Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.2002, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.2002, Page 1
Skeggræður gegnum tíðina H a l l d ó r L a x n e s s o g M a t t h í a s J o h a n n e s s e n Morgunblaðið hefur óskað eftir því að fá að birta Skeggræður gegnum tíðina í heild í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá fæðingu nóbelskáldsins og fylgdi ég þeim úr hlaði með nokkrum orðum. Það er skemmzt frá því að segja að samstarf okkar Halldórs hófst upp úr miðri síðustu öld, en þá leitaði ég til hans ungur blaðamaður við Morgunblaðið. Áttum við síðan mörg samtöl sem birtust í blaðinu af ýmsum tilefnum og eru þau eins konar grunnur að Skegg- ræðunum. Forleggjari okkar, Ragnar í Smára, var frumkvöðull að þessari útgáfu, en efni hennar var einnig sótt á önnur mið. Bókin kom út 1972, í tilefni af sjötugsafmæli Halldórs. Hún er ekki sízt til marks um samfylgd blaðs og nóbelskálds. Í framhaldi af Skeggræðunum skrifaði ég greinaflokkinn Málþing um Guðsgjafaþulu, þegar bókin um Íslandsbersa kom út 1972. Hann birtist í Morgunblaðinu og átti ég þá einnig samtöl við skáldið. Á eintak mitt af Guðsgjafaþulu hefur skáldið skrifað „í þakklætisskyni fyrir góða samvinnu“. Það er dag- sett 30. okt. 1973 (sjá Bókmenntaþættir, 1985). „Við verðum að vanda okkur,“ sagði Kiljan, „því að fólk má ekki halda eftir hundrað ár að tveir idíótar hafi verið að tala saman.“ Matthías Johannessen Ljósmynd/Gunnar Elísson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.