Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
Reykjavík
Nordica Hotel
Hótel Loftleiðir
Keflavík
Flughótel
Suðurland
Hótel Flúðir
Hótel Rangá
Hótel Kirkjubæjarklaustur
Egilsstaðir
Hótel Hérað
ÁBÚENDUM á bænum Hvammi III
í Landssveit, hjónunum Pálma Eyj-
ólfssyni og Kolbrúnu Sveinsdóttur,
varð líkt og mörgum Sunnlendingum
hverft við fréttir á dögunum um að
íslenskir vísindamenn teldu miklar
líkur á stórum jarðskjálfta á næstu
árum. Og í ljósi forsögunnar á bæn-
um hugnast þeim ekkert sérstaklega
að standa í húsbyggingum. Í þremur
stórum jarðskjálftum á Suðurlandi
síðan á 19. öld hafa hús verið í bygg-
ingu á sama tíma hjá Hvammsætt-
inni, síðast árið 2000 þegar Pálmi og
Kolbrún reistu nýtt íbúðarhús,
timburhús á steyptum grunni, og
fyrst árið 1896 þegar gamli bærinn,
sem stendur reyndar enn, hafði verið
byggður af langafa Pálma. Einnig
urðu miklar skemmdir á bænum árið
1912 og talið að einhver útihús hefðu
þá verið í smíðum.
„Þetta er óneitanlega svolítið
skrítið og undarlegt að alltaf komi
skjálftar þegar hér er verið að
byggja. En fyrst engir mannskaðar
hafa orðið í skjálftunum er ekki hægt
annað en að hafa gaman af þessum
tilviljunum“ segir Pálmi við Morg-
unblaðið og Kolbrún bætir við að þau
þori varla að byggja meira.
„Það borgar sig ekki að fara að
skapa jarðskjálfta. Engu er líkara en
að sá í neðra búi undir okkur og sé að
mótmæla þessum framkvæmdum hjá
okkur,“ segir Kolbrún og hlær.
Hjónin hófu búskap að Hvammi
III árið 1997 og tók Pálmi þar við búi
foreldra sinna, Eyjólfs heitins
Ágústssonar og Guðrúnar Kristins-
dóttur. Pálmi er fimmti ættliðurinn í
Hvammsættinni sem býr á jörðinni.
Langalangamma hans, Guðríður
Jónsdóttir, byrjaði upp úr miðri 19.
öld og sonur hennar og langafi
Pálma, Eyjólfur Guðmundsson, kall-
aður Eyjólfur landshöfðingi af sveit-
ungum sínum, tók við búinu þegar
ljóst varð að hann fékk móður sína
ekki til að flytja burtu við skilnað for-
eldra sinna. Eyjólfur átti lítið óklárað
af byggingu íbúðarhúss þegar sterk-
ur skjálfti reið yfir Suðurland í lok
ágúst árið 1896. Heimilisfólk var þá
flutt inn í húsið, og heimildir herma
að í fyrsta skjálftanum hafi það nán-
ast farið af sökklunum. Kolbrún segir
grind hússins hafa skekkst og gengið
úr fölsum en í sterkum eftirskjálfta í
Ölfusi nokkrum dögum síðar small
grindin í fölsin á ný og húsið réttist
af!
Sextán árum síðar, 1912 varð ann-
ar stór skjálfti á svæðinu, og þá varð
íbúðarhúsið illa úti. Kolbrún segir ná-
kvæmar heimildir ekki vera fyrir því
hvaða hús voru í byggingu í þessum
skjálfta en hins vegar hafi fjósið
hrunið saman.
Gert var við gamla Hvammsbæinn
eftir þennan skjálfta og búið í honum
alveg fram á síðasta áratug af Eyjólfi
landshöfðingja og konu hans, Guð-
björgu Jónsdóttur, og síðar þeirra af-
komendum; Ágústi Kr. Eyjólfssyni,
afa Pálma, og konu hans, Sigurlaugu
Eyjólfsdóttur, Eyjólfi og Guðrúnu,
og loks Pálma og Kolbrúnu.
Eftir að hafa búið í gamla bænum
frá 1997 tóku þau Kolbrún að reisa
nýtt hús árið 2000. Það var ekki orðið
fokhelt þegar skjálftarnir urðu í júní
það ár. Pálmi segir skemmdirnar þá
hafa verið ótrúlega litlar, nokkrar
spýtur hefðu hrunið og annað ekki.
