Vísir - 01.08.1981, Qupperneq 12
12
VÍSIR
Laugardagur 1. ágúst 1981
þeirra hafi komiö Bowie meira aö
gagni en Iggy, þvi Bowie mun
hafa notfært sér ýmsar af hug-
myndum Iggy í tónlist sinni. Létt-
geggjaöar hugmyndir Iggy uröu
aö snilldarverkum i höndum
Bowie þegar hann var búinn aö
sniöa af þeim vankantana. En
þessi snilidarverk notaöi Bowie
sjálfum sér til framdráttar. Um
Siouxsie And
The Banshees—
JuJu POLYDOR
POIS 1034
SioUxsie Sioux söngkona og
Banshees eru i hópi bestu ný-
bylgju sveita Breta. Ekki eru
allir á eitt sáttir um ágæti
hljómsveitarinnar eins og
vonlegt er. Að minu mati er
þetta athyglisverö hljómsveit,
sem sent hefur frá sér góöar
plötur. „JuJu” er fjóröa plata
Siouxsie og liklega sú aðgeng'i-
legasta. Tónlistin er samt
fremur þung ef miöaö er viö
smekk hins almenna popp-
hlustanda. Takturinn er þung-
ur, samspil bassa og tromma
þéttur og gitarhljómurinn ert-
andi, nánast þrúgandi á köfl-
um. Tónlist S.A.T.B. er alis
ekki aö allra smekk þó vissu-
lega sé hún góð. Söngur
Siouxsie er heillandi i minum
eyrum og effektarnir sem
John McGeoch laðar fram
meö gitarleik sinum, eru þaö
einnig. Þaö kæmi mér samt
ekkert á óvart þó einhverjum
þætti tónlistin erfiö áheyrnar.
„JuJu” er plata fyrir pælara
og góð sem slik.
tima hvarf Iggy úr tónlistarheim-
inum. Hann dópaöi sig ákaft,
fjárhagslega stóö hann á núlli og
andlega var hann öfugu megin viö
„norm” þjóöfélagsins. Iggy Pop
var þvi talinn geöveikur og settur
inná hæli.
Ariö 1976 var pönkiö byrjaö aö
gerja einu sinni enn neöanjarðar i
New York og London. Iggy kom
útúr skugganum og með aöstoö
David Bowie geröi hann plötu á
nýjan leik.
Hrækt á móti vindi
Nú seinni ár hafa komið plötur
frá Iggy nokkuö reglulega og sá
„geggjaöi” virðist nokkuö vera
farinn að spekjast. Hann er ekki
haldinn eins sterkri sjálfs-
eyöingarhvöt og áður. Plöturnar
hafa farið batnandi meö árunum
og New Values sem út kom 1979
finnst mér býsna góð plata. Iggy
er samt enn sami furöufuglinn og
illa gengur honum að halda á
mannskap. Tiðar mannabreyt-
ingar hafa veriö i hljómsveitum
hans og i fyrra varö hann að
hætta viö hljómleikaferð i miðju
kafi i Þýskalandi. Astæöan var sú
aö meðlimirnir sögöu upp allir
sem einn.
Iggy lætur þetta ekkert stööva
sig. Nú er hann einu sinni enn
búinn að senda frá sér plötu og aö
þessu sinni heitir hún „Party”.
Þau eru óyggjandi áhrifin sem
Iggy Pop hefur haft á pönk kyn-
slóöina og kannski á hann aldrei
eftir að veröa annaö en goðsögn
meöal innsta kjarna rokkunn-
enda. Frægðin, vinsældirnar og
gróöamöguleikar Iggy viröast
ekkert ætla aö aukast meö nýju
plötunni. En liklega gefur Iggy
bara skit i þetta allt saman og
hrækir uppi vindinn. Hann hefur
hvort eð er alltaf haft kröftugan
mótbyr beint i fangiö. —jg
Þegar blaðamenn keppt-
ust við að taka viðtöl við
Bubba Morthens er hann
spratt skyndilega fram á
poppsviðið í fyrra# minnt-
ist Bubbi oft á Iggy Pop.
