Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. MAÍ 2002 3
E
INN AF frægari bókmennta-
klerkum Bretlands heitir sr.
Duddleswell og birtist í bók-
um og sjónvarpsþáttum sem
hétu Bless me father. Sög-
urnar gerast á árunum eftir
seinni heimstyrjöld og í þeim
var m.a. rætt um getn-
aðarvarnir. Kaþólska kirkjan var, og er á
móti slíku, og Duddleswell segir á einum
stað að þegar getnaðarvarnir komi til sög-
unnar þá verði enginn getnaður og engar
varnir.
Líking bókarklerksins kemur stundum
upp í huga minn þessa dagana.
Önnur gömul líking er úr tölvuheiminum.
Hún er svona: WYSIWYG en það útleggst
á íslensku að maður fái það sem maður sér.
Þetta var sett fram í þá daga þegar það sem
var á tölvuskjánum var alls ekki eins í útliti
og það sem prentaðist á blað.
Ástæða þess að líkingarnar eru mér of-
arlega í huga er hversu undarleg staða er
komin upp varðandi sérstaklega kynferð-
ismál hér á landi.
Undanfarin ár hafa verið háværar um-
ræður um þessi mál og ekki síst í tengslum
við svokallaða súlustaði. Súlustaðir nýttu
sér glufur í atvinnu- og innflytjendalöggjöf
og gáfu listafólki (les: nektardansmeyjum)
færi á að koma hingað í mánuð. Á þeim
mánuði máttu meyjarnar skaka sig eins
framast mátti og afla sér tekna til heim-
ferðar. Ég var aldrei viss um hvort þetta
væri innflutningur á vinnuafli eða útflutn-
ingur á peningum. Meðal þess sem mest
var rætt um voru svokallaðir einkadansar,
sem nú er búið að banna og gríðarleg fjár-
útlát einstakra manna sem gátu numið
hundruðum þúsunda á kvöldi.
Kannski var það óhugnanlegast við þessa
umræðu að menn greindi á um hvort vændi
tengdist þessari starfsemi. Þau tengsl
þykja meðalgreindu fólki fremur augljós.
Umfjöllun sjónvarps um þessi mál hefur
alla tíð tengst því að sýna listameyjarnar
skaka sig upp að stöng þó það veki að vísu
athygli að í seinni tíð eru þær betur til fara
en þær voru fyrst. Þetta þýðir þó að allir
landsmenn vita vel hvað súludans er.
Þessi starfsemi sætir gagnrýni enda
óljóst af hversu frjálsum vilja meyjarnar
hristast. Þá er þetta óneitanlega ekki ein-
ungis niðurlægjandi fyrir konurnar heldur
og fyrir karla sem t.d. hópast að þeim í
karlasamkvæmum og bera í þær fé með því
að krækja því í brækur eða annars staðar.
Mér er sagt að atgangurinn sé ekki minni
þar sem karlar dansi fyrir kvennahópa.
Hversu vinsælt sem svona kann að vera þá
finnst mér þetta vera sturlun. Þar hlýtur að
standa að baki vafasamt siðferði og við-
skiptahættir þó löglegt kunni að vera.
Bersögul umfjöllun um kynferðismál í
fjölmiðlum, sjónvarpsefni, tónlistar-
myndbönd og fatatíska ýta undir áherslu á
kynlíf. Tökum dæmi.
Nú vil ég ekki á neinn hátt bera blak af
kynferðisglæpamönnum. Þeim er brjóta á
börnum og fullorðnum, körlum eða konum.
Hins vegar ofbýður mér að hlýða á frétta-
menn lesa upp úr dómskjölum nákvæmar
lýsingar á því hvernig brotið var framið.
Ekki síst þegar bækur sem í er að finna
slíkar frásagnir væru bannaðar á almenn-
ingsbókasöfnum. Þá ofbýður mér stundum
áherslan á kynlíf í glanstímaritum og
kjaftaþáttum. Ítarlegar umfjallanir um
neðanrakstur, sjálfsfróun og önnur tækni-
leg atriði, yfir morgunkaffi eða kvöldmat,
finnst mér tæpast við hæfi m.a. vegna
barna sem líkleg eru til að vera nærri.
