Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 25
Í tilefni Viku bókarinnar efna Morgunblaðið og Vaka-Helgafell
til getraunaleiks. Frá þriðjudeginum 20. apríl til og með
mánudeginum 26. apríl birtist ein tilvitnun á dag úr verkum
Halldórs Laxness og spurt er úr hvaða verki viðkomandi til-
vitnun er.
Þátttakendur senda inn svörin sín í lok getraunarinnar.
Frestur til að senda inn lausnir er til 30. apríl.
Dregið verður úr öllum innsendum lausnum og munu 10
þátttakendur, sem svara öllu rétt, hljóta í verðlaun bókina
Perlur í skáldskap Laxness.
Þú getur kynnt þér Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Lax-
ness og verk hans á mbl.is undir Fólkinu. Þar er að finna
umfjöllun um skáldið, verk hans, umsagnir og margt fleira.
Sendu svörin til okkar. Utanáskriftin er:
Morgunblaðið
Getraunaleikur
- Halldór Laxness -
Kringlan 1,
103 Reykjavík
„Hún vætti koddableðilinn sinn heitum söltum tárum,
meðan blóð hennar svall heilagt af ást, saurugt af
afbrýðisemi, þessi heimtufreki jarðarávöxtur í
mannsmynd, nærður af fiskum hafsins.“
GETRAUNALEIKUR
- Halldór Laxness
2. tilvitnun:
DIMITRI Þór Ashkenazy klarin-
ettuleikari leikur á Háskólatónleik-
um í Norræna húsinu í dag kl. 12.30
ásamt Sif Tulinius fiðluleikara og
Tómasi Guðna Eggertssyni píanó-
leikara, en í gærkvöldi lék Dimitri
einleik með Lúðrasveit Reykjavíkur
á tónleikum í Borgarleikhúsinu.
Dimitri er sonur hins kunna píanó-
leikara Vladimirs Ashkenazy og Þór-
unnar Jóhannsdóttur, og hefur hann
nokkrum sinnum komið fram á tón-
leikum hérlendis, en þó ekki eins oft
og píanóleikarinn bróðir hans, Stef-
án Vovka Ashkenazy. Árið 1998 léku
bræðurnir einleik á sömu tónleikun-
um með Sinfóníuhljómsveit Íslands
og hlutu lofsamlega dóma, og óskaði
gagnrýnandi þá eftir að fá oftar að
heyra bræðurna leika hér á landi.
Síðan þá hefur Íslendingum einungis
tvisvar gefist tækifæri til að heyra
Dimitri leika hérlendis, og þá lék
hann í bæði skiptin á Ísafirði .
„Þá kom ég ekki hingað til að
spila, heldur var ég í heimsókn hjá
vinum mínum. Ég er hins vegar
hérna núna vegna þess að Tommi
[Tómas Guðni Eggertsson] bað mig
að koma og spila með sér og Sif hér í
Norræna húsinu. Og auðvitað vildi
ég gjarnan koma og spila með þeim!
Ég kom á þriðjudag í síðustu viku og
þá byrjuðum við að æfa okkur,“ segir
Dimitri í samtali við Morgunblaðið.
Samtalið fer fram á íslensku þar sem
hann talar tungumálið reiprennandi,
en hann bjó hér á landi til níu ára
aldurs. „Ég reyni,“ segir hann og
brosir þegar blaðamaður hrósar
honum fyrir lipurðina.
Mozart með pabba
Dimitri er búsettur í Luzern í
Sviss, en ferðast þaðan og kemur
fram og heldur masterclass-nám-
skeið víða um heim. Hann segir
margt á dagskrá á næstunni og er
förinni meðal annars heitið til Spán-
ar og Ítalíu. „Þangað til um miðjan
júní verð ég á nær stanslausu ferða-
lagi,“ segir Dimitri. Jafnframt er
geisladiskur væntanlegur þar sem
hann leikur Mozart-klarinettukon-
sertinn með föður sínum, sem stjórn-
ar Tékknesku fílharmoníusveitinni.