Það voru meðal annars
þau áhrif sem Iggy Pop
hafði á Bubba sem voru
hvatinn að því að Bubbi
ákvað að gerast rokkari og
leggja trúbadúrinn á hill-
una. Bubbi er ekki fyrsti
maðurinn sem verður fyrir
sterkum áhrifum frá
f urðuf uglinum Iggy Pop
og ekki sá síðasti heldur.
Listinn er nánast óendan-
legur.
Brjálæðingur
Hver er svo þessi persóna sem
kallar sig Igga Pop? Ef þú veist
svariö, þarftu liklega ekki aö lesa
neitt lengra. Þú átt væntanlega
allar bestu plöturnar hans og
kannski þær slæmu lika og býrö
yfir meiri vitneskju um hann en
kemst fyrir i svo stuttri grein. Ef
þú veist litiö eöa ekkert um Iggy
Pop, þá eru hér fátæklegir punkt-
ar um skolla. Hann fæddist fyrir
34 árum i Michigan i Bandarikj-
unum, sonur tveggja kennara.
Nafniö sem hann hlaut var James
Jewel Osterberg. Hann hóf feril
sinn 19 ára aö aldri I Detroit, þ.e.
sinn alvöruferil. Aöur haföi hann
veriö i hljómsveitinni Iguana og
þaöan kom nafniö Iggy Oster-
berg. Ariö 1967 stofnaöi hann The
Psychedelic Stooges ásamt fé-
lögum sinum og geröi samning
viö Elektra útgáfuna, þá sömu og
haföi Doors, Tim Buckley og Love
á samningi. Iggy og Stooges uröu
þvi strax goösagnir i upphafi
ferils sins. Og goösögnin lifir enn.
Iggy breytti eftirnafni sinu bráð-
lega i Pop, eflaust til aö hæða þaö
tákn. Tónlist Stooges var hrá,
þriggja hljóma, hávær og rudda-
fengin. Iggy var engu likur. Þessi
hraustlegi „brjálæöingur” skók
sér á sviöinu hálfnakinn. Æddi
um allt, baröi sig i hausinn, braut
flöskur og skar sjálfan sig, hrækti
á áhorfendur og kastaði sér úti
salinn. Hann geröi bókstaflega
allt til aö skaöa sjálfan sig og
skelfa áhorfendur. Þetta tókst.
Maðurinn virtist haldinn óstööv-
andi hvöt til aö tortima sjálfum
sér.
Guðfaðir pönksins
Iggy Pop og Stooges héngu
saman i nokkur ár og nokkrar
mannabreytingar áttu sér staö i
hljómsveitinni. Þeir unnu m.a. aö
plötugerö með John Cale fyrrum
Velvet Underground félaga. Iggy
hélt til London 1972 og þar vann
hann með David Bowie að plötu-
gerö. Taliö er aö þessi kynni
Third World —
East Side/West Side
CBS 85027
Third World flytja nokkuö
léttari reggae tónlist en flestar
slikar hljómsveitir. Þaö gætir
meiri blús og soul áhrifa i
nokkrum laganna, en maður á
að venjast. Textarnir eru
sungnir á enskri tungu sem viö
skiljum betur en Jamaiska
„slangiö” sem Marley söng
gjarnan á. Textarnir eru um
Jah, Rastafari og allt þaö.
Ekki eru þó öll lögin eins vest-
urheimsk blönduð. Hinn hreini
reggae rytmi er undirstaöan i
u.þ.b. helmingi laganna.
Bretar kunna mjög vel aö
meta Third World þvi lögin
Rock The World og Dancing of
the Floor hafa notiö vinsælda
þar i landi siöustu vikurnar.
Mér leiöast soul lögin hjá
Third World og gildir þar
sama lögmál og meö plötu
Peter Tosh, aö þessir kappar
eru einfaldlega miklu betri
þegar þeir fást viö ekta
Jamaika reggae tónlist.
Meirihluti plötunnar er sem
betur fer I þeim dúr og flest
lögin vel saman sett og grip-
andi. Þetta er þvi mun betri
plata en sú sem Tosh sendi frá
sér fyrir skömmu.
7.0 8.0
Jónatan Garöarsson skrifar: