Pressan - 06.02.1992, Side 5
F
M. yrir nokkru var greint fra blaði
sem Röskva, félag vinstrimanna í
Háskóla íslands, safnaði auglýsing-
um í á þeim forsendum að það væri
gefið út til styrktar fötluðum við Há-
skólann. Kvörtuðu sumir auglýs-
endur undan því, að gefið hefði ver-
ið í skyn að blaðið kæmi út á vegum
Háskólans en hljóðar farið með
nafn Röskvu. I framhaldi af þessu
gerði háskólarektor athugasemdir
við þessi vinnubrögð röskvumanna.
Athygli vekur hins vegar að enn hef-
ur ekkert heyrst af stofnun sjóðsins,
sem bæta átti hag fatlaðra við skól-
ann. Sögusagnir eru uppi um erfiða
skuldastöðu Röskvu, sem reynist
væntanlega enn erfiðari nú þegar
kosningabarátta í Háskólanum fer í
hönd...
✓
I tengslum við brottrekstur útibús-
stjóra Búnaðarbankans á Selfossi,
Garðars Eiríkssonar, hefur
Guðni Ágústsson,
formaður banka-
ráðs, upplýst að
Garðar hafi brotið
starfsreglur og leyst
til sín eignir. Þá mun
yfirstjórn bankans
einnig hafa gert at-
hugasemdir við fyrirgreiðslu Garð-
ars til Hiimars Leifssonar bygg-
ingaverktaka, en hann er nú í gjald-
þrotameðferð. Það kom reyndar
ekki í veg fyrir að hann væri hæst-
bjóðandi þegar Framkvæmdasjóð-
ur íslands bauð eignir seiðaeldis
Smára til sölu í Þorlákshöfn fyrir
skömmu .. .
T
JL onleikar Bryan Adams 1 Laug-
ardalshöll hafa verið nokkuð til um-
ræðu, sérstaklega vegna þess hve
erfiðlega gengur að fá endur-
greiðslu á miðum á tónleikana, sem
þurfti að aflýsa vegna rafmagnsbil-
unar. í viðtali við DV gaf Haukur
Ársælsson hjá Rafmagnseftirlitinu
í skyn að rafmagnsbilunin væri
hljómsveitinni að kenna en eftirlitið
gæti ekkert sannað. Hins vegar
sagði hann: „... bilið milli fasa og
jarðar var of lítið — miklu minna en
á að vera samkvæmt reglum ...
Þetta er búið að vera svona óbreytt
í húsinu síðastliðið ár.“ í framhaldi af
þessum orðum velta menn því fyrir
sér hvers vegna Rafmagnseftirlitið
aðhafðist ekkert allan þennaii tíma
og hvort tryggingamiðlunin Lloyd’s
eigi ekki endurkröfu á Höllina fyrir
vikið...
Hótel ísland
og Steinar hf. ^53
kynna nýja stórsýningu á Hótel íslandi
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrirdansiad
skemmtun lokinni ásamt söngkonunum
Sigrúnu EvuA rmannsdóttur
og Bergiindi Björk Jónasdóttur.
Páll Óskar HJálmtýsson Bergllnd BJörk Jónasd.
Danlel Ágúst Haraldss.
Slgrún Eva Ármannsd.
Rúnar Júliusson
Móeiöur Júnlusdóttir Slgurður Pétur Harðars.
Pétur Krlstjánsson
AFTUR TIL FORTIÐAR
ÍSLENSKIR TÓNAR í 30 ÁR 1950-1980
Tugir laga frá gullöld íslenskrar dægur-
tónlistar fluttir af nokkrum bestu dægur-
lagasöngvurum landsins ásamt Dægur-
lagacombói Jóns Ólafssonar.
Húsiö opnað kl. 19.00.
Borðhald hefst kl. 20.00.
Sýning hefst kl. 22.00.
Dægúriagacombó Jóns Ólafssonar:
Ásgeir Óskarsson. EinarBragi Bragason, Haraldur
Þorsteinsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Jón Ólafsson,
Ólafur Hólm Einarsson, Stefán Hjörleifsson.
THE
BYRDS
A HOTEL ISLANDI
FÖSTUDAGINN 28. FEBRÚAR OG
LAUGARDAGINN 29. FEBRÚAR
Fyrsta lag sveitarinnar, Mr. Tambourine Man eft-
ir Dylan, sló í gegn og seldist á nokkrum vikum
í meira en 2 milljónum eintaka. Síðan kom hvert
lagið af öðru; Turn Turn, Turn, Eight Miles High,
So You Want to Be a Rock’n’Roll Star, Lady
Friend, lagið úr Easy Rider og Jesus It’s just All
Right with Me, svo að fáein séu nefnd.
Munið glæsllegustu gistlherbergi landslns
Herbergjabókanir s. 688999
FÖSTUDAGINN 7. FEBRÚAR OG
LAUGARDAGINN 8. FEBRÚAR
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá
og heyra í hinum stórkostlegu „The Platters“
Hver man ekki eftir lögum eins og The Great
Pretender, Only You, Smoke Gets in Your Eyes,
The Magic Touch, Harbor Lights, Enchanted,
My Prayer, Twilight Time, You’ll never Know,
RedSailsin theSunset, Remember When... o.fl.
ISLAND
Í^TEL ISLAND
Staður með stil
SCHOLTES OFNAR - ALDREI GLÆSILEGRI!
Bakstur
Með fullkominni hitastjórn
og nákvæmu loftstreymi
nærðu þeim árangri við
baksturinn sem þig hefur
alltaf dreymt um.
Ofnsteiking
Með innrauðum hita og
margátta loftstreymi færðu
steikina safaríka og fallega
brúnaða.
Glóðsteiking
Með innrauðum hita og
loftstreymi, sem líkir eftir
aðstæðum undir beru lofti,
nærðu útigrillsáhrifum allan
ársins hring.