Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 12

Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR raskar eðli- legri samkeppni á lánamarkaði. Sjóð- urinn uppfyllir ekki skilyrði um fé- lagsleg markmið, sem ákvæði EES-samningsins setja fyrir stuðn- ingi hins opinbera við slíka atvinnu- starfsemi. Þetta eru meginniðurstöð- ur nýrrar álitsgerðar Rannsóknar- stofnunar í fjármálarétti við Háskólann í Reykjavík um stöðu Íbúðalánasjóðs gagnvart reglum EES-samningsins, sem tekin var saman að beiðni Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV), og kynnt var á blaðamannafundi í gær. SBV sendu í gær formlega kvörtun til Eft- irlitsstofnunar EFTA, ESA, á grundvelli niðurstöðu álitsgerðarinn- ar. Í álitsgerð Rannsóknarstofnunar- innar segir að Íbúðalánasjóður sé í eðli sínu lánastofnun í samkeppni við fjármálafyrirtæki. Sjóðurinn veiti al- menn lán til íbúðakaupa án þess að þeir sem njóta þjónustunnar þurfi að uppfylla sérstök skilyrði um fé- lagslegar aðstæður, en það séu eink- um hin almennu lán Íbúðalánasjóðs sem fari í bága við EES-samninginn. Sérreglur gildi fyrir alla „Íbúðalánasjóður grundvallast á lögum um húsnæðismál sem byggja á séreignastefnu en ekki félagslegum markmiðum, en reglur um almenn lán sjóðsins skortir mikilvæg ein- kenni félagslegra kerfa, sem miðast við að aðstoða þá sem verr eru sett- ir,“ segir í fréttatilkynningu frá SBV. „Þannig getur sjóðurinn veitt hinum efnameiri lán umfram þá sem minna hafa. Sjóðurinn nýtur sérstakrar rík- isábyrgðar á lánveitingum sínum og þarf ekki að uppfylla þær stífu kröfur sem settar eru um starfsemi lána- stofnana í almennum lögum. Þá nýt- ur sjóðurinn bæði skattfríðinda og framlaga úr ríkissjóði. Vegna þess- ara sérréttinda skapar sjóðurinn augljóslega ójafnvægi í samkeppni á íbúðalánamarkaði.“ Jóhannes Sigurðsson, forstöðu- maður Rannsóknarstofnunar í fjár- málarétti við Háskólann í Reykjavík, gerði grein fyrir niðurstöðum álits- gerðar stofnunarinnar á blaða- mannafundinum í gær, en þess má geta að hann var áður starfsmaður ESA. Þetta er fyrsta þjónustuverk- efnið sem stofnunin sendir frá sér. Jóhannes segir að starfsemi Íbúðalánasjóðs stangist á við greinar númer 59 og 61 í EES-samningnum. Í fyrstu málsgrein 59. greinar samn- ingsins sé kveðið á um að ef atvinnu- greinum séu veitt sérréttindi verði að gæta þess að ekki sé brotið í bága við önnur ákvæði EES-samningsins, t.d. varðandi samkeppnisreglur og fjór- frelsi. Sérreglur verði því að gilda fyrir alla sem eru í sambærilegri að- stöðu á svæðinu. Í annarri málsgrein þessarar greinar samningsins sé hins vegar kveðið á um að víkja megi frá fyrstu málsgreininni, ef sú stofnun sem um ræðir veitir þjónustu er hef- ur almenna efnahagslega þýðingu. Þetta þýði að umrædd stofnun sé að veita þjónustu sem aðrir aðilar geti ekki sinnt. Eins og staðan sé á fjár- málamarkaði hér á landi í dag geti fjármálastofnanir veitt sambærilega þjónustu og Íbúðalánasjóður. Þess vegna séu skilyrði 59. greinar EES- samningsins ekki fyrir hendi. 90% lán veikja aðrar fjármálastofnanir Varðandi 61. grein EES-samn- ingsins segir Jóhannes að þar sé fjallað um að óheimilt sé að veita rík- isaðstoð ef hún sé fallin til að raska samkeppni. „Augljóst er að þau sér- réttindi sem Íbúðalánasjóður nýtur raska samkeppninni,“ segir hann. Þá kom fram í máli Jóhannesar að Rannsóknarstofnunin telur einnig að starfsemi Íbúðalánasjóðs kunni að brjóta gegn hluta af fjórfrelsis- reglum EES-samningsins, þ.e. varð- andi staðfesturétt, þjónustufrelsi og frjálsa fjármagnsflutninga. Þessar reglur mæli allar fyrir