Pressan - 09.11.1989, Qupperneq 8
8
Fimmtudagur 9. nóv. 1989
Stan igveiðimenn ótl rasl ásælt ii Ú1 tlendi ng< 3 í veiðiár
SVISSLENDINGUR VILL FÁ HAFRALÓNSÁ LEIGÐA
Það verður æ algengara að útlending-
ar taki islenskar veiðiár á leigu. í Þistil-
ffirði og nágrenni eru þrjár ár alfarið i
höndum útlendinga, Haffralónsá, Hölkná
og Deildará. Útlendur leigutaki Haffra-
lónsár falaðist efftir 10 ára leigusamn-
ingi. Erindinu var synjað en leigusamn-
ingur til þriggja ára framlengdur.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON
Þaö er Svisslendingur aö nafni
Doppler sem er í fyrirsvari þeirra út-
lendinga sem leigja árnar þrjár við
Þistilfjörð. Doppler kynntist Hafra-
lónsá fyrir allmörgum árum þegar
Guðjón Styrkársson lögfræðingur
var með ána á leigu. Arið 1983 tók
Doppler Hafralónsá og Hölkná á
leigu og Deildará bætti hann við i
vetur. Þá er sami maðurinn leigu-
taki að Haukadalsá skammt frá Búð-
ardal.
íslenskir stangveiðimenn óttast
að ásælni útlendinga leggist á eitt
með stöðugt hærra verðlagi um aö
gera almenningi illmögulegt að
stunda veiði í íslenskum ám. A nýaf-
stöðnum aðalfundi Landssambands
stangveiðifélaga voru árnar við Þist-
ilfjörð nefndar sem dæmi um hvert
stefndi.
Geðugur maður og
forríkur
Ralf Doppler er af heimamönnum
í Þistilfirði sagður geðugur maður
og sterkefnaður. Hann heldur hér til
mestanpart sumars og veiðir svo til
eingöngu í Hafralónsá. Hann dvelur
með eiginkonu og tveim dætrum í
glæsilegu og vel búnu veiðihúsi
skammt frá ánni. Mæðgurnar renna
líka fyrir fisk.
Doppler situr einn að Hafralónsá.
Samningar sem hann gerði við
veiðiréttarhafa Haukadalsár,
Hölknár og núna síðast Deildarár
voru jafnframt fyrir hönd annarra
Svisslendinga sem kunna að meta
íslenskar laxveiðiár. Auk Dopplers
sjálfs eiga einir fjórir landsmenn
hans aðild að samningunum. Þeir
félagar selja síðan erlendum veiði-
mönnum aðgang. Yfir sumarið
koma reglulega laxveiðimerin frá
Sviss og Þýskalandi til að stunda
veiðiskap í þessum þremur ám. Lítið
er um að Islendingum séu seld leyfi,
en þó var það gert í einhverjum
mæli í sumar og einkum í Hauka-
dalsá.
íslenskur maður, Torfi Ásgeirsson,
aðstoðar Doppler og félaga í sam-
skiptum við Islendinga. Torfi er um
þessar mundir í Sviss.
Tæpar tvær milljón-
ir á óri
Samningarnir um leigu á ánum
við Þistilfjörð eru áþekkir. Þeir eru
gerðir til þriggja ára í senn með
ákvæðum um framlengingu. Fyrir
utan beinar peningagreiðslur leggja
leigutakar til fjármagn til að byggja
veiðihús. Veiðihúsin eignast bænd-
urnir þegar níu ár eru liðin frá því
samningur var undirritaður.
Hafralónsá er Doppler svb kær að
hann fór fram á 10 ára leigusamning
í fyrra og bauðst til að greiða allt fyr-
irfram. Marinó Jóhannsson, for-
maður veiðifélags Hafralónsár, seg-
ir félagið hafa hafnað bón Dopplers
og framlengt samninginn um þrjú
ár.
Að sögn Marinós greiðir Doppler
44 þúsund svissneska franka á ári
.fyrir Hafralónsá, eðaum 1,7 milljón-
ir króna. Ársleigan fyrir Hölkná og
Deildará mun vera áþekk.
Meira að hafa upp
úr útlendingum
Til skamms tima voru ár á norð-
austurlandi ekki ýkja eftirsóttar af
Islendingum. Munaði mest um fjar-
lægðina frá suðvesturhorninu og lé-
legar samgöngur. Til dæmis var
ekki farið að veiða á stöng í Deildará
fyrr en árið 1957.
Eftir því sem stangveiðimönnum
fjölgaði og verð á veiðileyfum
hækkaði jókst eftirspurnin og ekki
þótti lengur tiltökumál að ferðast
um landið þvert og endilangt til að
komast í laxveiði.
Stangveiðimenn eru ekki par
hrifnir af því að útlendingar komist
yfir íslenskar veiðiár. Rafn Hafn-
fjörð, fráfarandi formaður Lands-
sambands stangveiðifélaga, sagði á
nýafstöðnum aðalfundi að ef fram
héldi sem horfði myndu íslendingar
nánast verða útilokaðir frá laxveiði-
ám. Þær væru ýmist leigðar útlend-
ingum eða verð á veiðileyfum svo
himinhátt að aðeins fáeinir forstjór-
ar stórra fyrirtækja hefðu efni á að
kaupa þau.
,,Eg skil sjónarmið stangveiði-
manna," segir Jóhann Hólmgríms-
son, einn af veiðiréttarhöfum Deild-
arár, ,,og auðvitað hef ég samúð
með landanum. En menn telja sig
hafa betra upp úr útlendingum og
ég býst við að það sé ástæðan fyrir
því að árnar eru leigðar þeim.“
Það eru samt ekki eingöngu út-
lendingar sem taka ár við Þistilfjörð
á leigu í heilu lagi. í vor gerðu þeir
Ólafur G. Einarsson alþingismaður,
Kjartan R. Jóhannsson, stjórnarfor-
maður Asiaco, Magnús Ólafsson
læknir og Garðar Svavarsson leigu-
samning um Sandá. Þeir lánuðu
meðal annars Svalbarðshreppi pen-
inga til að kaupa jörðina Flögu, sem
á tæplega 40 prósent af veiðiréttin-
um.
Helmingshækkun
næsta sumar
Það er ekki aðeins ásælni útlend-
inga sem hrellir stangveiöimenn.
Fyrirhugað er að setja virðisauka-
skatt á sölu veiðileyfa.
„Virðisaukaskatturinn þýðir að
verð á veiðileyfum hækkar um
helming, miðað við það sem nú er.
Veiðiréttarhafar hækka leyfið um
25 prósent vegna verðbólgu í ár og
ef virðisaukaskatturinn bætist við
nemur hækkunin 50 prósentum,"
segir Rafn Hafnfjörð.
Stangveiðimenn ætla ekki að láta
viröisaukann ganga yfir sig hljóða-
laust. Þeir benda á að rétt eins og
íþróttir eru undanþegnar skattinum
ætti veiðiskapurinn að vera það
líka.
„Það eru um 60 þúsund íslending-
ar sem stunda reglulega stangveiði.
Þetta er heilsusamleg útivist og ég
skil ekki að ráðamenn ætli að halda
þeirri stefnu til streitu að leggja virð-
isaukann á veiðileyfi," segir Rafn.
■' ,>V C-*. ' w:~
->• ’ - ••v'- '•’