Jarðsprunga mitt á milli
Pálmi segir að sér hafi ekki líkað
þær fréttir sem bárust af spám vís-
indamanna um frekari skjálfta á
næstu árum. Aðspurður segir hann
engin áform um frekari húsbygg-
ingar, þó að þörf sé á nýju fjárhúsi
séu fjármunir til þess ekki til staðar.
Hvammur III er vestan undir
Skarðsfjalli. Pálmi segir jarðfræð-
inga hafa talað um að mitt á milli
Hvammsbæjanna sé jarðsprunga og
því er skiljanlegt þegar Kolbrún seg-
ist vilja vera við öllu búin ef fleiri
skjálftar verða. Hún hefur fest skápa
kyrfilega við veggina og límt marga
innanstokksmuni svo þeir hrynji síð-
ur úr hillum. „Það þýðir ekkert ann-
að en að lifa með þessu,“ segir Kol-
brún og Pálmi tekur heilshugar
undir það. Þau eru ekki á förum frá
Hvammi.
EYJÓLFUR Guðmundsson lands-
höfðingi, langafi Pálma, lýsir af-
leiðingum jarðskjálftans árið 1896 í
Öldinni okkar, en þessa nafngift
hlaut hann m.a. fyrir oddvitastörf
sín og annað frumkvöðulsstarf í
sveitinni, m.a. í landgræðslumálum.
Haft er eftir Eyjólfi að þetta hafi
verið „voðalegur landskjálftakipp-
ur“. Síðan segir hann:
„Ég hrópaði til fólksins að halda
sér við rúmin, og tókst það flestum.
Hinar þungu lerpípur frá eldavél-
inni hrundu niður og sneiddu hjá
rúmi þriggja barna, án þess að þau
sakaði. Enda var ekki furða, þó allt
lauslegt færi á hreyfingu, því húsið
hoppaði upp á milli þess, sem mér
fannst það eins og í rólu frá norðri
til suðurs. Engin leið var að fóta sig
eða hreyfa, meðan þessi ósköp
gengu á. En jafnskjótt sem því létti,
fór ég við annan mann að litast um,
hvað gerzt hafði, og var þá margt
að sjá. Jörðin hafði sprungið undir
norðurenda hússins, og var eldavél-
in horfin þar ofan í, svo hvergi
sást.“
Eldavélin hvarf ofan í sprungu
bjb@mbl.is
Gamla íbúðarhúsið að Hvammi III hefur staðið af sér þrjá Suðurlands-
skjálfta og er ótrúlega heillegt miðað við 108 ára aldur.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Kolbrún Sveinsdóttir og Pálmi Eyjólfsson, ásamt tíkinni Tátu, fyrir utan
nýja íbúðarhúsið sem var í byggingu í Suðurlandsskjálftanum árið 2000.
Þorum varla að byggja meira
Suðurlandsskjálftar hafa riðið yfir þegar hús eru reist á Hvammi III í Landssveit
TILLAGA um nýja stjórn
Leikfélags Reykjavíkur, sem
borin verður undir kjörfund fé-
lagsins 3. maí, gerir ráð fyrir að
stjórnina skipi þjóðþekkt fólk
úr atvinnu- og listalífinu.
Að sögn Ellerts A. Ingi-
mundarsonar, fráfarandi for-
manns félagsins, er tillaga
stjórnar að nýrri stjórn svo-
hljóðandi: formaður Inga Jóna
Þórðardóttir viðskiptafræðing-
ur, varaformaður Ellert A.
Ingimundarson leikari, ritari
Marta Nordal leikari, með-
stjórnandi Ágúst Einarsson
prófessor, meðstjórnandi
Styrmir Gunnarsson ritstjóri.
1. varamaður Teódór Júlíusson
leikari, 2. varamaður Edda
Þórarinsdóttir, fyrrv. formaður
Félags íslenskra leikara, 3.
varamaður Ingibjörg Elsa Guð-
mundsdóttir framkvæmda-
stjóri.
Að sögn Ellerts bætast dag-
lega nýir félagar í raðir Leik-
félags Reykjavíkur en atkvæð-
isrétt á kjörfundinum eiga allir
sem greitt hafa félagsgjald fyr-
ir fundinn. „Síðan er félagið öll-
um opið til inngöngu hvort sem
er fyrir eða eftir kjörfundinn,“
segir Ellert.
Kjörfundurinn verður hald-
inn í Borgarleikhúsinu mánu-
daginn 3. maí kl. 20.
Tillaga
um nýja
stjórn LR
STJÓRNENDUR innan Landspít-
ala-háskólasjúkrahúss áttu fund sl.
mánudag með hjúkrunarfræðingum
á skurðdeild spítalans sem sagt hafa
upp störfum vegna óánægju með
nýtt vaktafyrirkomulag sem tekur
gildi um næstu mánaðamót.