Höldum áfram. Frásagnir af unglinga-
partíum þar sem kynlíf er notað sem að-
gangseyrir í selskapi. Frásagnir af félögum
sem stunda makaskipti eða hópkynlíf. Frá-
sagnir af vændi, fíknefnaneyslu og þannig
má lengi telja. Það má halda fólki upplýstu
en fyrr má nú rota en dauðrota.
Tónlistarmyndbönd af ungum stjörnum
sem eru afar klæðislitlar og eggjandi,
stúlkur sem sumar eru undir lögræðisaldri.
Eitt vinsælasta lagið um þessar mundir á
stórstöðinni Popp-TV er af unglingastjörnu
sem er klædd í buxur sem eru með beltið
langt neðan við nára. Spurningasyrpa í
sjálfum Mogga þar sem 17 ára stúlka er
spurð hvað kveiki blossann. Nýleg auglýs-
ing vikurits þar sem nakinn maður, lítið
fyrir augað, sprellar um skjáinn, að vísu
með skilti yfir því helgasta. Þættir þar sem
karlar og konur spyrja hvert annað nær-
göngulla spurninga og eru jafnvel svo
drukkin að vart verður sagt að sóma sé
gætt.
Frásagnir af áfallahjálp sem ungt fólk
hefur fengið vegna þess sem það hefur orð-
ið vitni að á útihátíðum, í samkvæmum eða
þess vegna á almannafæri. Frásagnir af
kröfum sem fólk, karlar eða konur gera til
maka sinna út frá frásögnum í fjölmiðlum,
klámefni eða skemmtiefni.
Frásagnir mæðra af erfiðleikum við að
kaupa á smástelpur föt sem ekki voru
eggjandi eða í anda gleðikvenna. Bolur í
auglýsingu um fermingarföt á stúlkur þar
sem á bol stóð Pornstar training eða við-
líka.
Gríðarleg áhersla á líkamsrækt, líkams-
útlit, m.a. með auglýsingum sem oft eru á
mörkum hins siðlega. Auglýsingar um
stefnumótahópa sem vægt sagt eru ekki
alltaf fjarri því að vera klámfengnar. Heil-
síða í stóru dagblaði um símanúmer til að
hringja í og hlusta á fólk klæmast eða til að
klæmast við fólk í síma.
Endalausar raðir af sápuóperum sem
snúast um fólk sem er að reyna að komast
uppí með einhverjum eða eins og einhver
kallaði þessa þætti: í-guðs-bænum-viltu-
elska-mig-þætti.
Samfélag sem dregur upp þær myndir af
samlífi karls og konu sem mér skilst að gert
sé á netinu, eða í öðru klámefni og virðist
ekki gera margt til að tempra umræðuna
eða takmarka við ákveðna hópa brenglar
mynd barna af því. Þau halda að samfarir
séu hopp og hí sem sjálfsagt er að fari fram
með hverjum sem er og skilja hvorki þá til-
finningalegu ábyrgð eða þá líkamlegu
ábyrgð sem því fylgir. Það má vel vera að í
íslensku samfélagi til forna hafi mátt gifta
unglinga á fermingaraldri en það tíðkast
ekki í dag. Í sjálfu sér er kynlíf einstaklings
eða einstaklinga undir átján ára aldri ólög-
legt.
Það versta til viðbótar er svo sú lenska
manna að svara fullum hálsi þegar þeir eru
gripnir í bólinu, hvort sem bólið er raun-
verulegt eða varðar t.d. spillingu og fjár-
málamisferli. Það er undarlegt að geta ekki
bara tekið því þegar menn eru gripnir, ef
þeir endilega vilja lifa lífinu við siðferð-
ismörkin.
Það má vera að lesendur sjái fyrir sér
teprulegan gamlan karl þegar þetta er les-
ið. En staðreyndin er sú að ég kalla ekki
allt ömmu mína, er fremur unglegur og
frjálslyndur en svolítið skelkaður. Ég á
nefnilega börn.
