Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.2001, Side 8
Arkitektinn Frank O. Gehry.
borgarinnar liggur umsókn um byggingu nýs
Guggenheim-safns, sem hannað er af Gehry,
austan við Wall Street hverfið á Manhattan.
Safnið mun standa á 55.000 fermetra lóð sem
framlengd verður með landfyllingu út í aust-
urána en sjálf byggingin verður um 22.000
fermetrar. Stórframkvæmdir sem þessar
munu breyta verulega ásýnd Manhattan-eyju
og hrista upp í einhæfu skýjaklúfalandslaginu
eins og ólátabelgnum er einum lagið.
Sýningin í Guggenheim rekur feril Gehrys
frá því að hann stofnaði arkitektastofu í Los
Angeles árið 1963.
Hann er fæddur í Toronto í Kanada en
fluttist með fjölskyldu sinni 17 ára gamall á
V
ERKIN hafa yfirbragð óreið-
unnar; eru ögrandi jafnt í
efnisnotkun og litasamspili
sem formrænni umgjörð, og
mótsagnakennd og síbreyti-
leg sem iðandi öldugjálfur.
Þessi einkenni hafa reynst
ómótstæðileg athyglisþurfi
listastofnunum og segja má að Gehry hafi ver-
ið skipaður hirðskáld Guggenheim- safnkeðj-
unnar eftir þá miklu velgengni og eftirtekt
sem hönnun hans á safninu í Bilbao hlaut.
Flest bendir til þess að New York-borg geti
státað sig af ámóta mikilfenglegri byggingu
innan nokkurra ára því fyrir umhverfismati
ARKITEKT SEM ÞEK
Byggingarlist er ríkjandi í sýningarhaldi safna
New York-borgar í sumar. Til viðbótar við sýningar
MoMA og Whitney-safnsins á verkum Mies van der
Rohe gengst Guggenheim-safnið fyrir yfirlitssýningu
á hönnun arkitektsins Franks O. Gehrys. HULDA
STEFÁNSDÓTTIR segir að það dyljist engum sem
hana skoðar hvers vegna arkitektinn hefur fengið
á sig orð ólátabelgs.
Módel af Walt Disney-tónlistarhúsinu í Los
Ljómsynd/Joshua White, Frank O. Gehry & Associates
Módel af byggingu DG-bankans í Berlín, frá 1995–2001. Fundarsalur í miðrými hússins hefur tekið
á sig mynd hrosshauss.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. ÁGÚST 2001