Helga Kristín Einarsdóttir, sviðs-
stjóra hjúkrunar á svæfinga-, gjör-
gæslu- og skurðstofusviði LSH, sem
sat fundinn ásamt hjúkrunarfor-
stjóra og hjúkrunarfræðingunum,
segir lítið hægt að segja um þessar
viðræður á þessari stundu en hún
segir að nýr flötur hafi komið upp
sem sé til skoðunar.
„Það var mjög málefnalegur fund-
ur með þessum starfsmönnum.
Þarna voru bara viðraðar skoðan-
ir beggja aðila, farið yfir stöðu mála
og hvað væri hægt að gera í stöð-
unni. Ákveðið var að halda annan
fund næstkomandi föstudag,“ segir
Helga. „Ég vona það besta því þarna
er um mjög sérhæfða starfsmenn að
ræða, og ég vil ógjarnan missa þá,“
bætir hún við.
Elín Ýrr Halldórsdóttir skurð-
hjúkrunarfræðingur segir að nú sé
verið að skoða málið frá öðru sjón-
arhorni en gert hafi verið til þessa.
Hjúkrunarfræðingur muni ræða sín
á milli og eiga svo aftur fund með
stjórnendum spítalans á föstudag.
Að nokkru leyti megi segja að Land-
spítalinn hafi rétt fram sáttahönd.
Annað hljóð hafi verið komið í
strokkinn á fundinum á mánudag.
Elín segir að um flókið mál sé að
ræða sem sé m.a. til skoðunar hjá
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
og hagfræðingi þess.
„Við þurfum að skoða hvernig sé
mögulega hægt að snúa þessu. Þeir
þurfa á okkur að halda en við þyrft-
um helst að halda á þeim líka, frekar
en að fara til Noregs að vinna,“ segir
Elín, en að hennar sögn er mikil eft-
irspurn eftir skurðhjúkrunarfræð-
ingum erlendis. Íslenskir hjúkrunar-
fræðingar hafi skoðað atvinnuaug-
lýsingar þaðan en sér vitanlega hafi
enginn af þeim 22 hjúkrunarfræð-
ingum sem sögðu upp starfi sínu
ákveðið að ráða sig til vinnu erlend-
is.
Sviðsstjóri á LSH um fund með hjúkr-
unarfræðingum sem sagt hafa upp
Nýr flötur í
viðræðunum sem
er til skoðunar
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út vegna elds í íbúð í
Suðurmýri á Seltjarnarnesi í gær.
Þegar slökkvilið kom á vettvang
reyndist um eld að ræða í íbúð á 1.
hæð í þriggja hæða húsi. Tveir, sem
voru í íbúðinni, voru fluttir á slysa-
deild vegna gruns um reykeitrun.
Reykkafarar fóru inn í aðrar íbúð-
ir í öryggisskyni til að ganga úr
skugga um hvort fólk væri þar. Ekki
er vitað um eldsupptök en íbúðin
mun vera talsvert skemmd af eldi og
reyk.
Eldur í íbúð
♦♦♦
UMFERÐARÖNGÞVEITI var í
borginni í um eina klukustund um
miðjan dag í gær eftir að Kringlu-
mýrarbraut lokaðist til norðurs
vegna harðs þriggja bíla árekstrar
sem varð á móts við Bústaðavegs-
brúna.
Tveir voru fluttir á slysadeild, en
ekki er talið að þeir hafi verið alvar-
lega slasaðir.
Annar árekstur á
Kringlumýrarbraut
Þá varð annar þriggja bíla
árekstur á hinni akrein Kringlu-
mýrarbrautar þar sem ekið er til
suðurs skömmu síðar á sama stað á
móts við Bústaðaveginn.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar varð fyrri áreksturinn með
þeim hætti að bíl á norðurleið var
ekið á kyrrstæðan bíl sem lagt hafði
verið út í vegarkant vegna bilunar
og kastaðist hann við það á annan
bíl sem ekið var í sömu átt og á brú-
arstólpa. Flytja varð alla bílana á
brott með kranabíl. Mikið umferð-
aröngþveiti myndaðist þegar
Kringlumýrarbrautin lokaðist og
varð að beina umferð frá Hafnar-
firði og Kópavogi um aðrar götur í
um klukkutíma vegna þessa þar til
hægt var að fjarlæga bifreiðirnar.
Ástæða seinni árekstrarins er
talin sú að athyglin hafi beinst að
því sem var að gerast á hinni ak-
reininni.
Umferðaröng-
þveiti vegna
árekstrar