Vísir - 27.04.1981, Blaðsíða 23

Vísir - 27.04.1981, Blaðsíða 23
Mánudagur 27. aprfl 1981 f Ví r ♦: VÍSIR dánaríiegnir Filippus Eva Kristin Gunnlaugsson. Magnúsdóttir. Filippus Gunnlaugsson lést 12. april sl. Hann fæddist 17. mai 1905 aö Hrófbergi i Strandasýslu. For- eldrar hans voru Marta Guðrún Magnúsdóttir og Gunnlaugur Magnússon, bóndi á Ósi i Strandasýslu. Filippus var við nám i Núpsskóla i Dýrafirði. 1927 lauk hann prófi við Samvinnu- skólann i Reykjavik. Fram til ársins 1930 vann Filippus á búi föðurins, en fluttist siðan til Reykjavikur. Þegar Viðtækja- verslun rikisins var stofnuð 1930, hóf Filippus störf i skrifstofu hennar og vann þar óslitið i 37 ár. Siðan starfaði hann hjá fyrirtæki Friðriks A. Jónssonar um nokk- urn tima eða á meðan heilsan leyfði. Árið 1936 kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni.Sigriði Gissurardóttur frá Drangshlið undir Eyjafjöllum. Þau eignuðust þrjú börn. Filippus varð jarð- sunginn sl. miðvikudag 22. april. Eva Kristin Magnúsdóttirlést 15. april sl. Hún fæddist 5. júni 1915 i Reykjavik. Foreldrar hennar voru hjónin Jófriður Guðmunds- dóttir og Magnús Gislason, skáld. Ung missti Eva móður sina og ólst upp hjá hjónunum Steinunni Oddsdóttur og ólafi Ketilssyni. Arið 1950 giftist hún eftirlifandi manni sinum, Guðmundi Fri- mannssyni, kennara. Þau hófu sinn búskap i Gaulverjarbænum, einnig var Guðmundur um alllangt skeið skólastjóri á Hjalt- eyriiEyjafirði og siðan kennari á Akureyri. Þau eignuðust tvö börn. Eva var jarðsungin frá Akureyrarkirkju sl. laugardag 25. april. Guöbjörg Sig- uröardóttir. Sigrún Magnúsdóttir. Guðbjörn Sigurðardóttir lést 13. aprilsl. Hún fæddist 1. september 1892. Foreldrar hennar voru Hall- björg Jónsdóttir og Sigurður Guð- mundsson. Guðbjörg var næst yngst af sex börnum þeirra. Um tvitugt fluttist hún til Isafjarðar ogáttiþarheima siðan. Arið 1923 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sinum, Birni Jóhannssyni, sjó- manni. Þau eignuðust sjö börn og fjögur börn tóku þau i fóstur. Þegar öll börnin voru uppkomin fluttust Guðbjörg og Björn á Hjallaveg til sonar sins og tengdadóttur, Torfa og Sigriðar Krókness, og bjuggu þar. Sigrún Magnúsdóttirlést 17. april sl. Hún fæddist 23. mai 1920 á Eyrarbakka. Foreldrar hennar voru Jónina Sveinsdóttir og Magnús Jóhannesson, sjómaður og útgerðarmaður, sem lifir nú i hárri elli i Vestmannaeyjum. Sigrún fluttist kornung með for- eldrum sinum til Vestmannaeyja. Arið 1941 giftist Sigrún eftirlif- andi manni sinum, Pétri Stefáns- syni frá Eskifirði, fyrrverandi lögregluþjóni og siðar heil- brigðisfulltrúa. Þau eignuðust fimm börn. Sigrún var jarðsungin sl. laugardag 25. april. Ólína Bjarnadóttir Rasmusson lést 18. april sl. Hún fæddist 8. ágúst 1904 á Þingeyri við Dýra- Ólina Bjarna- Þuriður Guö- dóttir. mundsdóttir. fjörð. Foreldrar hennar voru Margrét Egilsdóttir og Bjarni Pétursson, kennari. Ólina stund- aði nám við Kvennaskólann i Reykjavik 1920-1922. Hún vann um tima sem kennari i Þorláks- höfn. Siðan starfaði hún hjá Hans Petersen i nokkur ár og á seinni árum starfaði hún við verslunina ístorg. Hún starfaði mikið að félagsmálum, var i Kvenfélagi Dómkirkjunnar og starfaði við öldrunarheimili Reykjavikur- borgar. Arið 1928 giftist hún Ivani Hugo Rasmusson, sænskættuðum mannfsem kom ungur til íslands. Hann var rennismiður og starfaði hjá Hamri hf. Ivani lést árið 1977. Þau eignuðust þrjú börn. Þuriður Guðmundsdóttir lést 14. aprilsl. Húnfæddist 26. desember 1893 að Núpi i Fljótshlið. Foreldrar hennar voru hjónin Þuriður Sigurðardóttir og Guð- mundur Magnússon. Arið 1922 giftist Þuriður Guðjóni Jónssyni úrsmið og fluttist til Reykjavikur. Þau eignuðust þrjár dætur. Árið 1933 giftist Þuriður eftirlifandi manni sinum, Jóni V. Guðvarðs- syni, og eignuðust þau einn son. fimdarhöld Kvennaráðstefna Verndar Mánudaginn 27. april (i kvöld) munu Félagasamtökin Vernd standa fyrir Kvennaráðstefnu að Hótel Sögu, Súlnasal. Ráðstefnan hefst kl.20,30, og er dagskrá henn- ar hjálögð. Þeir sem sérstaklega eru boðaðir á ráöstefnuna eru: Formenn allra félaga i Kvenfélagasambandi ts- lands, kvenalþingismenn, kven- borgarfulltrúar, kvenlögregla, kvenfangaverðir. Auk þess verða boðaöar fjölmargar konur, er gegna ábyrgðarstöðum hjá riki eða bæ og konur, er getið hafa sér orð á hinum ýmsu sviðum þjóð- lifsins. Forseti tslands, frú Vigdis Finn- bogadóttir verður heiðursgestur ráðstefnunnar. Tilgangur ráðstefnunnar er að upplýsa ráðstefnugesti um starf- semi Verndar, markmið og stefnu. Við erum þess fullviss, að margt sem fram kemur á ráð- stefnunni mun koma á óvart og vekja þátttakendur til ihugunar um hvort ýmislegt megi ekki bet- ur fara i samfélagi okkar. Við vekjum athygli á þvi, að vegna fjölmennis er ætlast til, að hver gestur fyrir sig greiði kaffi- veitingar. Þaö er von framkvæmdastjórnar Verndar, að þú sjáir þér fært að mæta. Ein getum við ekkert, en meö þinni samstöðu getum víð allt. Kvenfélag Hreyfils Fundur þriðjud. 28. april kl.21. Á- riðandi mál á dagskrá. Stjórnin. Kvenfélag Neskirkju Fundur verður haldinn mánud. 27. þ.m. i Safnaðarheimilinu kl.20.30. Akveða ferð, kaffisölu og sumarferð. tllkynnmgar Nemendasamband Verslunar- skóla Islands stendur að venju fyrir hófi gamalla nemenda skól- ans hinn 30. april eða á fimmtu- dagskvöldið. 30. april hefur um áratugaskeið verið hátiðlegur skóladagur Verslunarskólanema. Sá dagur var löngum skólaslitadagur hins eiginlega Verslunarskóla. Þá er sá siöur i hávegum hafður, að af- mælisárgangar safnast saman og minnast sameiginlega heils eða hálfs tugs afmælis frá þvi loka- prófi var náð og skólinn kvaddur. Hóf Verslunarskólanema verður nú sem fyrr I Súlnasal Hótel Sögu og hefst með borðhaldi kl. 19 hinn 30. april. Oftast liggur við húsfylli á þessum hátiðisdegi Verslunar- skólafólks. Þegar er ljóst, að mik- il aösókn verður aö hófinu nú. Aðgöngumiðar að hófinu eru af- hentir á skrifstofu VR að Haga- mel 4, og þar fer jafnframt fram skráning gesta eftir árgöngum þeirra. Formaður nemendasambandsins nú er Kristinn Hallsson, óperu- söngvari, og stjórnar hann hóf- orðiö En sjálfur Drottinn vor Jesús Kristur og Guö faðir vor sem elskaði oss og gaf oss i náö eilifa huggun og góða von huggi hjörtu yðar og styrki i sérhverju góðu verki og orði. 2. Þessal. 2.16-17 velmœlt Það eru aðeins tvö vopn i heimin- um — sverðið og penninn — Og að lokum ber hið siðarnefnda alltaf sigur að hólmi. Napóleon. Vísir fyrir 65 árum Hlaðafli er nú suður með sjó og gæftir hafa verið ágætar undanfarna daga. Er sagt að sumir vélbátar hafi fengið 200 króna hluti á 5 dögum. Fisksala bæjarins hefir nú nægan fisk daglega.________________ Leiðrétting I sérblaði Visis um ferðamál var sú misprentun i spjalli við íslaugu Aðalsteinsdóttur hjá Ferðamið- stöðinni, að hún var nefnd Áslaug og er beðist velvirðingar á þessu (Smáauglýsingar — sími 86611 OPIÐ: Mánudagaf til föstudaga kl Laugardaga kl. 9-14 — sunnudaga 9-22 ] udaga kK 18-22 J Hljómtæki ooo »f* OO Góð kaup. Til sölu JVC JA-S22 100 w. magnari og Pi- oneer CT-F500 kassettutæki fyrir CR02, FE-CR og STO spólur, Dolby, 2 stk. Marantz HD 55 100 w. og 2 stk. Dynaco LMS 100 w. hátalarar og plötuspilari frá Raf- rás. Verð 1.2 millj. gkr. eða afb. á 3 mánuðum. Uppl. i sima 76872. Sportmarkaöurinn GrenSásvegf 50 auglýsir: : Hjá okkur er endalaus Hljóm-' tækjasala, seljum hljómtækin •strax, séu þau á staðnum. ÁTH: mikil eftirspurn eftir flestum tegundum hljómtækja. Höfum ávallt úrval hljómtækja á# staðnum. GreiðsluskilmáTar við allra hæfi. Verið velkomin. Opið ’frá kl. 10-12 og 1-6 laugardaga Tcl. 10-12. Tekið á móti póstkröfuþönt- unum i simsvara allan sólar- hringinn. Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 simi 31290. T Hiólvagnar REIÐHJÓLAGRVALIÐ er í MARKINU Suðurlandsbraut 30 simi 35320 Barnahjól með hjálpardekkjum verð frá kr.465.- 10 gira hjól verð frá kr. 1.925.- Gamaldags fullorðinshjól verð frá kr. 1.580.- Tökum ný og notuð reiðhjól i umboðssölu, einnig kerrur barnavagna o.fl. Sala og Skipti, Auðbrekku 63, simi 45366. Heimilistæki Af sérstökum ástæðum er til sölu 7—8 ára gömul BTH þvottavél. Tilboð. Uppl. i sima 18622 eftir kl. 17. fverslun Er ferming hjá þér á næstunni? Ef svo er, þá bjóðum við þér veislukost. Einnig bjóöum við fjölbí-eyttan mat fyrir árshátiðir, 'stórafmaeli og alls konar starfs- mannakvöld. Okkur er ánægjan að veita þér allar upplýsingar i sima 4-35-96 kl. 9 til 12. f.h. Vegleg fermingargjöf. Gersemi gamla tlmans. Otskornu eikarruggustól- arnir loksins komnir. Virka sf. Hraunbæ 102b, simi 75707. Barnahúsgögn og leiktæki. Barnastólar fyrir börn á aldrin- um 1-12 ára. Barnaborð þrjár gerðir. Allar vörur seldar á framleiðslu- verði. Sendum I póstkröfu. Húsgagnavinnustofa Guðm. Ó. Eggertssonar, Heiöargerði 76, simi 35653. Bókaútgafan Rökkur, Flókagötu 15, simi 18768. tJtsalan heldur áfram. Kjarabókatilboðiö áfram I fullu gildi. Aörar bækur á hagstæðu verði. Bókaafgreiðsla kl. 4-7 alla daga uns annað verður ákveðiö. Timi 18768. Sængurverasett til fermingargjafa. Smáfólk hefur eitt mesta úrval sængurverasetta og efna, sem til er i einni verslun hérlendis. Straufri Boros sett 100% bómull, lérefts- og damask- sett. Sömu efni I metratali. Til- búin lök, lakaefni, tvibreitt laka- efni. Einnig: sængur, koddar, svefnpokar og úrval leikfanga. Póstsendum. Verslunin Smáfólk, Austurstræti 17, simi 21780. Table boy leslampinn er hagnýt og góð lausn, er með hólf fyrir penna og' smáhluti. Fimmlitir. Verð 115 kr. Sendum i póstkröfu. VARIST EFTIRLÍKINGAR. H. G. Guðjónsson, Suðurvert, sími 37637. BÚSPORT auglýsir: strigaskór nr. 28-40 frá kr. 45.- æfingaskór nr. 28-46 frá kr.110,- Búsport Arnarbakka slmi 76670 Fellagörðum slmi 73070. fVetrarvörur Vetrarvörur: Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 auglýsir: Skiðamarkaðurinn á fulla ferð. Eins og áður tökum við i umboðssölu skiði, skiðaskó, skiðagalla, skauta o.fl. Athugið höfum einnig nýjar skiðavörur i úrvali á hagstæðu verði. Opiö frá kl. 10-12 og 1-6, laugardaga kl. 10-12. Tekið á móti póstkröfupönt- unum i simsvara allan sólar- hringinn. Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 simi 31290. Tölvuúr min, M-1200 býður upp á: Klukkutima, sek. Mánuð, mánaðar- daga, vikuriagan'' Vekjara með nýjii lagi alla daga vik- unnar. Sjálfvirka daga- talsleiðréttingu um mánaðamót. Bæði 12 og 24 tima kerfiö. Hljdðmerki á klukkutima fresti með „Big Ben” tón. Dagtalsminni með afmælislagi. Dagatalsminni meö jólalagi. Niðurteljari frá 1. min. til klst. og hringir þegar hún endar á núlli. Skeiðklukka með millitima. Rafhlööu sem endist i ca. 2 ár. Árs ábyrgö og viögerðarþjónusta. Er högghelt og vantshelt. Verð 999.50 Casio-umboðið Bankastræti 8 Sími 27510

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.