau voru mörg. Á meðan allir á því að Íslendingar væru gríðarlega mikil tískufrík, u almennt í miklu uppáhaldi. |bryndis@mbl.is MARGRÉT ÓSK VILBERGSDÓTTIR, NEMI Í FÁ Hvað er í tísku núna? Stuttermabolir með áletr- unum úr Dogma, gallabuxur og fléttur. Fylgirðu tískunni? Svona aðeins. Áttu þér uppáhaldsflík? Já, Stussy-bolinn minn og eyrnalokkana sem ég er með. Þá fékk ég í Spútnik. Hvar kaupirðu helst föt? Í Smash. Dogma er líka uppáhaldsbúðin mín. Hvað eyðirðu miklu í föt á mánuði? Svona 10.000-15.000 kalli. Eru Íslendingar tískufrík? Já, það eru allir hérna að reyna að fylgja tískunni. Hvað finnst þér flott sem er í gangi núna? Allt gamalt, til dæmis frá 8. áratugnum eins og skór með þykkum hælum og rúnnaðri tá. Hvað finnst þér ljótt sem er í gangi? Goth-tíska og FM-súkkulaðitíska. ÁTTUNDI ÁRATUG- URINN OG FLÉTTUR MARÍA ÁSTUDÓTTIR, NEMI Í KVENNASKÓLANUM Hvar kaupirðu helst föt? Í Retró. Hvað eyðirðu miklu í föt á mánuði? Svona 20 þúsund krónum. Hvað finnst þér flott sem er í gangi núna? Gamla kvenlega tískan í anda Audrey Hepburn og Jackie Kennedy. En hvað ljótt? Allt þetta skærlita. Það er komið nóg af því. Morgunblaðið/Eggert Í ANDA JACKIE KENNEDY UNNUR KARLSDÓTTIR, NEMI Í MR Fylgirðu tískunni? Ég hef minn persónulega stíl en auðvitað fer ég líka eftir því hvað er í búð- unum. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Svörtu rúskinnsstíg- vélin mín. Hvar kaupirðu helst föt? Ég er mikið í Nikita- fötum, svo er Dogma frábær búð. Svo verslar maður náttúrlega eitthvað í Sautján. Hvað eyðirðu miklu í föt á mánuði? Oftast ekki undir tíu þúsund kalli. Um daginn fór ég út í versl- unarferð og þá fór 10.000 kallinn fyrir næstu sex mánuði á nokkrum dögum … Hvað finnst þér flott sem er í gangi? Rúskinns- stígvél hvort sem er támjó eða með rúnnaðri tá. Á vorin finnst mér líka þröngar hettupeysur flottar. Líka stuttermabolir eins og fást í Dogma. SVÖRTU RÚSKINNSSTÍG- VÉLIN FLOTTUST Ég fór að sjá Píslarsögu Krists á dög- unum. Myndin nær að vera nokkuð raunsæ og að fylgja frásögn guðspjall- anna. Að vísu fattaði ég ekki enda- lausan gervihlátur rómversku her- mannanna sem hlógu samfellt og án tilefnis. Það minnti mig á Dr. Evil í Aust- in Powers-myndunum. Þegar þeir voru búnir að hlæja samfellt í 20 mínútur var ég satt best að segja kominn með örlít- inn bjánahroll. Mér fannst það tilgerð- arlegt og hefði alveg mátt sleppa því. Svo var hann kannski aðeins of stoltur. Dauði Frelsarans er ekki eins og þegar hinn tignarlegi fíll fellur fyrir byssukúlu veiðimannsins og hnígur niður heldur miklu fremur eins og saklaust lamb sem er slátrað og brytjað niður á rudda- fenginn hátt. Svo er það útlit Jesúsar. Af hverju þarf Jesús alltaf að vera einhver einhver Hollywood-hönk? Hann lítur alltaf út eins og fyrirsæta og talar eins og sögu- maður í útvarpsleikriti. Erum við búin að gera mynd hans heilaga? Hinn mynd- ræni Frelsari er yfirleitt smáfríður, síð- hærður og grannur og jafnvel bláeygður. Af hverju? Það eru engar heimildir í guð- spjöllunum um útlit Jesúsar. Það er allt seinni tíma tilbúningur. Ég held að hann hafi verið mjög kraftalega vaxinn. Hann starfaði sem smiður löngu fyrir tíma hleðsluborvéla og vökvalyfta. Hann hef- ur líka örugglega verið sólbrenndur. Hann var örugglega ekki með sítt hár, því slíkt var óhæfa á þeim tímum. Ég held að hann hafi ekkert verið neitt ólíkur lærisveinum sínum í útliti. Og þar er komin skýringin á því af hverju Júdas þurfti að benda á hann. Ég held að Jesú hafi verið mjög svipaður Ragn- ari skjálfta í útliti, bara lágvaxnari. Það er reyndar guðlast að halda fram ein- hverju einu útliti fram yfir annað sem hinu „rétta útliti“. Á ekki Jesús meira sammerkt með hinum sjúku, „ljótu“ og smáðu en hinum fallegu, tignarlegu og gáfuðu? Og ef Jesús er fallegur þá er djöfullinn ljótur. Þetta viðhorf hefur kannski orðið til að auka fordóma gegn „ljótu fólki“ eins og til dæmis svert- ingjum. Samkvæmt sagnfræðingnum Jós- efusi Flavíusi sem fæddist rúmum 30 árum eftir Krist þá var Jesús mjög ófríð- ur. Victor Húgó notaði seinna lýsingu hans til að móta eina af persónum sín- um; hringjarann í Notre Dame. Það er ekkert „eitt rétt“ útlit til á Jesú. Hann er þvert á móti allt útlit. Hann er fallegur og ljótur, svartur og hvítur, feitur og mjór, Kínverji og Grænlendingur en fyrst og fremst góður … eins og Quasimoto. Jón Gnarr HUGRENNINGAR ALÞÝÐUMANNS HUGRENNINGAR ALÞÝÐUMANNS Var Jesús ljótur?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.