„Það var mjög gaman að taka þann
geisladisk upp, en það var fyrir
tveimur árum og ég veit enn ekki
hvenær hann kemur út. Vonandi
verður það sem fyrst.“
Frekara tónleikahald Dimitris á
Íslandi er í deiglunni. Í mars á næsta
ári stendur til að hann leiki með
KaSa-hópnum, og í maí leikur Dim-
itri með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
konsert Franz Krommers fyrir tvö
klarinett, ásamt Einari Jóhannes-
syni. Dimitri segist hlakka mikið til
„Einar er svo frábær tónlistarmað-
ur,“ segir hann.
Aðspurður hvort Einar hafi nokk-
urn tíma verið einn af kennurum
hans á klarinett, svarar Dimitri að
hann hafi ekki verið byrjaður að
læra á hljóðfærið þegar hann flutti
héðan. „Ég var níu ára þegar ég
flutti frá Íslandi, en tíu ára þegar ég
byrjaði að læra á klarinett. Hins veg-
ar lærði ég á píanó frá sex ára aldri,
m.a. hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni.“
Á tónleikunum í dag eru verk eftir
Béla Bartók, Leonard Bernstein og
Sergei Prokofíev á efnisskránni.
Klarinettuleikarinn Dimitri Þór Ashkenazy á tónleikum í Norræna húsinu
„Auðvitað vildi
ég gjarnan
koma og spila“
Morgunblaðið/Jim Smart
Sif Tulinius, Tómas Guðni Eggertsson og Dimitri Þór Ashkenazy.
Norræna félagið, Óðinsgötu 7, kl.
20 Rithöfundurinn og útvarpsmað-
urinn Þorgrímur Gestsson heldur
fyrirlestur um söguslóðir Heims-
kringlu og Íslendingasagna í Nor-
egi.
Þorgrímur skrifaði bókina „Ferð um
fornar sögur – Noregsferð í fótspor
Snorra Sturlusonar“. Í fyrirlestr-
inum fer Þorgrímur í efni bók-
arinnar og fleira.
Bæjarleikhúsið í Mosfellsbæ kl.
20.30 Mosfellskórinn heldur vor-
tónleika sína. Aukatónleikar verða á
sunnudag kl. 20 á sama stað. Kórinn
flytur í bland ný og gömul lög.
Stjórnandi er Páll Helgason. Mos-
fellskórinn stefnir á söngferðalag til
Danmerkur og Svíþjóðar í júní.
Í DAG
Í MENNINGARMIÐSTÖÐINNI
Gerðubergi verða haldnir tónleikar
til heiðurs Gunnari Reyni Sveinssyni
tónskáldi í kvöld kl. 20. Tónleikarnir
eru undir yfirskriftinni Maður hefur
nú… og koma þar fram Kammerkór
Suðurlands undir stjórn Hilmars Ö.
Agnarssonar, Djasskvartett Árna
Schevings, Anna Sigríður Helga-
dóttir mezzósópran, Kristinn Örn
Kristinsson píanóleikari, Hrólfur
Sæmundsson baríton, Þórunn Lár-
usdóttir leikkona og fleiri. Kynnir er
Viðar Eggertsson og eru tónleikarn-
ir haldnir í samstarfi við Tónskálda-
félag Íslands.
Gunnar Reynir varð sjötugur í
fyrra og á að baki langan og fjöl-
breyttan feril sem tónskáld. Á efnis-
skrá tónleikanna er meðal annars
kórtónlist, einsöngslög, leik-
hústónlist og djass, en tónsmíðastíll
Gunnars Reynis spannar fjölmörg
stílbrigði frá framúrstefnu og raf-
tónlist til hins hefðbundna og á tón-
leikunum gefst kostur á að kynna
sér brot af tónsmíðum hans.
