Pressan - 07.12.1989, Page 8

Pressan - 07.12.1989, Page 8
m?r 36butmmi;i 8 VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM ÚtKeíandi: Kitstjórar: Blaóamenn: Ljosmyndari: Útlit: Bróíarkalestur: Framkvæmdastjóri: Auglýsingastjóri: Blaó hí. Jónína Leósdóttir Omar Frióriksson Anna Kristine Ma^núsdóttir Páll Vilhjálmsson Kinar Olason Anna Th. Köf»nvaldsdóttir Sigríöur H. Giínnarsdóttir Hákon Hákonarson Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, simi: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýöublaðið: 1000 kr. á mánuöi. Verð i lausasölu: 150 kr. eintakið. ÞRÓUNARHJÁLP Rýr framlög íslendinga til þróunarhjálpar eru skanim- arblettur á þjóðinni. ísland vermir botnsæti meðal iðn- ríkjanna á Vesturlöndum miðað viö fjárframlög í hlut- falli af þjóðartekjum og hafa framlögin ekkert aukist aö undanförnu þrátt fyrir samþykktir Alþingis og ríkis- stjórna. A næsta ári er gert ráð fyrir að Þróunarsam- vinnustofnun íslands fái 64 milljónir á fjárlögum og heildarframlög til þróunarmála og hjálparstarfsemi nema 110 milljónum. íslendingar greiða enn innan við 0,1% af þjóðartekjum til þróunaraðstoðar og er það hlut- fall langt fyrir neðan framlög nágrannaríkjanna til þess- ara mála. Islendingar eru meðal ríkustu þjóða heims ef miðað er við verðmætaframleiðslu á hvern einstakling. Það dugir ekki að vísa til efnahagserfiðleika heima fyrir þegar reynt er að svara gagnrýni á framlag íslendinga til þró- unarhjálpar. Önnur Evrópuríki hafa gengið í gegnum efnahagsáföll á undanförnum árum án þess að dregið hafi úr framlögum Vesturlanda til þessara mála. Fram hefur komið að Þróunarsamvinnustofnunin hefur skuld- bundið sig til ýmissa brýnna verkefna í Afríku en úthlut- un til stofnunarinnar af fjárlögum næsta árs nægir ekki til að sinna þeim og gæti fjárveitingin þannig orðiö einskis nýt ef ekki verður bætt um betur við afgreiðslu fjárlaganna. Sennilega hafa Islendingar of lengi vanist skammtíma- úrlausnum í eigin efnahagsvanda til að sjá gildi þess að standa við alþjóðlegar skuldbindingar um hjálp í neyð vanþróaðra ríkja. Svo er það aðeins lágmarkskrafa að Alþingi standi við eigin samþykktir og auki framlögin þegar í stað. Á sama tíma og framlög til Þróunarsam- vinnustofnunar hækka um aðeins 7% á milli ára er gert ráð fyrir 15% hækkun á rekstrarkostnaði ríkisins í fjár- lagafrumvarpinu. Það hljóta að finnast leiðir til að skera niður útgjöld til rekstrar, jafnvel þjónustu, svo hækka megi framlag þjóðarinnar til þróunarhjálpar og íslend- ingar geti staðið sæmilega uppréttir meðal vestrænna þjóða, sem veita fé til verkefna og annars hjálparstarfs í þróunarríkjunum. Fimmtudagur 7. des. 1989 IS JLb m ||lv|| Pólitísk þankabrot skrifa Birgir Árna- *■ ■ ■ ^VI so/i, aöstoöarmaður viöskipta-og iön- aðarráðherra, Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, og BolliHéð- insson hagfræðingur. Flokkur án kjölfestu „En skaðinn er skeður. Forystumenn Sjálf- stæðisflokksins eru búnir að taka skakkan pól i hæðina í þessu mikilvæga máli og héð- an í frá bíta hvorki á þeim rök né skynsam- legar fortölur." Á undanförnum árum hafa margir Alþýðuflokksmenn — þar á meðal formaður flokks- ins fyrir síðustu kosningar — gælt við hugmyndina