Vísir - 27.04.1981, Blaðsíða 8
8
Mánudagur 27. aprll 1981
VÍSIR
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð-
mundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sigfússon,
Fríða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Sigþórsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Páll AAagnússon, Sigurjón
Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaður á
Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur
O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés-
son. útlitsteiknun: Gylfi Kristjánsson, AAagnús Olafsson. Safnvörður:
Eiríkur Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Slðumúla 14, simi 86611, 7 línur
Auglýsingarog skrifstofur: Síðumúla 8, slmar 86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4, sími 86611.
Áskriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 4 krónur
eintakið.
Vísir er prentaður I Blaðaprenti, Síðumúla 14.
Stjórn og stjórnarandstaða
Stjórnmálafræðingurinn, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson.tók sér f yrir
hendur F helgarblaði Þjóðviljans
að sjúkdómsgreina stjórnarand-
stöðuna. Það var fróðleg lesning,
þótt ekki væri hún vísindaleg.
Niðurstaða hans var sú, að
athafnir stjórnarandstöðunnar
væru ruglandi ringulreið, meðan
ríkisstjórnin hefði sannað
ágæti sitt og fest sig í sessi.
Ályktunarorð stjórnmála-
fræðingsins voru þau, að „veik-
leikar íslenskra stjórnmála
felast um þessar mundir fyrst og
fremst í stjórnarandstöðunni
sjálfri".
Hér verður ekki borið lof á
stjórnarandstöðuna, og víst er
eitthvað til í því, að henni haf i um
margt verið mislagðar hendur.
En heldur verður það að teljast
ofrausn henni til handa, að hún
gegni svo veigamiklu hlutverki,
að íslensk stjórnmál standi og
falli með fra-nmistöðu hennar.
Ummæli stjórnmálafræðingsins
bera þess fyrst og fremst vitni,
að stjórnmálin séu yfirleitt illa
á vegi stödd, þegar formenn
þingflokka og lærðir menn í
pólitík telja það málstaðsínum til
framdráttar að kveða upp slíka
dóma.
( eina tfð taldist það til land-
ráða að láta andstæðinga sína
njóta sannmælis. Þá voru hlut-
irnir málaðir svörtum litum og
hvítum, og sá þótti mestur, sem
þjappað gat saman sem flestum
fúkyrðum í eina og sömu setning-
una.
Það þótti Ijóður á ráði stjórn-
málamannsins að gefa á sér
höggstað eða viðurkenna stað-
reyndir.
Með frjálsari fjölmiðlun og
almennari þekkingu hefur dregið
úr slfkum málflutningi á síðari
árum. Menn hafa lært þau
sannindi, aðsjaldan veldur einn,
þá tveir deila. Á hverju máli eru
tvær eða fleiri hliðar og enginn er
alvitur né óskeikull hvorki í
stjórn eða stjórnarandstöðu.
Það er hlutverk stjórnarand-
stöðunnar að gagnrýna og veita
aðhald. Stundum tekst henni vel
upp, stundum illa. Stundum á
gagnrýnin rétt á sér, stundum
ekki. Um það verður almenn-
ingur að dæma. En það er barna-
leg einföldun og broslegur mál-
flutningur, svo að ekki sé meira
sagt, að komast að þeirri niður-
stöðu, að veikleiki stjórnmálanna
felist ístjórnarandstöðunni einni.
Það er lítil von til þess að
stjórnmálaumræðan komist á
vitrænt stig eða höfði til
kjósenda, meðan menn klæðast
svart-hvítu buxunum.
Alla þessa helgi hefur ríkis-
stjórnin setið á fundum og rætt
um framhaldsaðgerðir í efna-
hagsmálum. Ber það með sér, að
allt sé með felldu? Eftir marg-
víslegar ráðstafanir, niðurtaln-
ingu og yfirlýsingar forsætisráð-
herra um 40% verðbólgu, kom í
Ijós um síðustu áramót, að
verðbólgan var nákvæmlega sú
hin sama og þegar ríkisstjórnin
tók við og stefndi raunar í
70—80% verðbólgu, Var það
vitnisburður um stjórnfestu?
Verðbætur á laun voru skertar
um 7% um síðustu áramót,
skömmu eftir að launþegahreyf-
ingin samdi um 10—11%
kauphækkun. Kallaði það ekki á
gagnrýni? Ríkisstjórnin boðaði
„herta verðstöðvun" um áramót-
ia en hækkaði síðan brauð,
smjörlíki, öl, fisk, flugfargjöld,
áfengi, tóbak, bíómiða, útselda
vinnu og reyndar hvaðeina, sem
kemur við pyngju hins almenna
neytanda. Á að sitja þegjandi
undir því? Ráðherrar neituðu að
til væri sérstakur samningur um
meðferð utanríkismála en síðan
upplýsti Svavar Gestsson að gert
hafi verið drengskaparsam-
komulag við Alþýðubandalagið
um þau mál. Krefst það ekki
athugasemda? Ríkisstjórnin
setur (slandsmet í erlendri
skuldasöfnun. Eru það ekki
tíðindi? Ríkisstjórnin falsar
skattvísitöluna og hyggst breyta
skattalögum eftir að f ramtöl eru
lögð fram. Má enginn segja neitt
við því?
Svona mætti áfram telja.
Stjórnarandstaðan hefur haft af
nægu að taka og kannski er veik-
leiki hennar fólginn f því að
fylgja gagnrýni sinni ekki nægi-
lega eftir. En það er ekki ríkis-
stjórninni að þakka.
r-
Landssamband iönaöar-
manna hefur aö undanförnu iát-
ið frá sér fara greinargeröirum
■ hdsnæöismál, sem vakið hafa
veröskuldaöa athygli. Þar hefur
| stefnan veriö gagnrýnd með
■ rökum og bent á háskalegar af-
leiðingar hennar. Þaö vekur
| ekki undrun kunnugra, þegar
Þjóöviljinn umhverfist vegna
gagnrýninnar og kallar hana
„ýkjur og áróöur,” enda veröa
mern venjulega sannleikanum
I sárreiðastir. Ritstjórar Þjóð-
| viljans og framkvæmdastjóri
Alþýöubandalagsins, sem jafn-
framt er formaöur stjórnar
m HUsnæöisstofnunarinnar hafa
reynt að verja félagsmálaráð-
| herrann. Sjálfur er hann of finn
til að svara slíku enda önnum
I kafinn við aö skipuleggja næstu
■ mannaráöningar i kerfinu.
■ Astæöa ertilaörifja upp i stuttu
máli nokkur atriöi, sem fram
| hafa komið i umræöum um hús-
næðismálin aö undanförnu.
| Gífurleg skerðing.
Þegar félagsmálaráöherrann
8 töfraöi fram nUverandi verka-
mannabUstaöakerfi, var þaö
gert meö því að taka helming
I launaskattsins, eöa 7.5 gamla
| milljaröa, sem skv. lögum og
Friðrik Sófusson alþm.
skrifar um stefnu stjórn-
valda f húsnæðismálum.
Vekur hann athygli á
þeim ráðstöfunum sem
gripið hefur verið til, og
hafa í för með sér til-
færslur á fjámagni frá
hinu almenna lánakerfi
til húsbyggjenda til aukn-
ingar á félagslegu hús-
næði.
kjarasamningum áttu að renna
til Byggöarsjóðs rlkisins og
veita þeim I verkamanna-
bUstaöakerfiö. A sama tima
hengdi ráðherrann nýja bagga á
Byggingarsjóöinn meö þvi að
fjölga Utlánaflokkum, sem heföi
að sjálfsögöu verið æskilegt, ef
fjármagn heföi veriö tryggt til
aö standa undir kostnaöinum.
VerkamannabUstaðakerfiö er
þvi ekki viöbót fyrir láglauna-
fólkiö. Þaö er þvert á móti bUiö
tilá kostnaö aimenna kerfisins.