„Þetta er æði fjölbreytt efnisskrá
og mikið úrvalslið sem flytur,“ segir
Gunnar Reynir í samtali við Morg-
unblaðið. „Við ætlum að enda tón-
leikana á númeri, sem ég var að
enda við að gera og heitir Hættur að
frelsa heiminn, eftir Nikulás Norðan
og Gunnar Reyni
Sveinsson. Og
ljóðið hljóðar svo:
Víst er ég valtur
og gleyminn, við-
utan, hræddur og
feiminn. En mér
gagnast á móti
sá gæðanna
kvóti, að vera
hættur að frelsa
heiminn.“
Gunnar Reynir Sveinsson fæddist
í Reykjavík árið 1933. Hann hóf ung-
ur hljóðfæranám á slagverks-
hljóðfæri en einbeitti sér snemma að
víbrafónleik. Hann var um árabil
einn af fremstu djasstónlist-
armönnum okkar og lék með fræg-
um djasstónlistarmönnum víða um
lönd, meðal annars Ronnie Scott,
Chet Baker, Lee Konitz, Grappelli
og Sven Asmundssen. Hann stund-
aði nám í tónsmíðum og tónfræðum
hjá Jóni Þórarinssyni við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
útskifaðist árið 1961. Hann var í
framhaldsnámi við Amsterdams
Conservatorium á árunum 1964–68
og var aðalkennari hans þar Ton de
Leeuw, eitt frægasta tónskáld Hol-
lands. Þá dvaldi hann við nám í raf-
tónlist á árunum 1973–75, í Utrecht
við Institut voor Sonologie, undir
handleiðslu Gottfried Michael Kön-
igs, eins helsta frumkvöðuls raf- og
tölvutónlistar í heiminum.
Gunnar Reynir er afkastamikið
tónskáld og er verkalisti hans fjöl-
skrúðugur. Má þar nefna Sam-
stæður, kammerdjass fyrir kvintett,
Missa piccola fyrir blandaðan kór,
einsöngvara, flautu og orgel, Burt-
flognir pappírsfuglar og Bréfbátar í
rigningu fyrir blásarakvintett, Net
til að veiða vindinn og Ég sá sól-
skinið koma gangandi fyrir
strengjakvartett, Hveralitir fyrir pí-
anó, sönglagabálkana Úr saungbók
Garðars Hólm við ljóð Halldórs Kilj-
ans Laxness, Undanhald samkvæmt
áætlun við ljóð Steins Steinarr og
Tónmyndaljóð og Hlér og kenndir
við ljóð Hrafns Andrésar Harð-
arsonar. Einnig má geta söngleikj-
anna Undir suðvesturhimni við texta
Sigurðar Pálssonar og Fögru veröld
við texta Tómasar Guðmundssonar,
kvikmyndatónlistarinnar við Land
og syni og Kristnihald undir jökli og
leikhústónlistarinnar við Stund-
arfrið eftir Guðmund Steinsson og
Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson.
Eru þá enn óupptaldar margvíslegar
þjóðlagaútsetningar, einleiksverk
fyrir píanó og orgel og skondin dæg-
urlög eins og Maður hefur nú… og
fjölmörg tækifærisverk.
Hættur að frelsa heiminn
Morgunblaðið/Jim Smart
Aðstandendur tónleikanna, sem haldnir verða til heiðurs Gunnari Reyni Sveinssyni í Gerðubergi í kvöld kl. 20.
Gunnar Reynir
Sveinsson
Miðvikudagur
Edda - Útgáfa Vefsvæðið
www.gagnasafn.is verður opnað.
Kringlusafn kl. 10 Svipast um í
hverfinu. Fuglaverkefni frá leikskól-
anum Hamraborg verður til sýnis og
börn þaðan, sem eru fastagestir á
safninu, koma í heimsókn og
skemmta gestum með fuglasöngv-
um. Farfuglar í formi bóka verða til
sýnis, þ.e. brot úr þýddum skáldsög-
um tveggja rithöfunda úr hverfinu,
þeirra Einars Kárasonar og Vigdísar
Grímsdóttur.
Höfði kl. 17 Fræðsluráð Reykja-
víkur afhendir barnabókarverðlaun
sín.
Vika
bókarinnar
♦♦♦
BORGARKVARTETTINN
heldur tónleika í Salnum í kvöld
kl. 20. Kvartettinn skipa Atli
Guðlaugsson, Ásgeir Páll
Ágústsson, Þorvaldur K. Þor-
valdsson og Þorvaldur Hall-
dórsson ásamt Ólafi Vigni Al-
bertssyni píanóleikara.
Á efnisskrá er m.a. „Barber-
shop“, negrasálmar, Foster-lög
o.fl. Auk þess eru sungnir dú-
ettar og einsöngslög. Kvart-
ettinn hefur aðallega komið
fram á skemmtunum en hefur
líka haldið sjálfstæða tónleika.
Borgarkvart-
ettinn syngur
í Salnum