Pressan - 27.02.1992, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 27. FEBRÚAR 1992
FYRSI FREMST
FR.ÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON. Vantar fó til að stunda lobbýisma í Bandaríkjunum.
ÓLAFUR G. EINARSSON. Kríar hann peninga handa Friðriki út úr ríkisstjómlnni?
BÖRN NÁTTÚR-
UNNAR FYRIR
RÍKISSTJÓRN
Á borði menntamálaráð-
herra liggur nú beiðni frá Frið-
riki Þór Friðrikssyni kvik-
myndagerðarmanni og að-
standendum Bama náttúrunnar
um að ríkissjóður veiti styrk til
að kynna myndina vikumar
áður en Oskarsverðlaunin
verða afhent. Helstu forsendur
styrkbeiðninnar em þær að
baráttan fyrir Óskarsverðlaun-
unum sé ekki sfst háð með til-
stilli fjölmiðla, auglýsinga og
allskyns „lobbýisma". I
Bandarikjunum sé kvikmynda-
gerð bisness og þvf dugi ekki
nnur meðul til að vekja nauð-
synlega athygli. Bent er á að
Danir hafi haft þennan hátt á
með Palla sigurvegara, Sviss-
lendingar með Veg vonar og
ítalir með Paradísarbíóið; þeir
hafi fengið kynningarfyrirtæki
sem kann á hnútana í Ameríku
til að breiða út boðskapinn og
notið til þess einhverrar opin-
berrar fyrirgreiðslu. Þessar séu
einfaldlega reglur leiksins.
Það er einmitt þetta sama
kynningarfyrirtæki og Danir,
ítalir og Svisslendingar skiptu
við sem Friðrik Þór mun hafa
augastað á. Hængurinn er bara
sá að svona umsýsla er dýr. Því
gripur hann semsagt til þess
ráðs að leita til ráðuneytisins,
en Kvikmyndasjóður er vart
talinn hafa bolmagn til að
leggja fram fé í þessu skyni.
Eftir því sem PRESSAN
kemst næst er það umtalsverð
upphæð sem sótt er um í ríkis-
sjóð.
Talið er víst að gengið verði
frá málinu hið snarasta, af eðá
á. Ólafur G. Einarssoh mun
líklega kynna málið fyrif sam-
ráðherrum í dag, fimmtúdag,
og er ákvörðunar þá að vænta
af ríkisstjómarfundi öðru
hvoru megin við helgina,
INGVIHAFÐI
EKKIÁHUGA
Mörgum hefur þótt fram-
ganga Ingva Ingvarssonar
sendiherra í máli Eðvalds
Hinrikssonar hin einkenni-
legasta. í upphafi atburðarásar
var hermt að ísraelska utanrík-
isráðuneytið hefði látið af-
henda Davíð Oddssyni bréf
Wiesenthal-stofnunarinnar
strax og hann lenti í ísrael. Þvf-
líkur málatilbúnaður vakti
óskaplega hneykslun á fslandi
og varð kveikjan að þeim um-
mælum Jóns Baldvins Hanni-
balssonar að í sporum Davíðs
hefði hann tekið leigubfi rak-
leitt út á flugvöll aftur. Af
þessu varð slíkt fjaðrafok að
meginatriðið, sjálft mdl Eð-
valds, féll eiginlega í skuggann
nokkra daga. Nú er komið á
daginn að þetta var argasti
misskilningur sem Ingva hefði
lfklega verið í lófa Iagið að
leiðrétta mun fyrr.
Þannig hefði hann getað
sparað mörgu fólki mikla
geðshræringu. Hið sanna er að
starfsmaður á gestamóttöku
hótelsins þar sem forsætisráð-
herra dvaldi afhenti Ingva um-
slag. í því var bréfið til Davíðs
og minnisblað til Ingva, þar
sem hann var beðinn að koma
bréfinu til skila. Á minnisblaö-
inu stóð líka að starfsmaður
Wiesenthal-stofnunarinnar,
líklega Efraim Zuroff fram-
I SAMA FORMI
OG ÞEGAR ÉG VAR 25
„Ég er í jafngóðu formi núna og þegar ég
var 25 ára. Ég á mörg, mörg ár eftir enn,“
sagði Alfreð Gíslason handboltakappi.
