Pressan - 07.12.1989, Side 32

Pressan - 07.12.1989, Side 32
PRESSU ■ ■ýju jafnréttislögin eru nú að líta dagsins Ijós á Alþingi, en í þeim er að finna ýmsar breytingar frá núverandi fyrirkomulagi. Jafn- réttisráð mun t.d. stækka, því sam- kvæmt nýju lögunum fá allir þing- flokkar að tilnefna einn fulltrúa í ráðið. Hæstiréttur hættir líka að skipa formanninn, því hann verður í framtíðinni skipaður af félags- málaráðherra. Ginnig er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að sett verði á laggirnar sérstök þriggja manna kærunefnd hjá jafnréttisráði, svo sjálft ráðið geti einbeitt sér að stefnumótun. Kærunefndina skipa fulltrúar frá Kvenréttindafélagi Is- lands, félagsmálaráðherra og Hæstarétti.. . A ^P^ins og menn muna eflaust lögðu flugfreyjur ríka áherslu á það í siðustu samningum sínum að fá sokkabuxur sem hluta af ein- kennisbúningi. Innkaupadeild Flugleiða gerði samning við um- boösaðila á ákveðinni sokkabuxna- tegund, sem flugfreyjur nota nú við störf sin. Umboðsaðilinn heitir Magnús Nordal og er flugstjóri hjá Flugleiðum. . . ii ^^^ndanfarið hefur boriö æ meira á því aö nýútskrifaöir há- skólastúdentar sækist eftir störfum hjá ríkinu. Sagt er að einkum séu ný- útskrifaðir viðskipta- og lögfræð- ingar áberandi meðal þeirra sem falast eftir stöðum í ríkisgeiranum, sem bendi annaðhvort til þess að einkageirinn sé mettaður orðinn eða að fyrirtækin haldi að sér hönd- um á tímum gjaldþrota og samdrátt- ar. Eru sögð dæmi þess að útskrifað háskólafólk vinni við afgreiðslustörf í bönkum og öðrum þjónustustofn- unurn sem til þessa hefur ekki þurft sérlega háskólamenntun til. . . ^^iöustu kvöld hefur Stöð 2 birt niðurstöður úr skoðanakönnun SKÁÍS um fylgi flokkanna o.fl. Enn sem komið er hefur stöðin ekki birt niðurstöður úr lokaspurningu könn- unarinnar sem var um það hvort svarendur teldu að Stöð 2 hefði nei- kvæð eða jákvæð áhrif á samfélag- ið... ^^^nn eru í gangi viðræður um sameiginlegt framboð minnihluta- flokkanna í borgarstjórn fyrir kosn- ingarnar í vor, þrátt fyrir dræmar undirtektir margra flokksmanna í öllum flokkunum. Hafa Birtingar- menn einkum beitt sér fyrir sam- runa eins og komið hefur fram. Þá höfum við heimildir fyrir því að rætt hafi verið um að fá Guðrúnu Agn- arsdóttur, þingkonu Kvennalista, til að gefa kost á sér til borgarstjórn- ar sem kandídat vinstriflokkanna gegn Davíð Oddssyni í borgar- stjórastól... Mlýjasti „spútnikkinn" í veit- ingabransanum er Þorleifur Björnsson sem rekur Tunglið, Fimmuna, Casablanca og Café Hressó, sem hann keypti af Hag- skiptamönnum, Sigurði Erni Sig- urðarsyni og Sigurði Garðars- syni. I síðustu viku bættist veitinga- húsið Sælkerinn í umsvif Þorleifs. Það er ekki langt síðan hann lét fyrst til sín taka í veitingarekstri. Fyrir nokkrum misserum var hann út- gerðarmaður togarans Þorleifs Jónssonar. Þorleifur var líka einn af þeim kaupmönnum sem fyrstir hófu verslun í Kringlunni og var með tvær búðir, Skæði og Stefan- el.. . ^yrsta bókin sem náði því að verða uppseld þessa jólavertíð er Fransí biskví eftir Elínu Pálma- dóttur. Fyrstu 3.500 eintök bókar- innar seldust upp um helgina. . . b.. þingis í nokkrar stjórnir, nefndir og ráð innan ríkisgeirans fari fram á fimmtudag í næstu viku. Sáralitlar líkur eru taldar á að Stefán Val- geirsson hljóti endurkjör í for- mennsku bankaráðs Búnaðar- bankans. Talið er mjög líklegt að Eyjólfur K. Sigurjónsson, núver- andi bankaráðsmaður í Lands- bankanum af hálfu Alþýðu- flokks, verði næsti formaður banka- ráðs Landsbankans, en því gegnir í dag Pétur Sigurðsson Sjálfstæð- isflokki. Þá þykir tíðindum sæta að Kvennalistinn ætlar örugglega að tilnefna fulltrúa í bankaráð Lands- bankans. Þá mun vera kominn upp slagur innan Framsóknarflokks- ins um hver eigi að taka við for- mennsku í tryggingaráði af Helgu Jónsdóttur. Ekki höfum við þó fregnað hverjir bítast þar um bit- ann.. . <1..................i vers hafa enn á ný blossað upp. Yfir- lýsing Vals Arnþórssonar um að ríkið hafi gefið Eyfirðingum munnlegt loforð fyrir áratug um að næsta stóriðja yrði reist á Eyjafjarð- arsvæðinu hefur vakið athygli. í því sambandi má þó benda á að í milli- tíðinni gerðist það að Eyfirðingar höfnuðu álveri fyrir nokkrum árum af umhverfisástæðum. Nú er spurt í stjórnkerfinu hvort munnlegi samn- ingurinn sem Valur vitnar til hafi ekki við þaö fallið um sig sjálfur. . . Cl dögunum var Davíð Odds- son borgarstjóri í sextugsafmæli flokksbróður síns, Brynleifs Stein- grímssonar bæjarfulltrúa austurá Selfossi. Þar bar það til tíöinda að Davíð bauð öllum bæjar- og sveitar- stjórnarmönnum á Selfossi, Stokkseyri og Eyrarbakka í tveggja daga kynnisferð til Reykja- víkur á kostnað borgarinnar og munu fulltrúarnir þegar vera farnir að undirbúa borgarferðina. Nú er aðeins spurt hvort borgarstjórinn ætli að láta þar viö sitja eða gera fleiri sveitarstjórnarmönnum álíka boð, en sveitarfélögin i landinu eru sem kunnugt er nálægt 200 tals- ins... I/ ÁVEXTIR w SUMARSINS Geyma Gullna Orku drykkur, mildari en óblandaðir safar og fer því betur í maga. Aþpelsínu-nektar er unnin úr úrvah appehínum og Trópikal-nektar úr anan- as, perum, eplum og appehínum. Gullin safifrá ~”7Ti **•**" ,/ro"“'“ j ávaxtadrykkja. Við hjá Sól kynnum nýjan íslenskan ávaxta- drykk sem sameinar bragðgœði, ferskleika og hollustu. Nýju ávaxtasafarnir heita Nektar, sem er œvafomt heiti á ódáinsdrykk hinna fornu guða Grikkja og Rómverja. Nektar er mildur og

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.