Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 9 Kringlunni, s. 588 1680 iðunn tískuverslun kvartbuxur Kringlunni, sími 588 1680. Seltjarnarnesi, sími 561 1680. tískuverslun iðunn Stretch gallabuxur fást í 4 lengdum Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Mikið úrval af fatnaði frá Str. 36-56 ÍT ferðir - Laugardal sími 588 9900 itferdir@itferdir.is - www.itferdir.is Gönguferðir á Spáni 5. júní í 1-2 vikur PÝRENAFJÖLLIN - LÚXUSGANGA Tvær ólíkar gönguferðir England – Ísland 5. júní Beint leiguflug til Manchester 4.-6. júní 3ja-5 stjörnu hótel, miði á leikinn, Guðni Bergs o.fl. Knattspyrnuskóli Bobby Charlton Í júní með ENGLAND-ÍSLAND 8-10 dagar um verslunarmannahelgina Yfir 1.000 ánægð íslensk ungmenni s.l. 10 ár! kynna Ferðaávísun EFTIR því sem komist verður næst, er sjóbirtingur enn í ánum fyrir austan og enn er að veiðast. Hins vegar hefur verið fremur svalt á landinu að undanförnu og hafa menn því e.t.v. ekki staðið eins stíft við veiðiskapinn og ella. Það síðasta sem við fréttum af sjóbirtingsslóðum var frá Ytri- Rangá, neðan Ægissíðufoss þar sem veitt er á flugu og fiski sleppt, enda mest þar af hrygningarfiski á ferð. Þar voru menn nýverið, stoppuðu stutt, en nógu lengi þó til að landa 12 fiskum. Athygli vakti að tveir voru mjög stórir, eða 84–85 cm, sem er ávísun á 14–16 punda fiska í bestum holdum. Þá voru einnig nokkrir á að giska 4 til 7 pund að mati Stefáns Sigurðssonar, sem var einn þeirra er stóðu í veiðiskapnum. Bleikjan að gefa sig Staðbundna bleikjan í Soginu og Brúará hefur verið að gefa sig að undanförnu og höfum við fregnað að menn hafi fengið allt að tíu fiska yfir daginn, sem er nokkuð góður afli snemma að vori. Bæði virka kúlupúpur og straumflugur vel, en bleikjan er mest 2–3 pund á báðum stöðum. Helst að fregnir berist frá Seli og Spóastöðum í Brúará, en frá Bíldsfelli í Soginu. Mikið vatn hefur verið í Soginu í vor og kalt í lofti. Við slíkar aðstæður er mesti straumþungi vatnsins niður með austurlandinu, þ.e.a.s. Ásgarðs- megin, en vatn hægara að vestan, Bíldsfellsmegin. Kenningin er sú að þetta skipti miklu máli, a.m.k. virð- ist bleikjan sækja meira í vest- urlandið. Þá hafa einnig nýverið borist fregnir af góðum afla úr Tungulæk, Vatnamótum og einn sem brá sér í Vífilsstaðavatn fyrir skemmst var með tólf bleikjur, flestar um pundið, á stuttum tíma. Enn víða líflegt Morgunblaðið/Golli Hressir kappar með flotta bleikju úr Brúará. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? var yfir meðallagi alla sumarmánuð- ina. Þó að það hafi verið tvöfalt úr- komumagn í júní þá skiptir máli hve- nær úrkoman fellur. Ef hún fellur á daginn þá hreinsast loftið en ef hún fellur á nóttunni hefur hún lítil áhrif fyrir þá sem þjást af ofnæmi,“ segir Margrét. Ofnæmistilvikum fjölgar Að sögn Unnar Steinu Björnsdótt- ur ofnæmislæknis hefur tíðni frjóof- næmis aukist hér á landi. „Við fund- um greinilega fyrir því í fyrra að fólk var verr haldið af ofnæmi. Frjótíma- bilið kom fyrr og stóð lengur. Tíðni frjóofnæmis er að aukast, hún hefur verið að færast nær því sem er í lönd- unum í kringum okkur og sjúkdóm- arnir eru að verða verri. Við erum far- in að sjá fólk sem hreinlega kemst ekki út fyrir hússins dyr á sumrin,“ segir Unnur Steina. Hún segir að í kjölfar hlýindasum- ars eins og síðasta sumars, þar sem mikið af frjókornum eru á sveimi, geti þeim sem þjást af ofnæmi fjölgað þar sem fólk geti þróað með sér næmi fyr- ir frjóum. „Svo kemur það í ljós í sum- ar hvort fleiri hafa næmst. Það eru ef- laust margir sem hafa næmst í fyrra og fá síðan einkenni núna.