Pressan - 07.12.1989, Qupperneq 20

Pressan - 07.12.1989, Qupperneq 20
20 Fimmtudagur 7. des. 1989 PRESSU £1 ^Muknar kröfur í þeim nams- greinum háskólans þar sem sam- keppni er hvaö hörðust, til dæmis í tannlækningum, valda tauga- spennu og vanlíöan hjá sumum nemendum. Til aö bregðast viö þessum aðstæöum býöur háskólinn upp á námskeið vegna prófkvíða. Fyrsta námskeiðið fór af staö í síð- asta mánuði og komust færri að en vildu. Þegar er farið að skrá í næsta námskeið... I bók Þóru Einarsdóttur í Vernd lýsir höfundurinn m.a. spjalli, sem hún átti við Indíru heitna Gandhi á Indlandi. Segir Þóra að forsætisráðherrann ind- verski hahlýst mikilli löngun til að komast til íslands. Sérstaklega mun Indíru hafa langað til að upplifa þaö að setjast út í heitan nuddpott, sem er við heimili Þóru í Hveragerði. . . o ^^ins og við sögðum frá í síðasta blaði var allt eins búist við því að reynt yrði að setja lögbann á bók Hebu Jónsdóttur, Sendiherra- frúin segir frá, sem Skjaldborg gefur út. Þegar síðast fréttist hafði þó engin tilraun verið gerð til þess að stöðva sölu bókarinnar. Þar sem henni hefur nú verið dreift í stóru upplagi um allt land er ólíklegt að það verði gert úr þessu. . . A ^^kki alls fyrir löngu var opnaö- ur nýr veitingastaður við Lauga- veginn, Asía. Staður þessi er í eigu tveggja útlendinga, þeirra Kára frá Víetnam og Gilberts frá Hong Kong, en þeir félagar reka einnig veitingahúsið Sjanghæ við Lauga- veginn. Eftir því sem okkar heimild- ir herma þurftu veitingamennirnir ekki að taka lán til að kaupa hús sem Útvegsbankinn átti á horni Laugavegar og Bergstaðastrætis, heldur hafi ein milljón í yfirdráttar- heimild nægt þeim... Þ að vekur athygli að flest af vinsælustu veitingahúsum borgar- innar eru í eigu útlendinga. Á móti Asíu við Laugaveg stendur Italía sem er í eigu Önnu Peggy Frið- riksdóttur sem er kínversk/ind- versk, örlitlu ofar er Sjanghæ í eigu Kára Víetnama og Gilberts frá Hong Kong og nokkru ofar eru Sushi-barinn og Taj Mahal sem Peggy á einnig. Þá á Peggy veitinga- staðinn Bandidos, mexikanskan stað við Hverfisgötuna. Þess má geta í framhjáhlaupi að sárafáir ís- lendingar starfa á þessum stöðum og útlendingarnir munu verða sér úti um fjármuni með góðum rekstri... k ^nurnar í Kvenréttindafé- lagi íslands eru mjög leyndar- dómsfullar þessa dagana. Þær hafa boðað til jólafundar á Hallveigar- stöðum næstkomandi mánudags- kvöld og látið þau boð út ganga að von sé á leynigesti. Það eina, sem þær vilja segja um gestinn, er að hann sé karlkyns og einn sá ólíkleg- asti, sem nokkrum dytti í hug að hitta á fundi hjá KRFI. .. ÍFramkvæmdastjórn Listahátíð- ar mun vera langt komin með samninga við erlendar listastjörnur fyrir listahátið næsta sumar. Meðal þeirra sem talið er öruggt aö komi eru sovéski píanósnillingurinn Andrej Gavrilov sem vakiö hefur heimsathygli. Þá mun Vínar- drengjakórinn koma á listahátið og nú fá djassunnendur glaðning úr austri því rússneski djasspíanistinn Leonid Chizhik mun leika með ís- lenskum djassistum á djasskonsert listahátíðar. Búist er við að bráða- birgðadagskrá hátíðarinnar verði kynnt fljótlega upp úr áramótun- um. . . SENDUM DAUÐVONA DRENG PÓSTKORT! I sjúkrahúsi á Englandi bíð- ur sjö ára drengur þess að deyja. Hann er meðal annars með æxli við heila og á skammt eftir ólifað. Heitasta ósk hans er sú að nafn hans komist í Heimsmetabók Gu- inness og til að ná því marki langar hann að verða sá sem fær flest póstkort. Við Islendingar skulum ekki láta okkar eftir liggja. Sendum þessum litla dreng póstkort og leggjum okkar af mörkum til þess að nafn hans lifi áfram. Kortin sendist til: Craig Shergold 56 Selby Road Carshalton Surrey United Kingdom. Hreinsið teppin sjálf á ódýran og auöveldan hátt. Nýjar og liprar vélar. Opiö alla daga 10—22. Pantanir í síma 612269. Teppavélaleiga Kristínar Nesbala 92a, Seltjarnarnesi. Makita slípirokkur Peugeot borvél Expressó kaffívél í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar jólagjafir við allra hæfí og á jólamarkaði á 2. hæð er mikið úrval skrauts og gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst einnig allur húsbúnaður og heimilistæki, öll áhöld og efni sem þarf til að fegra og prýða heimilið fyrir jólin. M Kryddhilla Útvarp/kassettutæki Piparkökuhús SKÚTUVOG116 SÍMI 687700 Jólatilboð Húsasiriiðjimnar

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.