Samt ætlar hann ekki með landsliðinu í B-
keppnina f Austurríki í næsta mánuði.
En hvers vegna?
„Að vissu leyti vildi ég
fara, en mér finnst ég
ekki eiga erindi. Það
er búið að vera að
byggja upp ungt
landslið f tvö eða
þrjú ár og mér
þykir eins og
þessum strákum
sé ekki treyst.
Fari svo að
þessir yngri
menn komist ekki
með þá mun ég
eiga erfitt með að
segja nei.“
Hvers vegna hefur þú ekki svarað ákveðið
fyrr?
„Það var búið að biðja mig lengi að gefa
ekkert upp, þrátt fyrir að ég hafi fyrir löngu
ákveðið að vera ekki með.“
Er ekki gaman að vera svona eftirsóttur?
Nei, það er það ekki. Ætli ég sé ekki
vaxinn upp úr því.“ Alfreð er að
verða þrjátíu og þriggja ára. Hann
var kjörinn leikmaður B-keppn-
innar eftirminnilegu í Fraidc-
landi og kjörinn Iþróttamaður
ársins 1990.
„Þorbergur Aðalsteinsson
er að velja á milli æsku, hæfi-
leika og reynslu. Hann er bú-
inn að fá Stjána, sem hefur
þennan ágæta fæðingargalla
að vera örvhentur, og þar er
Þorbergur búinn að fá þá reynslu
sem hann þarf. Ég óska þess að
liðinu gangi vel í Austurríki"
kvæmdastjóri, vildi gjaman
hitta Ingva að máli stutta
stund.
Þetta var ítrekað í símtali
morguninn eftir. Ingvi var hins
vegar ekki á þeim buxunum,
heldur bar fyrir sig nnum „aUk
þess sem ég hafði raunar engan
áhuga á að hitta hanrí', eins og
hann segir sjálfur. Ingvi sagði
að stofnuninn gæti í staðinn
sent sér frekari upplýsingar í
pósti.
TEKUR EKKIVIÐ
$0 MILLJÓNUM
Þrátt fyrir að nú sé langt síð-
an bæjarstjóm Bolungarvíkur
samþykkti að lána fyrirtæki
Elnars Guðfinnssonar 100
milljónir virðist fyrirtækið
ekkert vera að flýta sér að taka
við peningunum. Fyrri 50
milljónimar voru greiddar út á
gamlársdag og fóm að mestu í
að greiða opinber gjöld aftur til
sveitarfélagsins. En Einar
Jónatansson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, hefur ekki
enn sótt seinni 50 milljónimar.
Það vafðist reyndar fyrir for-
ráðamönnum fyrirtækisins að
leggja fram 25 milljóna króna
tryggingabréf fyrir fyrra lán-
inu, en eftir að bæjarstjómin
barði f borðið var það gert.
HEPPINN OG
ÓHEPPINN
DÓMARI
Sigurður Hallur Stefáns-
son, héraðsdómari í Keflavík,
er sjálfsagt óheppnasti maður
vikunnar. Þegar tilvonandi
dómendur í héraðsdómi
Reykjaness gengu til atkvæða
um hver skyldi verða dóm-
stjóri fékk hann fjögur atkvæði
en Már Pétursson, bæjarfóg-
eti í Hafnarfirði, fékk fimm.
Sigurður fór í fýlu eftir at-
kvæðagreiðsluna og sagði af
sér. Þegar Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra settist niður
til að skipa í stöðuna komst
hann hins vegar að því að ekki
væri hægt að skipa Má vegna
hegðunarbrota og skorts á allri
yfirbót. Þá hefði verið eðlileg-
ast að skipa Sigurð en það var
ekki hægt þar sem hann hafði
sagt upp og kæmi því ekki til
með að eiga sæti í dómnum.
