Tíminn - 04.11.1969, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. nóvember 1969.
TÍMINN
9
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURIKN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ristjórnar: Tómas Karlsson Auglýs
ingastjóri: SteingrímuT Gíslason Ritstjórnarskrifstofur i Eddu
húsinu, símar 18300—18306 Skrifstofur Bankastræti 7 —
. AfareiðstaGÍmi: 12323. Auglýsingasími: 19523 Aðrar skrifstofur
j( sími 18300. Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði. mnantands —
I f lausasðlu kr. 10.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f.
Hve mikil er
kjaraskerðingin ?
Fyrir skömmu er komið út 14. fréttabréf kjara-
rannsóknarnefndar, en hún er samstarfsnefnd samtaka
launþega og atvinnurekenda. Hlutverk nefndarinnar er
að fylgjast með þróun kjaramála
í umræddu fréttabréfi er að íinna merkilegt yfirlit
um kaupmátt launa á síðastl. ári. Samkvæmt þessu
yfirliti hækkaði tímakaup verkamanna samkv. töxtum
um 7,3% á árinu, en útborgað tímakaup hækkaði þó ekki
nema um 6%. Þessi kauphækkun nægð’i þr hvergi nærri
til að mæta hinni stórauknu dýrtíð af völdum gengis-
fellingarnnar haustið 1967. Samkvæmt niðurstöðum
nefqdarinnar lækkaði kaupmáttur fyrir greitt tímakaup
í dagvinnu um 8,7%.
Margt bendir til, að kaupmáttur timakaupsins hafi
rýrnað enn meira á þessu ári en 1968. Samkvæmt áætlun
Efnahagsstofnunarinnar, sem greint er frá í greinargerð
fjárlagafrumvarpsins, mun kaupgjald á þessu ári hækka
til jafnaðar um 10,8% í krónutölu. í bráðabirgðaáætlun,
sem Tíminn hefur fengið frá Hagstofunni mun fram-
leiðslukostnaður á þessu ári verða til iafnaðar 21—24%
hærri en hann varð á árinu 1968 Samkvæmt því hefði
kaupgjald þurft að hækka um 21—24% á árinu til að
vega á móti dýrtíðaraukningunni, en það mun aðeins
hækka um 10,8% samkv. framansögðu.
Launþegar hafa þannig orðið fyrir kjaraskerðingu á
þessum tveimur árum, sem eru vafalít.ið milli 20—30%,
þegar öll kuri koma til grafar Staðfestir þetta fullkom
lega það, sem hefur verið haldið fram hér i blaðinu, að
kaupsamningarnir 1968 og 1969 ^ru þeir óhagstæðustu.
sem verkalýðshreyfingin hefur gert um tangt skeið
Það kemur því engum á óvart, þótt Verkamanna-
samband íslands marki þá stefnu. að hefja baráttu fyrir
verulegum kjarabótum á komandi ári Það þarf ekki
heldur að undra neinn, þótt sjómenn teiji sig tilneydda
að fá kjarabætur nú um áramótin.
Það styrkir stórlega þessa fynrhuguðu sókn verka-
manna og sjómanna, að kaupgjald er hér miiklu lægra
en í nágrannalöndunum og því á útflutningsframleiðslan
vel að þola sæmilega kauphækkun, ef aðrir rekstrar-
liðir hennar eru í lagi.
Sjómenn og stjórnin
A ráðstefnu, sem Sjómannasamband íslands hélt í
seinasta mánuði, var samþykkt að skora á sjómanna-
félögin að segja upp gildandi bátakjarasamningum, mið-
að við það, að þeir verði úr gildi um næstu áramót.
Jafnframt skoraði ráðstefnan á Alþingi að endur-
skoða lög þau, sem sett voru á seinasta þingi og mjög
skertu kjör sjómanna frá því, sem áður var Ráðstefnan
lýsti yfir þvi, að ..viðbrögð og afstaða sjómannafélag-
anna um áramótin muni mjög mikið mótast af því,
hvernig Alþingi tekur áskorun þessari “
Síðan sjómannaráðstefnan var haldin, eru liðnar rúm-
ar þrjár vikur. Enn hafa þó ekki sézt nein viðbrögð
af hálfu ríkisstjórnarinnar við þessari alyktun sjómanna-
ráðstefnunnar. Haldi slíku sinnuieysi ríkisstjórnarinnar
áfram munu sjómenn telja sig neydda til að segja
upp samningum og getur þá hægiegs komið til stöðv-
unar fiskiflotans eftir áramótin Ríkisstjórnin á hér
völina. Þ.Þ.
EINAR ÁGÚSTSSON, ALÞM.