Félagsmálaráöherrann og
fjármálaráðherrann hafa enn
fremur komiö sér saman um aö
taka 4.6 milljarða gkr. til viö-
bótar af lögbundnum tekjum
Byggingarsjóösins og ætla aö
nota þá til allt annarra þarfa
rikissjóðs. Heildarskeröingin er
þvl a.m.k. 12.1 milljaröur gkr.
og er þá reiknaö með þvi, aö
byggingarsjóösgjaldiö (af bein-
um sköttum og aöflutnings-
gjaldi) heföi gefiö 1.4 milljarö
gkr.eins og reyndarer staöfest I
fjárlagafrumvarpi Ragnars
Amalds.
Vandinn leystur með
dýrum lánum.
andi” UUánamagni Byggingar-
sjóösins aö mati sjóösstjórnar-
innar eru tekin lán hjá lifeyris-
sjóðunum á hærri vöxtum en Ut-
lánavöxtum Byggingarsjóösins.
Þannig er vandanum ýtt til
framtlöarinnar. Næstu félags-
málaráöherrar veröa svo aö
finna fjármagn til aö borga
muninn. — Nema æUunin hafi
veriö aö launaskatturinn fari I
vaxtamunagreiðslur en ekki til
aö byggja upp sjóöinn.
Hver verður afleiðingin?
Afleiöingar þessarar nýju
hUsnæöislánastefnu, sem mörk-
uö er I nýjum lögum og laga-
framkvæmd Alþýöubandalags-
ráöherranna birtist m.a. I þvi,
aö U 11 á na m ö g u 1 e ik a r
Byggingarsjóösins hafa aldrei
veriö lakari I 20 ár. Félagslegur
dilkadráttur ermagnaöur I þjóö-
félaginu og fólk gert aö þurfaling-
um Enn fremur er kynt undir þá
þróun, aö sífellt stærri hliíti
IbUöabyggingastarfseminnar
lendi I höndum opinberra aöila
— allt frá hönnun til byggingar-
loka.
Rlkisstjórnin hefur I verki
viðurkennt skipbrot stefnunnar
I hUsnæöismálum meö þvi aö
lýsa yfir um áramótin, aö hún
hyggist hjálpa IbUöarbyggjend-
um meö þvl aö breyta skamm-
Umalánum I langtlmalán. SU
„hjálp” er I þvl fólgin, aö biöja
banka— og sparisjóðakerfiö um
að veita hUsbyggjendum lán
með hæstu ávöxtunarkjörum.
Kannske er þetta fyrsta skrefiö I
þá átt aö leggja hUsnæðislána-
kerfiö niöur og færa þaö yfir I
hiö almenna lánakerfi!!
Verður launaskatturinn
Lagður af?
Tómas Amason sagöi á aöal-
fundi Félags iönrekenda fyrr i
vetur, aö eölilegt væri aö leggja
niöur launaskattinn m.a. til aö
jafna stööu atvinnugreinanna.
(Síöan hefur ekkert heyrst um
máliö). Launaskatturinn var á
slnum tíma lagöur á skv. kjara-
samningum til aö efla IbUöa-
byggingar. Rlkisstjórnin hefur
um skeiö stolist til aö taka hluta
hans og nota til annarra
óskyldra verkefna. Ekki heyrist
mUkk frá verkalýöshreyfing-
unni, þótt ljóst sé, að minni
launaskattur geti veitt svigrUm
til launahækkana aö sama
skapi. Alþýöubandalagiö á enga
verkalýösforingja á þingi —
nema Guömund J. auövitaö, en
hann viröist hafa misst röddina
um sinn.
Full ástæöa er til aö þakka
Landssambandi iönaöarmanna
greinargóöar upplýsingar, sem
vonandi ýta fyrr eöa slöar nægi-
lega viö félagsmálaráöherran-
um og samstarfsmönnum hans I
rlkisstjórn til að þeir vakni til
veruleikans I þessum málum.
Til aö geta haldiö Uti „viðun-