En ekki minni en óheppni Sig-
urðar var heppni Ólafar Pét-
ursdóttur, héraðsdómara í
Kópavogi. Þorsteinn skipaði
hana þótt enginn dómendanna
hafi greitt henni atkvæði. Ekki
einu sinni Ólöf sjálf.
FJÖLSKYLDUHÁ-
TÍÐ f ÓSKASTUND
Listafólk úr Garðabæ mun
vera afar ósátt við hvemig
staðið var að síðustu Óska-
stund á Stöð 2. Garðbæingar
skipuðu fimm manna
skemmtinefnd en hitann og
þungann af starfi hennar bar
stúlka sem heitir Ragnheiður
Elín Clausen. Hún leitaði ekki
langt yfir skammt þegar hún
fann skemmtikrafta í þáttinn.
Ragnheiður er dóttir Hauks
Clausen. Bróðir Hauks er, eins
og alþjóð veit sjálfsagt, Örn
Clausen en dóttir hans söng í
þættinum. Með henni söng Jó-
hann Sigurðarson leikari en
hann er í sambúð með annarri
dóttur Amar. í þættinum lék
einnig Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson píanóleikari en hann
er bróðir Jóhanns og raunar
líka sambýlismaður þeirrar
dóttur Amar sem söng í þætt-
inum. Að lokum kom fram
Ragnheiður Erla Bjarna-
dóttir, prestur og spuminga-
leikjasérfræðingur, en hún er
náfrænka Ragnheiðar Elínar.
Listafólki í Garðabænum
finnst, mörgu hverju, að frek-
lega hafi verið framhjá því
gengið. Þá munu skólamenn í
Garðabæ ekki vera alltof hrifn-
ir af frammistöðu skemmti-
nefndarinnar en ekki var at-
hugað hvort nemendur hefðu
eitthvað fram að færa.
EINAR JÓNATANSSON. Helur ekki haft fyrir því afl sækja milljónimar sfnar. MAR PÉTURSSON. Fékk flest atkvæði. en Þorsteinn taldi hann kolómögulegan. ÓLÖF PÉTURSDÓTT-
IR. Enginn greiddi henni atkvæöi. ekki einu sinni hún sjálf. en samt fékk hún stðöuna. DAVÍÐ ÓDDSSÓN. Maöurinn í gestamóttökunni tók aö sér aö afhenda bréfiö. JÓHANN SIG-
URÐARSÓN Skemmti fyrlr hönd Garöabæjar. PORSTEINN GAUTI SIGURÐSSON. Hélt líka uppi nafni Garöabæjar - og fjölskyldunnar.
Jón, hefði ekki verið
nær að geyma sil-
ungana í steininum?
„Það er ekki víst að það
hefði dugað. Þeir tiöguðu
sig í gegnum grjót til að
sleppa frá okkur. “
Um tíu þúsund regnbogasil-
ungar sluppu úr tjörn í
Hvammsvík í Hvalfirði og
syntu á haf út. Hvammsvík er í
eigu Lögreglufélags Reykja-
vlkur. Jón Pétursson er for-
maöur félagslns.
L í T I L R Æ Ð I
Af gæðastjórnun á
Ef marka má fjölmiðla, eru
ástamál að verða einn alvar-
legasti vandinn í rekstri fyrir-
tækja, stórra og smárra, Kyn-
ferðisleg áreitni skilst mér sé
að verða citthvert alvarleg-
asta vandamálið í mörgum
stórfyrirtækjum og getur
truflað rekstur og markvissan
framgang fyrirtækja alvar-
lega vegna þess að á meðan
kynferðisleg áreitni á sér stað
er venjulega bæðl gerandinn
og þolandinn óstarfhæfur.
Sama má segja um skyndi-
kynni á vinnustað. lauslæti,
framhjáhald og allskonar ást-
arumsvif í vinnutímanuth, í
kústaskápnum, bakvið hurðir
og um allar trissur annars-
staðar en þar sem fólki er
borgað fyrir að vera í vinnu-
tímanum, hvort sem það nú er
í fjósinu, við flatningsborð,
færiband, skrifborð eða síma.