Rannsóknarstofnun
í skólamálum
Eins og fram hísfnr komið,
bæði hér í blaðinu og annars
staðar höfum við þrír þing-
menn Framsóknarflokksins í
•ífri deild, flutt frumvarp til
laga um ramisóknar- og ráð-
gjafarstofnun í skólum. Efni
þess er í stuttu máli það, að
komið verði á fót stofnun með
tvíþættu verkefni. Annars veg-
ar skal stofnunin hafa með
höndum yfirstjóni sálfræði-
þ.iónustu í skólum, hins vegar
framkvæma skólarannsóknir.
Jafnframt skulu fara fram at-
hugamr á því hvernig náms-
aðstaða í Landinu verði jöfnuð
og tillögur gerðar til úrbóta.
RÁÐGJÖh OG RANNSÓKN
Þegar mál þetta var rætt á
Oingi í fyrri ’iku. tók mennta-
málaráðlierra frumvarpinu
heldui vel, en hafði þó sitt-
hvað við það að athuga. Það
eru einkum tvö atriði í mál-
Tutningi ,-áðherrans, sem mig
langar tií að gera hér að um-
talsefrJ í örstuttu máli, til þess
að þeir mörgu, sem láta sig
þessi mál varða eigi þess kost
að fylgjast með því, sem í
beim gerist á Alþingi.
Fyrra atriðið er varðandi
fyrirkomuiag þessa starfs, sál-
fræðiþjónustunnar og skóla-
rannsóknanna. Ráðherrann
taldi að þeim bæri að haga á
svipaðan hátt og hér hefur
verið gert til þessa, þ.e. að
sveitarfélögin sjái ein um sál-
fræðiþjónustuna. ríkið sjái eitt
um skólarannsóknirnar. Ég
leyfði mér að benda á, og vil
árétta það hér, að í fyrsta lagi
þyrfti að auka og efla báða
þessa þætti skólastarfsins,
koma þeim á lagagrundvöll og
tryggja þeim sess í skólakerf-
inu, þannig að þegar af þessari
ástæðu gætu málin ekki verið
óbreytt. f öðru lagi sýndi ég
fram á það, hversu ákaflega
ófullkomin sálfræðiþjónustan
er við gildandi fyrirkomulag.
Sú starfsemi, sem haldið hef-
ur verið uppi, hefur til skamms
tíma aðeins verið hér í Reykja-
vík. Um þessa þjónustu segir
forstöðumaður deUdarinnar í
Uorgunblaðinu þann 3. október
5.1.: ,Ég held að mikilvægasta
staðreyndin um sálfræðideUd
skóla sem deild i Fræðsluskrif
stofu Reykjavíkur, sé einfald-
lega sú, að hún er þó ennþá
til. Hún hefur þrátt fyrir allt
skki vfrið lögð niður. Starfs-
fólkið hefur flest þraukað hið
sama s.l. 6—8 ár. Stjórnarmenn
borgarinnar hafa lagt fé til
starfsins og stutt það myndar-
iega á ýmsa lund, sem ber að
bakka og viðurkenna. Mörgu
hefur þó verið stórlega áfátt
um starfsgrimdvöll af hálfu
borgaryfirvalda í Reykjavík.
Það er örugg sannfæring mín,
að nú nálgist tímamót. SÚ
TEGUNP STARFSEMI, SEM
ÉG OG MITT NÁNASTA SAM
STARFSFÓLK HEFUR
REYNT AÐ BYGGJA UPP.
MUN RENNA ÚT í SAND
INN OG TÝNAST, ef ekki
verður hafizt handa um að
styrkja og efla starfið á marga
/egu án tafar.“
Þegar haft er í huga, að
rlTÍr utan þá starfsemi, sem
hér hefur verið lýst með orð-
um forstöðumannsins sjálfs, er
Einar Ágústsson
ekki um neina sálfræðiþjón-
ustu í skólum landsins að
ræða, ef undan et skilinn einn
maður er hóf starf í haust á
vegum Sainbands sveitarfélag-
anna á Reykjanesi, verður að
mínum dómi alveg ljóst að það
fyrirkomu.ag, sem gilt hefur
og menntamá'aráðherra virðist
vilja hafa áfram, fær ekki
staðizt
Verði sveitarfélögunum á-
fram falið þetta verkefni án
þess að ríkissjóður taki með
einhverju móti þátt í því, þá
verður engin sálfræðiþjónusta
í fjölmörgum skólum í land-
tnu, frekar en nú er, einfald-
lega vegna þess, að fræðslu-
héruðin hafa ekki bolmagn til
að standa undir henni.
