Tíminn - 24.12.1969, Síða 3
MH> V lKUDAGUXí 24. desetober 1969.
TIMINN
FA 0 HELGAR SIG F/SK-
VEIDUM NÆSTU 2 ÁR
EJ-Reykj avík, föstudag.
Á þingi FAO — Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuöu
þjóðanna — í Róm á dögunum
var mikið rætt um fiskveiðimál
og samþykkt, að FAO skyldi
leggja mikla áherzlu á þau mál
næsta starfstímabil, sem er tvö
ár. Fulltrúar á þilnginu voru
sammála um, að fiskveiðar í sjó
og vötnum hefðu miklu hlutverki'
að gegna í tilraunum manna til
að veita jarðarbúum nægt eggja-
hvítuefni, auk þess sem auknar
fiskveiðar myndu nýta betur
vjnnuafl, og auka gjaldeyristekj-
ur vanþróaðra ríkja. En grund-
vailarskilyrði væri að þjóðir
heimsins tækju höndum saman til
að tryggja skynsamlega nýtingu
þeirra auSlindar, sem fiskurinn er,
svo að allir hafi hag af.
Á þinginu var talið nauðsynlegt
að FAO yki þátttöku sína í al-
þjóðlegum hafrannsóknum, og
einnig í baráttunni gegn megnun
sjávar. Mun FAO ka!lla saman á
næsta ári sérstaka aiþjóðlega
ráðstefnu til að fjalla um áhrif
mengunar sjávar á fisikveiðar.
Leiðrétting
LEIÐRÉTTING
Vegna fréttar um árekstur, i
blaðinu í gær, vill rannsóknarlög-
reglan taka það fram, að ekki var
réttt, að srjö manns hefðu slasazlt.
Aðeins ein stúlka fótbrotnaði, en
þótt allt fóikið hafi verið fiutt á
slysavarðstofuna, var ekki um að
ræða, að það væri slasað.
Vegna fréttar í blaðinu í gær
skal það tekiið fram, að Skótízk
an er ekki á Laugavegi, heldur fá
ein skref þaðan, að Snorrabraut
38, gegnt Ajustianbærjanbíúi.
4uglýsið í límanum
Bandaríkjamenn eru stórtækir í fiestu, eins þegar þeir þurfa að ríta
niíSur stórhýsi eins og Hótel Ptexa í Kansasborg. Þá var sprengiefni komið
fyrir vlð grunn hússins og það sprengt nlður í he'rfu lagi, eins og mynd-
irnar hér að ofan sýna. (UPI)
Þingið taldi, að vandamál fisk-
veiðanna væru í rauninni fjór-
þætt. í fyrsta lagi væri nauðsyn-
legt að meta hversu stórir væru
þeir fiskstofnar, sem tit eru í
heiminuim og nýtaniegir eru. Því
næst þyrfti að auka veiðar þeirra
fiskstofna, sem í dag væru lítt
nýttir, en einnig að vinna að skyn-
samlegri stjórnun veiða á þeim
fisktegundum, sem þegar eru
mjög mikið veiddar og koma þann
ig í veg fyrir ofveiði. í fjórða lagi
þyrfti síðan að nýta litlar fiskteg
undir og önnur sjávardýr sem
hægt væri að nýta, þótt svo sé
ekki gert í dag.
Var rnikil áherzla lögð á, að
eftirdit með fiskveiiðum yrði að
grundvallast á mati sérfræðinga á
fiskstofnunum.
í haust fór fram endurvígsluathöfn í Stóra-Áskirkju eftir breytignu og
flutninga. Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði við athöfnina, sem var
fjölmenn af sóknarfótki, og séra Einar Guðnason sóknarprestur þjónaði
einnig við athöfnina. — Myndin tekin af kirkjunni að lokinni messu, og
standa biskupinn og sóknarprestur á kirkjutröppum.
VIÐGERÐ OG FLUTNINGUR STÓRA-ÁSKIRKJU
Tíminn hefur ver.ið beðinn fyr-
ir eftirfarandi orðsendingu frá
sóknarnefnd Stóra-Ássóknar í
Borgarfirði:
„Að undanfömu hefur verið
uoui að viðgerð á kirkjunni í
Stóra-Ási í Rorgarfirði, og einn-
ig hefur kirkjan verið færð til
samræmis við færslu á bæjarhús-
um í Stóra-Ási. Gagngerðri við-
Jólafagnaður
Verndar
Hinn árlegi jólafagnður félags
ins Verndar verður í Hafnarbúð
um í Reykjavíik á aðfangadag. Að
venju verður framreiddur háttða-
matur og gefnir jólabögglar. Á
jóla-fiajgnaðinn eru aillir velkomn
ir, sem ekki h*fa tækifæri til að
dveljiast meðsl vina eða vanda-
manan á aðfangadagskvöld. Húsið
verður opnað kl. 3 síðd.
Hugmyndaflugið
í essinu sínu
Tove Jansson:
Vetrarundur í Múmídal
Bókaútgáfan Öm og Örlygur.
Þetta er önnur bók Tove Jans-
s in um Múmínálfana, en þessi ævin
sýri, rík af veruleika lífsins, eru
einhverjar heztu barnabækur, sem
út koma á Norðurlöndum þessi
árin. Þar er hugmyndaflugið efst
á blaði. Verurnar eru ekki úr því
dýrariki, sem við þekkjum af eig-
Ln sjón, en samt eru þær gæddar
eigindum hins raunverulega lífs
í ríkum mæli. Höfundurinn not-
ar þannig hina ævagömlu aðferð,
sem við þekkjum svo vel úr þjóð
sögum, að láta ævintýrið bregða
mælikvarða á lífsgildi og kenna
börnum á því máli, sem ungt
ímyndunarafl skilur og hlustar á,
skil góðs og ills.