Fyrir skömmu birtist í DV
stórmcrkileg og tímabær
opnugrein þar sem fyrrver-
andi starfskraftur hins opin-
bera lýsir hörmulegum afleið-
ingum ástarsambands á
vinnustað. Héreru sannarlega
orð í tíma töluð því í þessari
þörfu ritsmíð er sannarlega
vikið að miklu þjóðarböli.
Svo hin merkilega harmsaga
konunnar sé nú rakin í stórum
dráttum, þá virðist ástarbrími
hafa rekið hana til að hefja,
gegn vilja sínum, ástarsam-
band við samstarfsmann sinn
í vinnunni án vitundar maka
og við hin verstu skilyrði.
Samkvæmt þessu merkilega
og tímabæra viðtali kom að
því að elskendumir undu ekki
lengur aðstöðunni á vinnu-
stað og var þá konunni nauð-
ugur einn kostur að láta ást-
mann sinn neyða sig til að
taka á leigu „ástarhreiður" til
að njóta ástarinnar með
vinnulélaganum sem borgaði
íbúðina og hún. gegn vilja
sínum. unni hugástum. Allt
hefði þetta nú verið í stakasta
lagi ef markviss starfsemi
hinnar opinberu stofnunar
hefði ekki öll gengið úr
skorðum á meðan á þessum
ósköpum stóð. Starfsliðið
óstarfhæft: eiginkonur og eig-
inmenn. sambýiiskonur og
sambýlismenn. vinir, vanda-
menn. elskendur og aðrir
samstarfsmenn.
Mér kom þessi miðopnu-
harmleikur í hug þegar ég las
í viðskiptakálfi Morgun-
blaðsins að verið væri að
setja á laggimar „gæðastjóm-
unarbraut" við Háskólann á
Akureyri. Nú em ást og gæði
greinar af sama meiði og í
rekstri fyrirtækja er jafn mik-
ilvægt að hafa stjóm á ástinni
einsog gæðunum. Persónu-
lega finnst mér að stjóm á ást
og stjómun á gæðum í rekstri
fyrirtækja lúti nákvæmiega
sömu lögmálum. Þessu til
staðfestingar mun ég ljúka
þessu greinarkomi með til-
vitnun í viðskiptakálf Morg-
unblaðsins en aðeins gera þá
bragarbót að setja allsstaðar
orðið „ást" þarsem í fréttinni
stendur „gæði". Fréttin er
semsagt um það að Eimskip-
afélag íslands hafi tekið upp
gæðastjómun. („gæði" =
„ást") Eimskipafélag íslands
tekur upp ástarstjómun. Virk-
ari boðleiðir koma í veg fyrir
múra milli deilda. Forráða-
menn Eimskips hafa ákveðið
að taka upp aðferðir altækrar
ástarstjómunar. í upphafi var
myndað ástarráð, sem hefur
það hlutverk að móta stefnu
félagsins í ástarmálum og sjá
um framvindu þeirra ástar-
verkefna sem unnið er að. í
ástarrúðinu sitja Hörður Sig-
urgestsson og framkvæmda-
stjóramir þrír. Þá var stofnuð
sérstök deild; ástarstjómunar-
deild. er starfar í umboði ást-
arráðs og hevrir beint undir
forstjóra. Líklegt er að reið-
arslagið sem varð tilefni
opnuviðtalsins í DV hefði
aldrei dunið yfir. ef fvrinæk-
ið. sem var vettvangur þess
harmleiks. byggi við gæða-
stjómun ergo ástarstjórnun á
við þá sem Eimskipafélag fs-
lands hefur nú tekið upp. Um
gæðastjómun á ást á vinnu-
stað er þetta að segja:
Ast er vond á vinnustað
veldur þreytu og mæði.
Með gæðastjórnun gerum það
sem gera þarf í næði.