Vitanlega mr koma stuðn
mgi ríkisvaldsins fyrir með
öðrum hætt: en þeim, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir, t.
d. með þvi að taka starfsemina
inn í skólakostnaðarlögin, en að
mínuro dómi hníga fleiri rök
að þv: að felr verkefnið sér-
stakri stofnun. Það skal ekki
írekar rætt hér að sinni en
vísað til framlagðrar greinar-
srerðar
JÖFNUN NÁMS
KOSTNAPAR
Hitt atriðið. sem ég vil minn
ast á hér. er jöfnun námsað-
stöðunnar Eins og kunnugt er,
var t fyrra samþykkt þings-
ályktunartillaga, sem legið hef
ur fyrir mörgum undanförnum
þingum, þess efnis, að fram
skyldi fara athugun á því. hvað
kosta mundi að greiða þeim
nemer.dum, sem sækja verða
skóla fjarri heimilum sínum,
styrk er nægja mundi til að
gera aðstöðu þeirra til mennt-
unar svipaða hinna, sem nær
skólunum búa. Þessi könnun
hlýtur að vera forsenda þeirra
tillagna til úrbóta. sem allir
virðast sammála um að koma
burfi.
f haust var ég ásamt fleiri
þingmönnum úr Framsóknar-
flckknum að hugleiða með
hvaða móti yrði hcppilegast
að koma þessum stuðningi við.
Leituðum við þá upplýsinga yf-
irvalda um þá könnun, sem
áðurncfnd þingsályktun ákvað
að fram skylda fara. Það er
skemmst frá að segja, að um
þetta gátum við engar upplýs-
ingar fengið, ekki einu sinni
um tölu þeirra nemenda, sem
sækja skóla fjarri heimilum,
hvað þá þann kostnað sem
þeir hafa af námi sínu um-
fram þá, sem hafa aðstöðu til
að búa heima hjá sér.
Af þessum svörum dró ég
þá ályktun, að umrædd könn-
un hefði enn ekki farið fram
og átaldi það í fyrrgreindum
umræðum. Hér taldi mennta-
málaráðherra, að mikils mis-
skilnings gætti hjá mér. „Rann
sóknin hefur farið fram og
verið er að Ieggja síðustu hönd
á mjög ítarlega skýrslugerð
einmitt um þetta efni, skýrslu
sem sýnir mjög merkilega nið
urstöðu og ég vona, að ekki
þurfi að líða nema fáeinir
dagar. þangað til ég mun við
eitthvert tækifæri kynna hinu
háa Alþingi niðurstöðu þessar-
ar ítarlegu skýrslu“, sagði ráð-
herrann umræðunum þann
V>. október s.l.
Að sjálfsögðu er allt gott
um það að segja, að ákvarðan
ir Alþingis skuli framkvæmd
ar, en óneitaníega finnst mér
skjóta skökku við. þegar þing-
mönnum er neitað um upplýs-
ingar sem opinberar stofnanir
dafa aflað samkvæmt fyrirmæl
um bíngsins. Bei að vænta
bess að hin „ítarlega skýrsla"
verði sem allra fyrst gerð opin
ber, svo að menn geti nú loks-
Ins, eftir margra ára baráttu,
fengið upplýsingar um jafn
sjálfsagðan hlut eins og þann,
hversu margir nemendur sæki
skóla fjarri heimilum sínum.
Er það vissulega ekki vonum
fyrr.
Menn hafa nú að undanförnu
í vaxandi mæli verið að átta sig
á því ,að menntamál okkar fs-
lendinga eru ekki svo vel á vegi
stödd, sem vera þyrfti. Þessi
staðreynd er þeim mun alvar-
legri, þegar þess er gætt, að
alls staðar er það menntunin,
sem vonir manna um áfram-
haldandi velmegun þjóðanna,
byggist á.
Því er það höfuðnauðsyn fyrir
okkur íslendinga að bæta mennt
unina, gera hana hagnýtari,
samræma hana þeim tímum,
sem við lifum á, skapa rann-
sóknum og vísindum þau skil-
yrði sem við getum bezt, endur
skipuleggja kennslu og kennslu-
aðferðir og jafna eftir föngurn
aðstöðu manna til námsins.
Þýðingarlaust er að deila um
orðna hluti eins og hverjum
sé að kenna það ástand sem í
þessum málum Hefur skapazt.
Við verðum að horfa fram,
sameinast um það átak, sem
þarf til að rífa okkur upp úr
öldudalnum.
Ég vænti þess að þeim til-
raunum, sem bæði ég og aðrir
b'r.gmenn erum að gera, þótt
af veikum mætti kunni að vera,
til þess að leggja á ráð.in um
endurbætur, verði mætt af
skilningi þeirra sem um skeið
hafa farið með forustuna.
Svo bezt má árangurs vænta,
að allir sem áhuga hafa, leggist
á eitt.
ÞRIÐJUDAGSGREININ
\