Þessar sögur eru fullar af fjöri
og spennu, og höfundur er einnig
hinn snjallasti teiknari. Þýðing
Steinunnar Briem er mjög lipur
og lifandi, og hún íslenzkar hin
fjarstæðukenndu ævintýramöfn
með þeim hætti, að þau verða
fijótt kunnugleg, þótt ekki minni
á önnur íslenzk heiti. Frágangur
og útgáfa bókarinnar er með mikl
um ágætum. — AK.
gerð er nú lokið og hefur kirkj
an verið máluð hátt og lágt, leitt
í hana rafmagn og upphitun sett
í hana.
Margar og rausnarlegar gjafir
hafa kirkjunni verið færðar að
undanfömu svo sem peningagjaf
ir, munir og vinnugjafir. Gefend
um öllum, svo og þeim, sem að
verkinu unnu, færum við alúðar-
þakkir.
Svíþjóðarstyrkur
fslenzkum bókmennta- eða lista
gagnrýnanda stendur til boða
styrkur til mánaðardvalar í Svíþj.
á árinia 1970. Styrkurinn er sænsk
ar krónur 6000.00 og á að nægja
fyrir ferðafcostnaði og diyailarkostn
aði í Sviþjóð þennan tima. Um-
sóknir um styrkinn þurfa að ber-
azit Norræna félaginu, Norrœna
hiúsinu fyrir 31. des. n.k. ásamit
greiniangerð um það, hvernig styrk
þegi æskir að eyða þessum tiíma
í Svíþjóð.
Nýlega hafa orðið fraimkvæmda
stjtóraskipti hjá Norræna félaiginu.
Einar Pálsson hefur látið af því
starfi vegna langdvala erlendis en
við hefur tekið Jónas Eystieinsson
kennari við Verzlunarskóla ís-
lands.
Norræna félagið gengst fyrir
norrænum jtólurn í Norræna hús-
inu sunnudagsfcvöldið 4. janúar
1970. Auglýsing þar að lúitandi
verður birt i blöðuim siðar. Skrif
stofa Norræna félagsins er opin
kl. 17.00—19.00, og gefur hún all-
ar upplýsin-gar varðandi starfsemi
ftólagsins.
Sérstaldeg'a viljum við þakllca
bömum séra Einans Pálssonar fyir
verandi prests í Reybholti, sem
færðu kirkjuiini að gjöf forkuim
arfaigran sMrnarfouit til mimning-
ar um foreldra sín-a, séra Einar
Pálsson og frú Jóhönnu Eggerts-
dtóttur Briem. Einnig færðu þessi
sömu systkini kirikjunni rausnar
1-ega peningagjöf.
Glöðileg jól.
Sófcnaroefnd SBtióra-Ássóknar."
LfFEYRISGREIÐSLUR
Fraimhald af bls. 1.
ur um það, af hvaða launum
iðgjaldið skuli greiðast:
1. Iðgjald skal greitt af öll-
um tekjum starfsmanna á mán
uði hverjum þar til samanlagt
iðgjald hefur náð þeirri upp-
hæð, sem svarar til iðgjalds
fyrir 191 klst., miðað við 44
klst. vinnuviku, eða þann dag-
vinnufjölda annan, sem við á
í hlutaðeigandi starfsgrein, mið
að við útborgað tímakaup við-
komandi starfsmanns í dag-
vinnu. Þó skal draga frá þess-
ari tölu þá tíma, sem starfs-
maður er frá vinnu án kaup-
greiðslu, nema það stafi af verk
efnaskorti. Um reglubundna
vinnu hluta úr degi gildir sama
regla hlutfallslega.
2. í fastri atvinnu, þar sem
dagvinnukaup mótar ekki ein-
vörðungu fastar tekjur, skal
greiða iðgjald samkvæmt tölu-
lið 1. Heimilt er að greiða allt
að 10% til viðbótar.
3. Sé unnið á föstu mánað-
arkaupi í vaktavinnu, skal
greiða iðgjald af vaktakaupinu.
Mímir, blað norrænustúdenta
Hagieg bfaöaviðtö!
FB—Reykjavík, föstúdag.
Blaðinu hefur borizt eintak af
Mími, blaði stúdenta í íslenzkum
fræðum, 1. tbl. 8. árgangs. í blað-
inu birtist meðal annars efnis kafli
úr ritgerð Guðrúnar Karlsdóttur
um athuganir á bveðskap Gests
(Guðmundar Björnssonar). Þá er
grein eftir Helga Þorláksson um
íslenzkar þýðingar á Ossianskvæð-
um, og tvær styttri greinar eftir
Gunnar Karlsson og Einar G. Pét-
ursson um Stein c*'=“inarr og þjóð-
ina og Múrhúsið. Erlingur Sigurðs
son skrifar leikhúsþátt um Sælu-
ríkið eftir Guðmund Steinsson og
Erlingur skrifar einnig um Bækur.
Kristján Árnason skrifar starfs-
annál Mímis. Lydia Lass skrifar
Ljóðrýni — og fjallar um Gamian
þul eftir Hannes Pétursson.
í ritnefnd Mímis eru Erlingur
Sigurðsson, Gunnlaugur Ingólfsson
og Hélgi Skúli Kjartansson. Prent-
smiðja Jtóns Helgasonar hefur unin
ið blaðiið.