Morgunblaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 21
VÍSINDAMENN segjast hafa fundið bein
tveggja nýrra risaeðlutegunda á Suð-
urskautslandinu. Önnur þeirra var frum-
stæð kjötæta sem talin er hafa dáið út
miklu seinna en risaeðlurnar sem voru
skyldastar henni. Hin var risastór grasbítur
og fannst á fjalli um 640 km frá Suð-
urpólnum.
Talið er að þegar þessar risaeðlur voru
uppi hafi loftslagið á Suðurskautslandinu
verið miklu mildara en nú og landið hafi þá
verið hluti af risastóru meginlandi sem
menn hugsa sér að hafi verið á suðurhveli
jarðar, kallað Gondwana, og síðar liðast í
sundur í smærri meginlönd vegna landreks.
Talið er að þetta stóra meginland hafi m.a.
náð yfir Afríku, Indland, Suður-Ameríku og
Ástralíu.
Áætlað er að kjötætan hafi verið um 1,8
til 2,4 metra há og 150 kg á þyngd. Líklegt
er að hún hafi dáið út fyrir um það bil 70
milljónum ára. Vísindamenn fundu beinin á
James Ross-eyju, nálægt norðvesturskaga
Suðurskautslandsins.
Ein af elstu graseðlunum
Á nánast sama tíma fann annar hópur
vísindamanna bein graseðlu nálægt Kirk-
patrick-fjalli á Beardmore-jökli. Talið er að
hún hafi verið um það bil níu metra löng og
lifað fyrir um 190 milljónum ára.
Bandaríski steingervingafræðingurinn
James Martin, einn vísindamannanna sem
fundu kjötætuna, sagði að þeir hefðu ekki
verið að leita að risaeðlubeinum, heldur vís-
bendingum sem gætu rennt stoðum undir
þá kenningu að pokadýrin í Ástralíu væru
komin af dýrum sem hefðu flutt sig frá
Norður-Ameríku til Suður-Ameríku, Suð-
urskautslandsins og að lokum til Ástralíu
fyrir 65 milljónum ára. „Þess í stað fundum
við risaeðlubein.“
Vísindamennirnir hafa ekki enn gefið
risaeðlunum tveimur nafn. Þeir segja að
kjötætan hafi verið mun frumstæðari en rá-
neðlurnar sem voru uppi á sama tíma, til að
mynda grameðlan (Tyrannosaurus rex).
Bandaríski steingervingafræðingurinn
William Hammer, einn vísindamannanna
sem fundu graseðluna, sagði að hún væri að
öllum líkindum stærsti grasbíturinn sem
fundist hefði á Suðurskautslandinu og ein af
elstu graseðlunum sem fundist hefðu í
heiminum.
Fundu nýjar risaeðlutegundir
The Washington Post.
Kjötæta og grasbítur
sem lifðu á Suður-
skautslandinu
TV2, önnur af stöðvum danska ríkissjónvarps-
ins, telur að meira en nóg framboð sé þegar af
sjónvarpsefni fyrir unga og fallega fólkið og
ætlar því að stofna nýja rás sem helgi sig fólki
yfir fimmtugu.
Rásin verður kölluð TV2 Charlie og hefur
útsendingar síðar á árinu.
Hægt verður að fá rásina á kapli og með
stafrænum hætti. Að sögn yfirmanns TV2,
Frode Munksgaard, mun nýja rásin framleiða
sjálf á milli 20 og 30% af efninu sem notað verð-
ur.
Í Danmörku búa 5,4 milljónir manna og þar
sjónvarpar ríkisútvarpið eða -sjónvarpið á fjór-
um rásum. Þar fyrir utan er um að ræða eina
sérstaka rás fyrir umræður á þingi, fjórar
óháðar sjónvarpsstöðvar og um 20 stöðvar,
sem aðeins ná til einstakra héraða eða svæða.
Sjónvarp fyrir
miðaldra fólk
Kaupmannahöfn. AFP.