KYNLEGT
RABB
M A G N Ú S Þ O R K E L S S O N
TED HUGHES
CHAUCER
„Þá apríl hafði mjúku regni og mildu
marsþurrkum létt og gegnvætt hverja spildu … “
Þrumandi röddu, þar sem þú riðaðir á krosshliðinu
upplyftum örmum – sumpart til að halda jafnvægi,
sumpart til að halda í hvarflandi athygli
ímyndaðra áheyrenda – fluttirðu Chaucer
fyrir kýr í haga. Og vorhiminninn hafði gert það
með blaktandi þvotti sínum, og nýir smaragðar
þyrnirunnanna, hvítþyrnis og svartþyrnis,
og eitt af þessum fullu kampavínsglösum
sem þú greipst upp ófyrirséð af hreinum eldmóði.
Rödd þín barst út yfir hagana í átt að Grantchester.
Þér hlýtur að hafa heyrst hún týnast. En kýrnar
horfðu á og komu nær: Þær kunnu að meta Chaucer.
Og þú hélst áfram endalaust. Hér var ástæða
til að fara með Chaucer. Svo kom Konan frá Bath,
uppáhalds persóna þín í öllum bókmenntunum.
Þú varst frá þér numinn. Og kýrnar voru hugfangnar.
Þær tróðust og ýttust, bógur við bóg, og mynduðu hring
að blína framan í þig, með einstaka fnasi
af einskærri hrifningu, efldu sína furðulegu athygli,
eyrun sperrt að heyra hrynjandina,
og héldu sig af virðingu í sex feta fjarlægð.
Þú trúðir hreint ekki eigin augum.
Og þú gast ekki stansað. Hvað mundi gerast
ef þú skyldir stansa? Mundu þær ráðast á þig,
hræddar við skyndiþögnina eða ólmar að heyra meira –?
Svo þú varðst að halda áfram. Þú hélst áfram –
og tuttugu kýr stöldruðu hjá þér dáleiddar.
Hvernig stansaðirðu? Ég man ekki eftir
að þú hættir. Ég ímynda mér þær hafi skjögrað frá –
ranghvolfandi augum eins og reknar væru frá fóðri.
Ég ímynda mér ég hafi stuggað þeim burt. En
sostenuto framsögn þín á Chaucer
var þegar orðin sífelld. Það sem eftir fór
náði ekki mettaðri athygli minni
og varð að hverfa aftur inn í gleymsku.
Hallberg Hallmundsson þýddi.
Höfundur var lárviðarskáld Breta og lést árið 1998.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 0 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R
EFNI
Hreinn
Friðfinnsson
myndlistarmaður er einn af fremstu
myndlistarmönnum Evrópu í dag.
Yfirlitssýning á verkum hans stend-
ur nú yfir í Kerguéhennec-höllinni í
Bretagne í Frakklandi. Laufey
Helgadóttir segir frá sýningunni.
Þorvaldur
Guðmundsson
kenndur við Síld og fisk, og kona hans Ingi-
björg Guðmundsdóttir voru miklir fag-
urkerar og söfnuðu íslenskri myndlist af
ástríðu. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn,
hefur gert samning um vörslu einkasafns
þeirra hjóna, og um fjóðrðungur þess, um
250 málverk og teikningar eru á sýningu
sem opnuð er í Gerðarsafni í dag.
Loftur
Guðmundsson
var einn af fremstu ljósmyndurum
og kvikmyndagerðarmönnum ís-
lenskum á síðustu öld. Kvikmynda-
safn Íslands og Þjóðminjasafnið
standa sameiginlega að stórri sýn-
ingu á verkum Lofts. Heiða Jó-
hannsdóttir kynnti sér þetta
viðamikla verkefni.
FORSÍÐUMYNDIN
er ein af myndum Lofts Guðmundssonar sem eru á sýningu á verkum hans í
listamiðstöðinni Hafnarborg.
var tilnefndur til Booker-verðlauna fyrir
sína fyrstu bók árið 1997. Hann rekur fer-
il sinn í samtali við Fríðu Björk Ingv-
arsdóttur og segist m.a. ekki hafa notað
orðið „list“ fyrr en hann var kominn yfir
tvítugt, þótt hann hafi ætíð langað til að
helga sig listrænni tjáningu.
Mick Jackson