Pressan - 06.02.1992, Side 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992
Vill lækka laun
lögmannsins
Ríkissaksóknari hefur
stefnt Knúti Bruun lögmanni
fyrir Hæstarétt, til að þola
lækkun á málsvarnarlaunum
sem Sakadómur Reykjavíkur
dæmdi honum. Knútur var
verjandi manns sem var
ákærður fyrir manndráp af
gáleysi. Dómarinn dæmdi
honum 80 þúsund krónur í
málsvarnarlaun. Þess ber að
geta að skjólstæðingur Knúts
var sýknaður af ákærunni.
Ríkissaksóknari áfrýjaði
dómnum til Hæstaréttar og
eins og áður sagði krefst
hann þess einnig að Knúti fái
lægri málsvarnarlaun.
Þrjá og hálfan
rúmmetra
vantar
Þrjá og hálfan rúmmetra
vantar upp á að Haraldur
Böðvarsson hf. á Akranesi
geti keypt nýjan frystitogara,
en til þess að geta fengið nýtt
skip þarf að úrelda jafnstórt
skip eða selja úr landi. Tíma-
bundin undanþága hefur
fengist frá lögunum en í milli-
tíðinni þarf Haraldur Böðv-
arsson að úrelda þrjá og hálf-
an rúmmetra af einhverju
skipa sinna.
150 milliónir
fyrir Gutenberg
Sala ríkisfyrirtækja hefur
nú verið sett í nefnd þar sem
sitja Hreinn Loftsson, Björn
Fridfinnsson og Steingrímur
Ari Arason. Meðal annars á
að selja Gutenberg en þar er
100% hlutur ríkisins metinn á
150 milljónir. Einnig á að
selja 18% hlut í Endurvinnsl-
unni og hlut í Bifreiðaskoðun-
inni. 50% hlutur í Jarðborun-
unum er metinn á 250 millj-
ónir og 33% hlutur í Ferða-
skrifstofu íslands er metinn á
30 milljónir.
Þriðja hver
króna í hönnun
og eftirlit
Ljóst er að hönnunar- og
eftirlitskostnaður við við-
gerðir á Þjóðleikhúsinu hefur
slegið íslandsmet ef ekki
heimsmet. í nýlegri úttekt
Ríkisendurskoðunar kemur
fram að í fyrsta áfanga var
þessi kostnaðarliður upp á
34% — þriðja hver króna fór
í hann. Leitar Ríkisendur-
skoðun samanburðar við
Noreg og kemur þá í ljós að
þetta er rúmlega heimingi
hærra en þarlend viðmið.
Stjórnarfundur í Kvikmyndasjóði
HRAFNTI
ffHIGUN
Fyrirspurnir um brottnumin handrit
og píslarlega greinargerð vegna styrks
sem hann hlaut
Á stjórnarfundi Kvik-
myndasjóðs íslands á þriðju-
dag var fjallað um ýmis mál
sem tengjast styrkveitingum
til Hrafns Gunnlaugssonar.
Meðal þess sem tekið var til
athugunar var hvarf á hand-
ritum sem fylgdu nýlegum
styrkumsóknum Hrafns og
yfirlit sem hann hafði skilað
vegna 4,5 milljóna undirbún-
ingsstyrks sem hann hlaut
fyrir tveimur árum. Hvort
tveggja málið þótti þannig
vaxið að frekari skýringa
væri þörf frá Hrafni og var
stjórnarformanninum, Ragn-
ari Arnalds, falið að fylgja
þeim eftir.
HANDRITIN HEIM
Áðurnefnd handrit voru í
vörslu í skjalasafni Kvik-
myndasjóðs, en í síðustu viku
kom Hrafn á skrifstofur sjóðs-
ins og hafði þau á brott með
sér. Handritin eru fylgiskjöl
með umsóknum Hrafns og
eru meðal annars höfð til
hliðsjónar í eftirliti sjóðs-
stjórnar með veittum styrkj-
um. Aðgang að þessum gögn-
um hafa starfsmenn sjóðsins
og stjórnarmenn. Hrafn situr
í stjórn Kvikmyndasjóðs, en
gögnin teljast eign sjóðsins
og ekki eru fordæmi fyrir því
að þau hafi verið fjarlægð.
Meðal þess sem Hrafn fjar-
lægði var handrit að Hinum
Ragnar Arnalds: Margt rætt
á stjórnarfundum og fæst
útrætt.
helgu véum, en Hrafn hlaut
nýlega 21 milljónar krónu
styrk til gerðar þeirrar mynd-
ar.
Heimildir PRESSUNNAR
herma að formanni sjóðs-
stjórnar, Ragnari Arnalds,
hafi verið falið að inna Hrafn
eftir handritunum og sjá til
þess að þau komist aftur til
síns heima.
TVÆR TÖLUR Á BLAÐI
Á þessum sama stjórnar-
fundi var lagt fram yfirlit frá
Hrafni vegna 4,5 milljóna
undirbúningsstyrks sem
hann hlaut fyrir tveimur ár-
um vegna myndarinnar Písl-
arsaga Jóns Magnússonar.