um rík- isstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks — nýja við-. reisn. Raunar hafa ýmsir gengið svo langt að kalla slíka ríkis- stjórn þjóðarnauðsyn til þess að koma fram þeim umbót- um sem þarf í íslenskum efnahagsmálum til að leiða íslendinga inn í tuttugustu og fyrstu öldina. Undanfarnar vikur og mánuði hefur þessi hugmynd hins vegar verið að fá á sig sífellt sterkari svip for- tíðardýrkunar. Sökin er ef- laust beggja eins og jafnan en frá mínum bæjardyrum séð er hún þó fyrst og fremst Sjálfstæðisflokksins og for- ystu hans. Sjálfstæðisflokkurinn er í raun rekald um þessar mund- ir. Hann er forystulaus og hann er einnig stefnulaus. Um forystuleysið þarf vart að fjölyrða. Það blasir við og breytir engu þótt Davíð Oddsson hafi verið dubbaður upp í varaformann á lands- fundi flokksins í haust. Davíð Oddsson er ekki og verður ekki um langa hríð í forystu Sjálfstæðisflokksins í lands- málunum. Raunar er full- komlega óráðið hvort borgar- stjórinn í Reykjavík er gædd- ur þeim hæfileikum sem far- sæll stjórnmálaleiðtogi þarf á að halda. Stjórn hans í borg- inni hefur einkennst af frekju og yfirgangi og að því er virð- ist djúpstæðri þörf fyrir stein- steypta minnisvarða. Það er dapurleg staðreynd að sjálf- stæðismenn skuli binda allar sínar leiðtogavonir við þenn- an eina mann. -o-o-o- Stefnuleysi Sjálfstæöis- flokksins er ekki síður aug- Ijóst en ég ætla þó að nefna nokkur atriði sem sýna að þar er í besta falli að finna óvissan stuðning við nauð- synlegar umbætur. Alþýðuflokksmönnum er í fersku minni þegar sjálfstæð- ismenn hurfu frá stuðningi við samræmdan söluskatt haustið 1988 og gengu þar með af ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar dauðri. Sú ákvörð- un var ekki aðeins ábyrgðar- leysi gagnvart samstarfsaðila í ríkisstjórn heldur einnig gagnvart stjórn ríkisfjármála og hefur hún dregið alvarleg- an dilk á eftir sér í því efni. Vegna þessarar ákvörðunar hafa sjálfstæðismenn hrakist til þess að mæla fyrir tveimur þrepum í virðisaukaskatti þótt þeir hafi sjálfir átt drjúg- an þátt í að setja lög um eins þreps virðisaukaskatt og viti vel að tveggja þrepa skattur er illframkvæmanlegur. Þess- ir hrakningar eru ekki traust- vekjandi. Það er óumdeilt að brýn þörf er á umbótum á skipu- lagi og stjórnun í sjávarútvegi og landbúnaði. Það liggur líka fyrir hvert þessar um- bætur þurfa að stefna. í sjáv- arútvegi þarf að koma á veiðileyfasölu við stjórnun fiskveiðanna. Og í landbún- aði þarf að auka samkeppni jafnt innanlands sem erlendis frá. Sjálfstæðisflokkurinn fékk kjörið tækifæri til að gera þessi mál að sínum á landsfundi flokksins í haust. En hann lét ekki aðeins tæki- færið ganga sér úr greipum heldur beinlínis hafnaði hann þessum kostum. Það er von að spurt sé hvar frjálslyndið og umbótaviljann sé að finna þar á bæ. Og nú hefur það bæst við að forystumenn Sjálfstæðis- flokksins á Alþingi hafa for- heimskast í Evrópumálum. Þeir hafa annars vegar krafist þess að Islendingar segðu sig frá samstarfi EFTA-ríkjanna um viðræður við Evrópu- bandalagið og færu þess í stað fram á tvíhliða viðræður við bandalagið og hins vegar heimtað að Alþingi veitti ut- anríkisráðherra formlegt um- boð til þessara