Pressan - 07.12.1989, Qupperneq 24
24
Fimmtudagur 7. des. 1989
bridge
Til þess að eiga fyrir innákomu
er frumskilyrði að um 5-lit sé að
ræða — segja fræðibækurnar. En
stíllinn í leiknum verður æ hvass-
ari og „ströggl" á lítil spil en
þokkalegan 4-lit sjást oft.
Markmiðið er vitaskuld aö
benda á útspil, og einnig getur
hent að andstæðingarnir leiöist í
rangan samning.
♦ Á2
V 875
♦ KDG105
4»KG3
4 KDG9
y dg
♦ 9762
4 865
4 1043
V Á10962
♦ 4
4 ÁD107
4 8765
V K43
♦ Á83
4 942
Samningurinn leit ekki vænlega
út eftir spaðaútspil; tapari á tígul
og spaða og minnst tveir á tromp.
En suður eygði möguleika. Hann
spilaði fjórum sinnum laufi og
kastaði spaða úr blindum. Austur
trompaði og spilaði trompi til baka
(engu breytir þótt vestur trompi).
Sagnhafi vann á ás og spilaði tígli
á ás vesturs, og vörnin fékk aðeins
slag á hjartakóng til viðbótar.
Trompáttan í borði var innkoma
og spaðatöpurunum heima var
kastað í tígulinn.
Auðvelt. Aðeins þurfti laufið
3—3 og trompið 3—2 með eitt há-
spil á hendi þess sem hélt á þrílitn-
um í trompi.
Norður gefur, sveitakeppni og
NS á hættu, og opnar á 1-tígli.
Austur kom óragur inn á 1-spaða
og 2-hjörtu í suður. Vestur studdi
spaðann. Nú mátti heita útilokaö
að ná 3-gröndum (sem vinnst auö-
veldlega í 4—4-spaðalegunni) og
sagnir enduðu í 4-hjörtum.
skák
Frönsk
skákhefd og ensk
Frakkar höföu forystu í skák-
heiminum í nærri hálfa öld. Café
de la Regence var háborg skáklist-
arinnar og á langri sögu þessa
fræga skákstaðar var þar oftast
einn snillingur sem hafði yfirburði
yfir alla aðra. Sá maður var sómi
hússins og prýði, hann gat setið
þar í ylnum frá aðdáendum sínum
og teflt við hvern sem þorði að
koma og reyna. Sumir þessara
manna tefldu ekki við nokkurn
mann nema með forgjöf. Oft var
peð og leikur gefið í forgjöf,
þá hafði meistarinn svart og peðið
á f7 var tekið af borðinu áður en
skákin hófst. Stundum gaf meist-
arinn peð og tvo leiki. Þá hafði
hann svart og tefldi án peðsins á
f7, en andstæðingurinn fékk að
leika tvisvar áður en svartur byrj-
aði. Loks var það til að gefa ridd-
ara eða hrók í forgjöf. Þá hafði
meistarinn hvítt og tefldi án
drottningarriddara eða drottning-
arhróks. Mesta forgjöfin var
drottningarforgjöf, henni var ekki
beitt nema gegn byrjendum eða
miklum skussum.
Á tímabilinu frá því um 1790 og
fram yfir 1840 má tala um röð
franskra skákkónga. Fyrstur var
Philidor sem getið hefur verið
rækilega hér í þáttunum. Arftaki
hans var Deschappelles sem einn-
ig hefur verið getið hér. Hann var
afar snjall skákmaður og raupsam-
ur í meira lagi að því er sögur
herma. Ekki eru til skráðar nema
niu af skákum hans og allar tefldar
með forgjöf. Ein þessara skáka var
birt hér í þættinum af Deschapp-
elles.
Það var la Bourdonnais sem tók
við af Deschappelles. Hann var 17
árum yngri og var fyrst lærisveinn
meistarans en seig svo fram úr
honum. Þá var það að Deschapp-
elles sneri sér að því að spila vist
en hætti að tefla eins og áður er
getið. Um þetta leyti voru Bretar
farnir að spjara sig talsvert í skák-
iþróttinni og la Bourdonnais
dvaldist lengi í Englandi og tefldi
við Macdonnell eins og sagt var
frá í nokkrum þáttum. í skákum
þeirra gat að líta glæsilega hug-
kvæmni en einnig stórkostlegar
yfirsjónir.
Fjórði og síðasti franski skák-
kóngurinn var svo Saint Amant,
en frá honum verður sagt í næsta
þætti.
Ensk skákhefð er nokkru yngri
en sú franska, en fyrir miðja 19.
öld eru þó komin fram skákfélög í
London og þaðan er stýrt bréf-
skákum við Skota og Frakka á ár-
unum milli 1830 og 1840. í
London rís svo miðstöð skákar er
gegnir líku hlutverki og Café de la
Regence í París. Þetta er veitinga-
húsið Simpsons Divan við Strand
sem lifir góðu lífi enn í dag þótt
ekki sé það lengur samkomustað-
ur skákmanna. Þar hanga myndir
á veggjum sem minna á forna
frægðartíð og þar eru geymdir
taflmenn sem fremstu taflmeistar-
ar Breta á nítjándu öld tefldu með.
Þarna tefldi þingmaðurinn
Marmaduke Wywill sem varð
fremstur Breta á fyrsta alþjóða-
mótinu í skák. Annar af fremstu
skákmönnum Breta á þessum
tíma var sagnfræðingurinn
Thomas Henry Buckle, höfundur
hinnar frægu menningarsögu (A
History of Civilization in Eng-
land). En frægastur þessara
manna á skáksviðinu var tvímæla-
laust Howard Staunton sem sagt
verður frá í næstu þáttum.
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
krossgátan
1 2 3 4 5 6
17 18 19 20 21 22
10 11 12 13 14 15
oyesjöífo
Verdlaunakrossgáta nr. 63
Skilafreslur er til 19. desember og ulanáskriflin er: PRESSAN, krossgáta
nr. 63, Ármúla 36, 108 Reykjavík. í verdlaun aö þessu sinni er bók eftir
íslenskan höfund, Guðbjörgu Hermannsdóttur. Hér er á ferdinni hörku-
spennandi ástarsaga sem ber heitid „Víða liggja leiðir“ og er gefin út af
Skjaldborg.
Dregiö hefur verid úr réttum lausnum á 61. krossgátu og upp kom nafn
Dóru Bergþórsdóttur, Goðheimum 4, Reykjavík. Dóra fœr senda bók-
ina Kveldskin eftir GunnarS. Sigurjónsson sem Skjaldborg gefur sömu-
leidis út.