um að ekki megi setja hindranir á það að geta veitt þjónustu eða flutt peninga á milli landa. Þau sérréttindi sem Íbúðalánasjóði séu fengin, þ.e. ríkis- ábyrgð á skuldbindingum og minni kröfur til starfsskilyrða en hjá öðrum lánastofnunum, t.d. eiginfjárkröfur og kröfur um eiginfjárhlutfall, feli í sér hindranir fyrir aðrar lánastofn- anir til þess að veita íbúðalán á ís- lenskum fjármagnsmarkaði. Í álitsgerð Rannsóknarstofnunar í fjármálarétti segir jafnframt að áform um hækkun veðhlutfalls í allt að 90% og hækkun hámarkslána séu tvímælalaust til þess fallin að styrkja enn frekar yfirburðastöðu Íbúða- lánasjóðs á íslenskum íbúðalána- markaði og veikja enn frekar stöðu annarra fjármálaþjónustufyrirtækja á þessum markaði. Þá verði ekki séð að þessi áform hafi nokkra þá al- mennu efnahagslegu þýðingu í skiln- ingi 59. greinar EES-samningsins, að réttlætt geti þær enn frekari og ríkari takmarkanir á frjálsri sam- keppni sem áform þessi muni óhjá- kvæmilega hafa í för með sér. Stjórnvöld hér á landi tilkynntu fyrirhugaðar breytingar á hækkun lánshlutfallsins í hinu opinbera hús- næðislánakerfi til ESA í lok síðasta árs. Niðurstöður ESA í því máli liggja ekki fyrir. Sambærileg kjör hjá bönkum Guðjón Rúnarsson, framkvæmda- stjóri SBV, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að ef almenn lán Íbúðalánasjóðs yrðu færð yfir til banka og sparisjóða, myndi það end- urspeglast í þjónustukjörum við- skiptavina þeirra almennt, ekki ein- vörðungu íbúðakaupenda, vegna aukinna umsvifa. „Við erum ekki í vafa um að íbúðakaupendur muni eiga kost á lánakjörum sem eru í takt við það sem þekkist í dag og að þau muni frekar breytast til lækkunar en hækkunar er fram líða stundir,“ sagði Guðjón. SBV senda ESA formlega kvörtun vegna Íbúðalánasjóðs Raskar eðlilegri samkeppni Morgunblaðið/Jim Smart Í bága við EES-samninginn Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SBV, og Jóhannes Sigurðsson, forstöðumaður rannsóknarstofnunar í fjármála- rétti við Háskólann í Reykjavík, segja almenn lán Íbúðalánasjóðs brjóta í bága við ýmis ákvæði EES-samningsins. LOKAFRÁGANGI samninga um kaup Viva Ventures á 65% kjölfestu- hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC og lokagreiðslum fyrir hlutinn, sem átti að inna af hendi í gær, hefur verið frestað um tvo mánuði til 20. júní. Carrera Global Investment fjármagnar um fjórðung 65% hlut- arins, en Carrera er í meirihlutaeigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og aðrir íslenskir fjárfestar sem eiga þar hlut eru Síminn, Burðarás og Straumur fjárfestingarbanki. Einkavæðingarnefnd í Búlgaríu ákvað frestunina á þeim forsendum að afla þyrfti frekari gagna frá stofn- unum sem málið varðar. Líkt og áður hefur komið fram, strandar lokafrá- gangurinn á úthlutun farsímaleyfis, sem er það þriðja sem úthlutað er í Búlgaríu. Deilt hefur verið um hvort eigi að selja BTC leyfið fyrir 54 millj- ónir leva líkt og samið var um við einkavæðingu félagsins eða hvort eigi að bjóða það út og leyfa öðrum að eiga þess kost að keppa um leyfið. Búlgarska fjarskiptaeftirlitið hef- ur reynt að koma sér undan að taka þessa umdeildu ákvörðun og leitaði umsagnar ríkisstjórnarinnar nýver- ið. Ríkisstjórnin hefur nú svarað því til að hún telji lagaheimild fyrir því í einkavæðingarlöggjöf landsins að BTC verði úthlutað farsímaleyfinu án útboðs eða samkeppni við aðra. Sem fyrr virðast líkurnar því miklar á því að staðið verði við ákvæði samningsins um úthlutun farsíma- leyfis til BTC. Leyfið er afar þýðingarmikið fyrir framtíð BTC og talið að einkavæð- ingin standi og