viðræðna. Þessi málatilbúnaður er í báðum atriðum svo augljós- lega andstæður íslenskum hagsmunum að mörgum ein- lægum sjálfstæðismönnum hefur ofboðið. Talsmenn sam- taka í sjávarútvegi sem þó voru bornir fyrir fyrra atrið- inu hafa algjörlega afneitað króganum. Og ég bendi mönnum á að lesa Reykjavík- urbréf Morgunblaðsins frá því síðastliðinn sunnudag. Á ritstjórnarskrifstofunum þar ríkir greinilega ekki mikill fögnuður yfir framgöngu for- ystu Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. En skaðinn er skeður. Forystumenn Sjálf- stæðisflokksins eru búnir að, taka skakkan pól í hæðina i þessu mikilvæga máli og héð- an í frá bíta hvorki á þeim rök né skynsamlegar fortölur. Um það er reynslan ólygnust. í grein í Álþýðublaðinu á laugardaginn í síðustu viku sagði Guðmundur Magnús- son, sagnfræðingur og sér- stakur starfsmaður Sjálfstæð- isflokksins fyrir landsfundinn í haust, orðrétt um Alþýðu- flokkinn og Sjálfstæðisflokk- inn „Málefnalega eiga þessir tveir flokkar meiri samleið en nokkrir aðrir stjórnmála- flokkar. Afstaða þeirra til stærsta úrlausnarefnis stjórn- málanna á næstunni, tengsla Islands við önnur Evrópuríki, er í grundvallaratriðum hin sama.“ Eg verð að viður- kenna að eftir það sem á und- an er gengið þykir mér holur hljómur í þessari ályktun Guðmundar. Það er að minnsta kosti deginum Ijós- ara í mínum huga aö Alþýðu- flokksmenn eiga enga sam- leið með núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins og læt ég þá liggja milli hluta ofstæki hennar í garð formanns Al- þýðuflokksins. -o-o-o- Samkvæmt skoðanakönn- unum nýtur Sjálfstæðisflokk- urinn nú stuðnings um og yfir helmings þjóðarinnar. Miðað við þann hringlanda í málum sem varða þjóðarhagsmuni sem hefur verið í þeim flokki er þetta mikla fylgi auðvitað áhyggjuefni. Það má þó hugga sig við það að líklega sé nær lagi að telja þá sem gefa upp stuðning við Sjálf- stæðisflokkinn í skoðana- könnunum til óákveðinna fremur en væntanlegra kjós- enda flokksins. Eða hvaða ástæðu hefur fólk til þess að bera traust til þessa flokks sem um þessar mundir hefur enga kjölfestu? hin pressan „Það er erffitt ffyrir menn í útlöndum að skilja það sem er að gerast hér.## — Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráöherra i DV. ,,Og nú sídustu mánuöina eru samfarir á skján- um aö veröa dag- legt brauö.“ — Úr lesendabréfi i DV. „Hún þarf ekki að éta nema eina lifandi mús á mánuði til að þrífast." — Sjómaður á Eskifirði i samtali við DV um kyrkislöngu sem hann hafði haft fyrir gæludýr. „.. .úr þvi að fimmtugar konur væru farnar að senda frá sér ævisögur hlyti röðin að vera komin að honum, 75 ára göml- um manninum!" — Eðvarð Ingólfsson rithöfundur um æviminningar Árna Helgasonar i Stykkishólmi (Pjóðviljinn) ,,Þaö er erfitt aö gera upp á milli skjala. . “ — Svanhildur Bogadóttir borgar- skjalavörður i samtali við Þjóðvilj- ann. Enginn gerði sér betri grein fyrir hugmyndum manna um raunveruleika skýjaborganna í byrjun aldarinnar en einmitt skáldið Einar Benediktsson. — Garri i Timanum. „.. .þaö hefur aldrei samrýmst íslenskri skapgerð að kyssa á vöndinn." — Úr lesendabréfi i Velvakanda Morgunblaðsins.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.