Fyrr í vetur hafði stjórn sjóðs-
ins falið úthlutunarnefnd að
sækjast eftir greinargerðum
vegna styrkja sem veittir hafa
verið án þess að úr hafi enn
orðið kvikmynd. PRESSAN
hefur áður skýrt frá því að
greinargerðir vantar frá
nokkrum aðilum, en á stjórn-
arfundi í síðustu viku kom
fram sérstök fyrirspurn um
greinargerðina frá Hrafni.
Hún var lögð fram á þessum
fundi i formi tveggja blaða,
fyrir árin 1990 og 1991. Bæði
blöðin eru árituð af endur-
skoðanda. Á þeim eru tvær
tölur, annars vegar styrkupp-
hæðin og hins vegar útgjöld
vegna undirbúnings og munu
Hrafn heimsótti skrifstofur Kvikmyndasjóðs og fjarlægði
handrit úr skjalasafninu.
útgjöldin vera hærri en sem
styrknum nam. Yfirlitinu
fylgdi hins vegar ekki sund-
urliðun eða nánari greinar-
gerð og þótti stjórninni
ástæða til að halda málinu
vakandi þar til frekari skýr-
ingar fást.
Yfirlit Hrafns vegna ársins
1990 barst úthlutunarnefnd
fyrr i vetur, en hið seinna
ekki fyrr en nefndin hafði
tekið ákvörðun um styrkveit-
ingar í ár. Nefndin virðist því
hafa ákveðið að veita Hrafni
styrk án þess að hafa viðhlít-
andi vitneskju um hvernig
síðasta styrk, sem honum var
veittur, var varið.
ENN TIL MEÐFERÐAR
Eins og áður sagði situr
Hrafn Gunnlaugsson í stjórn
sjóðsins, en hann vék af fundi
þegar til umræðu komu mál
sem tengdust honum beint.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst PRESSUNNI ekki að ná
tali af honum. Ragnar Arn-
alds vildi ekkert tjá sig um
efni fundarins í samtali við
PRESSUNA. Hann sagði
margt hafa verið rætt, en fæst
af því útrætt. Hann sagði
sjóðinn vilja hafa eftirlit með
því fé sem veitt væri til kvik-
myndagerðar, en að allt sem
fram færi á stjórnarfundum
væri trúnaðarmál.
Því má bæta við að á fund-
inum ákvað stjórnin einróma
að fundargerðir hennar yrðu
eftirleiðis gerðar opinberar.
Karl Th. Birgisson
D E B E T
,,Ég hef alltaf metið Pétur. Hann er hugkvæmur
og hugmyndaríkur, sem þó ekki alltaf sést, því
hann er ákafamaður. Hann er góður drengur,
heiðarlegur og skemmtilegur ferðafélagi . . .
hann er hressilegur persónuleiki og ekkert
nema gott um hann að segja," segir dr. Gunn-
laugur Þórðarson, ferðafélagi og hefur jafn-
framt þekkt Pétur lengi. „Pétur er dugnaðar-
forkur sem vill framkvæma hlutina hratt og vel,“
segir Haukur Hauksson varaflugmála-
stjóri. „Samstarf við hann hefur þróast mjög vel
síðustu ár. Hann hefur verið fylginn sjálfum sér
og röggsamur," segir Kári Guðbjörnsson,
flugumferðarstjóri og flugmaður hjá Flug-
umferðarstjórn. „Maður hefur alltaf vitað
hvar maður hefur hann og aldrei efast um af-
stöðu hans. Öll viðskipti mín við hann hafa verið
af því sæmilega," segir Skúli Alexandersson,
fyrrverandi alþingismaður og situr nú í
flugráði. „Hann er skemmtilegur ferðafélagi
og fullur af vísum og fróðleik. Við höfum verið
saman á fundum með erlendum embættis-
mönnum og með „orginalleik" sínum hefur hon-
um oft tekist að heilla þá. Þeir eru ekki vanir
svona mönnum," segir Pétur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða.
Pétur Einarsson
flugmálastjóri
K R E D I T
„Það er ólíkt honum að gefast upp, því ég tel
hann mann sterkan," segir Gunnlaugur Þórð-
arson. „Að eðlisfari er Pétur óþolinmóður,
sem hefur valdið samstarfsárekstrum við
framkvæmd mála,“ segir Haukur. „Hann er
oft heldur fljótfær og stífur,“ segir Kári.
„Vera má að hann hafi ekki alveg lund til að
sinna félagslegri framkvæmdastjórn í því
hlutverki sem hann er í. Hann hefur nokk-
uð stífa lund, þótt það hafi ekki endilega
alltaf komið að sök,“ segir Skúli. „Okkur
sinnaðist heilmikið í blöðum og mér fannst
hann ekki taka nógu vel á málum. Hann
fylgdi of mikið persónulegri hentistefnu,
en hann var að sjálfsögðu ekki sammála,“
segir Pétur.
Pétur Einarsson, sagði af sér sem tlugmálastjóri i síðustu viku