falli með því hvort leyfið fæst. Nýlega var haft eftir Jo- anna James, talsmanni Viva Vent- ures, í búlgörskum fréttamiðli að reynslan frá öðrum löndum sýndi að með tilkomu þriðja og fjórða far- símaleyfis á markaðnum gerðist jafnan tvennt. Annars vegar lækkaði verð þjónustunnar umtalsvert og hins vegar fjölgaði notendum til muna. Þegar endanlega hefur verið gengið frá einkavæðingarsamningn- um munu 20% hlutafjár í BTC, sem nú er í eigu ríkisins, verða seld á hlutabréfamarkaði í kauphöllinni í Sofia. Kaupum á BTC frestað Morgunblaðið/Nína Björk Í TILEFNI af Viku bókarinnar hefur Edda-útgáfa, í samstarfi við sundstaði ÍTR, komið fyrir ljóðum í öllum heitum pottum sundlauga Reykjavíkur, sundgestum til and- legrar upplyftingar. Ljóðin eru úr ljóðabókinni Óðhalaringlu eftir þau systkinin Þórarin og Sigrúnu Eldjárn, sem kemur út hjá Vöku- Helgafelli um hvítasunnuna. Þar eru komnar saman í einni bók bækurnar Óðfluga, Halastjarna og Heimskringla. Fyrir tvær þeirra hlutu Þórarinn og Sigrún Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur árin 1992 og 1998. Þórarinn semur ljóðin en Sigrún myndskreytir. Ljóðin eru vatns- og vindheld og fljóta um í pottunum. Mark- miðið er að færa bókmenntirnar til allra. Morgunblaðið/Golli Ljóð í heitum pottum VERKEFNI sem snýst um að lagafrumvörp skuli meta með tilliti til fjárhagslegra áhrifa sveitarfé- laga, en ekki bara hins opinbera, verður framlengt um tvö ár. Fé- lagsmálaráðherra lagði fram frum- varp í ríkisstjórninni þess efnis í gær. „Þetta var tilraunaverkefni sem laut að því að félagsmálaráðuneyti og umhverfisráðuneyti létu gera kostnaðarmat á frumvörpum sem vörðuðu sveitarfélögin með tilliti til hagsmuna þeirra. Ég lagði það til í morgun að við myndum framlengja þetta verkefni um tvö ár og að menntamálaráðuneytið bættist í hóp þessara ráðuneyta,“ segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra. Verkefnið, sem unnið er í sam- vinnu við Samband sveitarfélaga, gerir ráð fyrir því að þegar frum- varp frá einhverju þessara ráðu- neyta er lagt fram á Alþingi sé um leið lagt fram kostnaðarmat fyrir sveitarfélögin þannig að þingmenn geti gert sér grein fyrir hvaða áhrif tiltekin frumvörp hafa á rekstur sveitarfélaganna. Árni seg- ir það vel við hæfi að mennta- málaráðuneyti bætist í hóp ráðu- neytanna sem taka þátt í verkefninu, enda séu fjölmörg mál á þess vegum sem snerti sveit- arfélögin beint, eins og t.d. málefni grunnskólanna. „Með þessu erum við að gera raunverulega tilraun til að leggja mat á kostnaðaráhrifin með tilliti til hagsmuna sveitarfé- laganna.“ Kostnaður við frumvörp metinn Ráðuneytin ætla að meta kostnað sveitarfélaganna við ný lög EKKI var farið fram á að fá greiðslustöðvun Íslensku kvik- myndasamsteypunnar framlengda en hún rann rann út á þriðjudag og er allt útlit fyrir að félagið muni verða tekið til gjaldþrotaskipta. Friðrik Þór Friðriksson, eigandi fyr- irtækisins, segist telja að það verði ofan á að fyrirtækið fari í gjaldþrot nema eitthvert kraftaverk komi til. Eins og kunnugt er hætti Ríkisút- varpið við kaup á sýningarrétti 24 kvikmynda Íslensku kvikmynda- samsteypunnar. Í kjölfarið voru teknar upp viðræður við Íslenska út- varpsfélagið um kaup á sýningar- réttinum. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, segir að á síðasta stjórnarfundi félagsins hafi verið ákveðið að fresta viðræðum um kaup á kvikmyndaréttinum og því séu engar samningaviðræður í gangi við Íslensku kvikmyndasamsteypuna. Íslenska kvikmyndasamsteypan Allt útlit fyrir gjaldþrot

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.