“ Unnur Steina segir að hlýr og sól- ríkur sumardagur með léttum and- vara sé verstur fyrir þann sem þjáist af frjóofnæmi. Í hlýindum og sól séu frjókornin flest og andvarinn blási þeim svo inn í nef, munn og augu. Hún segir ýmislegt til ráða til að stemma stigu við ofnæminu, t.d. ættu þeir sem hafi frjóofnæmi ekki að hengja út þvott þar sem frjókornin setjist á hann. Þá sé nauðsynlegt að skola af sér frjókornin í sturtunni fyr- ir svefninn og þvo þau af höndunum jafnóðum. Góð sólgleraugu sem hlífa augunum við frjókornum komi einnig í góðar þarfir. „Fólk þarf að byrja að nota viðeig- andi lyf áður en tímabilið hefst. Ann- ars þarf alltaf minna og minna af frjó- kornum til að valda einkennum,“ segir Unnur Steina og á þar við svo- kallaða nefstera sem þeir sem eru illa haldnir af ofnæmi þurfa að nota og fást gegn lyfseðli. „Einkennin eru misalvarleg. Sumir þurfa öll lyf, en aðrir þurfa bara lausasölulyf,“ segir hún. Lausasölulyf við frjókornaofnæmi eru flest svokölluð andhistamín og seld í töfluformi. Töflurnar eru þá teknar að morgni dags til að fyrir- byggja einkenni. Einnig eru seld nefsprey og augndropar sem notaðir eru eftir að einkenni gera vart við sig. SUMARIÐ 2003 var það næst frjó- ríkasta frá upphafi frjómælinga á Ís- landi. Birkifrjó hafa aldrei verið jafn- mörg og í fyrra, en þau dreifast mest um andrúmsloftið þegar sólríkt er. Svo virðist sem frjótímabilið hefjist stöðugt fyrr hér á landi. „Ef hitinn heldur áfram að vera yfir meðallagi þá gæti það orðið til þess að sumarið sem við eigum í vændum verði svipað og í fyrra,“ segir Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur á Náttúru- fræðstofnun, en hún hélt erindi um „Frjókornasumarið mikla 2003“ á Hrafnaþingi stofnunarinnar nýverið. „Ég tel að birkifrjóin verði ekki eins mörg því það virðist vera sveifla í framleiðslu birkifrjóa frá ári til árs. Birkifrjó og grasfrjó eru þekkt sem mjög skæðir ofnæmisvaldar.“ Mar- grét segir mest vera af birki-, gras- og súrufrjóum í andrúmsloftinu og flesta sem þjást af frjóofnæmi hafa ofnæmi fyrir þessum tegundum, þótt ofnæmi fyrir öðrum tegundum eins og t.d. víði- eða asparfrjóum, þekkist. Margrét segir að hlýindi síðasta sumars hafi haft mest að segja um aukningu frjókorna í loftinu. „Hitinn Frjótíminn byrjar stöðugt fyrr -./ -/ -/0 -/1 -/2 -// -% -%0 %%% .%% 3%% !%% $%% %     4 *  5"" ( 4 5" ( " 467  8( 4*(( Í fyrra fóru birkifrjó að mælast 19. apríl, um mánuði fyrr en vanalega. LAGÐAR hafa verið fram tillögur að sérstakri aðgerðaáætlun um hvernig brugðist skuli við þegar erlend börn eru hér á landi án um- sjár. Dómsmálaráðherra kynnti skýrslu starfshóps sem samdi að- gerðaáætlunina um málefni er- lendra vegalausra barna á ríkis- stjórnarfundi í gær. Samkvæmt upplýsingum ráðu- neytisins er í skýrslunni sett fram ítarleg greining á hlutverkum og ábyrgð þeirra aðila sem koma að hverju máli, en það eru lögregla, Útlendingastofnun, barnaverndar- nefndir og Rauði kross Íslands, auk félagsþjónustu Reykjanesbæj- ar, sem tekur að sér umönnun barnanna skv. aðgerðaáætluninni. Finna uppruna barnanna og sameina þau fjölskyldu þeirra Ekki eru fyrir hendi skýrar reglur hér á landi eða samræmd áætlun um hvernig með mál af þessu tagi skuli farið, en leyst hef- ur verið úr þeim málum, sem kom- ið hafa upp, á grundvelli gildandi útlendinga- og barnaverndarlög- gjafar og í samvinnu þeirra aðila sem að málunum hafa komið. „Í skýrslunni kemur fram að meginverkefni stjórnvalda varð- andi erlend börn sem stödd eru hér á landi án foreldra eða forsjár- aðila, sé að finna uppruna þeirra og sameina þau fjölskyldu þeirra í heimalandi með öruggum hætti. Nauðsynlegt sé að meðferð mál- anna taki eins skamman tíma og nokkur kostur er á og að var- anlegar lausnir á ráðstöfun barnanna komi til framkvæmda eins fljótt og auðið er. Ef ekki reynist unnt að sameina barn og fjölskyldu þess í heima- landinu á ný, þarf að finna því við- eigandi frambúðarheimili hér á landi. Lagt er til að það verði í höndum barnaverndaryfirvalda en Útlendingastofnun getur veitt barni dvalarleyfi af mannúðar- ástæðum við slíkar aðstæður eða hæli ef barn á rétt á hæli á grund- velli Flóttamannasamningsins. Starfshópurinn leggur til að kostn- aður af slíkri fósturráðstöfun til lengri tíma greiðist úr ríkissjóði, en til þess þarf að gera breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/ 2002,“ segir í frétt frá dómsmála- ráðuneytinu. Aðgerðaáætlun vegna erlendra vegalausra barna Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.